Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
FH
2
3
Víkingur R.
Ástbjörn Þórðarson '26 , sjálfsmark 0-1
Oliver Heiðarsson '28 1-1
1-2 Nikolaj Hansen '89
2-2 Ingvar Jónsson '90 , sjálfsmark
2-3 Nikolaj Hansen '91
01.10.2022  -  16:00
Laugardalsvöllur
Mjólkurbikar karla - Úrslitaleikur
Aðstæður: Skýjað og 10° annars ekkert hvasst
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 4381
Maður leiksins: Nikolaj Hansen (Víkingur)
Byrjunarlið:
32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
4. Ólafur Guðmundsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson ('99)
9. Matthías Vilhjálmsson (f) ('90)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Davíð Snær Jóhannsson
16. Guðmundur Kristjánsson
22. Oliver Heiðarsson ('80)
22. Ástbjörn Þórðarson ('106)
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('78)
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('78)

Varamenn:
1. Gunnar Nielsen (m)
3. Haraldur Einar Ásgrímsson ('106)
7. Steven Lennon ('78)
8. Kristinn Freyr Sigurðsson ('78)
8. Finnur Orri Margeirsson
17. Baldur Logi Guðlaugsson ('80)
23. Máni Austmann Hilmarsson ('90)

Liðsstjórn:
Eiður Smári Guðjohnsen (Þ)
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Ólafur H Guðmundsson
Róbert Magnússon
Fjalar Þorgeirsson
Jóhann Ægir Arnarsson
Jóhann Emil Elíasson
Heiðar Máni Hermannsson

Gul spjöld:
Guðmundur Kristjánsson ('58)
Ólafur Guðmundsson ('110)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
VÍKINGAR ERU BIKARMEISTARAR 2022.
120. mín
2 mínútur í uppbót
119. mín
Fín sókn frá FH þar sem Davíð nær fínu skoti en þetta endar bara í markspyrnu.
118. mín
Inn:Gísli Gottskálk Þórðarson (Víkingur R.) Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
117. mín
FH reynir að þjarma að marki Víkinga en síðasta sendingin er ekki alveg að ganga upp.
115. mín
FH fær aðra hornspyrnu nú þarf eitthvað að fara gerast hjá þeim.

Kiddi tekur spyrnuna en drífur ekki yfir fyrsta mann.
Anton Freyr Jónsson
111. mín
Frábær bolti innfyrir

FH reynir að hreinsa en í staðin kemur boltinn bara beint til baka og setur Arnór í gegn.

Arnór tekur þá skotið en það er varið í horn.

Það kemur svo góður skalli úr hornspyrnunni en rétt framhjá.
110. mín Gult spjald: Ólafur Guðmundsson (FH)
Víkingar alveg brjálaðir. Óli full seinn og keyrir í Arnór.
109. mín
FH fær hornspyrnu

Jóhann nær skallanum eftir fína spyrnu en Ingvar er vel á verði og ver.
106. mín
Inn:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.) Út:Pablo Punyed (Víkingur R.)
106. mín
Inn:Haraldur Einar Ásgrímsson (FH) Út:Ástbjörn Þórðarson (FH)
105. mín
+2

Fyrri hálfleikur framlengingar búinn og nú skipta liðin um vallarhelming.
105. mín
+1

uppbótartíminn er 2 mínútur.
105. mín
Logi setur þá boltan inn í teig þar sem Niko setur boltan framhjá.
105. mín
Þá fá Víkingar hornspyrnu.

Logi tekur spyrnuna, þeir taka þetta stutt og Logi fær aftur boltan.

Hann tekur skotið en það er varið og annað horn.
104. mín
FH fær hornspyrnu þegar lítið er eftir af fyrri hálfleik framlengingar.

Spyrnan kemur inn í teig en Ingvar kemur út og grípur boltan.
Anton Freyr Jónsson
102. mín
FH sendir fyrir frá vinstri kantinum og Kiddi freyr nær skallanum en það er beint á Ingvar.
101. mín

Anton Freyr Jónsson
100. mín







Anton Freyr Jónsson
100. mín
FH að gera allt til að reyna skapa sér færi en síðasti boltinn er ekki alveg að ganga upp hjá þeim núna.
99. mín
Inn:Jóhann Ægir Arnarsson (FH) Út:Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
Hafsenta breyting.
98. mín
Víkingar fá aukaspyrnu við hlið teigs FH-inga eftir góða vinnu frá Helga.

Pablo tekur spyrnuna en það er skallað frá.
95. mín
FH með tilraun að fyrirgjöf en Ingvar er sterkur og grípur boltan.
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
91. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Þetta tók ekki langan tíma!

Logi Tómasson kemur með frábæran bolta fyrir teig og Nikolaj setur boltan yfir Atla. Alveg hægt að setja spurningamerki við hann þarna.

STURLAÐUR BOLTI FRÁ LOGA!
91. mín
Framlengingin er byrjuð.
90. mín
Inn:Máni Austmann Hilmarsson (FH) Út:Matthías Vilhjálmsson (FH)
Anton Freyr Jónsson
90. mín


ÞVÍLÍKA DRAMATÍKIN MAÐUR LIFANDI!!
Anton Freyr Jónsson
90. mín
+3
Venjulegum leiktíma er lokið og við erum á leiðinni í framlengingu!

Ótrúlegar senur hér á lokamínútunum!
Anton Freyr Jónsson
90. mín
Uppbótartíminn er 3 mínútur.
Anton Freyr Jónsson
90. mín SJÁLFSMARK!
Ingvar Jónsson (Víkingur R.)
Hvað er að gerast hérna!!

Ástbjörn nær með einhverri ótrúlegri harðfylgni að komast í boltann og reynir að setja boltan fyrir. Ingvar fer svo rosalega ill mað þetta og ýtir boltanum bara í eigið net.

Anton Freyr Jónsson
89. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Pablo Punyed
Víkingar mögulega að tryggja bikarinn heim

Logi kemur með sendingu fyrir frá vinstri kantinum og Pablo skallar boltan áfram.

Niko er svo réttur maður á réttum stað og þarf ekki að gera mikið þetta var svokallað tap in



88. mín
Víkingar sækja hratt og Arnór keyrir upp með boltan en hann tekur kolranga ákvörðun og skýtur þegar það hann er full langt frá marki og það fer langt framhjá.
86. mín
FH nær að skapa smá hættu ú þessu þar sem Eggert setti boltan inn á teginn eftri aukaspyrnuna og Ingvar þurfti að blaka boltanum framhjá.
85. mín Gult spjald: Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
FH fær aukspyrnu í fínni fyrirgjafastöðu
83. mín
Dauðafæri fyrir Víkinga!

Aftur er það Arnór sem kemur upp hægri kantinn en núna setur hann boltan fyrir þar sem Helgi er aleinn og yfirgefinn.

Skotið hans fer svo bara rétt framhjá.
82. mín
Hvað er í gangi í vörn FH

Arnór keyrir upp hægri kantinn og reynir að fara framhjá Ólafi en hann nær að loka á hann.

Þá ætlar hann að láta Atla hafa boltan en það verður rosalegur misskilingur og Víkingar ná næstum að pota boltanum í markið.
80. mín
Inn:Baldur Logi Guðlaugsson (FH) Út:Oliver Heiðarsson (FH)
78. mín
Inn:Kristinn Freyr Sigurðsson (FH) Út:Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
78. mín
Inn:Steven Lennon (FH) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (FH)
77. mín
Víkingar fá hornspyrnu og Logi tekur.

Boltinn fer beint á kollinn á Kyle en hann skallar yfir.
Anton Freyr Jónsson
75. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Birnir Snær Ingason (Víkingur R.)
75. mín
Inn:Arnór Borg Guðjohnsen (Víkingur R.) Út:Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
75. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)
73. mín
Víkingar byggja upp fína sókn. Þeir fara upp vinstri kantinn og setja svo boltan út á Danijel sem tekur skot fyrir utan teig en Atli ver.
70. mín
FH fær hornspyrnu sem Björn Daníel tekur.

Boltinn fer inn á teig en beint í hendurnar á Ingvar.
68. mín
Víkingar fá aukaspyrnu á miðjum vallarhelming FHinga.

Boltinn fer inn á teig en það verður ekkert úr þessu.
66. mín

Anton Freyr Jónsson
65. mín
Það er algjör einstefna að marki FH núna og Hafnfirðingar eiga erfitt með að tengja saman sendingar núna.
59. mín
Danijel tekur sjálfur skotið úr spyrnunni en boltinn var aldrei á leiðinni á markið og það er markspyrna.
58. mín Gult spjald: Guðmundur Kristjánsson (FH)
Brýtur á Danijel og Víkingar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.
57. mín
FH fær hornspyrnu sem Björn Daníel tekur.

Víkingar skalla frá en boltinn dettur fyrir Davíð sem tekur slakt skot framhjá markinu.
56. mín
Víkingar koma mun sterkari inn í þennan seinni hálfleik. Virðast ætla skapa sér færi alltaf þegar þeir koma fram.
54. mín
Víkingar enn og aftur að skapa stórhættu. Birnir keyrir upp vinstri kantinn og hann finnur Luigi inn í teig.

Henn setur svo boltan fyrir markið milla markmanns og varnarlínu en það kemst enginn í boltan.
52. mín

Anton Freyr Jónsson
50. mín
Hvernig er þetta ekki mark!

Logi tekur hornspyrnu fyrir Víkinga sem fer beint á kollinnn á Kyle sem nær frábærum skalla.

Atla tekst alveg ótrúlega að verja boltan í stöngina og svo dettur boltinn laus fyrir framan markið en enginn Víkingur nær að koma boltanum yfir línuna.
Anton Freyr Jónsson
47. mín
Júlís liggur smá þjáður eftir samstuð við Davíð en hann heldur áfram leik.
46. mín
Seinni hálfleikurinn farinn af stað!
45. mín

Anton Freyr Jónsson
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleik lokið í æsispennandi leik. Það er ljóst að mikið er undir og mönnum er heitt í hamsi! 1-1 núna en við sjáumst eftir korter.
45. mín
+1
FH fær aukspyrnu rétt frá hornfánanum þegar það er lítið eftir af hálfleiknum.

Björn Daníel tekur spyrnuna og skallin frá Ólafi fer rétt framhjá.
45. mín
Uppbótartíminn verður að lágmarki 1 mínúta.
45. mín
Víkingar með flottar sendingar upp völlinn og ná að skapa fínt skotfæri fyrir Danijel en skotið hans fer framhjá.
44. mín

Anton Freyr Jónsson
44. mín

Anton Freyr Jónsson
41. mín
Víkingar missa boltan út hornspyrnunni og Oliver sprettir alla leið upp völlinn.

Hann setur svo stórhættulegan bolta inn á teig en það kemst enginn í boltan og hann lekur útaf í innkast.
41. mín

Anton Freyr Jónsson
40. mín

Anton Freyr Jónsson
39. mín
Stórhættuleg stungusending inn á Pablo sem nær ekki að koma boltanum á samherja og í staðin fá Víkingar hornspyrnu.
39. mín


Anton Freyr Jónsson
39. mín




Anton Freyr Jónsson
38. mín
Boltinn fer teigana á milli núna og mikill hraði kominn í leikinn. Víkingur fær aukaspyrnu eftir að Ólafur brítur frekar harkalega á Viktori. Ívar ákveður að taka ekki upp spjaldið og Víkingar mjög ósáttir við það.
37. mín
Vuk tekur skotið úr spyrnunni en það fer bara rétt framhjá.
35. mín
FH fær aukaspyrnu á virkilega hættulegum stað.
32. mín Gult spjald: Pablo Punyed (Víkingur R.)
Fyrir brot á Matta sem liggur frekar þjáður eftir en virðist ætla halda áfram leik.
31. mín
Hættuleg sending inn í teig sem fer á fjær.

Logi nær í þennan bolta en hittir hann ekki nógu vel á volleyinu og skýtur framhjá.
Anton Freyr Jónsson
28. mín MARK!
Oliver Heiðarsson (FH)
Þá er allt orðið jafnt!

FH með flotta sókn þar sem Oliver kemst í gegn frá hægri kantinum.

Hann tekur gott skot sem fer af Ingvari, í stöngina og inn.
26. mín SJÁLFSMARK!
Ástbjörn Þórðarson (FH)
Víkingar eru komir yfir!!

Þeir sækja hratt upp hægri kantinn og Danijel setur boltan inn á teig þar sem Pablo er fyrstur í boltan.

Atli virðist ætla verja þetta en Ástbjörn rekur sig í boltan og setur hann í eigið net.

Anton Freyr Jónsson
18. mín
Allt að gerast núna!

Langur bolti fram hjá Víkingum og þeir setja Pablo í gegn!

Pablo er þá einn gegn markmanni en hann hittir boltan alveg hrikalega illa líka og setur hann framhjá.
17. mín
Dauðafæri fyrir FH

Oliver Heiðarsson fær boltan á hægri kantinum og kemur með frábæra fyrirgjöf beint á Davíð sem er aleinn inn í teig.

Davíð hittir boltan bara alveg hrikalega illa og skýtur framhjá.
17. mín
Víkingar í virkilega flottri sókn!

Þeir spila boltanum á milli sín rétt fyrir utan teig og þetta enda á að Ari tekur skot sem fer rétt framhjá!
12. mín
Meiri hasar að færast í leikinn. Tæklingar fljúga inn hægri vinstri en Ívar ætlar að leyfa leiknum að fljóta.
8. mín
Hættuleg sókn hjá Víkingum!

Ari keyrir upp hægri kantinn og kemur með góða fyrirgjöf í áttina að Erlingi en Gummi Kri nær að pota boltanum útaf í hornspyrnu.

Ekkert kom úr þeirri hornspyrnu
6. mín
Pablo Punyed tekur spyrnuna en hún fer of djúpt og Atli kemur út úr markinu og handsamar þennan bolta.
6. mín
Víkingar fá aukaspyrnu í mjög fínni stöðu fyrir fyrgjöf.
5. mín
FH með fína sókn þar sem þeir vinna vel saman Oliver og Davíð á hægri kantinum. Davíð kemur svo með frekar hættulegan bolta inn í teig en Ingvar er vel á verði og hann gtípur þennan bolta.
2. mín
Víkingar byrja vel og halda boltanum innan síns liðs. Þeir reyna að sækja upp vinstri kantinn í gegnum Loga en þegar hann keyrir inn á teig er potað boltanum undan honum og það er markspyrna.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þessi stærsti leikur ársins farinn af stað!
Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik

Arnar Laufdal Arnarsson
Fyrir leik

Arnar Laufdal Arnarsson
Fyrir leik
Voruð þið að pæla í dressinu á þjálfurunum í dag?



Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Það er ennþá um 20 mínútur í leik en það er fullt af stuðningsmönnum mættir að syngja og tralla. Alvöru stemning!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.

Eiður Smári þjálfari FH gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði 2-1 gegn Stjörnunni fyrir landsleikjahlé. Það eru reynsluboltarnir Steven Lennon og Kristinn Freyr Sigurðsson sem fá sér sæti á bekknum en Davíð Snær Jóhannsson og Úlfur Ágúst Björnsson sem koma inn í liðið.

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga gerir aðeins eina breytingu á liðinu sem gerði 2-2 jafntefli við KR fyrir landsleikjahlé. Það er hann Helgi Guðjónsson sem fær sér sæti á bekknum en Birnir Snær Ingason kemur inn í hans stað.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Líkleg byrjunarlið



Fyrir leik
Maðurinn með flautuna

Ívar Orri Kristjánsson fær heiðurinn að dæma þennan leik en honum til halds og trausts verða Birkir Sigurðarson og Egill Guðvarður Guðlaugsson.

Frosti Viðar Gunnarsson er eftirlitsmaður og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er eftirlitsmaður.
Fyrir leik
Álitsgjafar gefa sitt álit

Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður og sérfræðingur
Víkingur Reykjavík vinnur þennan leik 2-1, FH-ingar komast yfir og verða yfir eftir fyrri hálfleikinn en þetta 'know-how' sigur viðhorf er komið í Víkina verður til þess að þeir snúa þessu við. Arnar breytir einhverju í hálfleik og Víkingar Jafna á fyrsta korteri síðari hálfleiks og skora svo sigurmarkið á síðasta korteri leiksins.

Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtaka Íslands
Síðast þegar ég spáði FH góðu gengi að þá fór það alveg þveröfugt ofan í þá. Það gæti því verið að ég sé nú þegar búinn að útrýma allri von sem þeir höfðu á því að geta orðið bikarmeistarar. En ég læt reyna aftur á þetta og spái því að FH verði bikarmeistarar eftir framlengdan leik og að liðið fari þar af leiðandi með smá sjálfstraust inn í massífa fallbaráttu sem er framundan.

Jasmín Erla Ingadóttir, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar
Víkingar eru sigurstranglegri, þeir þekkja það að spila stóra leiki og gera það vel. Víkingar verða meira með boltann og með yfirhöndina meira minna allan leikinn. FH mun reyna beita skyndisóknum og nýta föst leikatriði. Ég held að Logi muni koma Víking á bragðið og þá er ekki aftur snúið. Leikurinn fer 3-1 fyrir Víkingi.

Jóhann Már Helgason, Chelsea maður og sérfræðingur Dr Football
Spái 3-1 sigri Víkinga. Viktor Örlygur, Helgi Guðjóns og Ari Sigurpáls með mörkin fyrir Vikes og Matti Villa fyrir FH.

Sverrir Mar Smárason, Ástríðan
Ég ætla að spá 2-0 fyrir Víking. Bæði mörkin í fyrri hálfleik. Viktor Örlygur og Luigi með mörkin.

Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby og U21 landsliðsins
Ég spái 3-1 sigri Víkinga, þeir komast í 2-0 en Máni og Vuk búa til eitt mark fyrir FH-inga upp úr engu og síðan skorar Helgi Guðjóns undir lokin eftir að hafa komið inn á, að sjálfsögðu.
Fyrir leik
Leiðin fyrir Víkinga í Laugardalinn

Í 32 liða úrslitum fóru Víkingar í heimsókn til Hauka þar sem þeir unnu 7-0. Víkingur hélt áfram að valta yfir neðri deilar lið þar sem þeir unnu Selfoss 6-0 í 16 liða úrslitunum. Það var Reykjavíkur slagur í 8 liða úrslitum þar sem Víkingur vann 5-3 gegn KR.

Í undanúrslitunum mættust efstu tvö liðin í deildinni og var búist við hörku slag. En Víkingur fór nokkuð létt með Breiðablik og unnu 3-0. Erlingur Agnarsson skoraði 2 og Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði 1.
Erlingur Agnarsson
Fyrir leik
Leiðin fyrir FH í Laugardalinn

FH hóf keppni í 32 liða úrslitum gegn Kára þar sem þeir unnu 3-0 á heimavelli. Þar á eftir drógu þeir ÍR í 16 liða úrslitum og unnu sannfærandi 6-1 í fyrsta sigurleik núverandi þjálfara liðsins Eiðs Smára. Í 8 liða úrslitum mættu Hafnfirðingar Kórdrengjum þar sem þeir unnu 4-2.

Undanúrslitaleikurinn var hádramatískur þar sem FH mætti KA. KA var yfir 1-0 þegar 70 mínútur voru búnar af leiknum. Þá fékk leikmaður KA Bryan Van Den Boaert rautt spjald og FH tókst að jafna 4 mínútum seinna. Svo á 94. mínútu skoraði Davíð Snær Jóhannsson sigurmarkið sem hefur skilað FH í þennan leik.
Davíð Snær hetja FH í undanúrslitunum.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá stærsta leik ársins, bikarúrslitin!

Leikurinn hefst klukkan 16:00
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan
7. Erlingur Agnarsson ('118)
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Pablo Punyed (f) ('106)
17. Ari Sigurpálsson ('75)
18. Birnir Snær Ingason ('75)
19. Danijel Dejan Djuric ('75)
20. Júlíus Magnússon (f)

Varamenn:
9. Helgi Guðjónsson ('75)
11. Gísli Gottskálk Þórðarson ('118)
12. Halldór Smári Sigurðsson
15. Arnór Borg Guðjohnsen ('75)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('106)
23. Nikolaj Hansen ('75)

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Sölvi Ottesen
Þórður Ingason
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson
Markús Árni Vernharðsson

Gul spjöld:
Pablo Punyed ('32)
Nikolaj Hansen ('85)

Rauð spjöld: