Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Mjólkurbikar karla
Víkingur R.
31' 1
1
Víðir
Mjólkurbikar karla
KA
32' 0
0
ÍR
Mjólkurbikar karla
ÍA
34' 1
0
Tindastóll
Mjólkurbikar karla
Afturelding
15' 0
0
Dalvík/Reynir
Mjólkurbikar karla
Grótta
32' 0
0
Þór
Mjólkurbikar karla
Höttur/Huginn
80' 0
1
Fylkir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
74' 1
1
Grindavík
Mjólkurbikar karla
Árbær
70' 0
1
Fram
Mjólkurbikar karla
Haukar
63' 2
3
Vestri
Leiknir R.
2
2
ÍA
Emil Berger '3 1-0
1-1 Aron Bjarki Jósepsson '6
Bjarki Aðalsteinsson '27 2-1
2-2 Viktor Jónsson '44
15.10.2022  -  14:00
Domusnovavöllurinn
Besta-deild karla - Neðri hluti
Dómari: Erlendur Eiríksson
Maður leiksins: Emil Berger
Byrjunarlið:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
5. Daði Bærings Halldórsson (f) ('77)
7. Adam Örn Arnarson ('90)
11. Brynjar Hlöðvers
15. Birgir Baldvinsson ('38)
18. Emil Berger
20. Hjalti Sigurðsson
23. Dagur Austmann ('77)
28. Zean Dalügge
80. Mikkel Jakobsen ('90)

Varamenn:
8. Árni Elvar Árnason
9. Róbert Hauksson ('90)
10. Kristófer Konráðsson ('77)
14. Davíð Júlían Jónsson ('77)
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('38)
19. Jón Hrafn Barkarson ('90)

Liðsstjórn:
Vigfús Arnar Jósepsson (Þ)
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Valur Gunnarsson
Gísli Friðrik Hauksson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Halldór Geir Heiðarsson
Atli Jónasson

Gul spjöld:
Zean Dalügge ('8)
Brynjar Hlöðvers ('35)
Adam Örn Arnarson ('45)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið.. 2-2 jafntefli. Skagamenn svo gott sem fallnir og stigið gerir lítið fyrir Leiknismenn sem eru í vondum málum
90. mín
Þrjár mín í uppbót
90. mín
Inn:Jón Hrafn Barkarson (Leiknir R.) Út:Mikkel Jakobsen (Leiknir R.)
90. mín
Inn:Róbert Hauksson (Leiknir R.) Út:Adam Örn Arnarson (Leiknir R.)
90. mín
Viktor Jóns með skot eftir sókn en beint í fangið á Viktori í marki Leiknis
88. mín
Leik lokið í Keflavík. Dramatískur sigur FH.. Við verðum eiginlega að fá sigurmark hér til að halda einhverri spennu í fallbaráttunni
86. mín
Bæði lið með ágætis færi.. Fyrst skapast hætta við mark Leiknismanna eftir fyrirgjöf þar sem enginn skagamaður ná'i til boltans. Hinum megin á svo Kristófer Konráðs skot framhjá
85. mín
Kristófer Konráðsson með skot úr aukaspyrnunni beint í fangið á Árna
84. mín Gult spjald: Aron Bjarki Jósepsson (ÍA)
Aron Bjarki fær gult fyrir brot rétt fyrir utan teig
83. mín
Ef allt endar eins og útlit er fyrir í dag verður staðan svona

10. FH 25 stig
11. Leiknir 21 stig
12. ÍA 19 stig

Þá getur ÍA bara náð FH í stigum og er svo gott sem fallið
80. mín
Þetta virðist vera að fjara svolítið út. Lítið að gerast þessa stundina
77. mín
Inn:Davíð Júlían Jónsson (Leiknir R.) Út:Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Tvöföld skipting
77. mín
Inn:Kristófer Konráðsson (Leiknir R.) Út:Dagur Austmann (Leiknir R.)
75. mín
Viktor Jónsson í dauðafæri eftir fyrirgjöf frá Eyþóri en nafni hans í marki Leiknis ver vel frá honum. Það er enn líf í skagamönnum
73. mín
Adam með ágætis skot sem Árni Snær ver vel
67. mín
Inn:Kaj Leo Í Bartalstovu (ÍA) Út:Oliver Stefánsson (ÍA)
67. mín
Inn:Ingi Þór Sigurðsson (ÍA) Út:Benedikt V. Warén (ÍA)
Tvöföld breyting hjá ÍA
66. mín
Dalugge að sleppa í gegn en flaggaður rangstæður. Við fyrstu sýn virtist þetta mjög tæpt
62. mín
Góð sókn Leiknismanna endar með því að Dalugge á skot sem fer framhjá markinu
60. mín
Bæði lið virðast mjög meðvituð um að jafntefli gerir lítið fyrir þau í baráttunni og ætla sér að sækja til sigurs
55. mín
VÁÁ

Emil Berger með hörkuskot við enda vítateigsins en Árni Snær ver frábærlega í stöngina.
50. mín
Hingað berast þau skilaboð að FH sé komið í 3-2 í keflavík. Þá er þetta farið að líta illa út fyrir ÍA ef þeir vinna ekki í dag.
48. mín
Leiknismenn hafa byrjað þennan seinni hálfleik betur og átt nokkur hálffæri.
47. mín
Suður með sjó eru Keflvíkingar 2-1 yfir gegn FH..
46. mín
Leikur hafinn
Leikurinn að byrja aftur. Engar breytingar í hálfleik sýnist mér
45. mín
Smá hálfleiksslúður. Orðið á götunni hér í Breiðholtinu er að töframaðurinn Ejub Purisevic sé líklegastur til að taka við Leiknisliðinu af Sigga Höskulds
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur. Alveg ótrúlega skemmtilegur fyrri hálfleikurinn. Vonandi sama fjörið í þeim seinni.
45. mín Gult spjald: Adam Örn Arnarson (Leiknir R.)
Skagamenn að komast í skyndisókn en Adam Örn tekur Gísla niður og fær réttilega gult. Áfram er allt vitlaust á bekk skagamanna sem vilja annan lit á spjaldið
44. mín MARK!
Viktor Jónsson (ÍA)
Stoðsending: Steinar Þorsteinsson
Skagamenn jafna aftur.. Steinar með frábæra fyrirgjöf á Viktor sem er alveg óvaldaður á fjærstönginni og skallar boltann í netið af stuttu fær
41. mín Gult spjald: Árni Salvar Heimisson (ÍA)
Fer ansi hraustlega í Dalugge út á miðjum velli
38. mín
Inn:Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (Leiknir R.) Út:Birgir Baldvinsson (Leiknir R.)
Birgir fer meiddur af velli
35. mín Gult spjald: Brynjar Hlöðvers (Leiknir R.)
Binni Hlö kominn í bókina. Brýtur af sér rétt fyrir utan teig
28. mín
ÚFF Nú verður Dalugge að fara að passa sig. Eltir boltann sem endar í fanginu á Árna Snæ og keyrir svo í hann. Á gulu spjaldi. Ljónheppinn
27. mín MARK!
Bjarki Aðalsteinsson (Leiknir R.)
Stoðsending: Emil Berger
Heimamenn komnir aftur yfir. Fyrirliðinn Bjarki Aðalsteinsson stangar boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Emil Berger
26. mín
Nú vilja Leiknismenn fá víti. Dalugge fer niður í teignum. Erlendur dæmir ekkert en Dalugge verður að fara varlega enda þegar búinn að fá gult fyrir dýfu
25. mín
Skagamenn vilja víti. Hornspyrna og eftir baráttu í teignum fellur einhver skagamaðurinn við. Sé ekki hver. Erlendur dæmir ekkert og bekkurinn hjá ÍA allt annað en sáttur
20. mín
ÍA skorar en markið dæmt af vegna rangstöðu. Eyþór Wöhler skorar með skalla eftir fyrirgjöf en flaggið farið á loft. Miðað við hvað skagamenn mótmæltu lítið ætla ég að skjóta á að þetta hafi verið réttur dómur
15. mín
Keflavík er komið yfir gegn FH.. Þessi fallbarátta ætlar að vera svakaleg
14. mín
Ótrúlega skemmtileg byrjun á leik. Liðin skiptast á að sækja og eiga ákjósanleg færi
11. mín
Gísli Laxdal reynir skot langt utan af velli en það er þægilegt fyrir Viktor í markinu
8. mín Gult spjald: Zean Dalügge (Leiknir R.)
Svakalegar upphafsmínútur. Leiknismenn geysast fram í sókn og Zean Dalugge fellur inní teig. Vill meina að Árni Snær hafi brotið á sér. Fær hinsvegar gullt fyrir dýfu
6. mín MARK!
Aron Bjarki Jósepsson (ÍA)
Stoðsending: Steinar Þorsteinsson
Skagamenn ekki lengi að jafna.. Steinar með aukaspyrnu og Aron Bjarki skallar í netið
3. mín MARK!
Emil Berger (Leiknir R.)
Stoðsending: Birgir Baldvinsson
MARRRRK!!

Hröð sókn Leiknismanna. .Birgir Baldvinsson gefur fyrir á Emil Berger sem rúllar honum í netið.. Leiknismenn hafa byrjað rosalega vel og starfslið ÍA á bekknum er allt annað en ánægt
1. mín
VÁÁ. Leiknismenn í dauðafæri eftir einhverjar 20 sekúndur. Allt í einu er Mikkel Jakobsen sloppinn einn í gegn en skotið er beint á Árna sem ver
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Lagið "In the Ghetto" með Elvis farið að hljóma og liðin ganga út á völlinn. Þrátt fyrir mikilvægi leiksins er ekkert svakalega mikið af fólki mætt.
Fyrir leik
Það er mínútu þögn fyrir leikinn í dag og leikmenn Leiknis spila með sorgarbönd í minningu Emilíu Dísar Hlynsdóttur sem lést þann 22. september á karólínska sjúkrahúsinu í Svíþjóð. Foreldrar Emilíu eru Karen Ósk Ólafsdóttir og Hlynur Helgi Arngrímsson en Hlynur hefur starfað sem þjálfari hjá Leikni. Við sendum fjölskyldu Emilíu samúðarkveðjur
Fyrir leik
Leiknir:

Daði Bæringsson, Mikkel Elbæk Jakobsen og Dagur Austmann Hilmarsson koma inn í liðið fyrir þá Kristófer Konráðsson, Gyrði Hrafn Guðbrandsson og Mikkel Dahl.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn. Það vekur helst athygli að Árni Snær Ólafsson er kominn aftur í markið hjá ÍA. Olibver Stefánsson kemur líka inn fyrir Hauk Andra Haraldsson
Fyrir leik
Liðin hafa mæst tvisvar áður í sumar og hafa Leiknismenn unnið báða leikina.
Fyrir leik
Svona er staðan í deildinni þegar þrjár umferðir eru eftir

9. ÍBV 26
10. FH 22
11. Leiknir 20
12. ÍA 18
Fyrir leik
ÍA gæti fallið formlega úr deildinni í dag ef liðið tapar gegn Leikni og FH vinnur í Keflavík. Leiknir gæti að sama skapi komið sér upp úr fallsæti með sigri og ef Keflavík vinnur FH. Fallbaráttan er svakalega spennandi í þessu nýja fyrirkomulagi
Fyrir leik
Komiði sæl pg verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Leiknis og ÍA sem fram fer í Breiðholtinu. Um er að ræða svakalegan fallslag enda liðin í 11. og 12. sæti deildarinnar
Fyrir leik
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Gísli Laxdal Unnarsson
3. Johannes Vall
6. Oliver Stefánsson ('67)
9. Viktor Jónsson (f)
10. Steinar Þorsteinsson
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Eyþór Aron Wöhler
22. Árni Salvar Heimisson
22. Benedikt V. Warén ('67)
44. Alex Davey

Varamenn:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
2. Tobias Stagaard
4. Hlynur Sævar Jónsson
11. Kaj Leo Í Bartalstovu ('67)
17. Ingi Þór Sigurðsson ('67)
18. Haukur Andri Haraldsson
39. Kristian Lindberg

Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Ármann Smári Björnsson
Bjarki Sigmundsson
Hallur Freyr Sigurbjörnsson
Guðlaugur Baldursson

Gul spjöld:
Árni Salvar Heimisson ('41)
Aron Bjarki Jósepsson ('84)

Rauð spjöld: