Víkingsvöllur
mánudagur 24. október 2022 kl. 19:15
Besta-deild karla - Efri hluti
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Ari Sigurpálsson
mánudagur 24. október 2022 kl. 19:15
Besta-deild karla - Efri hluti
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Ari Sigurpálsson
Víkingur R. 2 - 2 KR
0-1 Kristján Flóki Finnbogason ('15)
1-1 Finnur Tómas Pálmason ('50, sjálfsmark)
2-1 Júlíus Magnússon ('61)
2-2 Atli Sigurjónsson ('79)

Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
16. Þórður Ingason (m)
3. Logi Tómasson
7. Erlingur Agnarsson
('78)

8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson
('60)

12. Halldór Smári Sigurðsson

17. Ari Sigurpálsson
19. Danijel Dejan Djuric
20. Júlíus Magnússon (f)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
('60)

Varamenn:
1. Ingvar Jónsson (m)
10. Pablo Punyed
11. Gísli Gottskálk Þórðarson
('78)

14. Sigurður Steinar Björnsson
15. Arnór Borg Guðjohnsen
('60)

18. Birnir Snær Ingason
('60)

30. Tómas Þórisson
Liðstjórn:
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Sölvi Ottesen
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Gul spjöld:
Halldór Smári Sigurðsson ('81)
Rauð spjöld:
94. mín
Leik lokið!
Kennie lætur vaða á markið og Þórður slær boltann út og hann endar hjá Pálma Rafn sem á skot í varnarmann og í sömu andrá flautar Jóhann Ingi til leiksloka.
Viðtöl og skýrlsa væntanleg seinna í kvöld.
Eyða Breyta

84. mín
Atli SIgurjóns að komast í fínt færi en skotið yfir markið. Arnar Gunnlaugs er ekki skemmt þar sem honum fannst brotið á Gísla Gottskálk í aðdragandanum.

79. mín
MARK! Atli Sigurjónsson (KR), Stoðsending: Theodór Elmar Bjarnason
KR JAFNA!!
Theodor Elmar hótar skotinu og keyrir á vörn Víkinga sem losar um Atla Sigurjóns og Theodór Elmar leggur boltann á hann og núna hafnar skotið hans réttu megin við stöngina með smá hjálp frá Halldór Smára.

77. mín
ATLI SIGURJÓNS!!
Viktor Örlygur er að hreinsa frá marki en hreinsar ekki betur en beint í Stefán Árna og beint til Atla Sigurjóns sem er aleinn á móti Þórði en leggur boltan í utanverða stöngina og út!

70. mín
Gult spjald: Theodór Elmar Bjarnason (KR)
Theodor Elmar verður þá í banni í loka umferðinni.
Eyða Breyta
Theodor Elmar verður þá í banni í loka umferðinni.
Eyða Breyta
66. mín
Kristinn Jónsson með frábæra fyrirgjöf fyrir markið á Sigurð Bjart en hann nær ekki að stýra boltanum niður í átt að marki og yfir fer hann.

65. mín
Halldór Smári í allskonar brasi en sleppur með það. Næstum búin að missa boltann aftast.

64. mín
Víkingar næstum búnir að bæta við öðru marki en ráða illa ráðum sínum. Ari Sigurpáls fór illa með góða stöðu en í stað þess að fara sjálfur reyndi hann lélega sendingu á Arnór Borg.

61. mín
MARK! Júlíus Magnússon (Víkingur R.), Stoðsending: Ari Sigurpálsson
ÞÚ VERÐ HANN EKKI ÞARNA!!
Frábær sóknarlota Víkings þar sem Birnir Snær Ingason er ekki langt frá því að skora með sinni fyrstu snertingu í leiknum en KR bjarga og það er svo Ari sem tíar upp þrumufleygin hans Júlíusar!

58. mín
Stefán Árni við það að sleppa í gegn en reynir að finna Sigurð Bjart sem vill þó ekki betur til en svo að Halldór Smári les það og bjargar í horn.

50. mín
SJÁLFSMARK! Finnur Tómas Pálmason (KR)
VÍKINGAR JAFNA!
Ari Sigurpálsson kemst upp að endalínu inni í vítateig og sendir fyrir markið þar sem Finnur Tómas verður fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

49. mín
Pálmi Rafn í DAUÐAFÆRI!!
Boltinn fellur óvænt fyrir fæturnar á honum fyrir miðju marki og hann á bara eftir að koma boltanum framhjá Þórði Ingasyni en skotið framhjá.

48. mín
Logi Tómasson kemst upp að endalínu og sendir fyrir markið en boltinn dettur út til Júlíusar Magnússonar sem nær að koma skoti á markið en því miður fyrir hann og Víkinga vantaði kraftinn í það.

46. mín
Sigurður Bjartur Hallsson (KR)
Kristján Flóki Finnbogason (KR)
Markaskorarinn tekinn af velli í hálfleik
Eyða Breyta

Markaskorarinn tekinn af velli í hálfleik
Eyða Breyta
45. mín
Hálfleikur
Jóhann Ingi flautar til loka fyrri hálfleiks.
KR verið betri aðilinn framan af og leiða nokkuð sanngjarnt í hlé.
Tökum okkur stutta pásu og snúum aftur í síðari hálfleik.

44. mín
Kristinn Jónsson með fyrirgjöf sem Þórður Ingason þarf að blaka frá marki og Víkingar ná að koma hættunni frá.

42. mín
Theodor Elmar ekki langt frá því að stinga Kennie Chopart í gegn Viktor Örlygur nær að komast fyrir sendinguna.

39. mín
Danijel Djuric hefur átt eriftt uppdráttar úti vinsta meginn hjá Víkingum en hann reynir skot sem fer af varnarmanni.

35. mín
Þórður Ingason að leika sér að eldinum þarna, með nægan tíma og fær Kristján Flóka í sig en nær að pikka boltanum frá og spila út. Hefði auðveldlega getað sprungið framan í hann en Víkingar sleppa með það.

32. mín
KR eru að pressa Víkinga virkilega vel og koma þeim í allskonar vandræði í uppspilinu.

27. mín
KR fær aukaspyrnu við vítateigshornið sem Kennie Chopart rennir á Atla Sigurjóns sem á skot hátt yfir markið.

24. mín
Ari Sigurpáls með ágætis hlaup en missir svolítið dampinn þegar hann nálgast markið og skotið er ekki gott.

23. mín
Virðist brotið á Nikolaj Hansen en Jóhann Ingi leyfir leiknum að halda áfram sem er langt frá því að vera vinsæl ákvörðun í bókum Arnars Gunnlaugssonar.

20. mín
Það er að færast ögn meiri harka í þetta. Menn eru aðeins að láta finna fyrir sér.

15. mín
MARK! Kristján Flóki Finnbogason (KR), Stoðsending: Grétar Snær Gunnarsson
KR ER KOMIÐ YFIR!!
KR fær hornspyrnu sem er skölluð á fjærstöngina þar sem Grétar Snær kemur með fast skot sem verður að fyrirgjöf fyrir markið á Kristján Flóka sem skorar annan leikinn í röð.

14. mín
KR að komast í flotta stöðu en Stefán Árni með slaka sendingu ætlaða Kennie Chopart sem fer afturfyrir hann.

12. mín
Danijel Djuric með skemmtilegt hlaup og fær gott hlaup frá Helga Guðjóns sýndist mér en skotið þröngt og Aron Snær ver vel.

8. mín
Hornspyrnan ágæt og finnur Halldór Smára en skallinn laus og Kennie Chopart hreinsar.

6. mín
Ágætlega útfærð hornspyrna en Víkingar verjast vel. KR að pressa Víkinga vel á upphafsmínútum.

4. mín
Halldór Smári og Viktor Örlygur mynda hafsentapar Víkinga í kvöld en eins og áður hefur komið fram eru bæði Oliver Ekroth og Kyle McLagan í banni í kvöld.

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Víkingar gera fimm breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn KA en inn koma Erlingur Agnarsson, Helgi Guðjónsson, Halldór Smári Sigurðsson,Júlíus Magnússon og Karl Friðleifur Gunnarsson fyrir þá Kyle McLagan, Oliver Ekroth, Pablo Punyed, Arnór Borg Guðjohnsen og Birnir Snær Ingason.
KR gerir þá eina breytingu á sínu liði sem sigraði Breiðablik í síðustu umferð en inn kemur Pálmi Rafn Pálmason fyrir Aron Þórð Albertsson sem tekur út leikbann.

Miðverðir Víkings í banni
Miðverðir Víkings, Kyle McLagan og Oliver Ekroth, eru báðir í banni vegna uppsafnaðra áminninga. Hjá Vesturbæjarliðinu tekur Aron Þórður Albertsson út bann.

Dómari ársins með flautuna
Jóhann Ingi Jónsson heldur utan um flautuna í kvöld en hann var valinn dómari ársins 2022 af Fótbolta.net. Annað árið í röð hlýtur hann þessa viðurkenningu. Honum til aðstoðar í kvöld verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gylfi Már Sigurðsson.
Arnar Þór Stefánsson verður á skiltinu og til taks ef eitthvað skyldi koma uppá.
Gylfi Þór Orrason er svo eftirlitsdómarinn okkar í kvöld.

Kristall Máni Ingason efnilegastur
Uppgangur Kristals Mána Ingasonar hefur verið frábær og þessi tvítugi leikmaður skemmti áhorfendum Bestu deildarinnar með fótboltahæfileikum sínum áður en hann var seldur út til norska félagsins Rosenborg.

Efnilegastur 2022 - Tók skref baka til að taka heljarstökk áfram https://t.co/XvvbjPWC5j
 Fótbolti.net (@Fotboltinet) October 22, 2022
Eyða Breyta
Fyrir leik
Víkingar eiga tvo fulltrúa í liði ársins
Um helgina opinberaði Fótbolti.net lið ársins í Bestu deild karla en þar eiga Víkingar tvo fulltrúa. Það eru vinsti bakvörðurinn Logi Tómasson og miðjumaðurinn og fyrirliði Víkigna Júlíus Magnússon.

Fyrri leikir liðana í sumar
Þessi lið mættust fyrst í sumar á KR velli 1.Júlí þar sem Víkingar höfðu betur með þremur mörkum gegn engu. Nikolaj Hansen, Pablo Punyed og Halldór Smári Sigurðsson skoruðu mörk Víkinga í þeim leik.
Liðin áttust svo við í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í fjörugum leik 18.Ágúst þar sem Víkingar höfðu betur 5-3.
Víkingar komust yfir með mörkum frá Erlingi Agnarssyni og Birni Snæ Ingasyni áður en Theodór Elmar Bjarnason kom KR á blað. Ari Sigurpálsson kom Víkingum svo í 3-1 en KR komu tilbaka og jöfnuðu með mörkum frá Atla Sigurjónssyni og Sigurði Bjart Hallssyni og stefndi allt í framlengingu þar til Helgi Guðjónsson og Sigurður Steinar Björnsson kláruðu leikinn fyrir Víkinga.
Liðin mættust svo í lokaumferð Bestu deildarinnar fyrir úrslitakeppni 17.September þar sem þau skildu jöfn 2-2.
Víkingar komust í 2-0 með mörkum frá Ara Sigurpálssyni og Erlingi Agnarssyni en KR sýndu karakter og komu sterkir tilbaka og náðu að jafnaði metinn með mörkum frá Ægi Jarl Jónassyni og Arnóri Svein Aðalsteinssyni.

Þessi leikur er síðasti leikurinn í 4.umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar og jafnframt sá næst síðasti á þessu tímabili.
Mótið er allt nema búið en það er svolítið síðan að ljóst var hvernig efri hluti úrslitakeppninnar hefði spilast.
Breiðablik eru Íslandsmeistarar, Víkingar og KA fara í evrópukeppni á næsta ári og KR, Valur og Stjarnan reka svo lestina.
Eyða Breyta
Þessi leikur er síðasti leikurinn í 4.umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar og jafnframt sá næst síðasti á þessu tímabili.
Mótið er allt nema búið en það er svolítið síðan að ljóst var hvernig efri hluti úrslitakeppninnar hefði spilast.
Breiðablik eru Íslandsmeistarar, Víkingar og KA fara í evrópukeppni á næsta ári og KR, Valur og Stjarnan reka svo lestina.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
13. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Stefán Árni Geirsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Finnur Tómas Pálmason
('61)

10. Pálmi Rafn Pálmason (f)

11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
16. Theodór Elmar Bjarnason

19. Kristinn Jónsson
21. Kristján Flóki Finnbogason (f)
('46)

23. Atli Sigurjónsson
Varamenn:
1. Beitir Ólafsson (m)
8. Þorsteinn Már Ragnarsson
('61)

20. Hannes Pétur Hauksson
22. Jón Ívar Þórólfsson
26. Patrik Thor Pétursson
28. Gunnar Magnús Gunnarsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson
('46)

Liðstjórn:
Viktor Bjarki Arnarsson
Valgeir Viðarsson
Rúnar Kristinsson (Þ)
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Melkorka Rán Hafliðadóttir
Gul spjöld:
Theodór Elmar Bjarnason ('70)
Pálmi Rafn Pálmason ('74)
Rauð spjöld: