Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Sádi-Arabía
1
0
Ísland
Saud Abdulhamid '25 1-0
06.11.2022  -  12:00
Mohammed bin Zayed leikvangurinn
Vináttulandsleikur
Byrjunarlið:
21. Mohammed Al-Owais (m)
4. Abdulelah Al-Amri
6. Mohammed Al-Breik ('67)
7. Salman Al-Faraj ('47)
8. Abdulellah Al-Malki ('80)
9. Firas Al-Buraikan ('80)
10. Salem Al-Dawsari
12. Saud Abdulhamid
17. Hassan Tambakti ('67)
19. Fahad Al-Muwallad ('67)
28. Mohamed Kanno

Varamenn:
1. Mohammed Al Rubaie (m)
23. Nawaf Al-Aqidi (m)
3. Abdullah Madu ('67)
5. Ali Al-Bulaihi
14. Abdullah Otayf
15. Ali Al-Hassan
16. Sami Al-Najei
18. Nawaf Al-Abed ('80)
25. Ayman Yahya ('47)
26. Abdulrahman Al-Aboud
27. Hattan Bahebri
30. Riyadh Sharahili ('67)
31. Haitham Asiri
32. Abdullah Radif ('80)
33. Zakaria Hawsawi ('67)

Liðsstjórn:
Herve Renard (Þ)

Gul spjöld:
Salem Al-Dawsari ('66)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Flautað af. Ísland fékk svo sannarlega tækifæri til að jafna en tap niðurstaðan í þessum umdeilda vináttulandsleik.
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma.
90. mín
Hákon með flotta markvörslu! Skot við vítateigsbogann.
88. mín
Það skapaðist hætta inn á teignum hjá Sádum þarna en Sádarnir ná að koma boltanum frá.
87. mín
Höskuldur er orðinn fyrirliði eftir að Aron Einar fór út af.
85. mín Gult spjald: Júlíus Magnússon (Ísland)
Ekki lengi að þessu!
84. mín
Inn:Júlíus Magnússon (Ísland) Út:Aron Einar Gunnarsson (Ísland)
Júlíus var kallaður inn í hópinn eftir að hann sagðist vera klár í verkefnið í samtali við Fótbolta.net. Hann var ekki í upprunalega hópnum vegna meiðsla en náði svo að jafna sig af þeim.

82. mín
Viktor Karl á skot sem fer í Ísak og aftur fyrir endamörk.
80. mín
Tíu mínútur eftir af venjulegum leiktíma.
80. mín
Inn:Abdullah Radif (Sádi-Arabía) Út:Abdulellah Al-Malki (Sádi-Arabía)

80. mín
Inn:Nawaf Al-Abed (Sádi-Arabía) Út:Firas Al-Buraikan (Sádi-Arabía)

79. mín
Jason Daði stingur sér inn fyrir vörnina og reynir að finna Ísak í teignum en varnarmaður Sáda hindrar það.
75. mín
Vatnspása.
73. mín
Bjarki Steinn með skot sem fer hátt yfir markið.
70. mín
Inn:Viktor Örn Margeirsson (Ísland) Út:Damir Muminovic (Ísland)
Bliki út af fyrir Blika.
68. mín
Ísak í fínni stöðu en Sádar verjast vel. Svo á Logi skot sem fer í varnarmann. Þetta er betra.
67. mín
Inn:Zakaria Hawsawi (Sádi-Arabía) Út:Mohammed Al-Breik (Sádi-Arabía)
67. mín
Inn:Riyadh Sharahili (Sádi-Arabía) Út:Fahad Al-Muwallad (Sádi-Arabía)
67. mín
Inn:Abdullah Madu (Sádi-Arabía) Út:Hassan Tambakti (Sádi-Arabía)
66. mín Gult spjald: Salem Al-Dawsari (Sádi-Arabía)
Salem Al-Dawsari lætur Damir heyra það og fær í kjölfarið gult spjald. Damir hló bara að þessu.
64. mín
Leikmaður Sáda liggur eftir í kjölfarið á tæklingu hjá Damir. Varnarmaðurinn sterki segir honum að standa upp, en tæklingin var fullkomlega lögleg. Dómarinn stöðvar leikinn svo læknateymið komist inn á.
61. mín
Núna eru sex leikmenn úr Íslandsmeistaraliði Blika inn á vellinum. Róbert Orri Þorkelsson, fyrrum leikmaður Blika, er líka inn á.

56. mín
Inn:Jason Daði Svanþórsson (Ísland) Út:Jónatan Ingi Jónsson (Ísland)
55. mín
Inn:Viktor Karl Einarsson (Ísland) Út:Valdimar Þór Ingimundarson (Ísland)
55. mín
Inn:Bjarki Steinn Bjarkason (Ísland) Út:Óttar Magnús Karlsson (Ísland)
55. mín
Inn:Logi Tómasson (Ísland) Út:Rúnar Þór Sigurgeirsson (Ísland)
54. mín
Íslenska liðið að byrja þennan seinni hálfleik betur en Sádarnir.
53. mín
ÞVÍLÍKT FÆRI!!!
Rúnar með flottan bolta fyrir og Jónatan leggur boltann út í teiginn. Þar er Óttar Magnús í algjöru dauðafæri en hann skóflar boltanum yfir markið.

Þarna átti hann að gera betur!

49. mín
Ísland fær sína fyrstu hornspyrnu í leiknum. Höskuldur með hornspyrnuna en það er brot dæmt í teignum. Markvörðurinn ansi verndaður í þessu atviki. Ætti að vera önnur hornspyrna.
49. mín
Rúnar Þór með langt innkast sem er skallað frá.
47. mín
Inn:Ayman Yahya (Sádi-Arabía) Út:Salman Al-Faraj (Sádi-Arabía)
46. mín
Sádarnir eru næstum því komnir í dauðafæri á fyrstu 20 sekúndum seinni hálfleiks. En lokasendingin fer í hælinn á leikmanninum sem hefði sloppið í gegn.
46. mín
Leikurinn er kominn aftur af stað!
45. mín
Hálfleikur
Sádar leiða í hálfleik, 1-0. Klaufalegt mark sem íslenska liðið fékk á sig en þessi staða er nokkuð sanngjörn. Leiðinlegur leikur heilt yfir. Ekkert sérlega mark jákvætt sem Ísland getur tekið úr þessum hálfleik.
45. mín
Ísland átti tilraun að marki! En ekki var hún hættuleg.
44. mín
Það er allt að verða vitlaust við hliðarlínuna. Keflvíkingurinn Rúnar Þór er dreginn burt en hann ýtti við Al-Muwallad.

Þessi Al-Muwallad er greinilega mikið fífl þar sem hann reyndi að sparka í Dag Dan eftir að hann var stiginn út. Rúnar Þór kom og ýtti við Al-Muwallad eftir að hann reyndi að sparka í Dag og við það varð allt vitlaust.
42. mín
Tölfræðin hingað til:

40. mín
Ísland hefur ekki enn átt skottilraun í þessum leik.
37. mín
Sádarnir við það að búa til hættulega stöðu en þá kemur Damir og á frábæra tæklingu.
32. mín
"Við verðum að láta finna fyrir okkur núna," heyrist af bekknum hjá Íslandi.
31. mín
Arnar nýtir pásuna til að fara yfir málin með leikmönnum.

30. mín
Það er vatnspása á vellinum. Spilað í hitanum í Abú Dabí.
29. mín
Höskuldur með bolta fyrir en Valdimar missir af honum.
28. mín
Þetta mark verður að teljast sanngjarnt. Ekki verið fjörugur leikur en Sádarnir eina liðið sem hefur skapað sér færi hingað til. Það hættulegasta sem Ísland hefur gert var þegar Ísak var við það að sleppa í gegn en varnarmaður Sáda leysti það vel.
25. mín MARK!
Saud Abdulhamid (Sádi-Arabía)
Sádarnir eru komnir yfir.

Fyrirgjöf sem Hákon missir af. Valdimar fylgir ekki almennilega. Klaufalegt mark að fá á sig.
20. mín
Hafa verið frekar mikið bragðdaufar fyrstu 20 mínútur. Sádarnir verið talsvert hættulegri í sínum aðgerðum og fengu langbesta færi leiksins en Hákon Rafn varði mjög vel.
18. mín
Ísland er að stilla svona upp:

Hákon Rafn

Höskuldur - Damir - Róbert Orri - Rúnar Þór

Aron Einar

Jónatan - Dagur Dan - Ísak - Valdimar

Óttar Magnús
15. mín
Hákon Rafn með geggjaða vörslu! Besta færi leiksins til þessa sem Sádar fá hérna. Boltinn fyrir markið en Hákon ver stórkostlega!

9. mín
Ísak Snær við það að sleppa í gegn en varnarmaður Sáda leysir mjög vel úr þessu. Ísak fellur til jarðar, en það var ekkert á þetta að mínu mati.
7. mín
Þetta fer býsna rólega af stað. Sádar hafa stjórnað ferðinni til þessa.
6. mín
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði, er í dag að leika sinn 100. landsleik. Stór áfangi hjá honum.

1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn!
Fyrir leik
Jæja, það er komin mynd!
Fyrir leik
Það er komið hljóð en engin mynd.
Fyrir leik
Það eru tæknilegir örðugleikar hjá Viaplay og því spurning hvort við munum yfir höfuð sjá leikinn. Við bíðum frekari frétta!
Fyrir leik
Það eru um fimm mínútur í að leikurinn muni hefjast.
Fyrir leik
BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS
Fjórir Blikar fá sæti í byrjunarliðinu en það eru þeir Damir Muminovic, Höskuldur Gunnlaugsson, Dagur Dan Þórhallsson og Ísak Snær Þorvaldsson.

Dagur Dan, Ísak Snær og Róbert Orri Þorkelsson eru allir að spila sinn fyrsta landsleik.

Þá er Rúnar Þór Sigurgeirsson einnig í liðinu en hann lék með Keflavík í sumar. Aron Einar Gunnarsson er fyrirliði liðsins.

Fyrir leik
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hvítþvottur
KSÍ hefur talað fyrir því að koma skilaboðum á framfæri. Borghildur Sigurðardóttir, varaformaður KSÍ, er með í för og mun hitta fulltrúa knattspyrnusambands Sádí-Arabíu í dag. Einnig ætlar KSÍ að funda síðar í mánuðinum í Katar.

"Þar ætlum við meðal annars að ræða um kvennaknattspyrnu og bjóða okkar stuðning. Við höfum einnig tekið málið upp á vettvangi UEFA, þá sérstaklega um jafnrétti og mikilvægi samtalsins. Við hyggjumst því halda samtalinu áfram með jafnrétti að leiðarljósi," sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.

Sádí-Arabía er eitt versta land í heimi þegar kemur að mannréttindum og réttindum kvenna. Að Ísland sé að spila vináttulandsleik við þessa þjóð er í raun skammarlegt. KSÍ segist ætla að taka samtalið, en ég held að það sé óhætt að fullyrða að það muni ekki breyta miklu hvað varðar stjórnarhætti í Sádí-Arabíu.

Sádí-Arabía er að undirbúa sig fyrir HM en landsliðið notar einnig þennan leik fyrir hvítþvott í gegnum íþróttir. Hægt er að lesa meira um 'sportwashing' með því að smella hérna. Sádar eru að borga okkur til að hjálpa sér í þessu.

Fyrir leik
Hópurinn:
Fótboltinn fellur vægast sagt í skuggann á hvítþvættinum í dag. Það þarf ekki að fara í felur með það.

Þessi leikur fer fram fyrir utan landsleikjaglugga og er hópurinn svona:

Frederik Schram (m) - Valur - 5 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson (m) - IF Elfsborg - 2 leikir
Sindri Kristinn Ólafsson (m) - Keflavík
Viktor Örn Margeirsson - Breiðablik
Róbert Orri Þorkelsson - CF Montreal
Damir Muminovic - Breiðablik - 2 leikir
Júlíus Magnússon - Víkingur, 1 leikur
Rúnar Þór Sigurgeirsson - Keflavík - 1 leikur
Logi Tómasson - Víkingur R.
Hörður Ingi Gunnarsson - Sogndal IL - 1 leikur
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik - 5 leikir
Ísak Snær Þorvaldsson - Breiðablik
Dagur Dan Þórhallsson - Breiðablik
Viktor Karl Einarsson - Breiðablik - 2 leikir
Daníel Hafsteinsson - KA
Viktor Örlygur Andrason - Víkingur R. - 2 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi - 99 leikir, 2 mörk
Bjarki Steinn Bjarkason - Venezia FC
Valdimar Þór Ingimundarson - Sogndal IL - 1 leikur
Jónatan Ingi Jónsson - Sogndal IL
Jason Daði Svanþórsson - Breiðablik - 1 leikur
Danijel Dejan Djuric - Víkingur R.
Óttar Magnús Karlsson - Oakland Roots - 9 leikir, 2 mörk



Ísland og Sádi-Arabía hafa fimm sinnum áður mæst, fyrst árið 1984 og síðast árið 2002. Íslenska liðið hefur unnið einu sinni, tvisvar hafa liðin skilið jöfn og tvisvar hafa Sádar unnið sigur.

"Sádarnir eru með sterkt lið, hafa verið með besta liðið á þessu svæði síðustu áratugina og hafa reglulega komist í lokakeppni HM. Þeir eru með mjög flinka leikmenn, flestir að spila í Sádi-Arabíu," segir Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari við miðla KSÍ.

Sádi-Arabía tekur þátt í HM í Katar sem hefst síðar í þessum mánuði. Liðið er með Argentínu, Mexíkó og Póllandi í riðli.

"Þeir eru að fara að æfa sitt upplegg fyrir HM, þeir vilja vera agaðir og spila lokaða leiki, eins og þeir gerðu gegn Bandaríkjunum fyrir stuttu síðan, svo spiluðu þeir á móti Vensúela, sem við þekkjum vel, þannig að þetta hafa verið lokaðir leikir og ekki mikið af færum."

Góður gluggi til að sýna sig
"Þessi leikur verður spennandi og verðugt verkefni fyrir okkar leikmenn og það eru einmitt þannig verkefni sem við erum að leitast eftir. Þetta er frábær möguleiki fyrir okkar leikmenn, sem eru margir að koma beint úr Bestu deildinni, að sýna sig og sanna á þessu leveli," segir Arnar.

"Margir af okkar leikmönnum ef ekki allir, sem eru ekki atvinnumenn nú þegar, hafa áhuga á því að komast í atvinnumennsku, og þessir leikir geta verið góður gluggi fyrir þá."

"Þetta er alvöru verkefni og þó þetta sé vináttuleikur, þá erum við staðráðnir í að spila góðan leik og ná í úrslit. Ef við náum að sýna góða liðsframmistöðu, þá er alltaf möguleiki á einstaklingsframmistöðum hjá einhverjum leikmönnum, sem leiða þá til einhvers stærra og betra."
Fyrir leik
Upphæðin sem KSÍ fær frá Sádum er trúnaðarmál
Sögusagnir eru um að KSÍ hafi fengið umtalsverðar fjárhæðir frá fótboltasambandi Sádi-Arabíu fyrir að taka þennan leik.

Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ, staðfestir að Sádarnir greiði allan kostnað við leikinn og greiði að auki ákveðna upphæð í 'match fee' til KSÍ en sú upphæð sé trúnaðarmál.

Valtýr Björn Valtýrsson talaði um það í hlaðvarpsþætti sínum - Mín skoðun - að hann hefði heyrt að upphæðin sem KSÍ fái greitt fyrir að leika þennan leik sé allt að 100 milljónir króna.

Fyrir leik
Þetta er vægast sagt umdeildur vináttulandsleikur.

Sjá einnig:
Mikill meirihluti á móti vináttulandsleiknum gegn Sádí-Arabíu

Það hefur verið talsvert gagnrýnt að KSÍ hafi samþykkt að spila vináttuleik við Sáda í ljósi mikilla mannréttindabrota í landinu.

Síðastliðinn föstudag var ritaður pistill á Vísi þar sem farið var yfir það sem er í gangi í Sádí-Arabíu.

Sádi-Arabía er gjarnan á meðal þeirra landa sem taka flesta af lífi á ári hverju, ásamt Kína, Íran og Egyptalandi... Á meðal glæpa sem geta kallað á dauðarefsingu í landinu fyrir utan morð, landráð og hryðjuverk eru eiturlyfjasmygl, framhjáhald, samkynhneigð og fjölkynngi (e. witchcraft). Þremur mismunandi aðferðum er beitt til að taka fólk af lífi í ríkinu; fólk er hálshöggvið, stillt upp framan við aftökusveitir eða grýtt til dauða," skrifaði Valur Páll Eiríksson í pistli sínum.

Þá eru auðvitað ótaldar pyntingar sem fólki er beitt, heft tjáningarfrelsi og víðtæk mismunun gegn konum." Einnig er vert að benda á morðið á fjölmiðlamanninum Jamal Khashoggi sem hefur verið bendlað við stjórnvöld í Sádí-Arabíu.

Valur kemur einnig inn á það að Ísland sé fyrsta Norðurlandaþjóðin til að spila við Sádí-Arabíu síðan 2006, og erum við að gera það sjálfviljug. Um leið erum við að hjálpa þeim í hvítþvætti sínum í gegnum íþróttir.

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá vináttulandsleiks Sádí-Arabíu og Íslands í Abú Dabí.

Stuðst verður við beina útsendingu frá Viaplay í þessari lýsingu.

Byrjunarlið:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
6. Damir Muminovic ('70)
7. Höskuldur Gunnlaugsson
9. Óttar Magnús Karlsson ('55)
10. Valdimar Þór Ingimundarson ('55)
14. Róbert Orri Þorkelsson
15. Dagur Dan Þórhallsson
17. Aron Einar Gunnarsson ('84)
18. Jónatan Ingi Jónsson ('56)
18. Ísak Snær Þorvaldsson
20. Rúnar Þór Sigurgeirsson ('55)

Varamenn:
1. Frederik Schram (m)
12. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Logi Tómasson ('55)
8. Viktor Karl Einarsson ('55)
8. Viktor Örlygur Andrason
11. Bjarki Steinn Bjarkason ('55)
11. Jason Daði Svanþórsson ('56)
15. Daníel Hafsteinsson
16. Júlíus Magnússon ('84)
19. Danijel Dejan Djuric
21. Viktor Örn Margeirsson ('70)

Liðsstjórn:
Arnar Þór Viðarsson (Þ)
Jóhannes Karl Guðjónsson

Gul spjöld:
Júlíus Magnússon ('85)

Rauð spjöld: