Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
Frakkland
2
0
Marokkó
Theo Hernandez '5 1-0
Randal Kolo Muani '79 2-0
14.12.2022  -  19:00
Al Bayt
Undanúrslit HM
Dómari: César Ramos (Mexíkó)
Byrjunarlið:
1. Hugo Lloris (f) (m)
4. Raphael Varane
5. Jules Kounde
7. Antoine Griezmann
8. Aurélien Tchouaméni
9. Olivier Giroud ('66)
10. Kylian Mbappe
11. Ousmane Dembele ('79)
13. Youssouf Fofana
22. Theo Hernandez
24. Ibrahima Konate

Varamenn:
16. Steve Mandanda (m)
23. Alphonse Areola (m)
2. Benjamin Pavard
3. Axel Disasi
6. Matteo Guendouzi
12. Randal Kolo Muani ('79)
15. Jordan Veretout
17. William Saliba
18. Dayot Upamecano
20. Kingsley Coman
25. Eduardo Camavinga
26. Marcus Thuram ('66)

Liðsstjórn:
Didier Deschamps (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
FRAKKLAND - ARGENTÍNA á sunnudag MAROKKÓ - KRÓATÍA leika um bronsið á laugardag

Takk fyrir samfylgdina í gegnum þessa textalýsingu!
90. mín
Lokamínútan í uppgefnum uppbótartíma. Stuðningsmenn beggja liða syngja og tralla í stúkunni. Marokkómenn hafa litað þetta mót á dásamlegan hátt.
Góð og gild rök
90. mín
Vá! Marokkó svo nálægt því að minnka muninn en Frakkar bjarga.
Úthverfi Parísar að gefa
90. mín
Uppbótartími í gangi Sex mínútum var bætt við, erum á mínútu tvö í uppbótartímanum.
90. mín
Gunnar Birgisson: „Spurning hvort Upamecano og Rabiot verði búnir að ná sér fyrir sunnudaginn? Miðað við þennan leik held ég að Deschamps vilji allavega 100% fá Adrien Rabiot aftur inn í liðið. Miðjan hjá Frökkunum oft á tíðum verið týnd."
90. mín
Randal Kolo Muani
88. mín
Það eru 33 mínútur síðan Marokkó átti skot
Marokkó á allt hrós skilið
Kennslustund
86. mín
Aukaspyrna frá Marokkó, sending inn í teiginn. Griezmann skallar frá.
85. mín
Randal Kolo Muani lék sinn fyrsta landsleik í september Þetta er hans fjórði landsleikur. 24 ára gamall og kom inn í HM hópinn þegar Christopher Nkunku meiddist. Kolo Muani gekk í raðir Frankfurt frá Nantes síðasta sumar.
83. mín
Stefnir í ROSALEGAN ÚRSLITALEIK Stefnir allt í það að Frakkland og Argentína mætist á sunnudaginn í úrslitaleik HM. Marokkómenn á leið í bronsleik gegn Króötum á laugardaginn.
82. mín
Allir spáðu þessum leik 2-0! (nánast allir) Er það að fara að rætast?
79. mín MARK!
Randal Kolo Muani (Frakkland)
Stoðsending: Kylian Mbappe
SKORAR MEÐ SINNI FYRSTU SNERTINGU!!! Mbappe dansaði með boltann í teignum, boltinn ratar á fjær þar sem Kolo Muani er réttur maður á réttum stað og skorar af stuttu færi.

Kolo Muani leikmaður Eintracht Frankfurt.

79. mín
Inn:Randal Kolo Muani (Frakkland) Út:Ousmane Dembele (Frakkland)
Nánast ósýnilegur í þessum leik hann Dembele Gerði ekkert.
78. mín
Inn:Abde Ezzalzouli (Marokkó) Út: Selim Amallah (Marokkó)
Amallah fer aftur af velli!
78. mín
Abderrazak Hamdallah fékk hörkugott færi áðan en var eitthvað hikandi við að taka skotið. Átti að gera miklu miklu betur.
72. mín
Griezmann með fyrirgjöf úr aukaspyrnu, frábær bolti. Ibrahima Konate skallar framhjá.
70. mín
Mbappe með skot í varnarmann, búið að flagga rangstöðu.
69. mín

67. mín
Inn: Zakaria Aboukhlal (Marokkó) Út:Youssef En-Nesyri (Marokkó)
67. mín
Inn:Abderrazak Hamdallah (Marokkó) Út: Sofiane Boufal (Marokkó)
Búinn að vera ógnandi allan leikinn hann Boufal.
66. mín
Inn:Marcus Thuram (Frakkland) Út:Olivier Giroud (Frakkland)
Sá markahæsti í sögu Frakklands tekinn af velli Áhugavert.
66. mín
Gunnar Birgisson lýsir leiknum á RÚV: „Þetta lítur ekkert alltof vel út fyrir Frakkana þessa stundina. Þeir hafa átt í erfiðleikum með að halda Marokkó í skefjum í seinni hálfleik og það er enn nóg eftir af þessum leik. Eitt mark frá Marokkó og þá er ómögulegt að segja til um hvernig leikurinn fer."
64. mín
Varane skallar fyrirgjöf frá Ziyech frá.
62. mín
Marokkó hefur reynt 321 sendingu í þessum leik. Það er hærri fjöldi en meðaltal liðsins yfir leiki keppninnar - og það er um hálftími eftir af leiknum.
60. mín
Sóknarþungi frá Marokkó Ná þeir að notfæra sér það og koma inn jöfnunarmarki?
58. mín
Reimarnar eru slitnar hjá Mbappe sem þarf að fá nýja skó.
Eitthvað til í þessu hjá Rebekku?
54. mín
Þung sókn frá Marokkó! Úfff hætta við mark Frakka en Attiyat Allah hittir ekki boltann. Amrabat svo með skot framhjá. Frakkar nánast í nauðvörn!

Mbappe heldur leik áfram eftir aðhlynninguna áðan.


52. mín
Sofyan Amrabat með tæklingu og Kylian Mbappe liggur eftir. Frakkar vildu fá aukaspyrnu en Ramos dómari dæmdi ekkert. Mbappe þarf að fá aðhlynningu.
51. mín
Vel spilað hjá Marokkó, Achraf Hakimi reynir sendingu fyrir sem heppnast ekki. Spurning hvort hann hefði ekki átt að reyna skotið frekar.
50. mín
Griezmann með stungusendingu, Mbappe nálægt því að ná boltanum en Bono bjargar með úthlaupi. Fær svo Mbappe í árekstur á sig en verður ekki meint af.

Þess má geta að Marokkó var 55% með boltann í fyrri hálfleik.
46. mín
Inn:Yahia Attiyat Allah (Marokkó) Út: Noussair Mazraoui (Marokkó)
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Átti Marokkó að fá víti í fyrri hálfleik? Rio Ferdinand telur að Sofiane Boufal hafi átt að fá vítaspyrnu á 27. mínútu, en í staðinn fékk Boufal dæmt brot á sig og fékk að líta gula spjaldið að auki.

45. mín
Vel flúraður Hernandez
Henry Winter skemmtir sér
45. mín
Olivier Giroud á að vera kominn með mark í þessum leik
45. mín
Hálfleikur
Ramos flautar Öflugar lokamínútur hjá Marokkó í þessum fyrri hálfleik. Þetta er líflegur og skemmtilegur leikur. Stangarskotið minnir Frakka á að þetta er alls ekki komið í höfn! Marokkó hefur verið meira með boltann og átt hættuleg föst leikatriði.
45. mín
MAROKKÓ! BAKFALLSSPYRNA Í STÖNGINA! Marokkó fékk horn, Konate setti boltann afturfyrir. Zyech tók hornið. Jawad El Yamiq tók bakfallsspyrnu en boltinn í stöngina! Besta tilraun Marokkó hingað til.
44. mín
Cesar Arturo Ramos dómari og Ibrahima Konate skilja sáttir
42. mín
Achraf Hakimi og Youssouf Fofana
41. mín
Varane með skot framhjá eftir hornspyrnu. Þröngt færi.
40. mín
Griezmann ógnandi en á síðustu stundu rennir Jawad El Yamiq sér í boltann og bjargar í horn. Annað franskt mark liggur í loftinu....
36. mín
GIROUD SKÝTUR FRAMHJÁ Í DAUÐAFÆRI! Mbappe ógnandi og þetta svo endar hjá Giroud sem er aleinn í teignum og ekki undir nokkurri pressu en setur boltann framhjá.

Skylduskorunarfæri fyrir leikmann eins og Giroud!
36. mín
Youssouf Fofana með skot eftir hornspyrnu, himinhátt yfir. Röð Z.
35. mín
Ágætis svar frá Marokkó eftir markið Hefur gengið vel að bera boltann upp völlinn, vantar bara aðeins upp á gæði og ákvarðanatökur á síðasta þriðjungi.
33. mín
Aurélien Tchouaméni með skot í samherja, Olivier Giroud. Ofan á allt saman er Giroud svo flaggaður rangstæður.
31. mín
Marokkó að sækja, Azzedine Ounahi með skot framhjá. Hefði reyndar ekki talið því aðstoðardómarinn flaggaði svo rangstöðu.
30. mín
Aðsend mynd

Mér sýnist á öllu að Guinnessarnir renni hratt og ljúft niður á Ölveri yfir leiknum. Sendum okkar bestu kveðjur þangað.
27. mín Gult spjald: Sofiane Boufal (Marokkó)
Braut á Hernandez markaskorara.
25. mín
Skemmtileg mynd af markinu frá Hernandez
21. mín
Inn: Selim Amallah (Marokkó) Út:Romain Saiss (f) (Marokkó)
Hakim Ziyech tekur við fyrirliðabandinu Miðjumaður kemur inn. Taktísk breyting?
20. mín
Saiss búinn að biðja um skiptingu! Alveg ljóst að Aguerd (sem komst ekki í gegnum upphitun) og Saiss (sem er búinn að biðja um skiptingu) voru alls ekki heilir til að spila þennan leik en ætluðu að fórna sér í verkefnið.

Heldur betur stórt skarð hoggið í varnarlínuna hjá Marokkó.
Varnarmennirnir drjúgir í undanúrslitum
17. mín
GIROUD MEÐ SKOT Í STÖNGINA Romain Saiss í vandræðum og Giroud með bylmingsskot í utanverða stöngina!


Saiss lítur alls ekki út fyrir að ganga heill til skógar.
17. mín
Hakim Ziyech með skot framhjá Sofiane Boufal er að búa til fyrir Marokkó, sendi á Ziyech sem var ekki alveg í jafnvægi þegar hann lét skotið ríða af Framhjá.
15. mín
Infantino vaktin

Fær félagsskap frá Emmanuel Macron, forseta Frakklands, á leiknum í kvöld.
14. mín
Theo Hernandez fagnar marki sínu
11. mín
HÖRKUSKOT FRÁ MAROKKÓ! Azzedine Ounahi með virkilega gott skot í hornið en Hugo Lloris skutlaði sér og varði vel!
9. mín
Út úr karakter hjá Marokkó Þessi varnarleikur þeirra í fyrsta marki leiksins var alls ekki til útflutnings. Spurning hvort þessi breyting sem þeir þurftu að gera á vörninni rétt fyrir leik hafi sett eitthvað úr skorðum?
8. mín
Theo Hernandez er ein af sögum mótsins Hann var ekki byrjunarliðsmaður í fyrsta leik en kom inn þegar bróðir hans Lucas Hernandez meiddist. Hann hefur gripið gæsina og verið einn allra besti bakvörður mótsins.
5. mín MARK!
Theo Hernandez (Frakkland)
HEIMSMEISTARARNIR ERU KOMNIR YFIR! Griezmann kom sér inn í teiginn, sendi á Mbappe sem átti skotið en það breytti um stefnu af varnarmanni og datt fyrir Theo Hernandez sem kláraði frábærlega!

Í fyrsta sinn á mótinu sem Marokkó lendir undir!

4. mín
Frökkum hefur ekki gengið ýkja vel gegn liðum frá Afríku Þrír sigrar og þrjú töp í sex leikjum. Frökkum hefur gengið verst gegn liðum frá Afríku af öllum heimsálfum.
1. mín
Nayef Aguerd EKKI með, komst ekki í gegnum upphitun Aguerd var tæpur fyrir leikinn en átti að vera í byrjunarliðinu. Í upphitun hefur komið í ljós að hann hefur ekki verið klár í að byrja!

Achraf Dari byrjar í vörninni.
1. mín
Leikur hafinn
GÓÐA SKEMMTUN!!!
Fyrir leik
Öskursungið í þjóðsöngnum! Það var baulað þegar þjóðsöngur Frakklands var spilaður en öskursungið þegar þjóðsöngur Marokkó var kyrjaður. Walid Regragui þjálfari Marokkó virtist öskra mest! Hann fæddist í Frakklandi.

ÞETTA ER AÐ BYRJA!
Fyrir leik
Minn uppáhalds leikmaður í Marokkó?

Sofyan Amrabat. Hefur verið magnaður á miðju liðsins og veitt vörninni öflugt skjól. Amrabat er 26 ára leikmaður Fiorentina, hefur meðal annars verið orðaður við Liverpool og Tottenham.
Fyrir leik
Mbappe dúndraði í áhorfanda í upphitun

En var fljótur að mæta og athuga hvort það væri ekki í lagi með manninn!
Fyrir leik
Ofboðslega mikill missir af Rabiot

„Það er ofboðslega mikill missir af Rabiot fyrir Frakkana. Leikur Frakka gengur út á það að Mbappe fái sína frjálsu rullu. Rabiot hefur farið í hans stöðu varnarlega og leyst hana mjög vel, hann hefur verið að loka svæðum. Ég held að missirinn sé gríðarlega mikill." segir Adda, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, í HM stofu RÚV.
Fyrir leik
Heimsmeistararnir klárir
Marokkómenn út um allt!
Fyrir leik
Eins og Marokkó sé gestgjafinn

Mikil stemning er búin að myndast á Al Bayt vellinum fyrir leikinn en Julien Laurens, sérfræðingur um franskan fótbolta hjá BBC segir að það sé eins og Marokkó sé gestgjafinn miðað við stemninguna hjá þeim.

„Stuðningsmenn Marokkó hafa búið til magnað andrúmsloft, það er eins og þeir hafi skipulagt leikinn og eru gestgjafarnir. Frönsku leikmennirnir eru vanir brjáluðum stuðningsmönnum andstæðingana, þetta er ekkert nýtt," skrifar Laurens á BBC.
Fyrir leik
Nýtt HM hringborð kemur inn í kvöld

Undanúrslitin verða gerð upp í hlaðvarpsþættinum HM hringborðið í kvöld. Undirritaður og Sæbjörn Steinke verða í hljóðverinu með tvo góða gesti:

Davíð Snorra Jónasson þjálfara U21 landsliðs Íslands sem hefur verið sérfræðingur okkar á mótinu og svo Óðinn Svan Óðinsson frétta- og íþróttafréttamann RÚV.

Tveir Leiknismenn og tveir Þórsarar. Góð blanda.
Fyrir leik
Aguerd og Mazraoui snúa aftur Hjá Marokkó snúa miðvörðurinn Nayef Aguerd (West Ham) og bakvörðurinn Noussair Mazraoui (Bayern München) aftur í byrjunarliðið en þeir misstu af sigrinum gegn Portúgal vegna meiðsla.

Jawad El Yamiq (Valladolid) heldur sæti sínu sem þýðir að Marokkó er að öllum líkindum að fara í fimm manna vörn. Yahya Attiat-Allah og Selim Amallah fara á bekkinn.
Fyrir leik
Tvær franskar breytingar frá Englandsleiknum Ibrahima Konate varnarmaður Liverpool og Youssouf Fofana miðjumaður Mónakó koma inn í stað Dayot Upamecano og Adrien Rabiot sem eru veikir.

Olivier Giroud, Antoine Griezmann og Kylian Mbappe eru allir á sínum stað í byrjunarliðinu.

Fyrir leik
Marokkó er í 5-3-2 leikkerfi í kvöld!
Ekki ólíklegt að þessi gæi hendi upp sýningu í kvöld
Fyrir leik
Rabiot veikur upp á hótelherbergi

Adrien Rabiot, miðjumaður Juventus, er samkvæmt fréttum of veikur til að vera í leikmannahópi Frakklands gegn Marokkó í undanúrslitum HM í kvöld.

Flensa hefur hreiðrað um sig í franska hópnum og Rabiot verið veikur ásamt Dayot Upamecano.

L’Equipe segir að þeir tveir séu ekki nægilega ferskir til að vera í byrjunarliði Frakklands í kvöld og Rabiot verði upp á hótelherbergi að hvílast.

Búist er við því að Youssouf Fofana komi inn fyrir Rabiot og Ibrahima Konate inn í byrjunarliðið fyrir Upamecano.
Fyrir leik
Svona er spá lesenda Fótbolta.net
Fyrir leik
Elísabet Gunnarsdóttir spáir einnig 2-0: Held að Marokkó sé búið að maxa sitt og Frakkar líta bara sterkari og sterkari út. Verður einstaklega gaman að sjá hvernig Frakkar munu brjóta niður lágu blokkina sem Marokkó hefur brillerað með hingað til. En Giroud er líka á eldi í augnablikinu.

Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Stemningin á Souq Waqif markaðnum í Doha magnast


Fyrir leik
Höddi Magg spáir líka 2-0: Frakkar eru með of gott lið fyrir Marokkó. Norður-Afríkumennirnir eru verðskuldað í undanúrslitum en þeirra hlutskipti verður að leika um bronsið, sem er framar þeirra björtustu vonum. Leikurinn endar 2-0, Kylian og Óliver sjá um mörkin.

Fyrir leik
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, spáir 2-0 fyrir Frakklandi: Er ansi hræddur um að frábærri vegferð Marokkó sé að ljúka. Frakkar séu of sterkir. Marokkó eru búnir að spila stórkostlega vörn en Frakkar eru með mörk úr öllum áttum. Deschamps á mikið hrós skilið að búa til heilsteypt lið eftir áföllin fyrir mót, og líka að missa leikmenn á motinu í meiðsli. Margir tala um framlínu Frakka en hjartað er miðjan með Griezmann endurfæddan.

Fyrir leik
Achraf Hakimi, bakvörður Marokkó, og Kylian Mbappe, sóknarmaður Frakklands, eru að fara að mætast. Hvernig mun Hakimi ganga að stöðva vin sinn og liðsfélaga hjá PSG?
Fyrir leik


Hugo Lloris, markvörður og fyrirliði Frakklands, segir að hann og Harry Kane, sóknarmaður Englands, hafi skipst á skilaboðum eftir að Frakkland vann viðureign liðanna í 8-liða úrslitum HM á laugardaginn.

„Við áttum í smá samskiptum eftir leikinn, það var ekki auðvelt að finna orðin. Hann þurfti tíma til að hvílast. Það er erfiður tími fyrir enska landsliðið og fyrir Harry en ég tel að hann geti verið stoltur af því sem hann hefur gert fyrir þjóð sína," segir Lloris.

Lloris og Kane eru samherjar hjá Tottenham en Kane skaut yfir úr vítaspyrnu á laugardag, þegar hann hefði getað jafnað 2-2.

„Í fótboltasögunni hafa margir toppleikmenn klúðrað vítaspyrnum á ferlinum; Lionel Messi, Cristiano Ronaldo... en ég er ekki í vafa um að Harry mun bera höfuðið hátt og hjálpa Tottenham og landsliðinu að skína."

Lloris um leikinn gegn Marokkó:
„Marokkó hefur lagt Belgíu, Spán og Portúgal og vann virkilega erfiðan riðil. Það segir manni að þetta er gæðalið sem verður erfiður andstæðingur," segir Lloris.

„Stuðningsmenn þeirra verða með læti en við erum undirbúnir fyrir allt. Við þurfum að sýna að við erum tilbúnir að hækka rána, við þurfum að eiga toppleik. Þetta er einstakt tækifæri fyrir bæði lið að komast í úrslitaleikinn. Þó Marokkómenn hafa þegar notið mikillar velgengni þá vilja þeir ekki stoppa núna, trúið mér."
Fyrir leik


Didier Deschamps, þjálfari Frakklands, um Antoine Griezmann:
„Hann hefur átt virkilega gott mót og þarf að halda uppteknum hætti í þessum leik. Hann spilar öðruvísi hlutverk á þessu móti og það hentar honum mjög vel. Hann er með hættulegan vinstri fót og skapar tækifæri fyrir aðra. Hann hugsar alltaf fyrst og fremst um liðið. Hann leggur mikið á sig en hann hefur verið elítuleikmaður núna í tíu ár. Hann hefur átt erfiða tíma eins og allir leikmenn en er andlega sterkur. Eins og allir góðir leikmenn þá spilar hann best gegn góðum liðum."

Fyrir leik
„Erum með bestu stuðningsmenn heims og getum unnið HM“


„Við viljum komast í úrslitaleikinn. Við erum ekki saddir þó við séum fyrsta Afríkuþjóðin til að komast í undanúrslitin. Við viljum fara lengra. Við mætum besta liði heims en erum einbeittir á það sem við viljum afreka," segir Walid Regragui, þjálfari Marokkó.

„Þegar þú ert með ástríðu, þrá og einbeitingu ásamt því að vera með stuðningsmennina þér við hlið þá getur þú afrekað allt. Við trúum því að við getum orðið heimsmeistarar."

„Við komum með 20 þúsund stuðningsmenn, þetta eru rosalegir stuðningsmenn, þeir bestu í heiminum. Við kynnum þá fyrir heimsbyggðinni."

Regragui er með tvöfalt ríkisfang en hann fæddist einmitt í Frakklandi.

„Já ég fæddist í Frakklandi. Ég er virkilega stoltur af því. En það er sama hver mótherjinn er, við viljum komast í úrslitaleikinn. Það er áskorun að mæta besta liði heims en það skiptir ekki máli hver mótherjinn er þegar við spilum fyrir Marokkó, við erum Marokkó."

Fyrir leik
Líkleg byrjunarlið Frakklands og Marokkó:


Byrjunarlið Frakklands er sjálfvalið, það eru engin vandræði í leikmannahópi Didier Deschamps. Theo Hernandez hefur staðið sig vel í vinstri bakverðinum eftir að bróðir hans Lucas Hernandez meiddist gegn Ástralíu í fyrsta leik.

Olivier Giroud, markahæsti leikmaður Frakklands í sögunni, getur orðið elsti leikmaður sögunnar sem nær að skora fimm mörk á einu heimsmeistaramóti.

Hjá Marokkó er sóknarmaðurinn Walid Cheddira í leikbanni eftir að hafa fengið tvö gul með stuttu millibili gegn Portúgal. Þessi 24 ára leikmaður hefði líklega ekki verið í byrjunarliðinu hvort sem er.

Það eru meiðsli í varnarlínunni sem eru mesta áhyggjuefni Marokkó. Nayef Aguerd, leikmaður West Ham, missti af sigrinum gegn Portúgal í 8-liða úrslitum vegna meiðsla en Marokkó þarf á honum að halda í kvöld eftir að Roman Saiss fyrirliði var borinn af velli vegna meiðsla aftan í læri í siðasta leik.

Aguerd og Saiss eru báðir tæpir fyrir leikinn en Saiss hefur sagt að hann muni gera allt sem hann getur til að spila. Bakvörðurinn Noussair Mazraoui sem er hjá Bayern München missti af síðasta leik en hann ku vera klár í slaginn á ný.

Hakim Ziyech verður væntanlega á sínum stað í byrjunarliðinu þó hann hafi þurft að fara af velli gegn Portúgal.

Líklegt byrjunarlið Frakklands:
Lloris; Kounde, Varane, Upamecano, T. Hernandez; Tchouameni, Rabiot; Dembele, Griezmann, Mbappe; Giroud

Líklegt byrjunarlið Marokkó:
Bono; Hakimi, El Yamiq, Aguerd, Mazraoui; Ounahi, Amrabat, Amallah; Ziyech, En-Nesyri, Boufal
Fyrir leik


Mexíkóski dómarinn César Ramos mun dæma leik Frakklands og Marokkó. Ramos hefur komið að mörgum leikjum á þessu móti en hann dæmdi meðal annars leik Marokkó og Belgíu í riðlakeppninni er Marokkó vann óvæntan sigur. Þá var hann á flautunni í leik Danmerkur og Túnis og svo leik Portúgals og Sviss í 16-liða úrslitum.
Fyrir leik


Marokkó er fyrsta Afríkuþjóðin sem kemst í lokakeppni HM. Öflugur varnarleikur hefur verið lykillinn að árangri liðsins. Á leið sinni í undanúrslitin hefur liðið lagt Belga, Spánverja og Portúgala. Heldur ævintýrið áfram eða er nú komið að leiðarlokum?


Youssef En-Nesyri stökk 2,8 metra frá jörðinni þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Portúgal
Fyrir leik


Frakkland vann 2-1 sigur gegn Englandi í 8-liða úrslitum, þar sem Olivier Giroud skoraði sigumarkið. Didier Deschamps, þjálfari Frakka, talaði um að heppnin hafi verið með sínum mönnum í liði. Frakkland er mun sigurstranglegri aðilinn fyrir þennan leik í kvöld. Þessi lið hafa fimm sinnum mæst í sögunni, Frakkar unnið þrjá leiki, eitt jafntefli og einn marokkóskur sigur.
Fyrir leik


Al Bayt leikvangurinn er hannaður eftir tjöldum innfæddra á Arabíuskaganum og tekur hann 60 þúsund áhorfendur. Sjö af átta leikvöngum HM voru sérstaklega byggðir fyrir mótið og Al Bayt er einn af þeim.
Fyrir leik
Velkomin með okkur í beina textalýsingu frá seinni undanúrslitaleik HM. Ríkjandi heimsmeistarar Frakklands leika gegn Marokkómönnum sem hafa komið verulega á óvart á mótinu, það verður flautað til leiks klukkan 19.
Byrjunarlið:
1. Yassine Bounou (m)
2. Achraf Hakimi
3. Noussair Mazraoui ('46)
4. Sofyan Amrabat
6. Romain Saiss (f) ('21)
7. Hakim Ziyech
8. Azzedine Ounahi
17. Sofiane Boufal ('67)
18. Jawad El Yamiq
19. Youssef En-Nesyri ('67)
20. Achraf Dari

Varamenn:
12. Munir Mohamedi (m)
22. Ahmed Reda Tagnaouti (m)
5. Nayef Aguerd
9. Abderrazak Hamdallah ('67)
10. Anass Zaroury
11. Abdelhamid Sabiri
13. Ilias Chair
14. Zakaria Aboukhlal ('67)
15. Selim Amallah ('21) ('78)
16. Abde Ezzalzouli ('78)
23. Bilal El Khannous
24. Badr Benoun
25. Yahia Attiyat Allah ('46)
26. Yahya Jabrane

Liðsstjórn:
Walid Regragui (Þ)

Gul spjöld:
Sofiane Boufal ('27)

Rauð spjöld: