Víkingsvöllur
laugardagur 18. mars 2023  kl. 14:00
Undanúrslit Lengjubikarsins
Aðstæður: Skýjað, kalt og einhver úrkoma. Gervigrasið lítur samt vel út.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Víkingur R. 0 - 1 Valur
0-1 Birkir Heimisson ('91)
Myndir: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan ('65)
7. Erlingur Agnarsson ('46)
9. Helgi Guðjónsson ('65)
10. Pablo Punyed
15. Arnór Borg Guðjohnsen ('65)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen (f)
27. Matthías Vilhjálmsson ('65)

Varamenn:
16. Þórður Ingason (m)
8. Viktor Örlygur Andrason ('65)
11. Gísli Gottskálk Þórðarson
12. Halldór Smári Sigurðsson ('65)
19. Danijel Dejan Djuric ('46)
24. Davíð Örn Atlason ('65)
26. Sveinn Gísli Þorkelsson ('65)

Liðstjórn:
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Sölvi Ottesen
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Karl Friðleifur Gunnarsson ('37)
Danijel Dejan Djuric ('52)
Sveinn Gísli Þorkelsson ('94)

Rauð spjöld:
@saebjornth Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
97. mín Leik lokið!
Valur í úrslitaleikinn

Eyða Breyta
96. mín Gult spjald: Birkir Heimisson (Valur)
Allir inn í teig hjá Víkingi. Ingvar tekur aukaspyrnu.
Eyða Breyta
94. mín Gult spjald: Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.)
Pétur vill meina að Sveinn hafi látið sig detta inn í vítateig Vals.
Eyða Breyta
94. mín
Hendi??
Víkingar vilja fá hendi víti. Ekkert dæmt. Boltinn fór í Guðmund Andra.
Eyða Breyta
94. mín
Karl Friðleifur með góða fyrirgjöf, Nikolaj lætur vaða en boltinn af Valsara og afturfyrir. Hornspyrna.
Eyða Breyta
92. mín Gult spjald: Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)

Eyða Breyta
91. mín MARK! Birkir Heimisson (Valur)
MAAAAAARK
Boltinn fer af Oliver í teignum og Birkir Heimisson hælar boltann, skoppar yfir Ingvar og í netið.

Slysalegt hjá Oliver. Valur á leið í úrslitaleikinn.
Eyða Breyta
91. mín
Fimm mínútum bætt við

Eyða Breyta
89. mín
Orri Hrafn með skot í varnarmann. Valur á hornspyrnu.

Pablo þarf fyrst aðhlynningu.
Eyða Breyta
88. mín
Slök hornspyrn frá Lúkasi, alltof há. Núna er byrjað að snjóa og skyggnið talsvert verra.
Eyða Breyta
87. mín
Þrumuskot
Lúkas Logi með þrumuskot við vítateiginn en skotið fer í Halldór Smára.

Sókn Vals hélt áfram og þeir eiga núna hornspyrnu.
Eyða Breyta
86. mín
Danijel Djuric með skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá fjærstönginni.
Eyða Breyta
85. mín
Dauðafæri!
Danijel með stungusendingu inn á Karl Friðleif sem lætur ekki vaða í fyrsta í hörkufæri! Viktor Örlygur á aumt skot sem Valsmenn koma fyrir.
Eyða Breyta
84. mín Haukur Páll Sigurðsson (Valur) Elfar Freyr Helgason (Valur)

Eyða Breyta
83. mín
Logi með flottan bolta fyrir en Nikolaj kemst ekki í hann og enginn Víkingur á fjær. Sóknin fjarar svo út í sandinn.
Eyða Breyta
82. mín
Elfar Freyr fær aðhlynningu. Held að Haukur Páll sé að koma inná.
Eyða Breyta
81. mín
Ansi þéttur varnarmúr hjá Val. Víkingur full oft of lengi að keyra á gestina þegar þeir eru ekki komnir í stöðu. Eftir að Valur nær því þá er verkefnið mjög erfitt.
Eyða Breyta
77. mín Birkir Heimisson (Valur) Birkir Már Sævarsson (Valur)
Hlynur fer í hægri bakvörðinn.
Eyða Breyta
77. mín
Víkingur enn ekki látið reyna á Frederik
Viktor Örlygur í frábæru skotfæri við vítateiginn, galopinn en dregur boltann framhjá nærstönginni. Hafði meiri tíma en hann hélt.
Eyða Breyta
76. mín
Ég er nokkuð viss um að það sé farið beint í vítaspyrnukeppni ef niðurstaðan er jafntefli eftir hefðbundinn leiktíma (90mín+uppbót).
Eyða Breyta
73. mín
Frederik nær að kýla boltann í burtu eftir hornspyrnu. Valsmenn keyra upp og eru við það að komast í hörkustöðu en Davíð Atlason nær að komast fyrir stungusendingu og stoppa hraða sókn Vals.
Eyða Breyta
72. mín
Fín sókn hjá Víkingi, vel spilað en Lúkas Logi nær að koma boltanum afturfyrir og í horn.
Eyða Breyta
70. mín
Ekkert kom úr hornspyrnu frá Víkingi. Boltinn barst alla leið á Ingvar sem þrumaði alla leið á Frederik í hinu markinu.
Eyða Breyta
69. mín
Lúkas Logi fellur í vítateig Víkings en ekkert dæmt, smá tæpt en líklega rétt niðurstaða.
Eyða Breyta
65. mín Guðmundur Andri Tryggvason (Valur) Aron Jóhannsson (Valur)
Tvöföld hjá Val.
Eyða Breyta
65. mín Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur) Adam Ægir Pálsson (Valur)

Eyða Breyta
65. mín Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.) Kyle McLagan (Víkingur R.)
Fjórföld breyting. Logi og Karl Friðleifur færast ofar.
Eyða Breyta
65. mín Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Arnór Borg Guðjohnsen (Víkingur R.)

Eyða Breyta
65. mín Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.) Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.)

Eyða Breyta
65. mín Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)

Eyða Breyta
61. mín
Pétur virðist dæma brot á Kyle í einvigi við Orra Hrafn. Mér fannst Kyle vinna boltann. Bendingarnar allavega eins og brotið sé dæmt á Kyle. Valsmenn bakka þó. Kyle liggur eftir.

Niðurstaðan að Orri var dæmdur brotlegur.
Eyða Breyta
60. mín
Danijel með fyrirgjöf inná teig Vals, Frederik hugrakkur og hendir sér á boltann og handsamar hann.
Eyða Breyta
60. mín
Arnar Grétarsson kallar á þá Guðmund Andra og Tryggva Hrafn. Þeir eiga að koma inná.
Eyða Breyta
58. mín
Aron Jó í fínustu stöðu en hitti einfaldlega ekki boltann við vítateigslínuna, eða reyndi einhverja vippu með hægri, skrítin sena. Boltinn endar í höndunum á Ingvari.
Eyða Breyta
55. mín
Kyle situr eftir og þarf aðhlynningu, eitthvað aftan í læri en Kyle heldur leik áfram.
Eyða Breyta
55. mín
Nikolaj sendir út á Matthías í teignum, Matti í hlaupinu og nær ekki að koma fótunum fyrir sig. Skotið yfir mark Vals.
Eyða Breyta
54. mín
Niko fyrir Arnóri!
Dauðafæri hjá Víkingi eftir gott spil. Boltinn endar hjá Arnóri Borg sem á tilraun en Nikolaj stendur fyrir honum. Arnór kannski aðeins of lengi að athafna sig, tók við boltanum eftir sendingu frá Helga í stað þess að lúðra í fyrsta.
Eyða Breyta
53. mín
Orri Hrafn í þröngu færi í teignum, lætur vaða þvert fyrir mark Víings en skotið er framhjá.
Eyða Breyta
52. mín Gult spjald: Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)
Strangt
Danijel féll inní teig og Pétur rífur strax upp spjald. Aldrei víti en Danijel var ekki að biðja um neitt. Ansi strangt.
Eyða Breyta
49. mín
Lúkas Logi með skot í fyrsta eftir sendingu frá Birki Má talsvert frá vítateig Víkings. Skotið vel yfir.
Eyða Breyta
48. mín
Stangarskot
Adam með hættulegan bolta inn á teiginn, Elfar kemst í boltann og á skot í stöninga úr þröngu færi!
Eyða Breyta
46. mín
Brot dæmt þegar Orri Hrafn fer niður nokkrum metrum fyrir utan vítateig Víkings. Kyle dæmdur brotlegur og Orri liggur eftir.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Ein breyting í hálfleik. Danijel kemur á vinstri kantinn og Arnór fer á þann hægri.
Eyða Breyta
46. mín Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.) Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)

Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Pétur flautar til hálfleiks. Valur hefur áfram ekki fengið á sig mark í Lengjubikarnum.
Eyða Breyta
45. mín
Karl Friðleifur í vafasömum aðgerðum
Kalli vildi hægja á upphlaupi Vals og var með hendur á Adam. Brot dæmt á Kalla, áhætta að verjast svona á gulu spjaldi.
Eyða Breyta
45. mín
Tvær mínútur í uppbótartíma.
Eyða Breyta
44. mín
Darraðadans í Valsteignum
Víkingur í séns en Nikolaj og Erlingur ná ekki skoti á mark Vals eftir sendingu frá Helga. Elfar Freyr með góðan varnarleik og boltinn endar í höndum Frederiks.
Eyða Breyta
43. mín
Vel varist hjá Sigga
Flott sending ætluð Erlingi í hlaupinu en Sigurður Egill hleypur hann uppi og nær að tækla boltann í innkast.
Eyða Breyta
40. mín
Fokk off maður
Oliver dæmdur brotlegur í einvígi við Aron. Arnar allt annað en sáttur við þetta

'Fokk off maður. Come on Pétur'!

Eyða Breyta
37. mín Gult spjald: Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
Keyrði inn í Adam við hlíðarlínuna fyrir framan varamannabekk Vals. Verðskuldað gult.
Eyða Breyta
33. mín
Víkingar hreinsa hornspyrnu Valsara í burtu og svo fyrirgjöfina sem kom í kjölfarið.
Eyða Breyta
31. mín
Vítalykt í teig Víkings
Sigurður Egill virtist halda að hann væri rangstæður, beið í eina sekúndu áður en hann hélt áfram með boltann upp vinstri kantinn. Sá Kristin í hlaupinu inná teignum, kom með góðan bolta fyrir sem Kiddi komst í en skotið frá Kidda framhjá. Kiddi kallar eftir vítaspyrnu, vill meina að Matthías hafi farið í bakið á sér. Það var lykt af þessu.


Eyða Breyta
29. mín
Helgi aftur nálægt því að komast í upplagt færi
Pablo með hornspyrnuna og í kjölfarið kemur annar bolti fyrir sem Oliver kemst í, stýrir boltanum fyrir mitt markið en Helgi nær ekki til boltans fyrir opnu marki og Valsmenn hreinsa. Víkingar ógna!
Eyða Breyta
28. mín
Hólmar Örn bjargar marki
Snarpt upphlaup hjá Víkingi upp hægri vænginn, Karl fær boltann frá Erlingi og hann reynir að finna Helga á fjær. Hólmar Örn rennir sér fyrir og hreinsar í horn.
Eyða Breyta
27. mín
Nikolaj með bandið í sumar?
Nikolaj Hansen er með fyrirliðabandið hjá Víkingi í dag. Það verður fróðlegt að sjá hver mun bera bandið í sumar. Júlíus Magnússon var fyrirliði liðsins í fyrra en hann var seldur til Fredrikstad í vetur.

Eyða Breyta
23. mín
Valsmenn taka sér góðan tíma í að taka hornspyrnu. Adam kemur með boltann og Ingvar nær að handsama boltann í annarri tilraun. Oliver Ekroth fær eitthvað högg og þarf smá tíma til að jafna sig.
Eyða Breyta
21. mín
Aukaspyrna, svo kallað eftir víti
Elfar brýtur af sér við hliðarlínu.

Pablo með boltann inn á teig og Nikolaj kemst í boltann. Í kjölfarið er boltanum sparkar Valsari boltanum upp í höndina á sér og Víkingar kalla efir vítaspyrnu. Pétur segir áfram með leikinn. Þetta var Hólmar Örn sem var að reyna hreinsa boltanum úr vítateig sínum.
Eyða Breyta
19. mín
Valur afur í fínni sókn upp hægri kantinn. Fín fyrirgjöf en Karl hreinsar í hornspyrnu.

Vikingar snúa vörn í sókn eftir hornspyrnuna hjá Val.
Eyða Breyta
18. mín
Valsarar brunuðu upp
Valsarar keyrðu upp eftir sókn Víkings, sóttu upp hægri kantinn og endaði sókninn á skoti frá Lúkasi Loga inn á teignum en Ingvar gerði virkilega vel að verja skotið og halda boltanum.
Eyða Breyta
18. mín
Kyle í dauðafæri
Pablo með flotta spyrnu sem Kyle kemst í og fær nokkuð frían skalla. Sú tilraun hins vegar yfir.
Eyða Breyta
17. mín
Vel spilað hjá Víkingi
Flott spil hjá heimamönnum upp hægri vænginn, endar á fyrirgjöf frá Erlingi sem skölluð er aftur fyrir. Önnur hornspyrna Víkings í leiknum.
Eyða Breyta
14. mín
Víkingur fær hornspyrnu. Matthías með boltann á fjær og er ósáttur við að Arnór hafi ekki gert árás á boltann. Sigurður Egill hreinsaði í horn.

Víkingur hélt smá pressu í kjölfar hornspyrnunnar en Adam gerði að lokum vel og vann markspyrnu.
Eyða Breyta
11. mín
Pétur aðvarar Pablo
Orri Hrafn reynir að keyra upp völlinn en Pablo tekur hann niður. Pablo fær tiltal frá Pétri dómara.
Eyða Breyta
10. mín
Adam með spyrnuna og Hólmar Örn reynir við boltann en Ingvar öflugur, handsamar boltann og heldur honum þrátt fyrir smá högg frá Hólmari.
Eyða Breyta
10. mín
Fyrsta hornspyrnan
Lúkas Logi með fyrirgjöf sem Logi skallar afturfyrir. Valur fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
Eyða Breyta
7. mín
Fyrsta marktilraunin
Arnór með fyrirgjöf af vinstri kantinum sem Frederik er á undan Matthíasi í. Boltinn fellur fyrir Pablo í teignum sem klippir boltann en hittir hann ekki vel og skotið yfir mark Vals.
Eyða Breyta
4. mín
Aron brýtur á Karli sem var að gefa boltann til baka á Ingvar. Aron var seinn í Kalla og Víkingar ekki sáttir.
Eyða Breyta
3. mín
Uppstilling Vals
Frederik
Birkir - Hólmar - Elfar - Sigurður
Hlynur - Orri
Adam - Kristinn - Lúkas
Aron
Eyða Breyta
2. mín
Uppstilling Víkings
Ingvar
Karl - Kyle - Oliver - Logi
Erlingur - Pablo - Matthías - Arnór
Nikolaj - Helgi

Eitthvað í þessa áttina.

Eyða Breyta
1. mín
Valur byrjar með boltann
Þetta er farið af stað!
Eyða Breyta
Fyrir leik
2. flokkur Vals að spila
Var að fá ábendingu um að Valur á leik í 2. flokki seinna í dag. Það útskýrir af hverju það er ekki full skýrsla!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Gola og eins stigs hiti
Við erum við frostmarkið í Víkinni. Ein gráða á mælinum og smá gola.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ótímabæra spáin
Víkingur endaði í 3. sæti á síðasta tímabili og varð bikarmeistari. Valur endaði í 6. sæti.

Í síðustu ótímabæru spá fyrir Íslandsmótið var Víkingi spáð 2. sæti og Val 3. sætinu.


Arnar Grétarsson tók við Val eftir síðasta tímabili. Honum til aðstoðar er Siggi Höskulds
Eyða Breyta
Fyrir leik
Komnir/farnir
Víkingur

Komnir
Matthías Vilhjálmsson frá FH
Sveinn Gísli Þorkelsson frá ÍR

Farnir
Adam Ægir Pálsson í Val (var á láni hjá Keflavík)
Júlíus Magnússon til Fredrikstad
Kristall Máni Ingason til Rosenborg

Valur

Komnir
Adam Ægir Pálsson frá Víkingi (var á láni hjá Keflavík)
Andri Rúnar Bjarnason frá ÍBV
Elfar Freyr Helgason frá Breiðabliki
Hlynur Freyr Karlsson frá Bologna
Kristinn Freyr Sigurðsson frá FH
Lúkas Logi Heimisson frá Fjölni
Óliver Steinar Guðmundsson frá Atalanta

Farnir
Andri Adolphsson í Stjörnuna
Arnór Smárason í ÍA
Arnór Ingi Kristinsson í Leikni á láni
Ágúst Eðvald Hlynsson í Breiðablik (var á láni frá Horsens)
Guy Smit í ÍBV á láni
Heiðar Ægisson í Stjörnuna
Jesper Juelsgaard til Fredericia
Lasse Petry hættur
Rasmus Christiansen í Aftureldingu
Sebastian Hedlund til Öster
Sverrir Páll Hjaltested í ÍBV (var á láni hjá Kódrengjum)
Eyða Breyta
Fyrir leik
Víkingur endaði með fullt hús - Valur fékk ekki á sig mark
Valur vann riðil 1 í Lengjubikarnum, endaði þar með þrettán stig úr fimm leikjum og með markatöluna 8-0. Liðið vann fjóra leiki og gerði jafntefli við Grindavík.

Víkingur vann riðil 3 með fullt hús stiga og markatöluna 12-2. Nikolaj Hansen var markahæsti leikmaður liðsins í riðlinum með fjögur mörk og Helgi Guðjónsson skoraði þrjú. Þeir eru báðir í byrjunarliðinu í dag.
Vinstri bakvörðurinn Sigurður Egill var markahæstur hjá Val í riðlinum, skoraði þrjú mörk
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið Vals: Hlynur Freyr byrjar - Ekki full skýrsla
Það vekur athygli að einungis sex varamenn eru á skýrslu hjá Val. Enginn Andri Rúnar Bjarnason er sjáanlegur þar og Patrick Pedersen glímir við meiðsli. Óliver Steinar Guðmundsson, sem kom frá Atalanta í vetur, er ekki heldur á skýrslu. Þar er hinn átján ára gamli Djordje Biberdzic sem gekk í raðir Vals fyrir tæpu ári síðan, kom þá frá Serbíu og lék með 2. flokki í fyrra. Hann er ekki skráður með númer á skýrslu og er því númer 99 þar til annað kemur í ljós.

Fyrirliði U19 landsliðsins, Hlynur Freyr Karlsson, sem kom frá Bologna í vetur, er í byrjunarliðinu í dag. Hann spilar oftast í hægri bakverði en er líklega miðsvæðist í dag þar sem Birkir Már Sævarsson er líka inná.


Hlynur Freyr
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkings: Birnir ekki í hóp - Matti á miðjunni?

Ari Sigurpálsson er frá vegna meiðsla.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrri undanúrslitaleikurinn fer fram á Víkingsvelli
Lengjubikar karla - A-deild úrslit
14:00 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
16:05 ÍBV-KA (Akraneshöllin)


Eyða Breyta
Byrjunarlið:
16. Frederik Schram (m)
2. Birkir Már Sævarsson ('77)
4. Elfar Freyr Helgason ('84)
6. Hlynur Freyr Karlsson
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
19. Orri Hrafn Kjartansson
22. Aron Jóhannsson ('65)
23. Adam Ægir Pálsson ('65)

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
5. Birkir Heimisson ('77)
7. Haukur Páll Sigurðsson ('84)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('65)
14. Guðmundur Andri Tryggvason ('65)
99. Djordje Biberdzic

Liðstjórn:
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Jóhann Emil Elíasson
Arnar Grétarsson (Þ)
Sigurður Heiðar Höskuldsson

Gul spjöld:
Tryggvi Hrafn Haraldsson ('92)
Birkir Heimisson ('96)

Rauð spjöld: