Würth völlurinn
þriðjudagur 02. maí 2023  kl. 19:15
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Frekar kalt en hvorki vindurinn né bleyta mun hafa áhrif
Dómari: Jovan Subic
Maður leiksins: Karmyn Carter (Afturelding)
Fylkir 2 - 2 Afturelding
1-0 Sunneva Helgadóttir ('8)
2-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('25)
2-1 Karmyn Carter ('56)
2-2 Snæfríður Eva Eiríksdóttir ('60)
Alexander Aron Davorsson, Afturelding ('93)
Myndir: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
2. Signý Lára Bjarnadóttir
3. Mist Funadóttir
6. Sara Dögg Ásþórsdóttir
9. Guðrún Karítas Sigurðardóttir
11. Viktoría Diljá Halldórsdóttir
16. Eva Rut Ásþórsdóttir (f)
18. Erna Sólveig Sverrisdóttir ('85)
19. Tijana Krstic
20. Sunneva Helgadóttir ('71)
23. Helga Guðrún Kristinsdóttir

Varamenn:
12. Rebekka Rut Harðardóttir (m)
7. Tinna Harðardóttir ('71)
13. Kolfinna Baldursdóttir
17. Birna Kristín Eiríksdóttir
21. Elísa Björk Hjaltadóttir
24. Rakel Mist Hólmarsdóttir
31. Birta Margrét Gestsdóttir ('85)

Liðstjórn:
Tinna Björk Birgisdóttir
Michael John Kingdon
Halldór Steinsson
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Bjarni Þórður Halldórsson
Sonný Lára Þráinsdóttir

Gul spjöld:
Helga Guðrún Kristinsdóttir ('55)
Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('84)
Eva Rut Ásþórsdóttir ('92)

Rauð spjöld:
@haraldur_orn Haraldur Örn Haraldsson
95. mín Leik lokið!
Liðin skilja jöfn hér í Árbæ þar sem leikurinn skiptist töluvert eftir hálfleikjum.

Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld.
Eyða Breyta
95. mín
Fylkir svo nálægt því að komast yfir
Mist setur frábæran skalla inn í teig sem finnur hausinn á Helgu Guðrúnu sem en skallinn hennar er varinn.
Eyða Breyta
93. mín Rautt spjald: Alexander Aron Davorsson (Afturelding)
Ekki alveg viss hvort það sé Alexander en það var einhver á bekknum sem fékk rautt.
Eyða Breyta
92. mín Gult spjald: Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
92. mín
Dauðafæri fyrir Fylki
Afturelding gefur boltan frá sér í öftustu línu og Eva Rut er sloppin í gegn en hún skýtur beint á markmanninn.
Eyða Breyta
90. mín
Fylkir fær aukaspyrnu sem Tijana tekur. Hún svoleiðis þrumar svo boltanum beint í andlitið á einni Aftureldingar konunni í veggnum þannig að hún þarfnast aðhlynningar.
Eyða Breyta
86. mín
Mist tekur skot fyrir utan teig eftir hornspyrnu sem fer yfir markið
Eyða Breyta
85. mín Birta Margrét Gestsdóttir (Fylkir) Erna Sólveig Sverrisdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
84. mín Gult spjald: Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
78. mín
Afturelding þjarmar að Fylkiskonunum og ná að skapa fínt færi fyrir Snæfríði sem skýtur svo beint á Tinnu í markinu.
Eyða Breyta
75. mín Ragna Guðrún Guðmundsdóttir (Afturelding) Sigrún Eva Sigurðardóttir (Afturelding)

Eyða Breyta
73. mín
Karmyn Carter nær að stela boltanum af varnarmönnum Fylkis og er nálægt því að komast í gott færi en hún setur skotið í varnarmann.
Eyða Breyta
71. mín Tinna Harðardóttir (Fylkir) Sunneva Helgadóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
70. mín
Þetta er mjög mikið miðjumoð eins og stendur lítið um gæði.
Eyða Breyta
64. mín Hlín Heiðarsdóttir (Afturelding) Magðalena Ólafsdóttir (Afturelding)

Eyða Breyta
60. mín MARK! Snæfríður Eva Eiríksdóttir (Afturelding), Stoðsending: Hildur Karítas Gunnarsdóttir
Afturelding jafnar leikinn!!
Gestirnir fengu aukaspyrnu nálægt miðlínu, Hildur Karítas setti bara boltan inn í teig og Fylkiskonurnar voru bara ekki vakandi og Snæfríður er fyrst í boltan.
Eyða Breyta
56. mín MARK! Karmyn Carter (Afturelding)
Afturelding minnkar muninn!!
Þetta gerðist hratt, flott stungusending í gegnum vörnina og Karmyn er fyrst til boltans og klárar snyrtilega framhjá Tinnu.
Eyða Breyta
55. mín Gult spjald: Helga Guðrún Kristinsdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
53. mín
Guðrún aftur í dauðafæri!
Sunneva hleypur upp kantinn og setur boltan inn í teig þar sem Guðrún er dauðafrí en hún setur boltan framhjá úr upplögðu færi.
Eyða Breyta
53. mín
Hættulegur bolti inn í teig frá Aftureldingu en Karmyn rétt svo nær ekki til boltans.
Eyða Breyta
47. mín
Fylkir byrjar vel og Sunneva kemur með góðan bolta inn í teig sem Eva Ýr er í stökustu vandræðum með. Það fylgir smá ping pong inn í teig en gestirnir hreinsa á endanum.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn

Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Fylkir leiða í hálfleik frekar verðskuldað.
Eyða Breyta
45. mín
Hvað er Aftuelding að gera
Enn og aftur eru gestirnir eitthvað að dóla á boltanum í öftustu línu og Guðrún Karítas stelur af þeim boltan. Guðrún gerir hinsvegar ekki alveg nógu vel með færið þar sem hún lætur verja frá sér.
Eyða Breyta
44. mín
Fylkir fær hornspyrnu rétt hjá hornfánanum eftir að brotið var á Helgu Guðrúnu sem er búin að vera virkilega hættuleg hér í fyrri hálfleik.

Spyrnan er sett inn í teig en gestirnir ná að hreinsa.
Eyða Breyta
41. mín
Dauðafæri fyrir Fylki!!!
Maya er eitthvað að leika sér með boltan í vörninni og Guðrún stelur af henni boltan þannig að hún er komin ein á móti markmanni.

Skotið er hinsvegar varið af Evu en dómarinn ákveður að gefa markspyrnu, skrítið.
Eyða Breyta
38. mín
Snæfríður gerir virkilega vel hérna þar sem hver fylkiskonan eftir öðrum reynir að taka boltan af henni en hún nær með harðfylgni að koma sér inn í teig þar sem hún tekur skotið en það er tiltölulega beint á Tinnu.
Eyða Breyta
35. mín
Góður skalli frá Aftureldingu
Gestirnir eiga aukaspyrnu fyrir utan teig. Þær setja boltan inn í teig og Sigrún Gunndís nær skallanum sem er fastur en fer rétt framhjá.
Eyða Breyta
33. mín
Hildur Karítas gerir mjög vel fyrir framan teig Fylkis og nær að setja boltan yfir á Söru Lissy sem nær skoti á markið en það er varið.
Eyða Breyta
29. mín
Fylkir sækir hér upp vinstri kantinn og Helga Guðrún er næstum búin að prjóna sig í gegnum alla vörnina þegar hún tekur skotið. Það er hinsvegar varið og boltinn fer í horn sem ekkert kemur úr.
Eyða Breyta
25. mín MARK! Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Fylkir)
Fylkir tvöfaldar forystuna!
Alvöru lengjudeildar mark hérna! Langur bolti fram og Guðrún er sterkari og fljótari þannig hún kemst til boltan fyrst og er þá ein á móti markmanni. Hún er svo mjög yfirveguð og klárar framhjá Evu
Eyða Breyta
22. mín Gult spjald: Anna Pálína Sigurðardóttir (Afturelding)

Eyða Breyta
21. mín
Minningarstund.
Allir í stúkunni klappa núna til minningar Þuríðar Örnu Óskarsdóttur sem féll frá nýlega. Falleg stund þar sem dómarinn stoppar meira segja leikinn og allir innan vallarins geta tekið þátt.
Eyða Breyta
14. mín
Sigrún Eva reynir stungusendingu inn á Karmyn. Hugmyndin er mjög góð en Tinna Brá er fljót að hugsa og nær boltanum á undan Karmyn
Eyða Breyta
8. mín MARK! Sunneva Helgadóttir (Fylkir)
MAAAARK!!
Fylkir býr til flotta sókn upp vinstri kantinn þar þar sem Guðrún nær góðu skoti á markið. Eva Ýr í markinu gerir rosalega vel í að verja það en þá lúrir Sunneva út í teig og skorar úr frákastinu i opiið markið.
Eyða Breyta
7. mín
Afturelding byggir upp aðra álitlega sókn en þegar Anna Pálína fær boltan fyrir utan teig tekur hún skotið sem fer langt framhjá.
Eyða Breyta
4. mín
Afturelding á aukaspyrnu við hlið vítateigsins. Sigrún Eva setur góðan bolta inn í teig en Karmyn skallar boltan framhjá.
Eyða Breyta
2. mín
Fylkir með fyrsta færi leiksins. Þær sækja hratt upp vinstri kantinn og ná skoti en boltinn fer í hliðarnetið.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Afturelding sparkar boltanum í leik
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast
Leimenn og dómarar labba hér inn á völlinn og fyrstu leikur deildarinnar fyrir þessi lið fer að hefjast.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómari leiksins
Jovan Zubic mun dæma þennan leik en honum til aðstoðar verða Abdelmajid Zaidy og Bjarni Víðir Pálmason
Eyða Breyta
Fyrir leik
Afturelding
Afturelding féll úr Bestu deildinni í fyrra þar sem þær enduðu í 9. sæti 4 stigum frá öruggu sæti. Liðið stefnir beint aftur upp en þeim er spáð 3. sæti af þjálfurum og fyrirliðum í deildinni.

Liðið hefur ennþá mikið af þeim leikmönnum sem fóru upp um deild fyrir tveimur árum og verður það að teljast styrkleiki. Hinsvegar hefur verið mikið um meiðsli sem gætu sett strik í reikninginn fyrir þjálfara liðsins.
Bjarki Már Sævarsson og Alexander Aron Davorsson, tveir af þjálfurum liðsins.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fylkir
Fylkir endaði í 6. sæti deildarinnar í fyrra eftir að hafa fallið úr efstu deild árið áður. Liðið ætlar sér stærri hluti í ár og er þeim spáð 4. sæti meðal þjálfara og fyrirliða deildarinnar.

Markaskorun varð þeim að falli í fyrra en þær skoruðu einungis 17 mörk og er það eitthvað sem nýr þjálfari liðsins Gunnar Magnús Jónsson hlýtur að ætla að breyta.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Tímabilið að hefjast
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá fyrsta deildarleik þessara liða í Lengjudeild kvenna.

Leikið verður á Wurth vellinum í Árbæ og hefst leikurinn klukkan 19:15

Eyða Breyta
Byrjunarlið:
12. Eva Ýr Helgadóttir (m)
2. Sesselja Líf Valgeirsdóttir
3. Snæfríður Eva Eiríksdóttir
6. Anna Pálína Sigurðardóttir
8. Sigrún Eva Sigurðardóttir ('75)
10. Hildur Karítas Gunnarsdóttir
14. Maya Camille Neal
15. Magðalena Ólafsdóttir ('64)
20. Karmyn Carter
21. Sigrún Gunndís Harðardóttir
77. Sara Lissy Chontosh

Varamenn:
1. Sóley Lárusdóttir (m)
5. Andrea Katrín Ólafsdóttir
7. Hlín Heiðarsdóttir ('64)
13. Katrín S. Vilhjálmsdóttir
18. Ragna Guðrún Guðmundsdóttir ('75)
22. Alexandra Austmann Emilsdóttir
26. Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir

Liðstjórn:
Alexander Aron Davorsson (Þ)
Sigurbjartur Sigurjónsson
Ruth Þórðar Þórðardóttir (Þ)
Bjarki Már Sverrisson (Þ)
Sævar Örn Ingólfsson
Bjarki Þór Aðalsteinsson
Unnar Arnarsson

Gul spjöld:
Anna Pálína Sigurðardóttir ('22)

Rauð spjöld:
Alexander Aron Davorsson ('93)