Nettóhöllin-gervigras
þriðjudagur 09. maí 2023  kl. 19:15
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Frábærar, hægur vindur léttur úði af og til og 10 gráðu hiti
Dómari: Bríet Bragadóttir
Áhorfendur: 115
Maður leiksins: Taylor Marie Ziemer
Keflavík 0 - 6 Breiðablik
0-1 Andrea Rut Bjarnadóttir ('1)
0-2 Kristrún Ýr Holm ('23, sjálfsmark)
0-3 Agla María Albertsdóttir ('26, víti)
Júlía Ruth Thasaphong, Keflavík ('27)
0-4 Katrín Ásbjörnsdóttir ('39)
0-5 Taylor Marie Ziemer ('49)
0-6 Hafrún Rakel Halldórsdóttir ('64)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Vera Varis (m)
2. Madison Elise Wolfbauer
4. Caroline Mc Cue Van Slambrouck
9. Linli Tu ('76)
10. Dröfn Einarsdóttir ('76)
11. Kristrún Ýr Holm (f)
13. Sandra Voitane ('63)
17. Júlía Ruth Thasaphong
18. Kristrún Blöndal ('46)
22. Sigurrós Eir Guðmundsdóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir

Varamenn:
31. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
7. Elfa Karen Magnúsdóttir ('46)
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir
14. Alma Rós Magnúsdóttir ('76)
19. Þórhildur Ólafsdóttir ('76)
23. Watan Amal Fidudóttir
26. Amelía Rún Fjeldsted ('63)

Liðstjórn:
Þorgerður Jóhannsdóttir
Örn Sævar Júlíusson
Luka Jagacic
Sigurður Hilmar Guðjónsson
Jonathan Glenn (Þ)
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir

Gul spjöld:
Júlía Ruth Thasaphong ('25)
Sandra Voitane ('30)
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir ('30)

Rauð spjöld:
Júlía Ruth Thasaphong ('27)
@SEinarsson Sverrir Örn Einarsson
94. mín Leik lokið!
Öruggur sigur Blika staðreynd.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
Eyða Breyta
90. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti 3 mínútur.
Eyða Breyta
86. mín
Breiðablik fær hornspyrnu. Þeirra þrettánda horn í dag.

Ekkert varð úr.
Eyða Breyta
78. mín Clara Sigurðardóttir (Breiðablik) Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)

Eyða Breyta
77. mín
Sjaldséð sókn hjá Keflavík. Amelía Rún gerir vel úti á hægri kanti en fyrirgjöf hennar skölluð frá.
Eyða Breyta
76. mín Þórhildur Ólafsdóttir (Keflavík) Dröfn Einarsdóttir (Keflavík)

Eyða Breyta
76. mín Alma Rós Magnúsdóttir (Keflavík) Linli Tu (Keflavík)

Eyða Breyta
74. mín
Blikar pressa enn og og uppskera horn.

Tekið stutt en ná ekkin að gera sér mat úr því.
Eyða Breyta
70. mín
Toni Pressley með skalla að marki eftir hornspyrnu en boltinn yfir markið.
Eyða Breyta
67. mín Birta Georgsdóttir (Breiðablik) Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Breiðablik)

Eyða Breyta
67. mín Írena Héðinsdóttir Gonzalez (Breiðablik) Taylor Marie Ziemer (Breiðablik)

Eyða Breyta
67. mín Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (Breiðablik) Ásta Eir Árnadóttir (Breiðablik)

Eyða Breyta
64. mín MARK! Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Breiðablik)
Annað glæsimark!

Hafrún fær boltann úti til hægri við vítateigshorn hægra meginn. Nær líka þessu frábæra skoti sem syngur í fjærhorninu.
Eyða Breyta
63. mín Amelía Rún Fjeldsted (Keflavík) Sandra Voitane (Keflavík)

Eyða Breyta
62. mín
Karitas Tómasdóttir með skot sem fer af varnarmanni og afturfyrir.

Blikar rangstæðar í kjölfar hornspyrnunar.
Eyða Breyta
56. mín
Enn sækja Blikar. Taylor með skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri en Vera ver.
Eyða Breyta
54. mín
Hafrún Rakel með skot af varnarmanni eftir horn. Niðurstaðan annað horn.
Eyða Breyta
49. mín MARK! Taylor Marie Ziemer (Breiðablik)
Alvöru mark frá Taylor!

Fær boltann fyrir fætur sínar beint úr innkasti, hún snýr að marki og lætur bara vaða af löngu færi og boltinn syngur í netinu.
Eyða Breyta
46. mín
Fékk þær upplýsingar í hálfleik f?a fólki sem fylgist með leiknum í sjónvarpinu að seinna gula spjaldið og þar með það rauða á Júlíu Ruth hafi í besta falli verið vafasamt en sennilegast bara kolrangur dómur.

Get ekki annað en treyst því enda með margfalt betra sjónarhorn á atvikið en ég.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn.
Heimakonur sparka þessu af stað.
Eyða Breyta
46. mín Karitas Tómasdóttir (Breiðablik) Katrín Ásbjörnsdóttir (Breiðablik)

Eyða Breyta
46. mín Elfa Karen Magnúsdóttir (Keflavík) Kristrún Blöndal (Keflavík)

Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Þessum fyrri hálfleik er lokið. Fjörugur hefur hann verið en Keflavík eflaust viljað eitthvað af fjörinu sér í vil.

Verður langur seinni hálfleikur fyrir þær úr því sem komið er.
Eyða Breyta
45. mín
Blikar sækja hratt, Hafrún Rakel með boltann fyrir frá hægri en boltinn í gegnum teiginn og afturfyrir fer hann.
Eyða Breyta
39. mín MARK! Katrín Ásbjörnsdóttir (Breiðablik)
Hafrún með alvöru tilþrif í teig Keflavíkur, tekur boltann á lofti og smellir honum í slánna og niður. Katrín fyrst að átta sig og kemur boltanum yfir línuna.

Verður langt kvöld fyrir heimakonur og nóg er um nú þegar.
Eyða Breyta
37. mín
Blikarnir ógna.

Áslaug Munda með hörkuskot en heimakonur bjarga í horn.

Ekkert kom upp úr horninu.

Eyða Breyta
33. mín Gult spjald: Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Breiðablik)
Enn fljúga spjöldin. Veit ekki alveg með þetta en að því er ekki spurt.
Eyða Breyta
30. mín Gult spjald: Guðrún Jóna Kristjánsdóttir (Keflavík)
Guðrún Jóna fékk að líta gula spjaldið hér áðan sömuleiðis á bekk Keflavíkur.
Eyða Breyta
30. mín Gult spjald: Sandra Voitane (Keflavík)
Brýtur af sér og spjöldin orðin heit hjá Bríet.
Eyða Breyta
27. mín Rautt spjald: Júlía Ruth Thasaphong (Keflavík)
Vont verður verra fyrir Keflavík
Júlía fær sitt annað gula spjald á örfáum mínútum og þar með rautt. Sá hreinlega ekki brotið sem hún er spjölduð fyrir.

Hennar fyrsti leikur þetta sumarið og ekki fór hann vel.

Sjónvarpsmyndir sýna að hún gaf Blika olnbogaskot sem Bríet sá.
Eyða Breyta
26. mín Mark - víti Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Öruggt. Vera í rangt horn.
Eyða Breyta
25. mín Gult spjald: Júlía Ruth Thasaphong (Keflavík)

Eyða Breyta
25. mín
Breiðablik fær víti.

Júlía brýtur á Taylor þegar sú síðarnefnda keyrir inn á teiginn.
Eyða Breyta
25. mín
Linli Tu með skot sem Telma ver.
Eyða Breyta
23. mín SJÁLFSMARK! Kristrún Ýr Holm (Keflavík)
Boltinn fyrir frá vinstri frá Öglu Maríu fer í Kristúnu Ýr í markteignum sem verður fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.
Eyða Breyta
21. mín
Hafrún Rakel kemur boltanum í netið eftir langan bolta í gegn en flaggið á lofti og það telur því ekki.
Eyða Breyta
21. mín
Breiðablik verið að herða tökin síðustu ?ínútur og Keflavíkurliðið vart komist yfir miðju í dágóða stund.
Eyða Breyta
17. mín
Taylor með pláss og svæði fyrir framan teig Keflavíkur. Lætur vaða og tilraunin alls ekki galin en fer ekki á rammann.
Eyða Breyta
15. mín Gult spjald: Toni Deion Pressley (Breiðablik)
Hangir aftan í Caroline í skyndisókn, Bríet beitir hagnaði en spjaldar síðan eftirá.
Eyða Breyta
14. mín
Agla María sem er komin á hægri kantinn keyrir inn að marki og reynir að setja boltann fyrir markið en boltinn af varnarmanni og afturfyrir.

Úr horninu verður ekkert.

Eyða Breyta
9. mín
Ásta Eir með stórhættulega fyrirgjöf frá hægri beint á Öglu Maríu sem nær skotinu en Vera Varis ver virkilega vel. Lendir svo í samstuði við Öglu og Bríet flautar brot.

Leikurinn nokkuð opinn og fjörugur.
Eyða Breyta
7. mín
Sandra Voitane með fínan bolta innfyrir vörn Blika fyrir Linli að elta. Telma mætir langt út og rétt nær boltanum áður en Linli leikur framhjá henni.

Keflavíkurliðið að ógna.
Eyða Breyta
5. mín
Keflavík fær hornspyrnu.
Eyða Breyta
4. mín
Keflavík reynir að svara. Linli Tu fer vel með boltann úti til hægri og setur hann fyrir en beint í fang Telmu í markinu.
Eyða Breyta
1. mín MARK! Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)
Þetta var ekki lengi gert.

50 sekúndur frá upphafsflauti og boltinn liggur í netinu. Breiðablik sótti upp vinstri vænginn sem að varnarlína Keflavíkur nær ekki að hreinsa frá. Boltinn beint á Andreu sem lætur vaða af vítateig í fjærhornið og boltinn liggur í netinu.

Martraðarbyrjun fyrir heimakonur.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Það eru gestirnir úr Kópavogi sem hefja hér leik.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Styttist óðum í leik.
Liðin að gera sig klár til að ganga til vallar og ekkert því til fyrirstöðu að hefja hér leik. Vonumst eftir góðum og skemmtilegum leik.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Á flautunni er?

Bríet Bragadóttir fær það verkefni að dæma leik kvöldsins hér í Keflavík. Henni til aðstoðar eru þau Eydís Ragna Einarsdóttir og Guðni Freyr Ingvason. Fjórði dómari er Ronnarong Wongmahadthai og eftirlitsmaður KSÍ er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrri viðureignir undanfarin ár
Þegar úrslit síðustu tveggja tímabila eru skoðuð kemur áhugaverð og nokkuð óvænt tölfræði í ljós. Fjórum sinnum hafa liðin mæst frá því að Keflavík kom upp í efstu deild 2021 og hefur Keflavík haft sigur í tveimur leikjum, einum hefur lokið með jafntefli og aðeins einu sinni hafa Blikar borið sigur úr býtum.

Það má því segja að einhver Keflavíkurgrýla hafi verið í herbúðum Blika undanfarin tímabil. Þó til að gæta allrar sanngirni og minnka dramatíkina í orðum mínum er rétt að taka fram að Breiðablik vann síðustu viðureign liðanna sem fram fór í Kópavogi þann 5.ágúst í fyrra næsta örugglega 3-0.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Keflavík
Fjögur stig úr fyrstu tveimur leikjum tímabilsins er uppskera sem ég vill leyfa mér að trúa að leikmenn og þjálfari hafi getað sætt sig við fyrir mót. Jafntefli í fyrsta leik gegn Tindastól í bragðdaufum leik var fylgt eftir með óvæntum en góðum útisigri á Þór/KA á Akureyri.

Samsetning liðsins er aðeins önnur en verið hefur undanfarin ár og er þjálfari liðsins Jonathan Glenn að koma með nýja hluti að borðinu og verður spennandi að sjá hvernig þeim tekst að takast á við firnasterkt lið Breiðabliks.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Breiðablik
Gestaliðið úr Kópavogi rétti úr kútnum í annari umferð deildarinnar eftir tap gegn Val í þeirri fyrstu. Liðið gerði þá góða ferð norður í Skagafjörð og sótti þar sigur gegn heimakonum í Tindastól 3-0.

Blikaliðið ætlar sér að vera í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og verður það eflaust þegar yfir lýkur. Þó er það staðan að liðið má illa við því að tapa mörgum stigum í byrjun móts en komum aðeins betur að því hér síðar.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Besta deild kvenna heldur áfram að rúlla
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Breiðabliks í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu.



Eyða Breyta
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
2. Toni Deion Pressley
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir ('67)
7. Agla María Albertsdóttir
8. Taylor Marie Ziemer ('67)
9. Katrín Ásbjörnsdóttir ('46)
11. Andrea Rut Bjarnadóttir ('78)
13. Ásta Eir Árnadóttir (f) ('67)
18. Elín Helena Karlsdóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir

Varamenn:
1. Aníta Dögg Guðmundsdóttir (m)
10. Clara Sigurðardóttir ('78)
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('67)
16. Írena Héðinsdóttir Gonzalez ('67)
17. Karitas Tómasdóttir ('46)
24. Hildur Þóra Hákonardóttir
28. Birta Georgsdóttir ('67)

Liðstjórn:
Ólafur Pétursson
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Ágústa Sigurjónsdóttir
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Hermann Óli Bjarkason
Ana Victoria Cate
Guðbjörg Þorsteinsdóttir

Gul spjöld:
Toni Deion Pressley ('15)
Hafrún Rakel Halldórsdóttir ('33)

Rauð spjöld: