Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
Mjólkurbikar kvenna
Þróttur R.
LL 6
3
Víkingur R.
Mjólkurbikar kvenna
Fylkir
LL 1
4
FH
Mjólkurbikar kvenna
Fram
LL 2
3
Valur
Mjólkurbikar kvenna
HK
LL 2
0
Grindavík/Njarðvík
Stjarnan
1
3
Tindastóll
0-1 Katherine Grace Pettet '58
Snædís María Jörundsdóttir '90 1-1
1-2 María Dögg Jóhannesdóttir '94
1-3 Saga Ísey Þorsteinsdóttir '114
12.05.2025  -  17:00
Samsungvöllurinn
Mjólkurbikar kvenna
Aðstæður: Flott fótboltaveður og góðar aðstæður
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Áhorfendur: 103
Maður leiksins: Genevieve Jae Crenshaw
Byrjunarlið:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
4. Jakobína Hjörvarsdóttir
5. Eyrún Embla Hjartardóttir
9. Birna Jóhannsdóttir ('62)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
17. Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('71)
20. Jessica Ayers ('71)
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('62)
26. Andrea Mist Pálsdóttir ('97)
37. Jana Sól Valdimarsdóttir ('62)
42. Sandra Hauksdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Vera Varis (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('62)
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
11. Betsy Doon Hassett ('97)
14. Snædís María Jörundsdóttir ('62)
15. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('71)
18. Margrét Lea Gísladóttir ('62)
19. Hrefna Jónsdóttir ('71)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Rajko Stanisic
Hilmar Þór Hilmarsson
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir
Arnar Páll Garðarsson
Hjalti Kárason Djurhuus

Gul spjöld:
Jana Sól Valdimarsdóttir ('21)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
TINDASTÓLL ERU KOMNAR Í 8-LIÐA ÚRSLIT! Tindastóll vinnur 1-3 og fara áfram í bikarnum.

Takk fyrir samfylgdina.

Skýrsla og viðtöl detta inn í kvöld.
120. mín
1 mínútu bætt við
119. mín
Það er 1-3 ekki 1-4, smá tæknilegir örðugleikar afsakið þetta.
114. mín MARK!
Saga Ísey Þorsteinsdóttir (Tindastóll )
Stoðsending: Katla Guðný Magnúsdóttir
MAAARK!! Saga að klára þetta fyrir Tindastól hlýtur að vera!

Katla Guðný með góða sendingu inn fyrir á Sögu sem skorar örugglega.
114. mín
Inn:Katla Guðný Magnúsdóttir (Tindastóll ) Út:Snæfríður Eva Eiríksdóttir (Tindastóll )
113. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu nálægt hornfánanum hægra megin.

Þær ná ekki að koma boltanum yfir fyrsta mann í teignum. Makala kemur þessu frá.
112. mín
Stjarnan fær hornspyrnu.

Boltinn dettur inn á miðjan markteig, Jakobína í fínu færi en skotið beint á Genevieve.
110. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu vinstra megin á miðjum vallarhelmingi Tindastóls.

Allar sendar inn í teig nema Sandra. Eyrún setur boltann inn á teig en Stólarnir koma þessu strax í burtu.
110. mín Gult spjald: Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll )
110. mín Gult spjald: Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
106. mín
Farið aftur af stað Seinni hálfleikur framlengingar farinn af stað.
105. mín
Fyrri hálfleik framlengingar lokið Gestirnir leiða aftur og eru eins og staðan er núna á leiðinni áfram í 8-liða úrslitin.
105. mín
Heimakonur liggja í sókn og leita aftur af jöfnunarmarkinu.
105. mín
Stjarnan vill víti Hrerfna með boltann inn í teig og virðist vera klippt niður.

Brynjar í góðri stöðu og lætur leikinn halda áfram. Leit út fyrir að vera klárt víti héðan úr blaðamannastúkunni.
104. mín
Snædís María fær boltann í þröngu færi og á skot sem Genevieve ver í horn.
103. mín
Furðulegt atvik þar sem Úlfa Dís er upp við endalínu og reynir fyrirgjöf en það er dæmd markspyrna þar sem aðstoðardómari telur boltann hafa farið útaf.

Boltinn rúllar meðfram línunni í átt að hornfánanum og stoppar þar. Boltinn er ekki útaf. Markspyrna samt dæmd.
100. mín
Betsy fær boltann í höndina á miðjum vallarhelmingi sínum.

Tindastóll að fá aukaspyrnu á ágætis stað.

Elísa Bríet á skot sem fer hátt yfir markið.
98. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu á góðum stað fyrir utan teig.

Eyrún Embla tekur spyrnuna og setur boltann hátt yfir markið.
97. mín
Inn:Betsy Doon Hassett (Stjarnan) Út:Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
94. mín MARK!
María Dögg Jóhannesdóttir (Tindastóll )
Stoðsending: Makala Woods
MAAAARK!! María Dögg með geggjað mark!!

Hún byrjar á að taka innkast, kemur boltanum á Makala sem nær að halda í hann, setur hann aftur á Maríu sem finnur Makala aftur. Makala leggur hann svo til baka á Maríu sem er fyrir utan teiginn, snýr sér að markinu og skorar með frábæru skoti í fjærhornið!

Stólarnir taka forystuna að nýju!
91. mín
Jæja framlengingin er farin af stað!
90. mín
Við erum að fara í framlengingu!
90. mín MARK!
Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)
+1 JÖFNUNARMAAAARK!! Þið hélduð kannski að þetta væri búið en Stjarnan jafnar hér í uppbótartíma!

Hrefna er með boltann hægra megin í teignum, setur boltann fyrir markið og hann fer af Bryndísi og virðist vera á leiðinni in, Genevieve nær mögulega að bjarga því en Snædís María setur boltann yfir línuna, ef hann var ekki kominn yfir línuna nú þegar.

Erfitt að meta hvort Snædís eigi þetta mark eða hvort þetta var sjálfsmark en við gefum Snædísi þetta þangað til annað kemur í ljós!

Uppfært: Snædís María á þetta mark!
90. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.

Andrea setur boltann inn á teig og Jakobína nær skalla sem fer beint í fangið á Genevieve.
90. mín
Að minnsta kosti fjórum mínútum bætt við
89. mín
Stjörnukonur reyna allt hvað þær geta að koma inn jöfnunarmarki en það er lítið að ganga upp hjá þeim.
89. mín
Úlfa Dís með fyrirgjöf sem er nálægt því að vera marktilraun en Genevieve græjar þetta.
86. mín
Inn:Saga Ísey Þorsteinsdóttir (Tindastóll ) Út:Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Tindastóll )
86. mín
Stjarnan fær horn.
85. mín
Hulda Hrund tíar boltann upp fyrir Úlfu Dís sem á skot fyrir utan teig sem fer framhjá markinu.
83. mín
Makala í færi!

Gestirnir sækja, Elísa reynir sendingu á Makala sem misheppnast í fyrstu tilraun, reynir aftur og þá er Makala komin ein gegn Auði en setur boltann beint í fangið á henni.
80. mín
Hulda Hrund með fyrirgjöf og Snædís María gerir vel að koma sér í stöðu og nær skoti en það fer rétt framhjá markinu.
77. mín
Stjarnan aftur að fá horn núna hinum megin.

Margrét Lea nær skoti sem fer af varnarmanni og aftur fyrir. Önnur hornspyrna.
75. mín
Stjarnan fær horn.

Andrea með góðan bolta inn á markteig en Genevieve heldur áfram að halda marki Stólana hreinu.

Hún er búin að vera geggjuð í þessum leik.
73. mín
Snædís María í ágætu færi en nær ekki fullum krafti í skotið.
71. mín
Inn:Hrefna Jónsdóttir (Stjarnan) Út:Fanney Lísa Jóhannesdóttir (Stjarnan)
71. mín
Inn:Hulda Hrund Arnarsdóttir (Stjarnan) Út:Jessica Ayers (Stjarnan)
69. mín
Hrafnhildur Salka liggur eftir að hafa lent í samstuði.

Leikurinn fer aftur af stað og Salka heldur leik áfram.
68. mín
Inn:Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll ) Út:Laufey Harpa Halldórsdóttir (Tindastóll )
67. mín
Leikurinn farinn af stað aftur Laufey Harpa er komin í úlpu og sest á bekkinn.

Ekki gott.
64. mín
Leikurinn stöðvaður Fanney Lísa og Laufey Harpa skalla saman og Laufey heldur um höfuðið og þarf aðhlynningu.
63. mín
Sláin!! Tindastóll í sókn og allt í einu endar boltinn hjá Makala sem er beint fyrir framan markið og setur boltann í slána og hátt yfir.
62. mín
Inn:Margrét Lea Gísladóttir (Stjarnan) Út:Birna Jóhannsdóttir (Stjarnan)
Þreföld skipting hjá Stjörnunni
62. mín
Inn:Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan) Út:Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
62. mín
Inn:Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan) Út:Jana Sól Valdimarsdóttir (Stjarnan)
61. mín
Katherine Grace Pettett kom Tindastól yfir!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

58. mín MARK!
Katherine Grace Pettet (Tindastóll )
Stoðsending: Makala Woods
MAAAARK!! Stólarnir taka forystuna!

Aukaspyrna út við hliðarlínu á vinstri vængnum. Það skapast mikill darraðadans í teignum, Makala nær snertingu á boltann og hann berst til Katherine sem setur hann yfir línuna.
54. mín
Jessica með fyrirgjöf eða marktilraun en Genevieve nær að slá boltanum yfir slánna.

Genevieve búin að eiga nokkrar góðar vörslur í þessum leik.
47. mín
Landsliðsþjálfarinn mættur á völlinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Steini mættur á völlinn og bað um óskalag. EM lagið Hæ með Húbba Búbba að sjálfsögðu!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Engar breytingar í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik í Garðabænum.

Mikið um stöðubaráttur og bæði lið skapað sér ágætis stöður.

Víð þurfum að fá mörk í þennan seinni hálfleik!
45. mín
+3

Fanney Lísa tekur Laufey Hörpu á og leggur boltann út í teig en nú er það Jana sem hittir ekki boltann í góðu færi.
45. mín
+1

Jessica með geggjaða takta upp við endalínu, nær að koma boltanum á Gyðu sem finnur Fanney sem er í fínu færi en hittir ekki boltann.
45. mín
3 mínútum bætt við
44. mín
Jana með fína skottilraun en Genevieve með allt á hreinu í markinu og ver þetta.
44. mín
Heimakonur liggja í sókn og reyna að ná inn marki fyrir hálfleik.
42. mín
Elísa aftur komin inn á.
40. mín
Stjarnan fær horn Fanney Lísa með skot sem Genevieve ver í horn.
39. mín
Elísa Bríet þarf aðhlynningu, Stólarnir einum færri í smá stund.
39. mín
Makala leggst aftur niður og dómarinn stoppar leikinn.

Hún er stendur fljótt upp aftur og ætlar að halda áfram.
37. mín
Birna reynir skot af löngu færi en það fer framhjá markinu.
33. mín
Birna reynir að þræða Fanney í gegn en sendingin er aðeins of föst.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Leikurinn er kominn aftur af stað og Makala haltrar aftur inn á völlinn.

Hún virðist ætla að reyna að halda leik áfram.
29. mín
Leikurinn stöðvaður Makala liggur og þarf aðhlynningu.

Hún virðist þjáð aftan í læri, mér sýnist hún vera að ljúka leik því miður.
28. mín
Tindastóll hreinsar frá marki eftir hornspyrnuna og Makala er sloppin inn fyrir, Auður les þetta vel og kemur langt út úr markinu og neglir boltanum frá.
28. mín
Eyrún Embla aftur með frábæra skottilraun en Genevieve gerir vel og ver í horn.
25. mín
Stjarnan fær aftur aukaspyrnu á mjög svipuðum stað.

Sama uppskrift, Andrea með bolta inn á teig en Genevieve á réttum stað og kýlir boltann frá.
22. mín
Stjarnan að fá aukaspyrnu á fínum stað hægra megin við teiginn.

Andrea kemur boltanum fyrir markið en Stólarnir hreinsa frá.
21. mín Gult spjald: Jana Sól Valdimarsdóttir (Stjarnan)
Fær dæmda á sig hendi og sparkar boltanum í burtu. Brynjar hefur engann húmor fyrir því.
16. mín
Elísa Bríet vinnur boltann af Önnu Maríu og vinnur hornspyrnu fyrir Stólana.

Allskonar vesen í teignum en Makala dæmd brotleg og Stjarnan á aukaspyrnu.
14. mín
Andrea með gott skot sem fer rétt framhjá markinu.
13. mín
Stjarnan fær horn Jessica sækir hornspyrnu fyrir Stjörnuna.

Þær ná ekki að gera sér mat úr þessu.
12. mín
Makala Woods virtist vera að sleppa ein gegn Auði en flaggið fer á loft.
11. mín
VÁ! Eyrún Embla fær mikið pláss fyrir utan teig og nær góðu skoti á markið sem Genevieve ver virkilega vel!

Stjarnan fær horn og hornspyrna Andreu er slök og fer aftur fyrir markið.
8. mín
Tindastóll fær aukaspyrnu á hættulegum fyrirgjafarstað.

Elísa Bríet kemur boltanum inn á teig á Bryndísi Rut en skalli hennar vel framhjá markinu.
3. mín
Þetta fer rólega af stað hérna í Garðabænum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Það eru gestirnir sem hefja leik og sækja í átt að Garðatorgi.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Lið heimakvenna er gjörbreytt frá tapinu gegn FH á föstudaginn en Jóhannes Karl gerir sjö breytingar.
Auður Scheving kemur í rammann í stað Veru Varis og svo eru það Eyrún Embla, Birna Jóhanns, Fanney Lísa, Jana Sól, Sandra Hauks og Gyða Kristín sem koma inn í byrjunarliðið. Betsy, Arna Dís, Úlfa Dís, Hrefna Jóns, Hulda Hrund og Margrét Lea taka sér sæti á bekknum í staðin.

Donni gerir aðeins eina breytingu á liði Tindastóls sem tapaði fyrir Blikum. Snæfríður Eva kemur inn fyrir Laru Margréti.
Fyrir leik
Dómgæslan Brynjar Þór Elvarsson verður með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú.
Fjórði dómari er Róber Þór Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Drama í síðasta leik! Þessi lið mættust 27. apríl s.l. á Króknum þar sem Stjarnan fór með 1-2 sigur.

Makala Woods kom Tindastól yfir á 42 mínútu, Jana Sól Valdimarsdóttir jafnaði leikinn á 89. mínútu og Jessica Ayers tryggði Stjörnunni sigurinn í uppbótartíma á 94. mínútu.

Stólarnir eiga því harma að hefna hér í kvöld.
Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

Frá leik liðanna 2024
Fyrir leik
Bestu deildar slagur Stjarnan er í 7. sæti Bestu deildarinnar með sex stig eftir fimm umferðir og koma inn í leikinn eftir 2-1 tap gegn FH á föstudaginn.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Tindastóll situr í 9. sæti með þrjú stig eftir fimm umferðir en þær unnu fyrsta leikinn og hafa svo tapað fjórum í röð. Þær koma inn í leikinn eftir 1-5 tap gegn Blikum fyrir norðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin á Samsungvöllinn Góðan daginn!

Verið velkomin í beina textalýsingu þar sem Stjarnan tekur á móti Tindastól 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Flautað verður til leiks klukkan 17:00.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Byrjunarlið:
1. Genevieve Jae Crenshaw (m)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f)
4. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('86)
6. Laufey Harpa Halldórsdóttir ('68)
9. María Dögg Jóhannesdóttir
10. Elísa Bríet Björnsdóttir
11. Snæfríður Eva Eiríksdóttir ('114)
13. Birgitta Rún Finnbogadóttir
18. Katherine Grace Pettet
21. Nicola Hauk
27. Makala Woods
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Sigríður H. Stefánsdóttir (m)
2. Saga Ísey Þorsteinsdóttir ('86)
14. Lara Margrét Jónsdóttir ('68)
15. Emelía Björk Elefsen
17. Katla Guðný Magnúsdóttir ('114)
20. Kristrún María Magnúsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Konráð Freyr Sigurðsson (Þ)
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Hugrún Pálsdóttir
Aldís María Jóhannsdóttir
Nikola Stoisavljevic
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir

Gul spjöld:
Lara Margrét Jónsdóttir ('110)
Birgitta Rún Finnbogadóttir ('110)

Rauð spjöld: