Liverpool berst við spænsku risana um Wharton - Nkunku orðaður við Liverpool - Rodrygo í enska boltann?
Víkingur R.
1
4
Tindastóll
0-1 Elísa Bríet Björnsdóttir '2
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir '4 1-1
1-2 Makala Woods '16
1-3 Birgitta Rún Finnbogadóttir '60
1-4 Elísa Bríet Björnsdóttir '71
17.05.2025  -  16:15
Víkingsvöllur
Besta-deild kvenna
Aðstæður: BONGÓ!
Dómari: Hreinn Magnússon
Maður leiksins: Makala Woods
Byrjunarlið:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
2. Gígja Valgerður Harðardóttir ('78)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
8. Birta Birgisdóttir ('32)
9. Freyja Stefánsdóttir ('65)
13. Linda Líf Boama
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('78)
21. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('78)
26. Bergdís Sveinsdóttir (f)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
30. Eva Ýr Helgadóttir (m)
7. Dagný Rún Pétursdóttir
10. Selma Dögg Björgvinsdóttir ('65)
11. Júlía Ruth Thasaphong
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir ('78)
22. Birgitta Rún Yngvadóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('78)
34. Anika Jóna Jónsdóttir ('78)
35. Arna Ísold Stefánsdóttir ('32)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Lisbeth Borg
Ingólfur Orri Gústafsson
Rakel Sigurðardóttir
Lára Hafliðadóttir
Björn Sigurbjörnsson
Valgerður Tryggvadóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sanngjarn sigur Tindastóls niðurstaðan her í dag. Voru yfirvegaðari í sínum aðgerðum og uppskera eftir því.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
88. mín
Saga Ísey í dauðafæri nálægt því að setja fimmt markið en Katla ver í markinu.
87. mín
Linda Líf með skot sem fer himinhátt yfir.
85. mín
Inn:Bergljót Ásta Pétursdóttir (Tindastóll ) Út:Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
82. mín
Linda Líf með virkilega góða fyrirgjöf en enginn Víkingur nær að pota boltanum inn.
79. mín
Inn:Saga Ísey Þorsteinsdóttir (Tindastóll ) Út:Snæfríður Eva Eiríksdóttir (Tindastóll )
78. mín
Inn:Anika Jóna Jónsdóttir (Víkingur R.) Út:Bergþóra Sól Ásmundsdóttir (Víkingur R.)
78. mín
Inn:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Víkingur R.) Út:Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Víkingur R.)
78. mín
Inn:Jóhanna Elín Halldórsdóttir (Víkingur R.) Út:Gígja Valgerður Harðardóttir (Víkingur R.)
74. mín
Inn:Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll ) Út:Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Tindastóll )
71. mín MARK!
Elísa Bríet Björnsdóttir (Tindastóll )
Elísa Bríet með sitt annað mark og nánast gerir út um leikinn!

Fær flotta sendingu frá Hrafnhildi Sölku og klárar vel!
69. mín
Elísa Bríet með frábæra fyrirgjöf á Makölu sem er ein á auðum sjó en hittir ekki boltann!
68. mín
Linda Líf eiginlega sloppin ein í gegn og á skotið sem Genevieve grípur.
65. mín
Inn:Selma Dögg Björgvinsdóttir (Víkingur R.) Út:Freyja Stefánsdóttir (Víkingur R.)
John Andrews reynir að hrista upp í þessu!
60. mín MARK!
Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
Makala Woods hér miklu sterkari en varnarmenn Víkings. Boltinn dettur svo á Birgittu sem klárar listilega í hornið!
56. mín
Víkingar eru öflugri þessa stundina, Freyja hér með skot sem fer yfir.
52. mín
Hvernig er þetta ekki mark!? Genevieve þarf tvisvar að verja frábærlega hérna í kjölfarið á horninu!

Mikil þvaga þannig ég sá ekki hver skaut
51. mín
Og nú fá heimakonur horn hinum megin
50. mín
Hornið endar ofan á þaknetinu
49. mín
Stólarnir fá horn
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Víkingar hefja leik
45. mín
Hálfleikur
Tindastóll leiðir eftir fjörugan fyrri hálfleik. Ég held það séu nóg af mörkum í þessum leik sem eiga eftir að líta dagsins ljós!
45. mín
Frábær varsla! Erna Guðrún með þéttingsfast skot í hægra hornið en Genevieve ver virkilega vel!
45. mín
Áslaug Dóra með flottan snúning og á svo skot í varnarmann og aftur fyrir.
45. mín
Þremur mínutum bætt við
44. mín
Linda Líf hér með hörkusprett og gott skot sem Genevieve ver.
38. mín
Enn eitt hornið hér fyrir heimakonur, það tíunda ef mér telst rétt til.
36. mín
Það skapast stórhætta hérna eftir hornið, Birgitta Rún skallar í slánna!
35. mín
Tindastóll fær hér sitt fyrsta horn í dag.
35. mín
Makala Woods við það að sleppa í gegn hér en er dæmd brotleg, þetta er kolrangur dómur hjá Hreini dómara. Makala er bara miklu sterkari en Erna Guðrún.
32. mín
Inn:Arna Ísold Stefánsdóttir (Víkingur R.) Út:Birta Birgisdóttir (Víkingur R.)
Birta fer meidd útaf.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Birta Birgisdóttir er sest í grasið í annað skiptið á stuttum tíma, hennar þátttöku er lokið
28. mín
Flottur sprettur frá Lindu Líf en fyrirgjöf hennar finnur því miður engan Víking.
25. mín
Ísfold fer niður í teignum, veik köll eftir víti en það var lítið í þessu.
16. mín MARK!
Makala Woods (Tindastóll )
Stoðsending: Birgitta Rún Finnbogadóttir
Þessi sending frá Birgittu!

Birgitta Rún kemur með sendingu í gegnum vörninni sem er algjört augnakonfekt og eftirleikurinn er auðveldur fyrir Makölu sem klárar vel!

1-2!
15. mín
Hrafnhildur Salka skyndilega bara komin í hörkufæri hérna en skotið rétt framhjá, þetta er líflegt.
9. mín
Víkingar fá hér horn, þetta er fimmta hornið þeirra á níu mínútum!
8. mín
Linda Líf með flotta fyrirgjöf á Ísfold sem skallar í varnarmann og aftur fyrir.
7. mín
Elísa Bríet í góðu færi til þess að tvöfalda markafjölda sinn en skotið rétt framhjá.
4. mín MARK!
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir (Víkingur R.)
Þvílík byrjun! Hornspyrna sem Genevieve slær út í teiginn og þar mætir Bergþóra sem gjörsamlega hamrar boltann í netið.

Ótrúleg byrjun!

2. mín MARK!
Elísa Bríet Björnsdóttir (Tindastóll )
Stoðsending: Makala Woods
Ekki lengi gert! Makala Woods gerir listilega vel úti á hægri kantinum áður en hún kemur með fallega fyrirgjöf á Elísu sem klárar vel.
1. mín
Leikur hafinn
Tindastóll hefur leik.
Fyrir leik
Einhver seinkun hérna, annað markið eitthvað að angra Hrein dómara.
Fyrir leik
Stutt í leik Liðin ganga nú til vallar og því styttist í upphafsflautið.
Fyrir leik
Víkingur Heimakonur eru líkt og Tindastóll aðeins með þrjú stig en sitja þó sæti ofar sökum ögn betri markatölu. Ólíkt Tindastóli þá var Víkingum spáð góðu gengi af spekingum fyrir mót, meðal annars þriðja sætinu hér á .net og því verður að teljast vonbrigði að uppskeran skuli ekki vera betri en raun ber vitni.

Í seinasta leik var naumt 2-1 tap gegn nýliðum Fram niðurstaðan, það getur ekki talist ásættanlegt fyrir lið Víkinga en þær vilja eflaust koma sterkt til baka hér í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tindastóll Tindastóll situr í 9. sæti og er þar með í fallsæti, búist var við því að fallbarátta gæti orðið niðurstaðan hjá Tindastóli og því er liðið eflaust nokkuð rólegt yfir stöðunni enn sem komið er að minnsta kosti. Liðinu tókst að sigra nýliða F/H/L í 2. umferð en síðan þá hefur liðinu ekki tekist að sækja stig.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Velkominn í Víkina Hér fer fram leikur Víkings og Tindastóls í Bestu deild kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Genevieve Jae Crenshaw (m)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f)
4. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('74)
6. Laufey Harpa Halldórsdóttir
9. María Dögg Jóhannesdóttir
10. Elísa Bríet Björnsdóttir
11. Snæfríður Eva Eiríksdóttir ('79)
13. Birgitta Rún Finnbogadóttir ('85)
18. Katherine Grace Pettet
21. Nicola Hauk
27. Makala Woods
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Sigríður H. Stefánsdóttir (m)
2. Saga Ísey Þorsteinsdóttir ('79)
5. Bergljót Ásta Pétursdóttir ('85)
14. Lara Margrét Jónsdóttir ('74)
20. Kristrún María Magnúsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Jón Hörður Elíasson
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: