Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
Þróttur R.
1
4
Fjölnir
0-1 Hilmar Elís Hilmarsson '32
0-2 Bjarni Þór Hafstein '34
0-3 Rafael Máni Þrastarson '54
0-4 Árni Steinn Sigursteinsson '60
Árni Steinn Sigursteinsson '78
Jakob Gunnar Sigurðsson '84 1-4
19.06.2025  -  19:15
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Sveinn Arnarsson
Maður leiksins: Reynir Haraldsson
Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (f)
4. Njörður Þórhallsson ('67)
6. Emil Skúli Einarsson
20. Viktor Steinarsson ('46)
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson ('85)
32. Aron Snær Ingason
33. Unnar Steinn Ingvarsson
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('56)
80. Liam Daði Jeffs ('67)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson ('67)
7. Eiður Jack Erlingsson ('46)
9. Viktor Andri Hafþórsson ('67)
10. Jakob Gunnar Sigurðsson ('56)
19. Benóný Haraldsson ('85)
27. Sigfús Árni Guðmundsson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Stefán Þórður Stefánsson
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira

Gul spjöld:
Eiríkur Þorsteinsson Blöndal ('47)
Hans Sævar Sævarsson ('75)
Emil Skúli Einarsson ('78)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Fyrsti sigur Fjölnis í 284 daga, síðan 8. september í fyrra Þvílíkur sigur hjá Fjölni og óvæntur er hann!

Þessu átti enginn lifandi maður von á. Þetta breytir fallbaráttunni mjög mikið.

Viðtöl og fleira á leiðinni, takk fyrir mig og þangað til næst!
92. mín
Mikill barningur inni á teig Fjölnismanna sem endar með skoti langt yfir markið.

Þá er þetta bara komið hjá Fjölni.
85. mín Gult spjald: Þorkell Kári Jóhannsson (Fjölnir)
Rétt spjald. Brot á miðjum velli sem stoppar hraða sókn.
85. mín
Inn:Benóný Haraldsson (Þróttur R.) Út:Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
84. mín MARK!
Jakob Gunnar Sigurðsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
Sárabótamark? Eiríkur kemur með bolta fyrir markið á Jakob Gunnar sem stangar boltann í netið.

Fjölnismenn halda allaveganna ekki hreinu í kvöld.
78. mín Rautt spjald: Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir)
Ha? Hvað gerðist? Ég verð að viðurkenna það að ég sá ekki hvað Árni gerði þarna en hann fær sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Þeir virtust ekki getað kvartað mikið yfir þessu og Árni fer aðeins fyrr í sturtu og missir af næsta leik Fjölnis gegn Þór Ak. í Grafarvoginum.
78. mín Gult spjald: Emil Skúli Einarsson (Þróttur R.)
76. mín
Inn:Þorkell Kári Jóhannsson (Fjölnir) Út:Einar Örn Harðarson (Fjölnir)
76. mín
Inn:Fjölnir Sigurjónsson (Fjölnir) Út:Rafael Máni Þrastarson (Fjölnir)
75. mín Gult spjald: Hans Sævar Sævarsson (Þróttur R.)
Fyrir tuð.
75. mín Gult spjald: Bjarni Þór Hafstein (Fjölnir)
Gamalt brot.
74. mín
DAUÐAFÆRI! Aron Snær fer framhjá Snorra í markinu og er kominn einn á móti marki. Einn Fjölnismaður nær að komast á línuna en Aron setur hann hins vegar framhjá.

Þetta súmmerar upp leik Þróttara.
69. mín
Freedom desire í gangi núna í tækjunum í Miðnæturhlaupinu.

Þetta er magnað.
67. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.) Út:Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
67. mín
Inn:Kolbeinn Nói Guðbergsson (Þróttur R.) Út:Njörður Þórhallsson (Þróttur R.)
67. mín Gult spjald: Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir)
Stoppar sóknina og rétt spjald.
65. mín
Maður er allur að gírast upp! Þessi tónlist og hávaði úr Suzuki hlaupinu er ótrúlegur. Gífurlega fyndið og skemmtilegt að mínu mati. Spurning hvað leikmönnum Þróttar finnst um það.
62. mín
Þróttur í færi Kári kemur með bolta inn á teiginn, Aron Snær skallar fyrir markið á Unnar en skallinn hans fer rétt yfir.
60. mín MARK!
Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir)
HVAÐ ER Í GANGI?! Skot fyrir utan teig sem Þórhallur ver út í teiginn en þar er Árni mættur fyrstur á boltann og skorar.

Þessu átti enginn lifandi maður von á en Fjölnismenn, botnliðið fyrir leik og án sigurs eru bara að rasskella Þrótt Reykjavík á þeirra heimavelli.
58. mín
Svakalegur hávaði fyrir aftan stúkuna Eins og margir vita að þá stendur Miðnæturhlaup Suzuki yfir þessa stundina sem fer fram í Laugardalnum. Fyrir aftan stúkuna á Þróttaravellinum eru fjölmargir öflugir hátalarar en það heyrist heldur betur í þeim.

Alvöru hávaði að koma úr þeim sem hlýtur bara að gíra menn upp. En þetta er mjög fyndið.
56. mín
Inn:Jakob Gunnar Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.)
Húsvíkingurinn mættur til leiks.
54. mín MARK!
Rafael Máni Þrastarson (Fjölnir)
Stoðsending: Bjarni Þór Hafstein
Fjölnismenn eru að pakka Þrótti saman! Þvílík byrjun hjá Grafarvogsbúum!

Bjarni Þór fær boltann úti vinstra meginn og kemur boltanum fyrir markið á Rafael Mána sem klárar framhjá Þórhalli í marki Þróttar.

Þessu átti maður ekki von á en Fjölnismenn hafa bara verið betri aðilinn í dag og eru að nýta sér það.

Fáum við fleiri Fjölnismörk í þetta?
52. mín
Fyrirliðinn í færi Eiríkur Þorsteinn með skot við vítateigslínuna sem fer rétt framhjá.

Eiríkur komst í nokkrar álitlegar stöður í fyrri hálfleik líka sem hann náði ekki að nýta.
51. mín
Bjarni Þór tekur spyrnuna inn á teiginn sem Þórhallur handsamar.
51. mín
Fjölnismenn að fá hornspyrnu
50. mín Gult spjald: Mikael Breki Jörgensson (Fjölnir)
Gamalt brot.
50. mín
Kristófer Dagur er tekinn niður við vítateigslínuna og spurning hvort hann hafi verið inni í teignum. Sveinn hristir hausinn og segir honum að standa upp.

Ég er mjög ósammála Svenna þarna, klárt brot í mínum bókum.
47. mín Gult spjald: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (Þróttur R.)
47. mín
Kári kemur með boltann inn á teiginn sem er skölluð frá.
46. mín
Þróttarar fá hornspyrnu!
46. mín
Inn:Eiður Jack Erlingsson (Þróttur R.) Út:Viktor Steinarsson (Þróttur R.)
Ein breyting í hálfleik - Venni bregst við
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
46. mín
Seinni hafinn! Þróttarar koma okkur í gang á ný.
45. mín
Hálfleikur
Fjölnismenn leiða verðskuldað í hálfleik! Tökum okkur korterspásu og mætum svo aftur að vörmu spori.
43. mín
Ekkert lífsmark í Þrótturum Það hefur mjög lítið sést til Þróttara seinustu mínúturnar og Fjölnismenn eru líklegri að bæta við.

Reynir með hörksukot í fyrsta við vítateigslínuna sem Þórhallur ver. Fjölnismenn almennt hættulegri.
37. mín
Það er mikill kraftur í Fjölnismönnum eftir þennan kafla og það verður áhugavert að sjá hvernig Þróttarar höndla þetta mótlæti.
34. mín MARK!
Bjarni Þór Hafstein (Fjölnir)
HVAÐ ER AÐ GERAST?! Fjölnismenn eru búnir að tvöfalda forystuna!

Bjarni Þór er skyndilega kominn einn í gegn eftir mjög gott spil og klárar snyrtilega framhjá Þórhalli í marki Þróttara.

Fjölnismenn hafa byrjað þennan leik frábærlega og eru að uppskera í tveimur mörkum.

Fáum við fleiri mörk frá Fjölni?
32. mín MARK!
Hilmar Elís Hilmarsson (Fjölnir)
Stoðsending: Reynir Haraldsson
Fjölnismenn leiða! Líklega bara sanngjarnt!

Reynir tekur mjög góða spyrnu inn á teiginn sem endar með því að Hilmar stýrir boltanum í netið. Fjölnismenn voru búnir að hóta þessu en þeir hafa tekið forystuna eftir góða byrjun.

Hvað gera Þróttarar núna og hvað ná Fjölnismenn að halda í þessa forystu lengi?
32. mín
Fjölnismenn halda áfram að sækja hratt Rafael Máni gerir mjög vel á boltanum sem skilur hann eftir fyrir Árna en hann tekur skotið í Njörð og aftur fyrir. Fjölnismenn að fá hornspyrnu en þeir hafa verið að sækja í sig veðrið seinustu mínútur.
28. mín
Stúkuvaktin Leikmenn, þjálfarar og stjórnarmenn eru að sjálfsögðu mættir í Laugardalinn. T.a.m. Fjölnisbræðurnir Baldvin Þór, Júlíus Mar og Halldór Snær sem léku allir með Fjölni í fyrra.

Júlli og Dóri eru auðvitað vanir því að spila í Laugardalnum en hér hafa KR-ingar spilað í byrjun tímabils.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: ÍA/Jón Gautur

24. mín
Fjölnismenn í góðu færi Fjölnismenn sækja hratt. Rafael Máni fær langan bolta frá Bjarna Þór og rennir boltanum svo til hliðar á Daníel Ingvar sem er kominn í álitlega stöðu. Hann reynir skotið full snemma að mínu mati og skotið fer rétt framhjá.
22. mín
Þróttarar sækja og fá hornspyrnu!
20. mín
Þórhallur kemur Þrótturum til bjargar! Fjölnismenn gera vel og spila sig í gegnum vörn Þróttara. Rafael er þá við það að komast einn í gegn en þá er Þórhallur mættur til bjargar og gerir mjög vel í að komast í boltann.
18. mín
Spyrnan fer yfir allan pakkann og aftur fyrir hinum meginn.
17. mín
Fjölnismenn fá hornspyrnu Árni gerir vel á hægri vængnum gegn Eiríki og sækir hornspyrnu.
16. mín Gult spjald: Þengill Orrason (Fjölnir)
Fær réttilega gult fyrir að sparka boltanum í burtu eftir að hafa misst boltann útaf í innkast.

Algjör óþarfi.
15. mín
Byrjunarliðin Svona sé ég þetta.

Þróttur R. (3-4-1-2)
Þórhallur
Emil - Njörður - Unnar
Viktor - Brynjar - Vilhjálmur - Eiríkur
Kári
Aron - Liam

Fjölnir (4-1-4-1)
Snorri
Einar Örn - Þengill - Hilmar - Reynir
Mikael
Árni - Daníel - Kristófer - Bjarni
Rafael
13. mín
DAUÐAFÆRI! Það kemur bolti inn á teiginn sem er skallaður fyrir markið. Einhver sofandaháttur í varnarleik Fjölnis þarna en allt í einu er Liam Daði kominn í dauðafæri en nær einhvernveginn ekki að skora. Sýndist það vera Hilmar Elís sem kom sér fyrir þetta.
13. mín
Þróttarar í færi Gott spil hjá Þrótturunum sem endar með skoti frá Eiríki á Snorra en hann ver þetta út í horn.
10. mín
Reynir tekur spyrnuna inn á teiginn sem er skölluð frá.
9. mín
Fjölnismenn fá hornspyrnu!
8. mín
Einhver útfærsla sem misheppnaðist hjá Þrótturunum.
7. mín
Þróttarar að fá hornspyrnu!
6. mín
Leikurinn fer afar rólega af stað. Bæði lið skiptast á að halda í boltann en engin opin færi eða skot til þessa.
1. mín
Leikur hafinn
Rafael Máni sparkar okkur í gang!
Fyrir leik
Dómarateymið Aðaldómari leiksins er Sveinn Arnarsson. Honum til halds og trausts eru þeir Guðni Freyr Ingvason og Kristofer Bergmann.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gunnar Bjartur Huginsson
Fyrir leik
Gengi Fjölnis Fjölnir hefur verið í miklu brasi í byrjun tímabils og situr í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig. Þeir steinlágu í seinustu umferð og lutu í lægra haldi fyrir HK 3-0. Umferðina fyrir það, töpuðu þeir fyrir Selfossi 2-0 en þeir eru í 11. sæti. Hins vegar er Lengjudeildin óútreiknanleg og það er ljóst að allt getur gerst hér í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Bjartur Huginsson
Fyrir leik
Gengi Þróttar Þróttur vann sterkan útisigur á Selfyssingum í síðustu umferð 2-0. Þeir gerðu jafntefli við Njarðvík á heimavelli umferðina fyrir það. Þeir sitja í 4. sæti Lengjudeildarinnar og gengi þeirra komið einhverjum á óvart hingað til.
Mynd: Hrefna Morthens

Gunnar Bjartur Huginsson
Fyrir leik
Verið velkomin Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá AVIS vellinum!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Bjartur Huginsson
Byrjunarlið:
13. Snorri Þór Stefánsson (m)
3. Reynir Haraldsson (f)
4. Þengill Orrason
9. Árni Steinn Sigursteinsson
10. Kristófer Dagur Arnarsson
11. Bjarni Þór Hafstein
14. Daníel Ingvar Ingvarsson
16. Mikael Breki Jörgensson
23. Hilmar Elís Hilmarsson
26. Einar Örn Harðarson ('76)
45. Rafael Máni Þrastarson ('76)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
7. Óskar Dagur Jónasson
8. Orri Þórhallsson
15. Fjölnir Sigurjónsson ('76)
18. Þorkell Kári Jóhannsson ('76)
20. Egill Otti Vilhjálmsson
27. Sölvi Sigmarsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Már Guðmundsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Kári Arnórsson
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Margrét Ársælsdóttir

Gul spjöld:
Þengill Orrason ('16)
Mikael Breki Jörgensson ('50)
Árni Steinn Sigursteinsson ('67)
Bjarni Þór Hafstein ('75)
Þorkell Kári Jóhannsson ('85)

Rauð spjöld:
Árni Steinn Sigursteinsson ('78)