Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
Fylkir
LL 2
0
KFA
Fylkir
2
0
KFA
Milan Jelovac '2 , sjálfsmark 1-0
Guðmundur Tyrfingsson '32 2-0
02.04.2026  -  14:15
tekk VÖLLURINN
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Leikurinn færður inn í Skessuna um miðjan fyrri hálfleik
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Bjarki Steinsen
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
9. Eyþór Aron Wöhler ('70)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('77)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson ('70)
70. Guðmundur Tyrfingsson
77. Bjarki Steinsen Arnarsson ('77)
92. Kári Sigfússon ('25)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
30. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
6. Guðfinnur Þór Leósson ('70)
7. Máni Austmann Hilmarsson ('77)
11. Magnús Daði Ottesen ('70)
19. Arnar Númi Gíslason ('25) ('89)
20. Theodór Ingi Óskarsson ('77)
72. Helber Josua Catano Catano ('89)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Heimir Guðjónsson (Þ)
Daði Ólafsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Ólafur Engilbert Árnason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
2-0 lokatölur Fylkir vinnur þennan skrýtna leik 2-0! Skýrsla kemur inn innan skamms.
89. mín
Inn:Helber Josua Catano Catano (Fylkir) Út:Arnar Númi Gíslason (Fylkir)
87. mín Gult spjald: Patrekur Aron Grétarsson (KFA)
Fyrir tæklingu á Guðmundi
84. mín
Inn:Sævar Atli Sigurðarson (KFA) Út:Javier Montserrat Munoz (KFA)
77. mín
Inn:Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir) Út:Bjarki Steinsen Arnarsson (Fylkir)
77. mín
Inn:Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir) Út:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
70. mín
Inn:Guðfinnur Þór Leósson (Fylkir) Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
70. mín
Eggert inná Sýnist Eggert koma inn fyrir Birki Inga en Eggert ekki inni hjá mér þannig get ekki gert þetta sem skiptingu
70. mín
Inn:Magnús Daði Ottesen (Fylkir) Út:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
66. mín
Mjög gott færi! KFA komnir í virkilega góða stöðu og boltanum er rennt út á Jawed sem er aleinn og skítur beint á Ólaf í marki Fylkis.
64. mín
KFA í skyndisókn, Javier fær boltann og sér að Ólafur Kristófer er framarlega og Javier reynir skot en það er ekki nógu gott og Ólafur nær boltanum
62. mín
Kemur bolti á fjær sem Eyþór Wöhler nær ekki að skalla og boltinn endar svo útaf og Fylkir fá hornspyrnu
57. mín
Bjarki fær boltann upp kantinn frá Benedikt og nær að koma boltanum á Eyþór Wöhler sem á skot í varnarmann
53. mín
Birkir Ingi eitthvað pirraður og tekur niður 2 Fylkismenn en sleppur við gult spjald en fær tiltal frá Gunnari
51. mín
Benedikt Daríus hleypur upp kantinn og kemur með boltann fyrir en boltinn fer yfir allann pakkann
49. mín
KFA vilja fá víti, Javier fellur við í baráttu við Hlyn Sævar en Gunnar Oddur segir nei og held ég sé sammála honum þar
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað KFA sparkar seinni hálfleiknum í gang
45. mín
Hálfleikur
2-0 í hálfleik Fylkismenn miklu betri í þessum fyrri hálfleik og spennandi að sjá hvernig liðin koma út í seinni hálfleikinn
44. mín
KFA komast hér í sókn og kemur fyrirgjöf á Patrek Aron sem á skalla framhjá
40. mín
Arnar Númi kemur með fyrirgjöf sem Guðmundur skallar fyrir Benedikt Daríus sem á skot og Fylkir fá hornspyrnu
36. mín
Nenni Þór búinn að vera sprækur og á hér stungu sendingu sem Ólafur Kristófer nær að komast inní
34. mín
KFA að ógna aðeins núna og er að svara þessu marki Fylkis vel
32. mín MARK!
Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Stoðsending: Bjarki Steinsen Arnarsson
2-0!! Bjarki hleypur upp hægri kanntinn og kemur með góðan bolta fyrir sem Guðmundur Tyrfingsson klárar vel!
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Arnar Númi með skot fyrir utan teig sem Milan Jelovac ver. Fylkir að sækja mikið og KFA að verjast vel
25. mín
Inn:Arnar Númi Gíslason (Fylkir) Út:Kári Sigfússon (Fylkir)
Sýnist Kári vera farinn útaf í stað Arnars Núma
24. mín
Farið af stað aftur Sýnist Fylkir hafa sett Arnar Núma inná en þarf bara finna út hver fór útaf áður en ég hendi því hér inn
24. mín
Liðin eru mætt! Liðin eru mætt í Skessuna og eru byrjuð að hita aftur upp
24. mín
Bein útsending frá Skessunni Livey sýnir það sem eftir lifir leiks beint frá Skessunni og má sjá útsendinguna hér að neðan:

24. mín
Búist við að leikurinn fari af stað aftur kl 15:30 Búist er við því að leikurinn haldi áfram um klukkan 15:30
24. mín
Leikurinn færður í Skessuna! Leikurinn verður færður inn í Skessuna, hef ekki hugmynd hvenær leikurinn fer af stað aftur
24. mín
Leikurinn mögulega færður! Leikurinn Mögulega færður í Skessuna
24. mín
Liðin eru farin inn! Gunnar Oddur er búinn að flauta leikinn af sýnist mér! Allavega einhver pása gerð á leiknum og starfsfólkið er byrjað að moka
21. mín
Leikurinn stöðvaður Gunnar Oddur kallar menn til sín og starfsmenn hlaupa á meðan inná og moka línurnar
20. mín
Ekki mjög mikið að gerast en Fylkir betri þessar fyrstu 20 mínútur, menn að renna og sjá ekki neinar línur. Það er hinsvegar fólk á fullu að moka hliðar línur og vítateig eins og þau geta.
10. mín Gult spjald: Nenni Þór Guðmundsson (KFA)
Sýndist Nenni Þór fá spjaldið en það var Patrekur Aron sem braut á leikmanninum. Nenni hlýtur að fá spjald fyrir kjaft
8. mín
Mjög erfiðar aðstæður
Mynd: Livey/Skjáskot

Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu og í opinni dagskrá á Livey.
6. mín
Fylkir í fínni sókn en Eyþór Wöhler brýtur klaufalega á sér
3. mín
Þriðja hornspyrna Fylkismanna eftir aðeins 3 mínútur
2. mín SJÁLFSMARK!
Milan Jelovac (KFA)
Sjálfsmark!! Sýnist þetta hafa verið sjálfsmark hjá markverðinum Milan Jelovac sem missti boltann inn eftir hornspyrnu frá Arnóri Breka
1. mín
Fylkir fá fyrstu hornspyrnuna eftir 20 sekúndur
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað Fylkismenn byrja með boltann
Fyrir leik
Liðin að labba inn á völlinn Liðin eru að labba inná ennþá mikill snjór á vellinum en leikurinn mun allavega fara af stað!
Fyrir leik
Svona er staðan á vellinum í Árbænum
Mynd: Livey/Skjáskot

Fyrir leik
15 mínútna seinkun sirka Sýnist leiknum vera seinkað um sirka 15 mínútur en við sjáum til. Liðin voru að klára hita og leikmenn að labba inn í hús
Fyrir leik
Snjór á vellinum Verið að skafa snjó af vellinum, aðstæður eru ekkert frábærar sést lítið í línur og snjókoma. En það er verið að reyna græja völlinn svo línurnar sjáist betur
Fyrir leik
Breytingar á Byrjunarliði Fylkir gerir 3 Breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn KV
Guðfinnur Þór Leósson, Máni Austmann og Magnús Daði fá sér sæti á bekknum og inn í liðið fyrir þá koma Guðmundur Tyrfingsson, Eyþór Aron Wöhler og Nikulás Val Gunnarsson.

Engar breytingar eru á liði KFA en vekur athygli að þeir eru bara með 4 á bekknum en Eggert Gunnþór Jónsson er einn af þeim samkvæmt KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Dómarar Aðaldómari í dag er Gunnar Oddur Hafliðason
Aðstoðardómarar eru Egill Guðvarður Guðlaugsson og Nour Natan Ninir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leið liðanna í 32 liða úrslitin Fylkir unnu KV 6-0 á heimavelli í fyrsta leik bikarsins þar sem að Theodór Ingi kom inná og setti þrennu! Verður spennandi að sjá hvort hann fái að byrja leikinn í dag.

KFA unnu Sindra 1-0 á heimavelli með marki frá Simon Maas á 54 mínútu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fylkir - KFA Góðan dag og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Fylkis og KFA í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Leikur hefst klukkan 14:00
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Svona eru 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins Skírdagur (í dag):
14:00 Fylkir - KFA (tekkVöllurinn)

Föstudagurinn langi:
13:00 Afturelding - Ýmir (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 Tindastóll - Njarðvík (Sauðárkróksvöllur)

Laugardagur:
12:00 ÍBV - Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
14:00 Þór - FH (Boginn)
15:00 Höttur - KA (Rafey-völlurinn)
16:00 Kormákur/Hvöt - Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Fram - Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)

Páskadagur (Sunnudagur):
15:00 Árbær - Ægir (Domusnovavöllurinn)
15:00 Stjarnan - Selfoss (Miðgarður)

Annar í páskum (Mánudagur):
13:00 Grindavík - Keflavík (BIRTU-völlurinn)
13:00 Fjölnir - HK
13:00 ÍA - Haukar (Akraneshöllin)
14:00 Grótta - Álftanes (Vivaldivöllurinn)
16:00 KR - Valur (Meistaravellir)

Laugardagurinn 11. apríl:
16:00 Vestri - Leiknir R. (Kerecis-völlurinn)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Milan Jelovac (m)
2. Matheus Bissi Da Silva
3. Geir Sigurbjörn Ómarsson (f)
6. Birkir Ingi Óskarsson
8. Simon Maas
10. Jawed Abd El Resak Boumeddane
11. Ólafur Bernharð Hallgrímsson
18. Arnór Berg Grétarsson
19. Javier Montserrat Munoz ('84)
22. Patrekur Aron Grétarsson
30. Nenni Þór Guðmundsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
9. Sævar Atli Sigurðarson ('84)
15. Benedikt Brúnsteð Jóhannsson
21. Óðinn Þór Helgason
- Meðalaldur 17 ár

Liðsstjórn:
Eggert Gunnþór Jónsson (Þ)
Sverrir Þór Kristinsson (Þ)
Einar Andri Bergmannsson
Arnar Freyr Pétursson

Gul spjöld:
Nenni Þór Guðmundsson ('10)
Patrekur Aron Grétarsson ('87)

Rauð spjöld: