PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Lengjudeild karla
HK
LL 4
1
Grótta
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 1
1
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 2
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Vestri
LL 1
1
Grindavík
Besta kvenna
Valur
LL 2
1
Grind/Njarð
Besta kvenna
Þór/KA
LL 1
1
FH
Besta kvenna
Fram
LL 3
4
ÍBV
Fram
3
4
ÍBV
Taylor Marie Hamlett '2 1-0
1-1 Fridrikka Marie Clementsen '4
1-2 Emma Kate Young '20 , sjálfsmark
1-3 Allison Grace Lowrey '43
Alda Ólafsdóttir '75 2-3
2-4 Allison Grace Lowrey '80
Taylor Marie Hamlett '90 3-4
25.04.2026  -  13:00
Lambhagavöllurinn
Besta kvenna
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai
Maður leiksins: Allison Grace Lowrey
Byrjunarlið:
24. Ashley Brown Orkus (m)
4. Emma Kate Young
10. Una Rós Unnarsdóttir ('63)
11. Brookelynn Paige Entz
14. Hildur María Jónasdóttir (f)
17. Katrín S. Vilhjálmsdóttir ('46)
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
23. Isabelle Rose Gilmore
26. Sylvía Birgisdóttir ('47)
32. Taylor Marie Hamlett
36. Harpa Helgadóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
2. Hanna Faith Victoriudóttir
5. Lara Margrét Jónsdóttir
7. Alda Ólafsdóttir ('46)
16. María Kristín Magnúsdóttir
20. Freyja Dís Hreinsdóttir ('47)
25. Kristín Magdalena Barboza ('63)
27. Eyrún Björg Benediktsdóttir

Liðsstjórn:
Anton Ingi Rúnarsson (Þ)
Svava Björk Hölludóttir
Sævar Halldórsson
Freyja Sóllilja Sverrisdóttir
Arna Diljá Guðmundsdóttir
Stefán Óli Hallgrímsson
Magnús Þorsteinsson

Gul spjöld:
Kristín Magdalena Barboza ('68)
Taylor Marie Hamlett ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Hörku fyrsti leikur hjá liðunum 4-3 Sigur ÍBV niðurstaða
90. mín MARK!
Taylor Marie Hamlett (Fram)
Er tími fyrir annað?! Klafs eftir flotta vörslu og Taylor nær að hamra hann í þaknetið frá stuttufæri
90. mín
4mín í uppbót Fram aðeins í sókn um þessar mundir en enginn hættu svo sem á ferð
88. mín Gult spjald: Taylor Marie Hamlett (Fram)
Þvælist fyrir útsparkinu hennar Guðnýjar.
87. mín
Olga er virkilega lífleg á kantinum.
Sækir horn.
85. mín
Það virtist allur meðbyr vera með Fram liðinu áður en þetta mark kom. Eflaust mikill léttir fyrir gestina en sárt fyrir Fram.
81. mín
Inn:Magdalena Jónasdóttir (ÍBV) Út:Allison Grace Lowrey (ÍBV)
Tvö mörk hjá Allison Grace í dag
80. mín MARK!
Allison Grace Lowrey (ÍBV)
Misheppnuð sending milli hafsenta sem Allison Grace þefar upp.
Brunar alein upp völlinn og klára með flottu skoti í neðra fjær.
Sest strax niður enda og skiptingu.
78. mín
Guðný gerir virkilega vel að grípa hornspyrnu sem stefndi beint í pakkann.
75. mín MARK!
Alda Ólafsdóttir (Fram)
Stoðsending: Harpa Helgadóttir
3-2!!! Ótrúlegt skopp á boltanum frá aukaspyrnu aftan við miðju.

Alda gerir VIRKILEGA vel í að komast bakvið vörnina og vippar boltanum yfir Guðnýju sem var kominn aðeins út í teiginn.
73. mín
Guðný aftur að gera vel ein á ein gegn Taylor Hamlett.
72. mín
Skemmtileg tilraun! Taylor Hamlett lætur bara vaða úr erfiðri stöðu en Guðný þarf að verja vel.
Dómarinn þó ekki sammála að hún hafi verið útaf.
71. mín
Olga með fínan bolta inn fyrir vörnina en Ashley grípur örugglega
70. mín
Fram konur að sleppa þarna! Allskonar bras í teig Framara eftir aukaspyrnu frá vinstri kantinum.

Tvo ef ekki þrjú færi þarna sem mynduðust í algjöru brasi í teignum
68. mín Gult spjald: Kristín Magdalena Barboza (Fram)
66. mín
Inn:Milena Mihaela Patru (ÍBV) Út:Embla Harðardóttir (ÍBV)
65. mín
Vont samstuð þar sem Allison Grace liggur eftir.
Annars staðar á vellinum liggur Sara Svanhildur einnig eftir.
Báðir leikmenn sem standa þetta þó af sér.
63. mín
Inn:Kristín Magdalena Barboza (Fram) Út:Una Rós Unnarsdóttir (Fram)
62. mín Gult spjald: Embla Harðardóttir (ÍBV)
Fyrsta spjaldið, réttur dómur. Tekur þarna nokkuð harkalega niður leikmann i upphlaupi með boltanum
58. mín
Fram skorar...rangstaða Taylor Hamlett með boltann í skyndisókn og gerði vel í að finna Öldu Ólafs sem náði léttu slútti í netið en var því miður rangstæð
55. mín
Vantar alveg upp á spilið hjá báðum liðum hér til að byrja með.
Útspörkin hjá Guðnýju ganga ekkert því vindurinn tekur boltann algjörlega.
Hún gerði vel í að grípa sendingu frá leikmanni Fram í boxið.
47. mín
Inn:Freyja Dís Hreinsdóttir (Fram) Út:Sylvía Birgisdóttir (Fram)
Sylvía meiðist hérna. Löppin hjá Olgu sem fylgdi aðeins eftir skotinu sem hún tók og hefur farið illa í Sylvíu.
46. mín
Ein breyting í hálfleik Seinni er farinn að stað!

Spurning hvort Fram getur nýtt sér vindinn núna.
46. mín
Inn:Alda Ólafsdóttir (Fram) Út:Katrín S. Vilhjálmsdóttir (Fram)
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við og ÍBV fara klárlega sáttar til klefa í hálfleik.
Búnar að gera mjög vel úr hornspyrnum sínum og það virtist ekki bíta á þær að lenda undir eftir 2mínútur.
43. mín MARK!
Allison Grace Lowrey (ÍBV)
3-1! Ashley nýbúin að vera mjög vel.

ÍBV fær en eitt hornið, klafs í teignum og önnur varsla frá Ashley en Allison Grace gerir vel í að pota boltanum inn í markið!
40. mín
Það sést að ÍBV er vant því að spila í roki.
Þær eru alveg óhræddar að hleypa af skotum með vindinn í bakið á sér.
Hefur þó ekki borið mikinn árangur þessar 40mín.
36. mín
Hættulegur bolti í teiginn hjá ÍBV en Edda Dögg gerir virkilega vel í að koma boltanum úr hættusvæðinu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
ÍBV búnar að koma sér nokkuð vel fyrir í bílstjórasætinu en vantar aðeins upp á að komast í góð færi.

Olga vildi fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig á vænlegum stað en dómarinn ekki á því sama.
28. mín
Viktorija og Allison Grace bæði búin að eiga fín skot rétt fyrir utan teiginn. Ashley þó aðeins þurft að verja frá þeirri síðari nefndu.
26. mín
Taylor Hamlett er allt í öllu þarna frammi, er að koma sér oft í boltann en Avery Mae með góð völd á varnarleiknum
23. mín
Þá er fyrsta horn Fram að eiga sér stað.

Smá klafs í teignum en boltinn öruggur hjá gestunum
20. mín SJÁLFSMARK!
Emma Kate Young (Fram)
Hornspyrnurnar að skila sér! ÍBV komið yfir. Allison Patricia Clark sem átti þessa sendingu í teiginn sem Emma Kate skallaði óheppilega aftur fyrir sig og í eigið net
18. mín
Fridrikka með skemmtilega tilraun að finna Allison Grace bakvið vörn Framara en skallað í burtu
15. mín
Eyjakonur duglegur að sækja hornspyrnur, ekki að furðu enda komnar með gott mark úr einni slíkri.
Sóknin hjá þeim fer mikið upp hægri kantinn þar sem Allison Patricia er allt í öllu með góða pressu hjálp frá nöfnu sinni Allison Grace
8. mín
Sara Svanhildur með skot sem Avery Mae kemst fyrir en boltinn fer aftur í lappir Söru og hún tekur annað skot sem Guðný varði vel.
7. mín
Tvo skot kominn og tvö mörk.
4. mín MARK!
Fridrikka Marie Clementsen (ÍBV)
JAJA það er alvöru nýting hér! Fyrsta hornspyrna leiksins tekið í boxið. Boltinn dettur þægilega fyrir Fridrikku sem var með gott pláss og gat komið flottu skoti á markið.

Virtist smá "deflection" því Ashley Brown skutlaði sér eiginlega frá boltanum
2. mín MARK!
Taylor Marie Hamlett (Fram)
Fyrsta sókn og fyrsta mark! Boltinn á vinstri kantinum og klúðursleg fyrirgjöf sem Guðný Geirs mætir þó í. Taylor Marie gerir virkilega vel og kemur sér fyrst í boltann og skóflar honum yfir og í markið!
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er sparkað af stað, það eru gestirnir sem eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Fer að byrja! Það styttist í að þessi leikur verður flautaður af stað, Flott veður fyrir góðan fótboltaleik. Smá vindur og gott hitastig.

Liðin eru að ganga inná og stefið farið í gang!
Fyrir leik
Leikmannaskipti liðana Fram
Komnar
Brookelynn Paige Entz frá Grindavík/Njarðvík
Taylor Hamlett frá FHL
Krista Dís Kristinsdóttir frá Þór/KA
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið frá Breiðabliki (var á láni)
Isabelle Rose Gilmore frá FHL
Katrín S. Vilhjálmsdóttir frá Aftureldingu
Kristín Magdalena Barboza frá Breiðabliki (var á láni hjá Haukum)
Hanna Faith Victoríudóttir frá Aftureldingu
Lara Margrét Jónsdóttir frá Tindastóli
Harpa Helgadóttir frá FH á láni

Farnar
Lily Anna Farkas í Grindavík/Njarðvík
Murielle Tiernan í Stjörnuna
Telma Steindórsdóttir í Stjörnuna
Kamilla Pickett
Dominiqe Flasza
Elaina La Macchia
Olga Ingibjörg Einarsdóttir í Breiðablik (var á láni)
Sara Dögg Ásþórsdóttir í Fylki
Katrín Ásta Eyþórsdóttir í KR (var á láni hjá Fylki)
Eyrún Vala Harðardóttir í Val

Komin og farin
Giu Vicari frá Ástralíu og til Bandaríkjanna

ÍBV
Komnar
Fridrikka Maria Clementsen frá Færeyjum
Arden La-Rose frá Bandaríkjunum

Farnar
Engin

Fyrir leik
Fótbolti.net spáir ÍBV í 8.sæti ÍBV koma í þetta tímabil sem nýliðar og ef spáin lýgur ekki mun liðið halda sér uppi í Bestu Deildinni.
„Ef ÍBV spilar alla leiki eins og gegn blikum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins að þá verða þær töluvert á töflunni. Þáttur þjálfarans í að halda liðinu uppi mun spila stórt hlutverk og andi Heimaeyjar kemur liðinu langt."
„Leiftrandi sóknarbolti í bland við þéttann varnarleik á Hásteinsvelli er eitthvað sem heimamenn sætta sig við."
„Það verður slor og það verður skítur en þegar talið verður upp úr pokanum í haust að þá verður tónlist í hvítu tjöldunum."



Fyrir leik
Fótbolti.net spáir Fram í 10.sæti Eftir að ná að halda sér uppi sem nýliðar í fyrra er komið að öðru tímabili í röð í deild þeirra Bestu. Liðinu er spáð 10.sæti en spá er bara spá og Fram liðið eflaust hungrað í að af sanna þessa spá.

„Í fyrra spilaði liðið í Bestu deildinni og átti gott sumar þar sem falldraugurinn gleypti liðið ekki. Fram náði að bjarga sér nokkuð þægilega og var áttunda sætið niðurstaðan. Það hafa orðið miklar breytingar í vetur og meðal annars þjálfarabreytingar en Óskar Smári Haraldsson, sem hafði komið liðinu úr 2. deild í Bestu deildina, hvarf á braut og tók við Stjörnunni. Það hefur verið nokkuð rætt og ritað um það að Fram sé að draga saman seglin með kvennaliðið sitt og það hefur vakið ákveðnar spurningar. Grunnurinn er til staðar eftir góðan árangur undanfarinna ára og nú þarf að byggja á honum."


Fyrir leik
Besta Deild Kvenna Sæl veriði og velkomin í beina textalýsingu frá Lambhagavellinum!
Þriðju leikur tímabilsins rúllar af stað kl.13:00
Fram fær spennandi leik gegn nýliðunum frá Vestmannaeyjum í þessari fyrstu umferð Bestu Deildar Kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
5. Avery Mae Vanderven (f)
7. Edda Dögg Sindradóttir
10. Kristín Klara Óskarsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
17. Viktorija Zaicikova
20. Allison Patricia Clark
23. Embla Harðardóttir ('66)
27. Fridrikka Marie Clementsen
35. Allison Grace Lowrey ('81)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Arden Joy La-Rose (m)
12. Ísey María Örvarsdóttir (m)
8. Ísafold Dögun Örvarsdóttir
9. Milena Mihaela Patru ('66)
15. Magdalena Jónasdóttir ('81)
16. Petra Metta Kristjánsdóttir
24. Tanja Harðardóttir

Liðsstjórn:
Jón Ólafur Daníelsson (Þ)
Sigríður Lára Garðarsdóttir
Guðmundur Tómas Sigfússon
Richard Matthew Goffe
Filipe Andre Alexandre Machado
Magnús Sigurðsson
Bjarni Geir Gunnarsson

Gul spjöld:
Embla Harðardóttir ('62)

Rauð spjöld: