Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
Besta karla
Valur
LL 1
4
KR
Besta karla
Þór
LL 0
1
KA
Lengjudeild kvenna
Tindastóll
LL 2
8
Keflavík
Þór
0
1
KA
0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson '87 , víti
02.05.2026  -  16:00
VÍS völlurinn
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson ('84)
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Sebastian Haugland
11. Isaac Atanga ('8)
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('88)
19. Ragnar Óli Ragnarsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Christian Greko Jakobsen
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
10. Aron Ingi Magnússon ('8) ('84)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('88)
18. Sverrir Páll Ingason ('84)
21. Elvar Baldvinsson
23. Ingimar Arnar Kristjánsson ('84)
31. Kristófer Kató Friðriksson

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Halldór Mar Einarsson
Stefán Ingi Jóhannsson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Konráð Grétar Ómarsson
Eiður Benedikt Eiríksson

Gul spjöld:
Sigurður Heiðar Höskuldsson ('38)
Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!

KA vinnur sinn fyrsta sigur í sumar í Akureyrarslagnum eftir svakalegan fótboltaleik. Og það er fagnað KA megin á vellinum af öllum lífs og sálar kröftum.

Alllt nema markafjölda hafði þessi leikur.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Komið framyfir uppgefinn tíma. Þór með aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.

Beint í fang Stubbs fer boltinn.
93. mín
Mínúta eftir og ekkert sem bendir til annars en að stigin 3 séu á leið til KA.

Þór á aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi KA.
92. mín
Sveinn Margeir tekur boltann af stuttu færi beint á pönnuna og steinliggur.

Fljótur á fætur samt.
91. mín Gult spjald: Jakob Snær Árnason (KA)
Brot á miðjum vellinum
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
89. mín
Þessar lokamínútur verða eitthvað annað. Allt undir hér og hitinn gríðarlegur innan vallar.
88. mín
Inn:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór ) Út:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór )
87. mín Mark úr víti!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Aron í rangt horn og Hallgrímur leggur boltann snyrtilega í hitt hornið.

Er montrétturinn á leið í Brekkuna?
86. mín Gult spjald: Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór )
86. mín
KA er að fá vítaspyrnu!
Svakaleg tækling á Hallgrím Mar í teignum sem snýr baki í markið! Bjarni Guðjón sýnist mér eiga tæklinguna sem er algjörlega glórulaus
84. mín
Inn:Ingimar Arnar Kristjánsson (Þór ) Út:Atli Sigurjónsson (Þór )
84. mín
Inn:Sverrir Páll Ingason (Þór ) Út:Aron Ingi Magnússon (Þór )
83. mín
Atli brýtur á Kroon og gefur okkur fertugustu aukaspyrnu leiksins. Og
81. mín
Guðjón Ernir!
Einn gegn Aroni eftir frábæra sendingu frá Montiel. Aron mætir út á móti og Guðjón Ernir skilar boltanum ekki á markið. Frábært úthlaup þarna.
81. mín
Inn:Jakob Snær Árnason (KA) Út:Oliver Heiðarsson (KA)
Kobbi x2 mæta inná
81. mín
Inn:Jakob Héðinn Róbertsson (KA) Út:Kári Gautason (KA)
Kobbi x2 mæta inná
79. mín
Aron Ingi!
Í hörkuskotfæri eftir undirbúning Haugland. Fær boltann í D-boganum en setur boltann beint á Stubb.
77. mín
Enn Þór með horn. Frá vinstri kemur boltinn inn á teiginn þar sem Bjarni Guðjón skallar framhjá á nærstöng.
75. mín
Enn og aftur fá Þórsarar horn. Ekki nýst til þessa.

Tekin innarlega á teiginn beint í fang Stubbs.
73. mín
Heldur farið að hægjast á mönnum á vellinum. Ákefðin verið slík að það kemur núll á óvart.
69. mín
Oliver reynir skot en Aron vandanum vaxinn í marki Þórs.
67. mín
Inn:Diego Montiel (KA) Út:Danijel Dejan Djuric (KA)
Ekki dagurinn hans DDD
66. mín
Djuric ragur
Í frábærri stöðu við teig Þórs með allt pláss í heiminum. Í stað þess að negla á markið bíður hann og bíður og ekkert verður úr.
65. mín
Affi kominn vel hátt á völlinn og reynir skotið. Stubbur með þetta allt í teskeið.
64. mín
Banterinn úr stúkunni flýgur "Siggi við vitum hvað þú gerðir" Syngja KA menn.

Hvað svo sem býr þar að baki.
61. mín
KA vörnin galopin! Ágúst Eðvald fær boltann hægra megin í teignum og leggur boltann út í teiginn. ÞRÍR leikmenn Þórs í teignum aleinir en missa allir af boltanum.
59. mín
KA vinnur aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.

Hættulegur bolti frá Hallgrími en Markúsi Mána mislagðir fætur við markið og setur boltann framhjá.
58. mín
Hallgrímur Mar í góðri stöðu í teig Þórs eftir snarpa sókn. Mundar vinstri fótinn og snýr boltann yfir markið.
57. mín
Ágúst Eðvald vinnur horn fyrir Þór

Þeirra sjöunda. Lítið komið út úr þeim til þessa.

Skalli að marki en yfir markið.
54. mín
Aftur KA
Oliver með máttlítið skot eftir sendingu frá Djuric sem Aron á ekki í teljandi vandræðum með.
54. mín
Guðjón Ernir í þröngu færi eftir skyndisókn KA. Nær skotinu en það er ekki gott og endar í innkasti.
53. mín
Djuric með skot af löngu færi eftir snarpa sókn KA. Setur boltann vel yfir markið.
51. mín
Aron Birkir með vörslu
Oliver Heiðars á sprettinum og kemur sér inn á teiginn. Gamli maðurinn Atli eltir hann og heldur í við hann. Oliver nær skotinu en Aron Birkir ver í horn.
50. mín
Fjórar.... Þór með aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.

KA menn skalla frá
48. mín
47:45 og þær eru orðnar þrjár.

Guðjón Ernir með hættulegan bolta fyrir markið en Djuric of seinn í hlaupinu.
48. mín
47:00 á klukkunni.... tvær aukaspyrnur þegar verið dæmdar. Ætli við fáum eitthvað met hér í þessum efnum í dag?
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Heimamenn sparka okkur af stað á ný.

Þessi síðari hálfleikur verður eitthvað!
46. mín
Inn:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (KA) Út:Birgir Baldvinsson (KA)
45. mín
Hálfleikur
Aukaspyrnutalning Tuttugu og átta...... 28...... Það er rosalegt!

Samt er Ívar Orri búinn að sleppa örugglega 10-15 augljósum brotum.

Það sem baunin í flautunni hans hlýtur að vera orðin blaut.
45. mín
XB

Hálfleikur og þá tilvalið kynna sér framboð Framsóknar á Akureyri og lesa greinina ,,Spörum okkur ekki til óbóta“ eftir Sunnu Hlín og Sverre Jakobsson sem fjallar einmitt um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri.

Smelltu hér til að lesa.

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
Markalaust hér í hálfleik en atvikin vantar ekki.

Ömurleg meiðsli, endalaus brot og aukaspyrnur og ástríða og hiti í tæpa klukkustund. Það gerist eitthvað rosalegt í síðari hálfleik það er ég viss um.

Heimamenn verið heilt yfir sterkari aðili leiksins og fengið hættulegri færi. Eða bara færi yfir höfuð því sóknarleikur KA hefur verið takmarkaður.

Leikur KA datt úr öllum takti eftir meiðsli Rodri og þeir þurfa að leita leiða til þess að koma sér betur inn í leikinn í síðari hálfleik. Þá kannski sérstaklega að koma Oliver Heiðarssyni sem varla hefur sést inn í leikinn.
45. mín
+13
Gunnar Oddur stendur í stórræðum að róa menn
45. mín
+12 Enn fær Þór horn.

Stubbur missir af boltanum en Affi ekki í jafnvægi og Affi kemur boltanum ekki á markið.
45. mín
+10
Þór fær hornspyrnu. Þeirra fimmta í dag.
45. mín
+9 Við náðum heilum fimm mínútum eða svo án þess að aukaspyrna hafi verið dæmd. Það er met í leiknum til þessa.
45. mín
+9 Djuric í færi eftir sendingu frá Kroon, Ragnar Óli í pressunni truflar hann og Djuric skóflar boltanum framhjá úr teignum.
45. mín
+7
Samuel Kroon með Oliver fyrir framan sig í kjörstöðu í að komast einn í gegn. Kroon reynir sendinguna sem er ömurleg og beint á Affi.
45. mín
+4 Er einhver með tölu á aukaspyrnum í þessum fyrri hálfleik? Þær eru orðnar mjög margar í það minnsta.
45. mín
+3 Ágúst Eðvald hársbreidd frá því að sleppa í gegn, þarf að bíða eftir boltanum og velur að skjóta. Boltinn framhjá

Aftur sækja Þórsarar og vinnur Haugland hornspyrnu.
45. mín
+1 Uppbótartími er að lágmarki ÞRETTÁN mínútur.
45. mín
Nú vilja stuðningsmenn Þórs víti
Heimamenn sækja hratt, Ágúst Eðvald með boltann inn á teiginn þar sem Danijel Djuric af öllum mönnum er mættur fyrir skot Þórsara sem vilja meina að hann hafi fengið boltann í höndina.

Svo er ekki svo áfram með leikinn.
45. mín
Klukkan er að detta í 45 bráðlega. En við eigum allavega 10 mínútur eftir
43. mín
KA menn vilja fá víti og dósum rignir inn á völlinn!


Birgir Baldvinsson reynir að komast i fyrirgjöf inn á teignum en Kristófer smellir boltanum í andlitið á honum.

Ekkert í þessu og dósirnar fara beint í sjóðinn hjá Þór.
40. mín
Atli reynir bara skot úr spyrnunni en Stubbur ekki í vandræðum.
39. mín
Þór fær aukaspyrnu úti á hægri væng eftir að Birgir Baldvins fellir Atla Sigurjóns. Birgir á gulu spjaldi og er sannarlega að leika sér að eldinum þarna.
38. mín Gult spjald: Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þór )
Gunnar Oddur pantaði þetta spjald á þjálfara Þórs sem var ekki sáttur við að fá ekki aukaspyrnu úti á velli.
35. mín
Christian Greko Jakobsen faðmar Birgi Baldvinsson innilega og er ekki sáttur við að vera dæmdur brotlegur fyrir vikið.
32. mín
Inn:Sveinn Margeir Hauksson (KA) Út:Rodrigo Gomes Mateo (KA)
31. mín
Búið hjá Rodri Kallað eftir börum inn á fyrir Rodri. Þessi fyrri hálfleikur verður í lengra lagi.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Hans Viktor skallar aukaspyrnuna frá í horn.

Rodri er lagstur aftur og heldur á ný um hnéð. Þetta hlýtur að vera búið spil fyrir hann núna. Rodri sárþjáður.
29. mín Gult spjald: Birgir Baldvinsson (KA)
Fyrsta spjaldið. Fer aftan í hælinn á Ágústi Eðvald er Þór sótti hratt. Ekki mikil snerting en næg var hún að mati Ívars.
27. mín
Markús Máni bjargar á línu!
Skalli að marki eftir aukaspyrnuna sem Markús nær að sparka yfir markið bókstaflega af marklínu.

Heimamenn fengið hættulegri færi þó KA hafi verið meira með boltann framan af.
26. mín

Markús Máni með eins og eina NFL tækling á Ágúst Eðvald og keyrir hann í grasið úti til vinstri. Aukaspyrna að sjálfsögðu niðurstaðan.

Og Rodri mætir aftur leiks.
25. mín
Rodri gengur óstuddur af velli en draghaltur er hann. Sveinn Margeir er kominn úr upphitunargallanum og er klár að mæta inná.
23. mín
Önnur meiðsli? Rodri liggur í grasinu og heldur um hnéð.

Kallað eftir aðhlynningu.

Það er önnur skipting í vændum. þetta lítur heldur ekki vel út. Eins og Rodri hafi fengið slink á hnéð í baráttunni um boltann.
20. mín
Atli Sigurjóns í dauðafæri! Gott spil Þórs úti til hægri, boltinn á Ágúst sem setur boltann inn á hættusvæðið. Þar mætir Atli við vítapunkt og nær föstu skoti sem Stubbur í marki KA ver glæsilega í horn.

Ekkert kemur upp úr horninu.
19. mín
Kári Gautason með boltann inn á teig Þórs frá hægri. Varnarmaður kemst í milli og Kroon brýtur á honum í kjölfarið við litla kátínu KA manna.

Það er ástríða að baki þessu öllu saman.
19. mín
Er þetta Nikola
Sungu stuðningsmenn Þórs áðan til Danijel Djuric. Góður banter það!
17. mín
Jeppe Pedersen of lengi að taka innkast við vítateig Þórs. Ívar dæmir boltann af KA fyrir vikið.
16. mín
Þetta er slagur
Kappið algjörlega að bera fegurðina ofurliði á Akureyri hér í byrjun. En það er ekkert sem ætti að koma á óvart.
14. mín
Hallgrímur með skot
Fær boltann frá Kroon við D-bogann og lætur vaða á markið. Skotið fast beint á Aron sem heldur ekki boltanum en hirðir hann svo upp í annari tilraun.
11. mín
Það er hiti
Birgir Baldvins keyrir af krafti inn í Affi sem fellur við. Rýkur upp aftur eftir að Ívar dæmir brot og blæs aðeins á Birgi.
10. mín
Fjörið er hafið! Hans Viktor með skalla að marki eftir atang í teig Þórs eftir aukaspyrnuna. Skallinn beint á Aron sem þrumar boltanum fram á Atla sem kemur sér í færi inn á taig KA en setur boltann beint á Steinþór.
9. mín
KA menn fá aukaspyrnu við vinstra vítateigshorn Þórs. Heimamenn allt annað en sáttir láta Ívar Orra heyra það.

Púra brot fyrir því.
8. mín
Inn:Aron Ingi Magnússon (Þór ) Út:Isaac Atanga (Þór )
7. mín
Isaac kominn á börur og menn búa sig undir að bera hann af velli.

Óskum honum skjóts bata.
5. mín
Menn huga að Isaac
Stumra yfir honum á vellinum og huga að því að koma honum á börur. Get ekki ímyndað mér annað en kallað hafi verið eftir sjúkrabíl.

Ekki viss um að menn hreyfi við honum fyrr en að hann mætir á svæðið.
2. mín
Ljótt Atanga stígur á Kára Gautason og misstígur sig illa upp í horni á varnarhelming Þórs. Þetta lítur illa út á myndum og ég óttast að Isaac sé hreinlega fótbrotinn.

Ömurleg byrjun á þessum leik
2. mín
Uppstilling liðanna
Mynd: Sverrir Örn Einarsson


Mynd: Sverrir Örn Einarsson

1. mín
Leikur hafinn
Höfuðstaður Norðurlands nötrar
Það eru gestirnir úr KA sem hefja hér leik.

Áfram allir (Sölvi Haralds special) og vonandi fáum við frábæran leik!

Rosalega tók þetta langan tíma samt.
Fyrir leik

Fyrrum þjálfari KA Þorvaldur Örlygsson heilsar upp á liðin fyrir leik ásamt bæjarstjóra Akureyrar.

Ætli núverandi formaður KSÍ haldi með KA í leiknum?
Fyrir leik
Stemmingin er GEGGJUÐ Þétt setið og sungið og trallað. Svona á þetta að vera!
Fyrir leik
Kristalkúlan
Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt í hús Þjálfarar beggja liða hafa opinberað byrjunarlið sín og má sjá þau hér til hliðar.

Sigurður Höskuldsson gerir tvær breytingar á liði sínu frá tapinu í Kópavogi. Ásbjörn Líndal Arnarsson og Sverrir Páll Ingason fá sér sæti á bekknum fyrir þá Atla Sigurjónsson og Ragnar Óla Ragnarsson.

KA gerir fjórar breytingar frá 2-1 tapinu gegn Keflavík á dögunum. Kári Gautason, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Markús Máni Pétursson og Birgir Baldvinsson koma inn í byrjunarlið þeirra á kostnað Guðjóns Ernis Hrafnkelssonar, Sveins Margeirs, Diego Montiel og Valdimars Loga Sævarssonar
Fyrir leik
Það var hitað upp í útvarpsþættinum Kominn á allar hlaðvarpsveitur.

Fyrir leik
1. ágúst 2002 Dagsetning síðasta heimaleiks Þórs gegn KA í efstu deild í knattspyrnu. Tæp 24 ár hafa liðið síðan þá og þó nokkrir leikmenn beggja liða ekki fæddir og Fótbolti.net á sínu fyrsta sumri.

Leiknum lauk þá með 1-0 sigri KA sem á þessum árum var þjálfað og Þorvaldi Örlygssyni nú formanni KSÍ. Fjölmargar kanónur var að finna í báðum liðum og nöfn eins og Jóhann Þórhallsson (Þór) Dean Martin (KA) Páll Viðar Gíslason (Þór) og Steingrímur Eiðsson (KA) eru flestum sem uppi voru á þessum tíma vel kunn.


Páll Viðar er ákveðinn samnefnari um Þórsara
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fyrir leik
Gísli Gotti spáir
Gísli Gottskálk Þórðarson, efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2024, spáir í leikina sem eru framundan í deild þeirra bestu. Hann leikur í dag með Lech Poznan í Póllandi.

Þór 1 - 2 KA
Sturlaður leikur og held ég algjört 50/50 en ætla setja traustið á Djuric, maður þekkir hvað hann getur í bolta og hann tryggir fyrsta sigur KA manna. Ágúst Hlyns verður samt maður leiksins.

Mynd: EPA

Fyrir leik
Það gekk illa að velja sameiginlegt byrjunarlið. Svo mjög reyndar að Haraldur Örn fréttaritari Fótbolta.net og KA maður gagnrýndi skóla á Akureyri....... sem hann sjálfur gekk í...... sem reyndar útskýrir mjög margt ef út í það er farið.
Fyrir leik
Dómarar og fylgifiskar Það er farið í efstu hillu fyrir leik dagsins. Ívar Orri Kristjánsson sér um að dæma leikinn í dag. Birkir Sigurðarson og Guðmundur Ingi Bjarnason eru honum til aðstoðar svo. Gunnar Oddur Hafliðason fær það hlutverk að vera fjórði dómari. Bragi Bergmann fullkomnar svo teymið sem eftirlitsmaður KSÍ á þessum leik.

Fyrst Bragi er þarna, þessi leikur væri eflaust fullkominn fyrir dómara að vera með hljóðnema á sér.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Uppselt á leikinn
Ef þú ætlaðir þér að skella þér á völlinn og ert enn miðalaus þá er það vesen. Uppselt er á leikinn eins og eðlilegt er þegar þessi lið mætast.
Fyrir leik
Spenna hjá Sigga Höskulds
Sigurður Höskuldsson þjálfari Þórs fór ekki leynt með að hann væri spenntur fyrir leiknum er hann var til viðtals eftir leik gegn Breiðablik í síðustu umferð.

„Ég er rosalega spenntur, bæði lið að koma úr erfiðu tapi. Þannig það verður blóð á tönnunum hjá báðum liðum held ég. Þetta er ein mest spennandi leikur sem ég hef tekið þátt í þannig ég er mjög spenntur."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Haddi vill fá svar frá sínum leikmönnum Hallgrímur Jónasson var ómyrkur í máli eftir 2-1 tap KA á heimavelli gegn Keflavík á dögunum. Ósáttur er hreinlega ekki nægjanlega sterkt lýsingarorð til þess að skýra frá skoðun hans á frammistöðu leikmanna sinna.



„Nei það er 'attitude'. Þú getur verið góður í fótbolta og æft uppspilið og taktík og allt það, en ef grunnurinn er ekki í lagi þá vinnur þú ekki fótboltaleiki. Keflavík var með það í lagi í dag og ég veit ekki hvort við héldum að við myndum rúlla yfir þá því þegar við fáum mark á okkur þá höfðum við fengið aðvaranir áður. Staðan er 1-1 og maður vill bara sjá betra 'attitude'. Við þurfum að átta okkur á því í KA og í seinni hálfleik er gjörsamleg þögn þegar staðan er 1-1 á heimavelli svo í lokin þegar við setjum Keflavík undir pressu síðustu tuttugu mínúturnar þá finnur maður smá orku og fá fólkið í stúkunni með, en þetta er ekki það sem fólkið í stúkunni vill sjá og við erum ekki ánægðir með frammistöðuna.“

Varnarvinnan í liðinu er ekki nógu góð og við þurfum að átta okkur á því að fyrsta kemur hugarfarið og svo getum við talað um annað. Það þýðir ekki að tala um það að KA muni hrökkva í gang af því bara. Við erum neðstir í töflunni með eitt stig og áttum ekkert meira skilið í dag og menn þurfa bara að átta sig á því. Mér er alveg sama hvað þú ert góður en ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilaru ekki í KA.
Fyrir leik
Ólíkt gengi liðanna það sem af er Stigasöfnun hefur farið misvel af stað fyrir Akureyrarliðin þetta vorið. Heimamenn í Þór hafa sótt alls 6 stig í fyrstu fjórum leikjum sínum með sigrum á Val og Fram. Stór töp gegn KR og Breiðablik hafa komið á milli sigurleikja og markatala liðsins er 5-10. Taktur liðsins er þó þannig að sigur hefur unnist í öðrum hverjum leik og verði það áfram niðurstaðan verður gleði og glens í Þorpinu í kvöld.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net


Eitt stig er uppskera KA það sem af er móti. Liðið hefur tapað öllum þremur heimaleikjum sínum það sem af er og sótt þetta eina stig sitt á útivelli í Akraneshöllinni, markatalan 4-8

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Slagurinn um Akureyri framundan
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá STÓRLEIK (caps var nauðsynlegt) Þórs og KA í Bestu deildinni.

Akureyri er undir og við eigum von á veislu í höfuðstað Norðurlands.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson ('46)
3. Kári Gautason ('81)
4. Rodrigo Gomes Mateo ('32)
8. Jeppe Pedersen
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
14. Danijel Dejan Djuric ('67)
15. Oliver Heiðarsson ('81)
17. Samuel Karl Kroon
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
12. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
9. Sveinn Margeir Hauksson ('32)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('81)
20. Diego Montiel ('67)
21. Mikael Breki Þórðarson
27. Árni Veigar Árnason
29. Jakob Snær Árnason ('81)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('46)
44. Valdimar Logi Sævarsson

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Atli Sveinn Þórarinsson
Hrannar Björn Steingrímsson
Halldór Hermann Jónsson
Tryggvi Björnsson
Egill Daði Angantýsson
Nicklas Cleemann Rulle
Sigurbjörn Hafþórsson

Gul spjöld:
Birgir Baldvinsson ('29)
Jakob Snær Árnason ('91)

Rauð spjöld: