Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
Mjólkurbikar karla
Stjarnan
LL 2
1
KR
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 5
2
Njarðvík
Mjólkurbikar karla
HK
LL 0
2
Víkingur R.
Mjólkurbikar karla
ÍA
LL 7
6
Grindavík
Mjólkurbikar karla
Þróttur R.
LL 1
2
Breiðablik
HK
0
2
Víkingur R.
0-1 Valdimar Þór Ingimundarson '72
0-2 Elías Már Ómarsson '86 , víti
13.05.2026  -  19:15
Kórinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Lognið í Kórnum
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Maður leiksins: Valdimar Þór Ingimundarson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
2. Sigurður Gunnar Jónsson
5. Þorsteinn Aron Antonsson
9. Jóhann Þór Arnarsson
10. Atli Hrafn Andrason
16. Svavar Örn Þórðarson
17. Dominik Radic
21. Ívar Örn Jónsson (f)
24. Magnús Arnar Pétursson ('82)
26. Viktor Helgi Benediktsson ('80)
28. Tumi Þorvarsson ('73)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson ('80)
6. Þorvaldur Smári Jónsson
8. Arnþór Ari Atlason
18. Róbert Quental Árnason
19. Atli Þór Gunnarsson ('82)
22. Haukur Leifur Eiríksson
29. Karl Ágúst Karlsson ('73)
45. Alexander Örn Guðmundsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sigurður Már Birnisson
Arnar Freyr Smárason
Ingvar Örn Kristinsson Valberg

Gul spjöld:
Dominik Radic ('43)
Viktor Helgi Benediktsson ('55)
Atli Hrafn Andrason ('69)
Karl Ágúst Karlsson ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Víkingur í 8-liða úrslit
2-0 hér í Kórnum í kröftugum leik, ég þakka fyrir mig!
90. mín Gult spjald: Karl Ágúst Karlsson (HK)
90. mín
4mín í uppbót Kannski ekki líkleg endurkoma en HK allavega að gefa allt í þetta.
89. mín
Nærri því! Bolti sem rúllar framhjá Aroni Snær á fjær en potað í horn rétt áður en HK komst í hann
88. mín
Aron Kristófer tekur vel á Erlingi sem var að senda boltann fyrir.
87. mín
Þetta mark er að sigla Víkingum í 8-liða úrslit!
86. mín Mark úr víti!
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Öruggt víti í ofarlegt hægra hornið
85. mín
Víti fyrir Víkinga! Skot frá Gunnari sem fer augljóslega í hendina á varnarmanni og réttilega dæmt víti við fyrstu sýn.

Elías Már á punktinn.
84. mín
Daníel Hafsteins að sækja en eitt hornið
83. mín
Aukaspyrna á svipuðum stað og markið kom uppúr. Hornspyrna sem skoppaði í teignum og rann út fyrir teig þar sem HK braut.
82. mín
Það verður ekki mikið bætt við HK þarf að fara tengja sóknarlega til að jafna leikinn.
82. mín
Inn:Atli Þór Gunnarsson (HK) Út:Magnús Arnar Pétursson (HK)
81. mín
Jóhann Þór með skot fer í varnarmann og horn
80. mín
Inn:Aron Kristófer Lárusson (HK) Út:Viktor Helgi Benediktsson (HK)
79. mín
HK liðið töluvert líflegri og sóknarsynaðri þessar mínútur eftir markið.

Skiljanlega, aðeins 10 mín eftir!
Settu þig í hleðslu með Hleðslu
77. mín
Inn:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Varð fyrir smá óþægindum og ekkert verið að taka óþarfa sénsa
73. mín
Inn:Karl Ágúst Karlsson (HK) Út:Tumi Þorvarsson (HK)
72. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Oliver Ekroth
Þetta var búið að liggja í loftinu Það hlaut að koma að því að Víkingur myndi skora. Búnir að liggja á HK vörninni.

Aukaspyrna sem spilast út á hægri kant teigs þar sem Ekroth losar boltann í miðjan teiginn á Valdimar sem klárar vel í gegnum pakkann.
69. mín Gult spjald: Atli Hrafn Andrason (HK)
Fer óþæginlega aftan í Ekroth
66. mín
Jóhann Þór nærri því!!! Vinnur boltann glæsilega kringum Tarik og brunar af stað í átt að marki. Ótrúlegur kraftur í honum en náði ekki að gera nógu vel í skotinu sem fór þó framhjá Aroni Snæ í markinu en rétt framhjá fjærstönginni
65. mín
Kominn tími til að hrista upp í liðinu segir Sölvi Geir og hendir í þrefalda skiptingu af dýrari gerðinni
64. mín
Inn:Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.) Út:Jóhannes Kristinn Bjarnason (Víkingur R.)
64. mín
Inn:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.) Út:Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
64. mín
Inn:Elías Már Ómarsson (Víkingur R.) Út:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
63. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Stoppar skyndisókn eftir hornspyrnu.
62. mín
Fyrirgjöf hreinsuð yfir markið! Erlingur að losa boltann beint í miðjan teigin við endalínuna en hreinsaði með góðri tæklingu og boltinn yfir markið.
60. mín
Stór hætta í teig Víkings! Verið að stífla boxið við markvörð og hornspyrnan lendir í pakkanum.

Ég skil ekki hvernig Aron Snær náði að ýta boltanum yfir markið!
59. mín
HK að sækja hornspyrnu Fínt uppspil en náðu ekki að græja almennilegt skot, sækja þó horn.
56. mín
Inn:Óskar Borgþórsson (Víkingur R.) Út:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.)
Tvö mörk og tvær stoð að koma inná.

Ármann búin að vera frábær í kvöld.
55. mín Gult spjald: Viktor Helgi Benediktsson (HK)
Slapp ekki, enda hefði það verið galið
55. mín
Viktor Helgi að sleppa við spjald.

Það er ekkert grín að reyna standa í Ármanni á kantinum, þvílíkur kraftur í þessum dreng, tekinn tvisvar niður af Viktori Helga.
51. mín
Gylfi Sig special Stór hætta á ferð þegar Gylfi Sig nær að mynda sig við skot og hleypur af. Boltinn svífur rétt yfir samskeytin.
49. mín
Alvöru fast skot! Svavar Örn úr bakverðinum að gera sig líklegan í draumamark.

Tekur á vaðið með gott skot og fær hann svo aftur en boltinn ekki ennþá að vilja fara í netið.
48. mín
Fyrirgjafir og nóg af þeim Víkingur heldur áfram í þetta sinn bolti frá Jóhannes Bjarna sem finnur ennið á Tarik en rétt yfir slána.
47. mín
Erlingur að skora Flautað af vegna rangstöðu. Virtist mjög augljóst fyrir aðstoðardómarann.
46. mín
En einn skallinn frá Aroni Elís Byrja af krafti, Ármann Ingi búin að vera ótrúlega líflegur og með góða fyrirgjöf sem Aron Elís skallar framhjá.
46. mín
Ræs á seinni hálfleiknum! HK sem eiga upphafssparkið núna.
45. mín
Hálfleikur
0-0 Allt jafnt ennþá í Kórnum.

Sanngjarnt svo sem, Víkingar í brasi að búa til alvöru alvöru færi, kannski komnir með eitt dauðafæri. Hinsvegar hafa HK-ingar verið "solid" varnarlega og þurftu alveg að verjast mikið á síðustu mínútum.

Það er hörku stemning á vellinum, mikil læti báðu frá báðum stuðningsmönnum og vel mætt.
45. mín
1mín í uppbót
43. mín Gult spjald: Dominik Radic (HK)
Fór full aggresíft í Ármann Inga á miðjum velli.

Alltaf gult spjald
42. mín
Ólafur Örn on fireee! Sturluð fyrirgjöf frá Ármanni Inga beint fyrir framan markið þar sem Aron Elís er laus og hann nær snertingu á boltann en Ólafur Örn nálægt honum og ver hann virkilega vel.
41. mín
Jóhannes Bjarna með langskot sem Ólafur Örn ver örugglega.
38. mín
Ármann Ingi að fá boltann í skyndisókn, kemst nálægt markinu en, enn og aftur standa HK-ingar fyrir skotin.
36. mín
HK að hreinsa! Hornspyrna sem endar í einhverju skoti þar sem varnarmaður HK þarf að hreinsa nánast frá línu!

Þeir eru heldur betur að standa í Víking þegar cirka 10mín eru til hálfleiks.
34. mín
Tarik leyfir boltanum að rúlla útaf, ætlaði að fá horn. Arnar Þór dómari er á öðru máli, markspyrna dæmd. Klaufalegt hjá Tarik
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Jóhannes Bjarna! Þetta var besta færið hingað til! Flott spil sem endar með góðri sendingu frá Aroni Elís á Jóa Bjarna sem kom á ferðinni í miðjan teiginn en rúllaði honum framhjá.
27. mín
Ármann Ingi að sækja aukaspyrnu á hægri kantinum.

Boltinn færist á Tarik á vinstri kantinum og sending hans í teiginn skölluð yfir markið af Aroni Elís.
25. mín
Pressa í teig HK þarna eftir hornspyrnu. Vel gert af HK að henda sér fyrir þessa bolta sem eru í leið á markið.
23. mín
Aron Snær kominn með vörslu! Gerir virkilega vel í að stoppa sendingu sem var á leiðinni þvert í gegnum teiginn. Droppar og ver með löppunum.

Leið eitt frá HK í þessari sókn, bara langur bolti frá Ólafi Erni upp á sóknarmennina, gekk ágætlega.
19. mín
Ólafur Örn með vörslu! Þarf að verja fínt skot frá Gylfa Sig og gerir það vel.

Boltinn út í hornspyrnu.
18. mín
Erlingur með skot sem fer yfir markið.
17. mín
Sama tíma og það gengur brösulega hjá HK þegar boltinn er kominn á framherjana þá ekki mikið að ganga í uppspilinu hjá Víkingum.
13. mín
Færiii! Aron Elís með skalla á fjær sem fer rétt framhjá eftir góðan bolta frá Ármanni Inga.
9. mín
Arnar Þór dómari svolítið seinn að dæma brot og HK-ingar ósáttir. Dominik Radic var með fínasta hlaup í gangi.
8. mín
Davíð Örn að brjóta við miðjan völl. Vonandi að HK nýta þetta til að komast aðeins í boltann.
7. mín
Fyrsta skotið er erfitt Fyrirgjöf frá Gylfa sem Ármann þarf að teygja sig í og nær skoti en töluvert yfir markið og enginn hætta.
5. mín
Ármann Ingi núna með hornspyrnuna og smá hætta á fjærstönginni en endar í öðru horni frá hinum kantinum.
4. mín
Erlingur-Aron Elís-Ármann virðist vera sóknarlínan hjá gestunum.

Síðan Viktor Örlygur að spila ákveðið "hybrid" sóknarmanna hlutverk.
2. mín
Ármann Ingi stoppar Jóhann Þór í skyndisókn eftir hornspyrnuna.

Góð varnar vinna hjá kantmanninum.
1. mín
Hornspyrna fyrir Víking Aron Elís er striker hjá Víkingum í kvöld
1. mín
Leikur hafinn
Keyrum þetta í gang! Víkingar með upphafsspark
Fyrir leik
Styttist í þetta! Ef mér skjátlast ekki er Aron Snær ekki búin að fá mark á sig þetta tímabil. Kom inná fyrir Ingvar í hálfleik gegn Keflavík og síðan hélt hreinu gegn Þór.
Ingvar spilaði bikarleikinn gegn Fram.

Liðin eru að ganga inná völlinn!
Fyrir leik
Byrjunarlið kominn! Gunnar Heiðar heldur í nánast sama hóp og í síðasta leik HK.

Ætli bekkurinn hjá Víkingum í dag er ekki svona með þeim betri sem hafa sést í Íslenska boltanum.
Fyrir leik
Víkingur R. Það eru heldur betur gott andrúmsloft hjá Víkingum um þessar mundir. Þeir hafa byrjað Bestu Deildina vel, sitja í 2.sæti með fimm sigra og eitt jafntefli sem kom í fyrsta leik tímabilsins.

Eflaust spurningin sem margir spyrja sig er hversu mikið Sölvi Geir treystir þessum ótrúlega sterka hóp sem hann hefur í höndum sér.
Í 32-liða úrslitum þurfti Víkingur á öllum að halda í 4-2 sigri á Fram. Frábær leikur sem átti sér stað þar. Tvö sjálfsmörk en þeir Stígur Diljan og Elías Már fengu sín mörk skráð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í fyrra var bikargangan ekki Víkingum til sóma. 3-0 tap í 32-liða gegn ÍBV á Þórsvellinum.
Liðið hafði áður keppt til úrslita (2024) en töpuðu 2-0 fyrir KA.
Þar áður vann Víkingur Mjólkurbikarinn 4x í röð (2019-2023).

Fyrir leik
HK Liðið er í 2.sæti í Lengjudeildinni eftir fína byrjun. Tveir sigrar en tap í síðasta leik gegn Vestra (4-3).

HK komust í þessi 16-liða úrslit eftir sigur gegn Fjölni. Sá leikur var alvöru skemmtun en hann endaði 4-3 fyrir HK. Mörk HK-inga skoruðu Jóhann Þór Arnarsson og Dominik Radic með sitthvor tvennuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í fyrra datt HK úr leik í 32-liða úrslitum gegn Vestra en leikurinn fór 3-3 og þeir töpuðu svo 8:7 í vítaspyrnukeppni.
Fyrir leik
Spámaður 16-liða Spámaður þessa umferðarar í bikarnum er einmitt Almarr Ormarsson.

HK 0-4 Víkingur R. (19:15 í dag)
Til að gefa HK-ingum smá auka spark í rassinn, svo þeir geti unnið Íslandsmeistarana og verið brjálaðir út í mig, þá spái ég Víkingi 4-0 sigri.


Fyrir leik
Upphitunarþáttur Þeir Kári Snorrason og Almarr Ormarsson fóru yfir alla leikina í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Létt og góð upphitun, en umfjöllunin um þennan leik hefst á 4:39

Fyrir leik
Dómarateymið Arnar Þór Stefánsson er á flautinni í Kórnum.

Honum til aðstoðar eru Eysteinn Hrafnkelsson og Arnþór Helgi Gíslason.
Fjórði dómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson og Eftirlitsmaður er Ingvar Örn Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mjólkurbikarinn 16-liða úrslit fara fram í kvöld og á morgun.

Hér verður viðureign HK og Víkings í þráð beinni textalýsingu úr Kórnum, heimavelli HK.

Sæti í 8-liða í boði fyrir sigurvegara!

miðvikudagur 13. maí
17:30 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn)
19:15 HK-Víkingur R. (Kórinn)
19:15 Afturelding-Njarðvík (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 ÍA-Grindavík (ELKEM völlurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)

fimmtudagur 14. maí
14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Gylfi Þór Sigurðsson ('64)
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason ('64)
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson ('64)
24. Davíð Örn Atlason ('77)
69. Ármann Ingi Finnbogason ('56)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
80. Uggi Jóhann Auðunsson (m)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson ('64)
19. Óskar Borgþórsson ('56)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('77)
25. Valdimar Þór Ingimundarson ('64)
28. Elías Már Ómarsson ('64)
31. Þorri Ingólfsson
40. Gestur Alexander Ó. Hafþórsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Oliver Ekroth ('63)

Rauð spjöld: