Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
Mjólkurbikar karla
Fylkir
LL 5
0
FH
Mjólkurbikar karla
Vestri
LL 0
4
Grótta
Mjólkurbikar karla
KA
LL 1
2
Ægir
KA
1
2
Ægir
0-1 Harley Willard '17
0-2 Nikola Kristinn Stojanovic '23
Jakob Héðinn Róbertsson '31 1-2
14.05.2026  -  14:00
Greifavöllurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Ómar C. Einarsson
Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
3. Kári Gautason ('63)
8. Jeppe Pedersen
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
14. Danijel Dejan Djuric ('45)
15. Oliver Heiðarsson ('45)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('75)
17. Samuel Karl Kroon
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
44. Valdimar Logi Sævarsson ('63)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
99. Jóhann Mikael Ingólfsson (m)
4. Viktor Máni Sævarsson
7. Jóan Símun Edmundsson ('45)
9. Sveinn Margeir Hauksson ('63)
19. Breki Hólm Baldursson
20. Diego Montiel ('45)
21. Mikael Breki Þórðarson
29. Jakob Snær Árnason ('75)
91. Snorri Kristinsson ('63)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Atli Sveinn Þórarinsson
Hrannar Björn Steingrímsson
Halldór Hermann Jónsson
Petar Ivancic
Tryggvi Björnsson
Egill Daði Angantýsson
Nicklas Cleemann Rulle

Gul spjöld:
Hans Viktor Guðmundsson ('31)
Markús Máni Pétursson ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KA tapar fyrir botnliði Lengjudeildar á heimavelli Þvílík vonbrigði fyrir heimamenn.
95. mín
Horn frá hægri Síðasti möguleiki KA? en Ómar grípur örugglega.
94. mín
Hraðaupphlaup Ægismenn komast tveir á tvo. Kristinn er hins vegar stiginn út af Markúsi.
92. mín
Dauðafæri - KA Hallgrímur á snyrtilega fyrirgjöf inn í miðjan teig þar sem Sveinn Margeir rís hæst og skallar í slána. Enn bjargar sláin Ægi
Leik lokið!
KA tapar fyrir botnliði Lengjudeildar á heimavelli Hræðileg úrslit fyrir KA sem hefur verið sterkt í bikarkeppninni undanfarin ár.

Frábært hjá Ægi. Þeir börðust eins og ljón og lögðu allt í sölurnar.
90. mín
Uppbótartími og færi 5 mínútur í uppbótartíma og Sveinn Margeir á um leið og hann er sýndur skalla framhjá.
90. mín
Hálffæri Jakob Snær kemst upp hægra megin leikur á tvo Ægismenn en á svo skot hátt yfir.
86. mín Gult spjald: Markús Máni Pétursson (KA)
Brot við miðju - færi og loks horn Eftir mikið klafs inni í markteig Ægis berst boltinn á Jordan sem kemst upp völlinn og Markús brýtur /varla/ á honum. EFtir aukaspyrnuna kemur fyrirgjöf þar sem Ægir á þrjú skot á markið en inn vill boltinn ekki en endar í horni
85. mín Gult spjald: Benedikt Þór Viðarsson (Ægir)
Aukaspyrna KA fær aukaspyrnu sem Hallgrímur tekur 8 metra utan teigs. Spyrnan fer beint í vegginn og hann fær hann aftur.

Aukaspyrnan var frekar ódýr
83. mín
Víti ? Kristinn kemst inn fyrir vörn KA og inn í teig þar sem hann virðist vera rifinn niður en ekkert dæmt. Ægismenn ósáttir.
82. mín
Horn KA Horn sem Samuel vinnur fyrir KA. Ómar grípur hornið örugglega.
80. mín Gult spjald: Jordan Adeyemo (Ægir)
Leikaraskapur Skrítin ákvörðun hjá Jordan. Kemst inn í teig og ístað þess að halda boltanum þá lætur hann sig detta við afskaplega litla snertingu.
80. mín
Inn:Benedikt Þór Viðarsson (Ægir) Út:Sigurður Óli Guðjónsson (Ægir)
Ægir skiptir Ferskir fætur inn hjá Ægi
79. mín
Dauðafæri KA kemur boltanum inn í teig og Ómar missir af honum. Jóan nær skalla en bjargað á línu og rangstaða dæmd.
76. mín
Langar mínútur 15 mínútur eftir og nokkuð ljóst að KA mun leggjast þyngra og þyngra á sunnanmennina.
Settu þig í hleðslu með Hleðslu
75. mín
Inn:Jakob Snær Árnason (KA) Út:Jakob Héðinn Róbertsson (KA)
Skipting KA Jakob Héðinn fer út af eftir aðhlynningu og inn kemur nafni hans.
74. mín
Brot Hallgrímur rífur Ægismann niður og flestir hefðu séð gult þarna.
73. mín
Þung pressa. KA pressar stíft og Ægismenn reyna að dúndra boltanum fram til að sækja hratt en KA vinnur hann jafnan aftur og heldur pressunni. Að lokum kemur skot framhjá og Jakob Héðinn leggst niður og þarf aðhlynningu.
70. mín
Horn - KA hornið tekið stutt og Ægir kemst fyrir sendingu og aftur horn frá hægri. Eftir hornið berst boltinn eftir nokkuð bras hátt inn í teig þar sem KA á skalla að marki en Ómar ver vel.
68. mín
Horn - KA Enn eitt hornið nú frá hægri. Snúið á fjær en brot hjá KA
66. mín
Inn:Marko Panic (Ægir) Út:Bjarki Rúnar Jónínuson (Ægir)
Horn - KA og skipting hjá Ægi Horn núna frá vinstri sem fer yfir hópinn og skot langt yfir.
66. mín
Horn - KA Hornið skallað frá í innkast
63. mín
Inn:Snorri Kristinsson (KA) Út:Valdimar Logi Sævarsson (KA)
Aftur tvöföld skipting hjá KA Haddi setur aukinn þunga í sóknina og skiptir varnar og sóknarmanni útaf fyrir miðju og sóknarmann
63. mín
Inn:Sveinn Margeir Hauksson (KA) Út:Kári Gautason (KA)
Aftur tvöföld skipting hjá KA Haddi setur aukinn þunga í sóknina og skiptir varnar og sóknarmanni útaf fyrir miðju og sóknarmann
61. mín
Færi KA og horn Samuel fær boltann upp í vinstra hornið, rennir honum á Hallgrím sem á skot í varnarmann og aftur fyrir. Hornið tekið inn í markteig og að lokum hreinsa Ægismenn
58. mín
Skrautlegt KA menn bakka með boltann og senda aftur á Ívar sem hittir hann furðulega en nógu furðulega til að Willard missir af honum. Ívar kemur honum svo á samherja.
57. mín
Sókn Ægir Paul hristir Jeppe af sér og stingur hann af með boltann. Á svo fyrirgjöf sem er hreinsuð í innkast sem ekkert verður úr.
55. mín
Skot Ægir og aftur Ægismenn rjúka upp völlinn, brotið á þeim en halda boltanum sem berst til Jordan sem á skot sem er varið. KA kemur boltanum í leik en Ægir vinnur hann strax og aftur fær Jordan boltann og á skot framhjá fjær stönginni. KA heppnir þarna.
54. mín
Skot KA Boltanum er komið hratt fram völlinn á Samuel sem á skot rétt utan markteigs vel yfir markið
54. mín
Skot Willard ber boltann upp völlinn og hristir miðjumenn KA af sér eins og flugur. Á svo skot sem Ívar ver.
52. mín
Fyrirgjöf Samuel kemur boltanum fyrir og Ómar fer út að grípa en missir hann. Hann er samt fyrstur að átta sig og nær honum aftur
51. mín
Bjargað á línu Montiel kemur upp með boltann hægra meginn og kemur honum fyrir á Hallgrím sem leggur hann út á Valdimar sem á skot sem er varið á línu.
48. mín Gult spjald: Nenad Zivanovic (Ægir)
Klafs Hornið berst til Ívars sem kemur boltanum í leik og þá er brot sem Nenad er ósáttur við
48. mín
Horn Paul kemst upp hægra meginn og fær horn
45. mín
Inn:Jordan Adeyemo (Ægir) Út:Markús Máni Jónsson (Ægir)
Ægir skiptir
45. mín
Inn:Diego Montiel (KA) Út:Oliver Heiðarsson (KA)
Tvöföld skipting hjá KA Haddi tekur Djuric og Oliver út af. Inn koma Jóan og Diego
45. mín
Inn:Jóan Símun Edmundsson (KA) Út:Danijel Dejan Djuric (KA)
Tvöföld skipting hjá KA Haddi tekur Djuric og Oliver út af. Inn koma Jóan og Diego
45. mín
KA og bikarkeppnin KA hefur svo gríðarlega bikarreynslu og veit hve stutt vegferð er í Evrópusæti að þeir hljóta að rífa sig upp á rassgatinu (má segja þetta :-) )og koma dýrvitlausir í seinni hálfleikinn.
45. mín
Ægilega góður fyrri hálfleikur Fyrri hálfleikur var jafnari en maður bjóst við fyrir leikinn. Ægismenn hafa haldið vel í sitt skipulag og barist eins og ljón. KA menn hafa aftur á móti pressað á gestina en þeir hafa náð að leysa þessa pressu, bæði fremst og á miðjunni og spilað í gegnum KA margoft.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur Ægir er yfir 2 - 1 í leiknum. Nú eru þeir búnir að skora meira en í öllum þremur leikjunum sínum í Lengjubikarnum.

Það er ljóst að verkefnið í seinni hálfleik verður erfitt fyrir bæði lið. Ægir að halda fengnum hlut og KA að rífa sig upp.
45. mín
Uppbótartími Uppbótartími 2 mín
42. mín
Meiðsl Bjarki liggur á vellinum eftir samstuð við KA mann.
41. mín
Skot - Ægir Bjarki fær boltann út fyrir teig hjá KA og leggur hann fyrir sig og á gott skot en framhjá. Þetta var vænlegt hjá Ægi eftir pressu undanfarnar mínútur.
40. mín
Pressa KA menn eru vaknaðir og pressa núna mjög á Ægi
39. mín
Dauðafæri KA Kári leggur boltann út á Oliver sem á skot í slá og niður. Sumir héldu boltann vera inni en ekki dómarinn og það skiptir mestu máli.
37. mín
Dauðafæri hjá KA Jeppe vinnur boltann við vítateig eftir klafs hjá varnarmönnum Ægis. Boltanum er komið fyrir þar sem Hallgrímur skallar í slána.
35. mín
Dauðafæri - eða næstum því Ægir tekur útspark stutt og boltanum er komið fram á Kristinn sem á sendingu inn fyrir í fyrsta og Markús virðist vinna kapphlaupið við nafna sinn í vörn KA. Markús Máni nær hins vegar að tækla boltann frá honum og Ægir vill víti. Það hefði verið hart og rangt.
31. mín Gult spjald: Hans Viktor Guðmundsson (KA)
Stoppar hraða sókn Ægir fer upp hægra megin og Hans tekur Kristinn niður
31. mín MARK!
Jakob Héðinn Róbertsson (KA)
KA minnkar muninn Mér sýndist Hallgrímur Mar koma með sendingu inn í markteig þar sem Jakob mætti og stýrði boltanum framhjá Ómari í markið. Þetta léttir aðeins á heimamönnum.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Fyrirgjöf Kári með fyrirgjöf frá vinstri sem er skölluð framhjá.
27. mín
Horn KA KA fær horn vinstra megin og það siglir yfir hópinn og er skallað í útspark
26. mín
Inn:Stefan Dabetic (Ægir) Út:Baptiste Gateau (Ægir)
Skipting hjá Ægi Ægir skiptir um varnarmann. Það hljóta að vera meiðsli.
23. mín MARK!
Nikola Kristinn Stojanovic (Ægir)
Færi hjá Ægi og mark í framhaldinu Bjarki kemst upp vinstra megin, tapar boltanum en Ægir vinnur hann aftur og Bjarki fær hann, kemst upp að endalínu og rennir honum fyrir. KA bjargar í horn. Það er tekið yfir pakkann þar sem Nikola fær hann og setur hann utan úr teig í fjær hornið.

Þetta er óvænt svo vægt sé til orða tekið
21. mín
Vinnsla í Valda Valdimar vinnur boltann af Ægismönnum úti við vítateigshornið, sleppur í gegn en tapar boltanum í tæklingu við markteig og Ómar hirðir hann. Þarna skall hurð nærri hælum.
20. mín
færi Hallgrímur laumar boltanum inn á Jakob en Ómar kemur út og hirðir boltann af tánum á honum.
17. mín MARK!
Harley Willard (Ægir)
Harley Willard skorar Eftir mikið bras á varnarmönnum KA dettur boltinn fyrir Willard sem setur hann í hornið fjær
15. mín
Sókn KA Kári kemst í gegnum Ægismenn og leggur út á Djuric sem á skot. KA menn hirða frákastið og koma honum aftur á Djuric sem er þá rangstæður, hefði átt að gera betur þarna.
14. mín
Hröð sókjn Ægir tekur útsparkið hratt og spilar í gengum pressu upp vinstra megin og uppskera horn sem ekkert kemur út úr.
13. mín
Skot Hallgrímur Mar og Valdimar standa yfir boltanum en Valdimar fær að taka og setur hann rétt yfir.
12. mín Gult spjald: Markús Máni Jónsson (Ægir)
Aukaspyrna Markús aðeins of seinn í Kára og KA fær aukaspyrnu rétt utan teigs
11. mín
Vel spilað KA missir boltann upp við endalínu og Ægismenn spila sig snyrtilega í gegnum pressu heimamanna og ná að byggja upp álitlega sókn sem endar með misheppnuðu skoti, eiginlega með báðum fótum.
9. mín
Sókn hjá KA Oliver fær boltann uppi hægra megin en hreinsað út af í innkast.

KA heldur boltanum vel og lætur hann fljóta á milli kanta. Þetta verða langar 90 mínútur fyrir Ægismenn
6. mín
Markvarsla Jakob Héðinn fær boltann inni í teig en Ómar kemur vel út og ver.
5. mín
Hröð sókn Ægir brunar upp og koma boltanum á Willard sem er stiginn út.
5. mín
Fyrirgjöf KA sækja upp vinstra megin og koma honum fyrir á fjærstöngina þar sem Oliver Heiðarsson er en nær ekki almennilegum skalla.
4. mín
Taktíkin Ægismenn beita hinni hefðbundnu taktík "litla liðsins" liggja til baka og sækja hratt upp kantana.
2. mín
Stungusending Valdimar laumar boltanum inn á Oliver sem er rangstæður.
1. mín
Leikur hafinn
KA byrjar með boltann KA spilar til vesturs í dökkbláum bolum og bláum buxum. Ægir eru í gulum og svörtum búning.
Fyrir leik
Gengi liðanna Gengi liðanna er ólíkt.

Eftir brösuga byrjun KA manna hafa þeir spilað betur að undanförnu og uppskorið stig sem hafa fært þá hægt og bítandi upp töfluna í Bestu deildinni. Þeir eru núna komnir í 6. sætið með 7 stig eftir tvo sigra gegn Þór og Vestmannaeyjum.

Ægir hefur aftur á móti byrjað afleitlega í Lengjudeildinni og tapað öllum þremur leikjum sínum þar það sem af er, gegn Fylki, Gróttu og HK.

Það er nokkuð ljóst að Ægir mun ekki gefa þumlung eftir og reyna að ná sínum fyrsta sigri í dag til að snúa gengi liðsins við. Að sama skapi ætla KA menn að halda í sigurleikjahrinuna sína og ná þriðja sigrinum í röð í hús.

En bikarleikir eru óútreiknanlegir þannig að við bíðum og sjáum hvað gerist (en ekki hvað).
Fyrir leik
Ungir leikmenn í KA KA stillir upp sterku liði gegn Ægi og ætlar greinilega ekki að falla í einhverja vanmatsgryfju. Þeir tefla reyndar fram þremur leikmönnum fæddum 2006. Markmaðurinn Ívar sem var á láni hjá Völsungi í fyrra er að spila sinn annan leik með meistaraflokki KA, hann spilaði einn í lengjubikarnum áður. Hann hefur staðið sig vel á æfingum og fær því sjensinn. Jóhann varamarkmaður er svo ári yngri á bekknum.

Markús Máni og Valdimar Logi báðir 2006, eða tvítugir, eru í byrjunarliðinu.

Á bekknum eru tveir 2007, einn 2008 og einn, Snorri Kristinsson, 2009.
Fyrir leik
Hefur spilað með báðum liðum Harley Bryn Willard í liði Ægis hefur komið víða við á ferlinum á Íslandi.

Hann hóf ferilinn með Vikingi Ólafsvík, og var góður þar. Fyrir Ólsarana skoraði hann 35 mörk. Það vakti athygli á honum.
Árið 2022 spilaði hann á Akureyri en reyndar hinum megin við ána, með Þór. Þegar hann var með Þór skoraði hann 11 mörk í öllum keppnum.

Árið eftir prófaði hann hinum megin Glerár og spilaði 2023 með gulum og bláum KA mönnum. Þar skoraði hann minna.

Eftir að hann yfirgaf Þór hefur hann spilað með KA, Selfossi og núna Ægi. Markaskórnir urðu eftir í Þorpinu því að hann hefur aðeins skorað 13 mörk samtals fyrir þessi þrjú félög á þremur árum.

Það er spurning hvort hann setji eitt á sínum gamla heimavelli.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Hvorki Stubbur sem er reyndar ekki í hóp, né Sveinn Margeir eru í byrjunarliðinu þannig að Hallgrímur er sá eini KA megin sem byrjar þessa báða leiki sem liðin hafa spilað.

Ægismenn hafa einnig einn leikmann, Bjarka Rúnar Jónínuson sem byrjaði leikinn 2022.

Þannig að þó svo að liðin hafi mæst einu sinni þá má leiða líkur að því að leikmennirnir í liðunum hafi ekki mæst.
Fyrir leik
Fyrri leikir / leikur KA og Ægir hafa einu sinni mæst áður skv. Fotmob. Það var 2022 í bikarnum og þá var eins og núna spilað á Akureyri. En þá var væntanlega spilað á Greifavellinum sem sorglega er fallinn út af sakramentinu sem knattspyrnuvöllur þar sem þetta vallarstæði er eitt það fallegasta á landinu. Það hefði verið draumur að gera það að almennilegum velli og bæði Þór og KA hefðu hann sem heimavöll. Æfingaaðstaða svo að Hamri og hér á KA svæðinu. En svona er pólitíkin. Gul og rauð. En ekki appelsínugul eins og besta lið landsins er. :-)

Sá leikur endaði 3 - 0 fyrir KA. Þorri skoraði 2 og Sveinn Hauks eitt.

Liðin eru að sjálfsögðu gerbreytt síðan 2022 en samt eru 3 af byrjunarliðinu 2022 sem gætu byrjað í dag, Stubbur í markinu, Hallgrímur Mar og fyrrnefndur Sveinn Margeir Hauksson.

Ægisliðið er ekki komið inn þannig að ég sé ekki strax hvort þar séu einhverjar kempur sem spiluðu leikinn fyrir fjórum árum.
Fyrir leik
Bikardagur á Uppstigningardegi 16-liða úrslitum lýkur með þremur leikjum:
14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)

Sjáðu mörkin og úrslitin úr leikjum gærdagsins:
   14.05.2026 00:10
Sjáðu öll bikarmörkin: Stjarnan stöðvaði sigurgöngu KR


Hvenær verður dregið?
Það verður dregið í 8-liða úrslit í beinni útsendingu í samantektarþættinum á RÚV2 en hann fer í loftið eftir leik Fylkis og FH. Áætlað er að hann hefjist 16:55.
Fyrir leik
Velkomin á Brekkuna KA fær Ægi úr Þorlákshöfn í heimsókn í dag í bikarnum. Veðrið er mjög flott fyrir fótbolta. Um 10 stiga hiti og nánast logn.
Byrjunarlið:
1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
7. Kristinn Ásgeir Þorbergsson
15. Sigurður Óli Guðjónsson ('80)
16. Markús Máni Jónsson ('45)
19. Nikola Kristinn Stojanovic
20. Alfredo Ivan Sanabria
22. Harley Willard
24. Paul Leonard Skoczylas JR
45. Dajan Ponjevic
50. Baptiste Gateau ('26)
80. Bjarki Rúnar Jónínuson (f) ('66)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Gabriel Michael Thull (m)
9. Jordan Adeyemo ('45)
11. Stefan Dabetic ('26)
14. Benedikt Þór Viðarsson ('80)
21. Einar Breki Sverrisson
27. Marko Panic ('66)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Nenad Zivanovic (Þ)
Ivaylo Yanachkov
Arnar Logi Sveinsson
Sigurður Pétur Stefánsson

Gul spjöld:
Markús Máni Jónsson ('12)
Nenad Zivanovic ('48)
Jordan Adeyemo ('80)
Benedikt Þór Viðarsson ('85)

Rauð spjöld: