Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Besta kvenna
Víkingur R.
LL 0
1
Valur
Besta kvenna
Breiðablik
LL 2
3
FH
Besta kvenna
Þróttur R.
LL 0
1
Stjarnan
Breiðablik
2
3
FH
Agla María Albertsdóttir '16 1-0
1-1 Ingibjörg Magnúsdóttir '39
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '58 2-1
2-2 Deja Jaylyn Sandoval '65
2-3 Ída Marín Hermannsdóttir '75
25.05.2026  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta kvenna
Aðstæður: Sólin skín, smá gola og gervigrasið iðagrænt
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir ('89)
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Katelyn Duong
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('75)
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
27. Barbára Sól Gísladóttir ('79)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Taylor Kane (m)
6. Mikaela Nótt Pétursdóttir
10. Bryndís Arna Níelsdóttir ('79)
19. Líf Joostdóttir van Bemmel
21. Guðrún Þórarinsdóttir
26. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('89)
29. Sunna Rún Sigurðardóttir ('75)
50. Sara Mist Orradóttir
52. Særún L. Castaneda Bjarnarson
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Olga Ingibjörg Einarsdóttir (Leikmaður utan hóps)
Valgeir Viðarsson (Sjúkraþjálfari)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Aðstoðarþjálfari)
Stefán Logi Magnússon (Aðstoðarþjálfari)
Hjörtur Fjeldsted (Styrktarþjálfari)
Sæmundur Arnór Sigurðsson (Liðsstjóri)
Gunnar Birgisson (Aðstoðarþjálfari)

Gul spjöld:
Kristín Dís Árnadóttir ('47)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
FH-ingar eru fyrstar til að sigra Blika í ár Skýrsla og viðtöl innan skamms
92. mín
Áhorfendamet á Kópavogsvelli í dag 1232 áhorfendur í dag takk fyrir!
90. mín
+4
90. mín
Dauðafæri Ingibjörg Magnúsdóttir Þarna hefði Ingibjörg getað gert út um leikinn!

FH-ingar léku vel á milli sín og fékk Ingibjörg Magnúsdóttir sendingu inn fyrir vörnina. En skotið í hliðarnetið
89. mín
Inn:Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir (FH) Út:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
89. mín
Inn:Lilja Þórdís Guðjónsdóttir (Breiðablik) Út:Elísa Viðarsdóttir (Breiðablik)
Þriðja skipting Blika
88. mín
Inn:Unnur Thorarensen Skúladóttir (FH) Út:Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)
Önnur skpting FH
84. mín
Hornspyrnur Blika Tvær hornspyrnur í röð hjá Blikum. Boltinn berst á fjær í seinni spyrnunni þar sem leikmaður Blika fellur við en Stefán Ragnar gerir rétt og dæmir ekkert, því ekkert var brotið.
81. mín
Bryndís Arna strax í dauðafæri Fær boltann inn fyrir vörn FH en er of lengi að hlaða í skotið, gefur á samherja sem á skot af varnarmanni og aftur fyrir. Horn.

Ekkert varð úr horninu.
79. mín
Inn:Bryndís Arna Níelsdóttir (Breiðablik) Út:Barbára Sól Gísladóttir (Breiðablik)
Önnur skipting Blika
75. mín
Inn:Sunna Rún Sigurðardóttir (Breiðablik) Út:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)
Fyrsta skipting Blika
75. mín MARK!
Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Ída Marín skorar FH-ingar hafa snúið leiknum sér í vil!

Ída gerði engin mistök á punktinum og renndi boltanum vinstra megin við Herdísi í markinu.
74. mín
Víti! FH fá víti - Brotið á Ingibjörgu Magnúsdóttur
74. mín
FH-ingar aðeins ofaná núna Það hefur aðeins dregið af Blikum og núna eru það FH-ingar sem sækja meira.
67. mín
Glæsilegur sprettur Ingibjargar Magnúsdóttur Á klobba og geysist upp hægri kantinn, setur boltann fyrir en Berglind Freyja hittir boltann ekki nógu vel og skýtur framhjá. FH-ingar öflugar þessar mínútur
66. mín
Sláin Ég hef ekki undan við að skrifa hérna, þvílíkur leikur! Blikar þustu í sókn og áttu glæsilegt skot í slánna. Sá því miður ekki hver það var sem átti skotið
65. mín MARK!
Deja Jaylyn Sandoval (FH)
Stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
FH jafna! Glæsileg hornspyrnu Andreu ránar, fór í háum boga inn á miðjan teig Blika. Þar stóð Deja og skallaði boltann í fjærhornið. Glæsilegt mark!
62. mín
Inn:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH) Út:Nia Raisa Christopher (FH)
Fyrsta skipting leiksins Síðasta verk Niu í dag var að eiga bylmingsskot í andltiið á Elínu Helenu sem lá óvíg eftir
58. mín MARK!
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Slæm mistök í vörn FH FH-ingar spila á milli sín í vörninni og á Birna Heiða afar slæma sendingu, Katelyn Duong kemst inn í boltann, kemur honum á Hrafnhildi sem setur boltann framhjá Aldísi.

Gjöf til Blika 2-1
51. mín
Ágætis færi hjá Blikum Breiðablik eru aftur komnar í hápressuna og vinna boltann hátt á vellinum og endar sóknin með föstu skoti, rétt framjá
48. mín
Myndir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

47. mín Gult spjald: Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Kristín Dís togar í treyju Önnu Heiðu og það má ekki. Gult spjald
46. mín
Inn:Helena Maree Errington (FH) Út:Mackenzie Elyze Smith (FH)
Skipting í hálfleik
46. mín
Leikur hafinn
FH-ingar hefja seinni hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur Virkilega fjörugur og skemmtilegur leikur hér í Kópavogi.

Við tökum okkur korter.
45. mín
+1 Ein mínúta í uppbót
45. mín Gult spjald: Deja Jaylyn Sandoval (FH)
Hékk aftan á treyju leikmanns Breiðabliks. Réttilega dæmt gult spjald
41. mín
ALDÍS HNEIGÐU ÞIG! Þvílík markvarsla Aldís Guðlaugsdóttir! Boltinn berst upp hægra megin og kemur glæsileg stungusending inn á teiginn. Út kemur Aldís og étur upp sóknarmann Breiðabliks. Þarna var Aldís klárlega betri en engin!
39. mín MARK!
Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
FH jafna! FH-ingar hafa verið að komast meira inn í leikinn og það skilar sér með marki! Boltinn berst út til hægri til Ingibjargar Magnúsdóttur, hún sendir boltann fyrir markið og lekur boltinn framhjá Herdísi í markinu
1-1
34. mín
SLÁIN FH fá horn og upp úr henni á Jónína Linnet frábæran skalla sem endar ofan á þverslánni og yfir fór boltinn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
FH-ingar sækja í sig veðrið FH-ingar ná að halda boltanum meira innan liðsins þessar síðustu mínútur og komast í álitlegar stöður án þess þó að skapa sér góð færi.
25. mín
Horn FH Fínasta hornspyrna og á Ída Marín skalla að marki sem fer af Blika og í annað horn.

Ekkert varð úr seinni spyrnunni.
23. mín
Lífsmark með FH FH spila laglega upp völlinn vinstra megin sem endar með fyrirgjöf Thelmu Lóu en enginn náði að reka höfuðið í boltann þó litlu mátti muna.
20. mín
Dauðafæri ! Stungusending á Öglu Maríu sem er komin ein gegn Aldísi. Í stað þess að skjóta á markið reynir Agla að fara framhjá Aldísi en hún sá við henni og reif af henni boltann. Vel gert hjá Aldísi en Agla hefði átt að gera betur.
17. mín
Blikar pressa áfram FH-ingar eru í stökustu vandræðum með að komast áleiðis upp völlinn
16. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Elísa Viðarsdóttir
Fyrsta markið er komið! Blikar pressa FH hátt á vellinum og það ber árangur. Elísa Viðarsdóttir fær boltann úti hægra megin, á hárnákvæma sendingu á Öglu Maríu sem setur boltann laglega í netið. 1-0 fyrir Breiðablik!
12. mín
Færi! Slök sending úr vörn FH. Barbára kemst inn í hana og skeiðar með boltann upp að teig FH hægra megin, sendir fyrir en skot Ólafar ekki nógu nákvæmt og fer framhjá.
8. mín
Fyrsta hornið Dauðafæri hjá Blikum! Hornið var tekið stutt, en barst boltinn á endanum inn í teig, við tók smá darraðadans og endaði með skoti sem fór vel yfir markið
2. mín
Fyrsta skot leiksins er komið það eiga FH-ingar, Birna Kristín Björnsdóttir átti það.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað Breiðablik sparka þessu af stað í bleikum treyjum, þær leika í átt að Smáranum, FH-ingar í sínum hefðbundnu hvítu treyjum leika að Sporthúsinu
Fyrir leik
Tæpt korter í leik Liðin ganga til búningsherbergja eftir upphitun. Þetta er að bresta á!
Fyrir leik
Gríðarleg stemning! Hér á Kópavogsvelli er mikil hátíð og hvet ég alla sem geta að mæta á völlinn, klæðast bleiku og styrkja gott málefni!
Fyrir leik
Jóhann Fjalar Skaptason spáir jafntefli í kvöld. Breiðablik 2 - 2 FH (19:15 í kvöld)
Hér mætast liðin sem var spáð tveimur efstu sætunum. Þetta verður hörkuleikur, þar sem FH kemst í 0-1 með marki frá Niu. Blikar jafna fyrir hlé, Ása setur þar gott mark. FH tekur aftur forystu með marki frá Ídu, og Blikar jafna svo í uppbótartíma með marki frá Öglu Maríu.

Hér má sjá hvernig Jóhann spáir öðrum leikjum í 6. umferðinni

Mynd: Sýn Sport

Fyrir leik
Styrktarleikur fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru Heilmikil dagskrá er fyrir leik kvöldsins og opnar svæðið klukkan 17:30. Páll Óskar, Kristmundur Axel og Húbba Búbba stíga á svið fyrir leik.

Fyrir leik
FH Eftir jafntefli og tap í fyrstu tveimur leikjum FH hafa þær sigrað þrjá í röð og koma inn í þennan leik fullar sjálfstrausts. Þær sitja í 3. sæti deildarinnar með 10 stig og markatöluna 9-5.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breiðablik Blikar stefna að því að halda áfram fullkomnu tímabili sínu til þessa en þær hafa sigrað fimm fyrstu leiki sína með markatöluna 14-5 og sitja á toppi deildarinnar með 15 stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar Í kvöld verður Stefán Ragnar Guðlaugsson með flautuna og honum til aðstoðar verða Breki Sigurðsson og Jón Reynir Reynisson. Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson og svo fylgist Bergur Þór Steingrímsson dómaraeftirlitsmaður með því hvort allt fari vel fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verið velkomin á Kópavogsvöll Í dag fáum við leik af bestu gerð þegar Breiðablik tekur á móti FH í topp- og nágrannaslag!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
3. Anna Heiða Óskarsdóttir
5. Mackenzie Elyze Smith ('46)
7. Nia Raisa Christopher ('62)
10. Ída Marín Hermannsdóttir
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('88)
13. Deja Jaylyn Sandoval
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (f)
37. Jónína Linnet
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('89)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
4. Vigdís Edda Friðriksdóttir
8. Helena Maree Errington ('46)
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('62)
15. Hrönn Haraldsdóttir
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('89)
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir ('88)
39. Eva Marín Sæþórsdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson (Styrktarþjálfari)
Dagur Óli Davíðsson (Markmannsþjálfari)
Brynjar Sigþórsson (Aðstoðarþjálfari)
Harpa Finnsdóttir (Sjúkraþjálfari)
Valur Elli Valsson (Liðsstjóri)
Arnar Sigþórsson (Leikgreinandi)

Gul spjöld:
Deja Jaylyn Sandoval ('45)

Rauð spjöld: