Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 1
0
Vestri
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
1
Njarðvík
Mjólkurbikar karla
Fylkir
LL 4
2
Grótta
Besta kvenna
Valur
LL 0
0
Þór/KA
Besta kvenna
Þróttur R.
LL 0
0
ÍBV
Besta kvenna
Breiðablik
LL 1
3
Stjarnan
Besta kvenna
Víkingur R.
LL 2
5
FH
Besta kvenna
Fram
LL 0
2
Gri/Nja
Fram
0
2
Gri/Nja
0-1 Ellie Coffield '5
0-2 Tinna Hrönn Einarsdóttir '64
13.06.2026  -  14:00
Lambhagavöllurinn
Besta kvenna
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Maður leiksins: Tinna Hrönn Einarsdóttir
Byrjunarlið:
24. Ashley Brown Orkus (m)
7. Alda Ólafsdóttir
11. Brookelynn Paige Entz ('68)
14. Hildur María Jónasdóttir (f)
17. Katrín S. Vilhjálmsdóttir
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
20. Freyja Dís Hreinsdóttir
22. Halla Helgadóttir ('46)
23. Isabelle Rose Gilmore
32. Taylor Marie Hamlett
36. Harpa Helgadóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
2. Hanna Faith Victoriudóttir
8. Karítas María Arnardóttir
10. Una Rós Unnarsdóttir ('46)
18. Júlía Margrét Ingadóttir ('68)
21. Krista Dís Kristinsdóttir
25. Kristín Magdalena Barboza
26. Sylvía Birgisdóttir
27. Eyrún Björg Benediktsdóttir
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Anton Ingi Rúnarsson (Þ)
Arna Diljá Guðmundsdóttir (AÞ)
Stefán Óli Hallgrímsson (MÞ)
Freyja Sóllilja Sverrisdóttir (Sjúkraþj.)
Svanhvít Valtýsdóttir (Liðsstj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
0-2 sanngjarn sigur gestanna í Grindavík/Njarðvík í höfn

Þær voru með miklu hættulegri færi og betur spilandi í dag.

Takk fyrir samfylgdina,
viðtöl og skýrsla koma inn síðar í dag
91. mín
Rut reynir stungu upp í horn en þar er enginn og Framkonur pikka þetta upp
90. mín
a.m.k. 2 mínútur í uppbótartíma
86. mín
ÚFFF Líklega besta færið hjá Fram í dag, Taylor ætlar að lauma boltanum framhjá Crenshaw en sú síðarnefnda ótrúlega fljót að hugsa og stekkur á boltann,
83. mín
Inn:Sigríður Emma F. Jónsdóttir (Gri/Nja) Út:Natasha Anasi (Gri/Nja)
80. mín
Ellie kemur sér flotta stöðu, á ágætis skot en Orkus grípur þennan
78. mín
Hildur Katrín reynir að finna Rakel en boltinn rennur í gegnum hana
76. mín Gult spjald: Ellie Coffield (Gri/Nja)
76. mín
Ekki slæm tilraun, fer rétt yfir vegginn en þó framhjá markinu
75. mín
Brotið á Rut rétt fyrir utan teiginn, Maci gerir sig klára að taka spyrnuna
69. mín
Inn:Rut Sigurðardóttir (Gri/Nja) Út:Lily Anna Farkas (Gri/Nja)
68. mín
Inn:Júlía Margrét Ingadóttir (Fram) Út:Brookelynn Paige Entz (Fram)
68. mín
Tæknilegir örðuleikar það er verið að uppfæra síðuna hjá okkur, datt þetta aðeins út en við erum mætt aftur
Biðst velvirðingar á þessu!
64. mín MARK!
Tinna Hrönn Einarsdóttir (Gri/Nja)
Stoðsending: Maci Nicole Teater
Maci gerir vel, pikkar boltanum í gegn á Tinnu sem er bara ein og óvölduð og setur hann auðvelt niðri í fjærhornið
54. mín
Sara Svanhildur komin á ferðina, skilur Natöshu eftir, mér sýnist síðan brotið á henni fyrir framan teiginn en Ásmundur dæmir ekkert, veit ekki hvort hann var að reyna að beita hagnaði eða hvað?
53. mín
Hannah McLaughlin fær frábæra sendingu inn fyrir og skorar frábært mark en flaggið fer á loft!
47. mín
Una Rós brýtur á Emmu Phillips, þær spila stutt
46. mín
Taylor Hamlett sparkar seinni hálfleiknum aftur á stað fyrir heimakonur eftir að búið er að gera við annað markið
46. mín
Inn:Una Rós Unnarsdóttir (Fram) Út:Halla Helgadóttir (Fram)
skipting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
0-1 í hálfleik fyrir gestunum í Grindavík/Njarðvík,

Þær ættu að vera svona allavega 3 mörkum yfir miðað við færin sem þær hafa fengið en Ashley Brown Orkus er að eiga stórleik í marki Fram, hefur gripið vel inn í og varið eins og vel!

Spurning hvort þær nagi sig í handarbökin að vera bara einu marki yfir en þær hafa lent í því í 2 leikjum í röð að missa 1-0 forystu niður í 1-1 jafntefli!
45. mín Gult spjald: Hildur Katrín Snorradóttir (Gri/Nja)
45. mín
Orkus!!! Mætt bara langt út úr teig til að stoppa skyndisókn sem Ása Björg var við að komast ein í gegn en hún hikar örlítið og Orkus dúndrar þessu útaf
45. mín
Lily Farkas er komin í geggjað færi, frá mínum bæjardyrum séð steig hún Höllu bara vel út en Ásmundur hefur séð eitthvað annað og flautar brot
44. mín
ÚFFFFFF Tinna með frábæra stungusendingu í gegn á Hildi Katrínu sem er komin ein í gegn en Ashley Orkus gerir frábærlega í að koma út á móti henni, minnka markið og verja með líkamanum hreinlega
38. mín
shiiiiiii Ashley Orkus!!! Frábær varsla hjá henni! Hildur Katrín í daaauuuuuðafæri 9/10 skipti hefði þetta verið mark!
35. mín
Heyrðuuuu Ása Björg kemur á fljúgandi siglingu en boltinn rétt fram hjá, náði að lauma sér fram hjá Katrínu án þess að hún tæki eftir henni
33. mín
Natasha tæææææææp Hún er á gulu! Hún þarf að passa sig
26. mín
Isabelle reynir stungu en Emma Phillips með allt á hreinu, les þetta og er á undan í boltann, kemur honum svo á Crenshaw í markinu
23. mín
Ás Björg reynir fyrirgjöf en Orkus er í þessu og grípur þetta
22. mín
Lily Farkas! Kemst í svakalegt færi eftir frábært einstaklings framtak en Orkus nær að setja litla putta í þetta og yfir, horn svo sem ekkert kemur úr
17. mín
Ágætis tilraun hjá Öldu setur hann á fjær honrið en Crenshaw ver vel, líklega þeirra hættulegast færi
16. mín Gult spjald: Natasha Anasi (Gri/Nja)
12. mín
Gestirnir halda áfram að ógna, Ása Björg á sprettinum en Harpa kemur þessu útaf. Horn sem ekkert út úr
11. mín
Tinna Hrönn strax komin í takt við leikinn á hér í baráttu við Höllu en boltinn út fyrir endalínu
9. mín
Inn:Tinna Hrönn Einarsdóttir (Gri/Nja) Út:Danai Kaldaridou (Gri/Nja)
Skipting á 9. mínútu! Þetta lítur ekki vel út, hún nær þó að haltra sjálf útaf svo vonandi er þetta ekkert alvarlegt!
8. mín
Danai Kaldaridou liggur hér eftir og fær aðhlynningu
5. mín MARK!
Ellie Coffield (Gri/Nja)
Ekki lengi gert! Rakel með hornið, Hannah McLaughlin skallar boltann og Ellie Coffield skallar frákastið svo inn!
4. mín
Lilly Farkas komin í góða stöðu missir boltan áfram í teiginn en það gerir ekki til því Ása Björg er mætt og tekur skotið en varið
3. mín
Skólaus! Hildur Emma reynir fínustu sendingu á Rakel en hún er ekki í öðrum skónum! Heldur á honum og hleypur meðan boltinn rennur útaf
2. mín
Fínt samspil hjá Freyju og Söru Svanhildi, ná að koma boltanum upp á Öldu en Natasha er nautsterk og kemst í þetta
1. mín
Leikur hafinn
Lily Anna Farkas hefur leik fyrir gestina
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast! Leikmenn eru komnir á völlinn í þessu blíðskaparveðri!

Sól í stúkunni, ég hvet alla til að drífa sig á völlinn
Fyrir leik
Fanndís spáir í 8. umferðina Fanndísi Friðriksdóttur, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, spáir í leikina í 8. umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 0 - 2 Grindavík/Njarðvík
Tash kemur þeim í 1-0 snemma leiks og þær skora svo seinna markið alveg í restina.

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur sitja í 7. sæti deildarinnar með 8 stig, einu stigi á undan Val í 8. sætinu, einu stigi á eftir Víking í 6. sætinu og þremur stigum á eftir Stjörnunni í 5. sæti. Það er því stutt á milli í töflunni og hver sigur telur!

Grindavík/Njarðvík fékk stóran skell gegn Breiðablik í síðasta leik sínum fyrir landsleikjahléið þegar þær töpuðu 0-5 á heimavelli. leikirnir þar á undan misstu þær 1-0 sigur niður í 1-1 jafntefli á lokamínútum leiksins og þar með 4 töpuð stig.

Fyrir utan það hafa þær sem nýliðar verið að sýna að þær eiga fullt erindi í þessa deild en þeim var að flestum spáð beint niður fyrir sumarið.

Eins og með Fram er spurning hvernig þær koma til leiks eftir pásuna, hvort þær mæti tvíefldar til leiks, úthvíldar og búnar að fara vel yfir hvernig á ekki að tapa forystunni á síðustu mínútum leiksins eða hvort stórt tap hafi kveikt á einhverjum efa í pásunni?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fram Framkonur sitja í 9. sæti með 4 stig, tveimur stigum á undan Þór/KA í 10. sætinu og þremur stigum á eftir Val í 8. sætinu.

Fram konur sýndu ágætis frammistöðu í síðustu tveimur leikjum sínum fyrir landsleikjahléið, unnu Þór/KA 3-2 en töpuðu svo 6-2 gegn FH en sýndu þrátt fyrir það að þær eiga alveg sín móment. Þær voru 1-2 yfir í hálfleik áður en FH átti frábærar skiptingar og settu í 6 gír.

Það er því spurning hvernig hléið fór í Framkonur, munu þær sýna áframhaldandi bætingar og stíga enn betur upp eða mun hléið hafa þveröfug áhrif akkúrat þegar þær voru komnar á ágætis skrið?

Við sjáum það heldur betur í dag!
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fyrir leik
8. umferðin Eftir tveggja vikna frí fer Besta deildin aftur af stað og er öll 8. umferðin er spiluð í dag, hefjast þeir allir klukkan 14:00 fyrir utan leik Vals og Þórs/KA sem hefst klukkan 16:15 á Hlíðarenda.

8. umferðin lítur þá svona út:

Í dag:
14:00 Breiðablik - Stjarnan
14:00 Fram - Grindavík/Njarðvík
14:00 Víkingur R. - FH
14:00 Þróttur R. - ÍBV
16:15 Valur - Þór/KA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins Á flautunni í dag verður Ásmundur Þór Sveinsson og honum til halds og trausts verða Jovan Subic og Ásgeir Sigurðsson aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson og eftirlitsmaður í dag er Snorri Páll Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar á ný! Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Lambhagavellinum þar sem Fram tekur á móti Grindavík/Njarðvík í 8. umferð Bestu deildarinnar

Leikurinn hefst á slaginu 14:00!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
14. Genevieve Jae Crenshaw (m)
2. Ellie Coffield
5. Natasha Anasi (f) ('83)
9. Lily Anna Farkas ('69)
12. Hannah McLaughlin
18. Ása Björg Einarsdóttir
19. Rakel Sigurðardóttir
24. Danai Kaldaridou ('9)
26. Maci Nicole Teater
27. Hildur Katrín Snorradóttir
28. Emma Nicole Phillips
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
3. Brynja Pálmadóttir
6. Rut Sigurðardóttir ('69)
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
11. Eydís María Waagfjörð
13. Lea Björt Kristjánsdóttir
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir ('9)
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('83)
23. Júlía Rán Bjarnadóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Þorsteinn Magnússon (MÞ)
Lúðvík Már Matthíasson (Sjúkraþj.)
Kamilla Ósk Jensdóttir (Liðsstj.)
Armandas Leskys (AÞ)

Gul spjöld:
Natasha Anasi ('16)
Hildur Katrín Snorradóttir ('45)
Ellie Coffield ('76)

Rauð spjöld: