Arsenal í viðræðum um Bouaddi sem er líka á óskalista Liverpool - City vill Branthwaite
2. deild karla
Fjölnir
LL 2
2
Kári
2. deild karla
Selfoss
LL 3
1
Þróttur V.
Fjölnir
2
2
Kári
0-1 Árni Salvar Heimisson '46
Bjarni Þór Hafstein '49 1-1
Bjarni Þór Hafstein '52 2-1
2-2 Jón Þór Finnbogason '61
15.06.2026  -  19:15
Fjölnisvöllur
2. deild karla
Aðstæður: 12°, skýjað og logn, frábærar aðstæður
Dómari: Milan Djurovic
Maður leiksins: Bjarni Þór Hafstein
Byrjunarlið:
13. Snorri Þór Stefánsson (m)
4. Þengill Orrason
5. Patryk Hryniewicki
8. Orri Þórhallsson (f)
9. Árni Steinn Sigursteinsson ('75)
11. Bjarni Þór Hafstein
16. Mikael Breki Jörgensson
20. Egill Otti Vilhjálmsson
21. Birgir Þór Jóhannsson
26. Einar Örn Harðarson ('75)
27. Sölvi Sigmarsson
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Haukur Óli Jónsson (m)
7. Aron Fannar Hreinsson ('75)
15. Fjölnir Sigurjónsson ('75)
18. Markús Steinn Markan Ásmundsson
25. Róbert Thor Valdimarsson
78. Elmar Daði Davíðsson
80. Helgi Snær Agnarsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Már Guðmundsson (Þ)
Kári Arnórsson (Liðsstj.)
Gunnar Sigurðsson (MÞ)
Sveinn Atli Árnason (Styrktarþj.)
Antonio Maria Ferrao Grave (Sjúkraþj.)
Ásgeir Frank Ásgeirsson (AÞ)
Kristinn Þór Guðmundsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Snorri Þór Stefánsson ('46)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Skemmtilegur seinni hálfleikur og sanngjarnt jafntefli niðurstaðan.
Viðtöl og skýrsla á leiðinni, ég þakka fyrir mig.
90. mín
90+1 Fín spyrna og Stefán nær skallanum en yfir markið.
90. mín
90+1 Kári fær aukaspyrnu á hættulegum stað
88. mín
SLÁIN VÁ. Jóhannes Breki fær boltann á milli vítateigslínu og endalínu. Hann snýr skemmtilega og kemst framhjá Fjölnismanni. Hleypur að vítateigslínunni og kemur með alvöru bananaskot með hægri sem smellur í slánni. 5 cm lægra og þessi hafði sungið í netinu.
87. mín
Skalli Patryk nær fínum skalla eftir hornspyrnu en skallinn rétt yfir.

Fáum við sigurmark?
83. mín
Birgir með fast skot fyrir utan teig en skotið beint á Loga sem nær ekki valdi á honum en Stefán kemur honum frá.
81. mín
FÆRI Sigurjón allt í einu mættur einn inn í teig og reynir að skjóta vinstra megin við Snorra en skotið of laust, gripið.
80. mín
Fjölnir fær horn eftir góðan sprett Arons.

Þeir ná skalla að marki úr horninu en beint á Loga
80. mín Gult spjald: Sigurjón Logi Bergþórsson (Kári)
Pirringsbrot Sigurjón brýtur heimskulega á Sölva eftir að sókn Kára var runnin út í sandinn.
77. mín Gult spjald: Marinó Hilmar Ásgeirsson (Kári)
Harkalegt Marínó fer allharkalega í Fjölni Sigurjóns beint fyrir framan varamannskýlin.
75. mín
Inn:Fjölnir Sigurjónsson (Fjölnir) Út:Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir)
75. mín
Inn:Aron Fannar Hreinsson (Fjölnir) Út:Einar Örn Harðarson (Fjölnir)
73. mín
Árni sloppinn einn í gegn en flaggið á loft, hárrétt sýndist mér.
69. mín
Inn:Jóhannes Breki Harðarson (Kári) Út:Jón Þór Finnbogason (Kári)
65. mín
Kári vill víti Nú vilja Káramenn víti en þetta var eiginlega alveg eins og þegar Fjölnir bað um víti í fyrri hálfleik, hefði verð mjög soft.
61. mín MARK!
Jón Þór Finnbogason (Kári)
MARKAFLÓÐ Kári nær loksins að setja saman sókn sem endar með sendingu inn í teiginn, fer í gegnum allan pakkann en á fjærstönginni bíður Jón Þór sem getur ekki klúðrað þessu.

4 mörk á korteri.
60. mín
Hótar þrennunni Birgir gerir mjög vel og heldur boltanum inná, sendir svo á Bjarna sem á skotið en Logi ver vel.

Þetta er allt annar leikur í seinni hálfleik.
59. mín
Orri með skot fyrir utan teig en það er beint á Loga.
Fjölnir búnir að halda vel í boltann síðustu mínútur.
52. mín MARK!
Bjarni Þór Hafstein (Fjölnir)
2 á 3 mínútum Aftur frábær undirbúningur frá Agli sem kemst framhjá varnarmanni upp að endalínu. Sendir svo fyrir þar sem Bjarni óvaldaður og hamrar honum upp í þaknetið. Frábærar mínútur í Grafarvoginum.
49. mín MARK!
Bjarni Þór Hafstein (Fjölnir)
ALLT JAFNT Flottur sprettur frá Agli sem sendir sendingu á Bjarna sem skýtur í fyrsta af vítapunktinum, hnitmiðað í hægra hornið. Logi á lítinn séns.

1-1
46. mín Gult spjald: Snorri Þór Stefánsson (Fjölnir)
Mótmæli Hefur talið að brotið hafi verið af sér og er spjaldaður fyrir mótmæli.

Góð byrjun á seinni hálfleik.
46. mín MARK!
Árni Salvar Heimisson (Kári)
EKKI LENGI AÐ GERAST Kári fær hornspyrnu og boltinn er góður. Beint á pönnuna á Árna sem kemur með kröftugan skalla af stuttu færi.

Snorri ósáttur
46. mín
Kári sparka seinni hálfleiknum af stað Vonumst eftir mörkum og einhverjum alvöru færum
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við þennan fyrri hálfleik. Ekki búið að vera skemmtilegur fyrri hálfleikur því miður. Vonum að seinni verði opnari.
45. mín
Fínasta færi Árni gerir vel og kemur sér inn í teiginn en skotið beint á Loga.
38. mín
Færi Marínó í fínni stöðu inn í teig og reynir að skrúfa boltann í fjærhornið en skotið framhjá markinu.
35. mín
Tækifæri Logi kemur úr markinu og á svo slæma sendingu beint á Birgi Þór sýndist mér. Hann reynir að skrúfa hann í markmannslaust markið fyrir utan teig en skotið allt of utarlega. Tveir menn Kára voru þó fyrir markinu svo skotið hefði þurft að vera nákvæmt.
30. mín
Fjölnismenn kalla eftir víti Árni Steinn fer niður í teignum en Milan lætur leik halda áfram. Held það hafi verið hárrétt, hefði verið ódýr vítadómur.
28. mín
Það hefur ekki mikið verið að frétta undanfarnar mínútur. Eitthvað um fínar stöður hjá báðum liðum en þau koma sér ekki í skot.
22. mín
Slæm spyrna Fjölnir fær aukaspyrnu á milli vítateigs og hliðarlínu en fyrirgjöfin frá Bjarna sem var mögulega skot var ekki góð, hvort sem það var fyrirgjöf eða skot.
19. mín
Klaufar Misskilningur í vörn Fjölnis og Káramaður stelur boltanum. Sendingin inn í teiginn er góð á Matthías sem missir hann of langt frá sér en nær skotinu en Snorri ver. Fullþröngt skotfæri eftir þessa fyrstu snertingu.
17. mín
Horn hjá Fjölni Mjög góður bolti inn í teiginn og skallinn rétt yfir markið en það hefur verið brot inn í teignum og aukaspyrna dæmd.
12. mín
Bjarni Þór gerir mjög vel, kemst framhjá manni inn í teig, reynir svo sendinguna fyrir en þeir ná ekki skoti á markið.
9. mín
Fjölnir með hornspyrnu sem endar með hörkuskoti fyrir utan teig sem er blokkað. Tiltölulega jafn leikur þessar fyrstu mínútur.
6. mín
VARSLA Marínó kominn einn í gegn en Snorri ver mjög vel. Fjölnismenn í erfiðleikum með að koma boltanum úr teignum og fleiri skot dundu í átt að marki en Fjölnisvörnin heldur.
4. mín
Finnbogi Laxdal kominn í fína stöðu en missir boltann of langt frá sér í teignum og brýtur á Fjölnismanni.
1. mín
Allt farið af stað
Fyrir leik
Mættust í Lengjubikarnum Liðin mættust í B-deild Lengjubikarsins í Egilshöll nú í vetur. Leikurinn fór 5-0 fyrir Fjölni og þar setti Viktor Andri Hafþórsson þrennu

Mynd: Fjölnir

Fyrir leik
Dómararnir Milan Djurovic er með flautuna í kvöld. Línumenn eru Jovan Subic og Daníel Örn Arnarson og dómaraeftirlitsmaður leiksins er Björn Guðbjörnsson.
Fyrir leik
Tap hjá toppliðinu Topplið Hauka töpuðu 3-0 gegn Dalvíkingum í gær svo nú er alvöru tækifæri fyrir bæði lið að ógna toppsætinu. Með sigri komast liðin upp í 2. sæti, stigi á eftir Haukum. Deildin öll er samt einstaklega jöfn, það munar aðeins 5 stigum á fyrsta og áttunda sæti eftir 8 umferðir.
Fyrir leik
Gengi liðanna Fjölnir situr í 4. sæti deildarinnar með 12 stig, hafa unnið fjóra leiki og tapað þremur. Þeir unnu sterkan 3-2 sigur fyrir Austan gegn KFA í síðustu umferð.

Kári er í 3. sæti deildarinnar með jafn mörg stig en með sterkari markatölu heldur en Fjölnir. Þeir hafa unnið þrjá, gert þrjú jafntefli og tapað einum. Matthías Daði Gunnarsson er markahæsti leikmaður deildarinnar með 7 mörk og það hefur hann gert í 5 leikjum.
Fyrir leik
Extra völlurinn heilsar Verið velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Extra vellinum þar sem Fjölnir tekur á móti Kára í toppslag.

8. umferð deildarinnar lýkur í kvöld með tveimur leikjum.

14. júní
Hvíti Riddarinn 4-3 KFA
Dalvík/Reynir 3-0 Haukar
Kormákur/Hvöt 2-3 KFG
Víkingur Ólafsvík 3-1 Magni

15. júní
Fjölnir - Kári 19:15
Selfoss - Þróttur Vogar 19:15
Byrjunarlið:
1. Logi Mar Hjaltested (m)
4. Tómas Týr Tómasson
6. Albert Hafsteinsson
7. Marinó Hilmar Ásgeirsson
8. Sigurjón Logi Bergþórsson
10. Jón Þór Finnbogason ('69)
16. Birkir Hrafn Samúelsson
21. Árni Salvar Heimisson (f)
33. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson
40. Stefán Logi Sigurjónsson
47. Matthías Daði Gunnarsson
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
25. Kasper Úlfarsson (m)
5. Gísli Fannar Ottesen
9. Jóhannes Breki Harðarson ('69)
14. Benedikt Ísar Björgvinsson
20. Mikael Hrafn Helgason
26. Grétar Jónatan Pálmason
77. Jóhannes Már Daníelsson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Úlfur Arnar Jökulsson (Þ)
Sigurður Jónsson (AÞ)
Sveinbjörn Geir Hlöðversson (Forráðam.)

Gul spjöld:
Marinó Hilmar Ásgeirsson ('77)
Sigurjón Logi Bergþórsson ('80)

Rauð spjöld: