Chelsea hefur áhuga á Wirtz - Búast við tilboði frá PSG í Diomande
Besta karla
Fram
LL 0
5
Víkingur R.
Lengjudeild karla
HK
LL 2
2
Grindavík
Lengjudeild karla
Grótta
LL 2
5
Fylkir
Lengjudeild karla
Ægir
LL 1
3
Þróttur R.
Lengjudeild kvenna
KR
LL 1
1
Haukar
Grótta
2
5
Fylkir
Björgvin Brimi Andrésson '8 1-0
Mattías Kjeld '23 2-0
2-1 Guðmundur Tyrfingsson '49
2-2 Aron Snær Guðbjörnsson '57
2-3 Máni Austmann Hilmarsson '59
2-4 Kári Sigfússon '67
2-5 Guðmundur Tyrfingsson '83
21.06.2026  -  19:15
Vivaldivöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Skýjað, 12°C og léttur andvari. Fyrirtaks aðstæður til knattspyrnu
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Kári Sigfússon - Fylkir
Byrjunarlið:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson ('75)
10. Grímur Ingi Jakobsson (f) ('50)
16. Halldór Hilmir Thorsteinson ('76)
21. Tristan Freyr Ingólfsson
22. Viktor Orri Guðmundsson ('65)
27. Kristján Tómas Björnsson ('65)
30. Mattías Kjeld
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
2. Hrannar Ingi Magnússon ('65)
5. Patrik Orri Pétursson ('65)
11. Axel Sigurðarson ('50)
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson
19. Alexander Emil Stefánsson ('75)
25. Elmar Freyr Hauksson ('76)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren (AÞ)
Patrekur Ingi Þorsteinsson (Liðsstj.)
Anton Bogdanov (MÞ)
Halldór Svavar Sigurðsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Kristján Tómas Björnsson ('59)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Sigur Fylkis staðreynd Viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld
90. mín
+3 Þetta er að fjara út hérna hjá okkur
84. mín
Inn:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir) Út:Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
83. mín MARK!
Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Slök sending úr vörn Gróttu í þetta sinnið sem Dagur Traustason kemst inn í. Hann sendir boltann fyrir á Guðmund Tyrfingsson sem rennir boltanum í netið með snoturri hælspyrnu.

Nú er það bara spurning hversu stór sigurinn verður
80. mín
Inn:Arnar Númi Gíslason (Fylkir) Út:Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir)
Tvöföld breyting
80. mín
Inn:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir) Út:Tumi Fannar Gunnarsson (Fylkir)
76. mín
Inn:Elmar Freyr Hauksson (Grótta) Út:Halldór Hilmir Thorsteinson (Grótta)
75. mín
Inn:Alexander Emil Stefánsson (Grótta) Út:Andri Freyr Jónasson (Grótta)
og Gróttumenn gera sömuleiðis breytingu
75. mín
Inn:Dagur Traustason (Fylkir) Út:Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
Fylkismenn gera breytingu
73. mín
Ólafur ver enn! Góð sókn Gróttu endar með skoti Björgvins Brima en Ólafur ver, sem fyrr, mjög vel í horn.
67. mín MARK!
Kári Sigfússon (Fylkir)
Þeir eru að fara langt með þetta! Fylkismenn keyra upp völlinn eftir álitlega sókn Gróttu. Boltinn berst upp hægri kantinn og kemur frábær fyrirgjöf frá hægri sem Kári Sigfússon skallar virklega vel í netið.
65. mín
Inn:Hrannar Ingi Magnússon (Grótta) Út:Viktor Orri Guðmundsson (Grótta)
Tvöföld breyting hjá Gróttu
65. mín
Inn:Patrik Orri Pétursson (Grótta) Út:Kristján Tómas Björnsson (Grótta)
63. mín
Nú eru það Gróttumenn Tvö skot á stuttum tíma frá Mattíasi Kjeld og Björgvin Brima sem Ólafur ver vel. Þeir eru að ná vopnum sínum aftur eftir afleita byrjun á seinni hálfleik.
59. mín Gult spjald: Kristján Tómas Björnsson (Grótta)
Fyrsta gula Fyrir groddaralega tæklingu úti á velli
59. mín MARK!
Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
ÞEIR ERU BÚNIR AÐ SNÚA ÞESSU VIÐ! Það tók ekki langan tíma, eftir tæpt korter í seinni hálfleik eru Fylkismenn komnir í forustu! Allt í einu var Máni kominn með boltann aleinn inni í teig og skorar næsta auðveldlega framhjá Guðmundi. Ótrúlegur viðsnúningur!
57. mín MARK!
Aron Snær Guðbjörnsson (Fylkir)
Fylkismenn jafna! Frábær hornspyrna inn á miðjan teiginn. Þar reis Aron Snær hæst allra og skallaði boltann í hornið vinstra megin. Frábær skalli og allt orðið jafnt!
52. mín
Meira af því sama Seinni hálfleikur byrjar keimlíkt þeim fyrri. Fylkismenn með boltann og Grótta reynir að sækja hratt.
50. mín
Inn:Axel Sigurðarson (Grótta) Út:Grímur Ingi Jakobsson (Grótta)
Skipting í hálfleik Gróttumenn gerðu skiptingu í hálfleik.
49. mín MARK!
Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Feykilega öruggt Fastur bolti í þaknetið. Guðmundur átti ekki möguleika í þennan.
48. mín
Víti! Fylkismenn fá víti! Klaufalegt brot inni í teig Gróttu. Hárrétt dæmt.
46. mín
Inn:Aron Snær Guðbjörnsson (Fylkir) Út:Hlynur Sævar Jónsson (Fylkir)
Fylkismenn gera breytingu í hálfleik
46. mín
Leikur hafinn
Fylkismenn sparka þessu aftur af stað Þeir leika í átt að Bakkagarði, Gróttumenn sækja að sundlauginni.
45. mín
Hálfleikur
Staðan 2-0 Skemmtilegur leikur og ég sé ekki betur en að planið hjá Gróttu sé að ganga upp, allavega hingað til.

Við sjáumst eftir korter
45. mín
Tumi fannar vel á verði +1
Andri Freyr sóknarmaður Gróttu var kominn í mjög góða stöðu, en Tumi lokaði á hann, ýtti honum út úr teignum og gerði eiginlega allt nema að breiða yfir hann sængina fyrir nóttina. Virkilega góður varnarleikur.
42. mín
Tristan... já og Ólafur! Snögg sókn Gróttu. Björgvin Brimi fær boltann úti til vinstri og kemur með eitraða þversendingu beint á D-bogann þar sem Tristan kom askvaðandi og átti hörkuskot í fyrsta en það var glæsilega varið af Ólafi Kristófer í marki Fylkis
36. mín
Frábær sprettur Theodórs Inga Tók tvo menn á og átti svo hörkuskot sem fór af varnarmanni og í horn. Hornspyrnuna skalla Gróttumenn frá
34. mín
Fylkismenn ógna Enn er það Kári sem er upphafsmaður sókna hjá Fylki. Frábær fyrirgjöf, föst á nær sem Birkir Eyþórsson skallar rétt framhjá
30. mín
Rúnar Páll er ekki sáttur Fylkismenn sækja, og koma sér í gott færi. Boltinn dettur fyrir framan markteiginn og nær Guðmundur Rafn hönd á boltann og skellur saman með sóknarmanni Fylkis. Elías Ingi lætur leikinn halda áfram og tekst varnarmönnum Gróttu að bægja hættunni frá með Guðmund liggjandi óvígan í teignum.
Þarna vildi Rúnar fá eitthvað meira en ekkert.
27. mín
Flottar mínútur hjá Gróttu Nú var það Viktor Orri Guðmundsson sem skeiðaði með boltann um 60 metra alla leið að vítateig Fylkis, fann Andra Frey á sína hægri sem átti skot sem Ólafur varði í horn.

Úr horninu kom ekkert
24. mín
Sláin! Á meðan ég skrifa um markið fellur boltinn ofan á slánna hjá Fylki eftir fyrirgjöf/skot. Þarna mátti litlu muna!
23. mín MARK!
Mattías Kjeld (Grótta)
Gróttumenn tvöfalda! Skelfileg sending til baka á Ólaf í markinu frá að mér sýndist Arnóri Breka. Matthías Kjeld kemst inn í sendinguna sendir boltann framhjá Ólafi og vinnur svo kapphlaupið við Arnór og treður boltanum yfir línuna!
19. mín
Betra frá Gróttu Náðu að tengja nokkrar sendingar saman án þess þó að ógna marki Fylkis af nokkru viti.
17. mín
Lúmskt skot Kára Kári Sigfússon fær boltann á vítateigshorninu hægra megin og á lúmska vippu sem fer rétt yfir markið.
16. mín
Enn eru það Fylkismenn sem eru mikið mun meira með boltann án þess þó að skapa sér færi. Gróttumenn halda áfram að freista þess að vinna boltann og sækja hratt.
12. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað Viktor Orri brýtur á Kára Sigfússyni rétt fyrir utan vítateig. Hér er skotfæri.

Arnór Breki Ásþórsson tekur skotið. Það er fast meðfram jörðinni en Guðmundur Rafn á í engum vandræðum með það.
8. mín MARK!
Björgvin Brimi Andrésson (Grótta)
MAAAAAARRRKK Glæsileg skyndisókn Gróttu! Gróttumenn vinna boltann á miðjum vallarhelmingi sínum úti við hliðarlínu vinstra megin. Þá tekur Björgvin Brimi á rás upp völlinn, rekur boltann alla leið frá miðlínu og inn í vítateig Fylkismanna og leggur hann snyrtilega í hægra hornið. Það eru ekki margir í þessari deild sem eru betri en hann einn á móti markmanni, ég fullyrði það.
3. mín
Hætta við mark Gróttu Theodór Ingi átti góða fyrirgjöf frá hægri á Mána Austmann sem átti skot að marki sem var varið á línu og hreinsað í horn. Upp úr horninu vörðu Gróttumenn aftur á línu en skallinn var laus. Fylkir halda pressunni hér í upphafi
1. mín
Leikur hafinn
Gróttumenn sparka þessu af stað
Fyrir leik
Tvær mínútur í leik Liðin ganga hér inná völlinn undir ljúfum tónum Bubba Morthens. Áhorfendur streyma sömuleiðis inn á völlinn. Þetta er að bresta á!
Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá Fylki Heimir Guðjónsson þjálfari Gróttu gerir sömuleiðis breytingar frá síðasta leik. Birkir Eyþórsson, Bjarki Steinsen Arnarsson og Kári Sigfússon byrja allir. Dagur Traustason og Nikulás Val Gunnarsson tylla sér á bekkinn. Orri Sveinn Segatta hefur fengið fjögur gul spjöld í sumar og er því í banni í kvöld.
Fyrir leik
Tvær breytingar hjá Gróttu Rúnar Páll gerir tvær breytingar á byrjunarliði Gróttu frá tapinu í síðasta leik. Þeir Axel Sigurðarson og Emil Skúli Einarsson taka sér sæti á bekkinn og í þeirra stað koma Viktor Orri Guðmundsson og Kristján Tómas Björnsson
Fyrir leik
Síðasta viðureign liðanna Liðin mættust í Mjólkurbikarnum 13. júní síðastliðinn í frábærum leik.
Tristan Freyr Ingólfsson kom Gróttu yfir í fyrri hálfleik með glæsilegu marki en skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma varð Caden McLagan, varnarmaður Gróttu, fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og þurfti því að framlengja. Í framlengingunni kom Aron Snær Guðbjörnsson Fylki yfir en Caden McLagan kvittaði fyrir sjálfsmarkið og skoraði í rétt net til að jafna leikinn á ný. Á lokasprettinum voru Fylkismenn sterkari og skoruðu Orri Sveinn Segatta og Kári Sigfússon sitt hvort markið.
Leikar enduðu því 4-2 og Fylkismenn mæta Aftureldingu í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þetta árið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Flautuleikari dagsins Elías Ingi Árnason er dómari í dag og honum til aðstoðar eru þeir Mikael Ívan Axelsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Andri Júlíusson spáir í spilin Skagamaðurinn Andri Júlíusson spáir í 10. umferð Lengjudeildarinnar

Grótta 3 - 2 Fylkir (19:15 á sunnudag)
Virkilega hrifin af þessu Gróttuliði og þeir halda áfram að koma á óvart, Kjeld, Björgvin koma Gróttu í 2-0 en seiglan í Guðfinni og Slátraranum Hlyni Sævari jafna svo setur Tristan sigurmark í andlitið Fylkismönnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Grótta Gróttumenn eru í 8. sæti Lengjudeildarinnar fyrir leik með 12 stig. Eftir þrjá góða sigra í röð lutu þeir í lægra haldi gegn ÍR á Þarfaþingsvellinum í síðustu umferð. Einar Tómas Sveinbjarnarson skoraði mark Gróttu í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


Fyrir leik
Fylkir Fyrir leik sitja Fylkismenn í öðru sæti deildarinnar með 18 stig, einungis einu stigi á eftir toppliði Þróttar.

Í síðasta leik, á þjóðhátíðardaginn 17. júní, gerðu Fylkismenn sér góða ferð til Grindavikur þegar þeir sigruðu heimamenn 0-1 með marki Kára Sigfússonar og komu sér þar með aftur á sigurbraut eftir tvö töp í röð í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Verið velkomin á Vivaldivöllinn Klukkan 19:15 tekur lið Gróttu á móti Fylki í 10. umferð Lengjudeildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson (f)
4. Hlynur Sævar Jónsson ('46)
6. Guðfinnur Þór Leósson
7. Máni Austmann Hilmarsson ('75)
14. Tumi Fannar Gunnarsson ('80)
17. Birkir Eyþórsson
20. Theodór Ingi Óskarsson ('80)
70. Guðmundur Tyrfingsson ('84)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
30. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
8. Dagur Traustason ('75)
9. Eyþór Aron Wöhler ('84)
13. Þórður Ingi Ingimundarson
18. Nikulás Val Gunnarsson ('80)
19. Arnar Númi Gíslason ('80)
23. Aron Snær Guðbjörnsson ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Daði Ólafsson (Leikgr.)
Arnór Gauti Brynjólfsson (Styrktarþj.)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (MÞ)
Kristófer Sigurgeirsson (AÞ)
Ágúst Aron Gunnarsson (Liðsstj.)
Daníel Bjarki Stefánsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: