Chelsea hefur áhuga á Wirtz - Búast við tilboði frá PSG í Diomande
Besta karla
Fram
LL 0
5
Víkingur R.
Lengjudeild karla
HK
LL 2
2
Grindavík
Lengjudeild karla
Grótta
LL 2
5
Fylkir
Lengjudeild karla
Ægir
LL 1
3
Þróttur R.
Besta karla
Valur
LL 1
1
Keflavík
Besta karla
FH
LL 1
1
Þór
Besta karla
ÍBV
LL 2
1
Stjarnan
Besta karla
Breiðablik
LL 3
1
KA
Lengjudeild karla
ÍR
LL 4
4
Völsungur
Lengjudeild kvenna
KR
LL 1
1
Haukar
ÍR
4
4
Völsungur
Bergvin Fannar Helgason '19 1-0
Víðir Freyr Ívarsson '21 2-0
2-1 Andri V. Bergmann Steingrímsson '26
Bergvin Fannar Helgason '40 , víti 3-1
3-2 Gestur Aron Sörensson '55
3-3 Fernando Jimenez Arranz '64
Víðir Freyr Ívarsson '66 4-3
4-4 Dagbjartur Búi Davíðsson '70
21.06.2026  -  16:00
Þarfaþingsvöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Dagbjartur Búi Davíðsson
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Halldór Atli Kristjánsson
5. Hrafn Hallgrímsson ('68)
6. Kristján Atli Marteinsson
8. Emil Nói Sigurhjartarson ('68)
9. Bergvin Fannar Helgason
11. Guðjón Máni Magnússon
14. Víðir Freyr Ívarsson ('81)
19. Hákon Dagur Matthíasson ('68)
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f)
25. Jón Arnar Sigurðsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
2. André Musa Solórzano Abed ('68)
4. Sigurður Karl Gunnarsson ('68)
7. Ívan Óli Santos ('81)
15. Mikael Trausti Viðarsson
28. Óliver Elís Hlynsson
61. Orri Bjarkason ('68)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Jónþór Atli Ingólfsson (Leikgr.)
Ómar Atli Sigurðsson (Styrktarþj.)
Davíð Örvar Ólafsson (AÞ)
Helgi Freyr Þorsteinsson (MÞ)

Gul spjöld:
André Musa Solórzano Abed ('87)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!

Rosalegum leik lokið í Breiðholtinu. Kaflaskiptur vissulega en heilt yfir sennilega sanngjörn úrslit.
95. mín
Völsungar fá aukaspyrnu í skotfæri. Langt færi en vel hægt að skjóta og láta reyna á Vilhelm.

Arnar Pálmi lætur vaða en setur boltann hátt yfir.
94. mín
Aron Bjarki með skot úr teignum eftir ágæta sókn. Þægilegt viðfangs fyrir Vilhelm sem ver af öryggi.
93. mín
ÍR-ingar vinna hornspyrnu, Tækifærunum fer fækkandi og gestirnir hreinsa.
92. mín
Steinþór Freyr vinnur aukaspyrnu ofarlega á vellinum. Allir þeir stóru tölta fram.

Uppbótartíminn verður að lágmarki 5 mínútur.
91. mín
Inn:Aron Bjarki Kristjánsson (Völsungur) Út:Fernando Jimenez Arranz (Völsungur)
90. mín
Fernando Jimenez Arranz liggur eftir á vellinum og heldur um nárasvæðið.
87. mín Gult spjald: André Musa Solórzano Abed (ÍR)
Fer í Steinþór á miðjum vellinum.
84. mín Gult spjald: Modoumatarr Mbye (Völsungur)
Fernando fer niður í teignum og Völsungar vilja vítaspyrnu. Jóhann Ingi ekki á sama máli og spjalda Mbye fyrir mótmæli.
82. mín
Völsungur með aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.
81. mín
Inn:Ívan Óli Santos (ÍR) Út:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
Ívan Óli var hetjan síðast. Verður hann það aftur?
80. mín
Mark Dagbjarts í allri sinni dýrð beint frá Livey!
76. mín
Völsungur fær hornspyrnu.

Dagbjartur Búi liggur eftir við endalínu og þarf aðhlynningu.
75. mín
Korter eftir hér og það hlýtur að vera sigurmark í þessu. Þessi leikur á það hreinlega skilið.
70. mín MARK!
Dagbjartur Búi Davíðsson (Völsungur)
HALTU Á KETTI!
Guð minn góður hvað þetta var ótrúlegt mark!
Aukaspyrna frá hægri skölluð út úr teignum í D-bogann. Þar stendur Dagbjartur og hamrar boltann á lofti í netið óverjandi fyrir Vilhelm í markinu.

Mark umferðarinnar og eitt af mörkum ársins klárt!
68. mín
Inn:Orri Bjarkason (ÍR) Út:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
68. mín
Inn:Sigurður Karl Gunnarsson (ÍR) Út:Hrafn Hallgrímsson (ÍR)
68. mín
Inn:André Musa Solórzano Abed (ÍR) Út:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR)
66. mín MARK!
Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
Stoðsending: Emil Nói Sigurhjartarson
Það er allt að gerast í 109! Þung sókn ÍR, boltinn fyrir markið frá hægri. Emil Nói reynir þar skot en kiksar boltann og skotið verður að stoðsendingu á Víði sem skorar með föstu skoti úr teignum.
65. mín
ÍR-ingar í alvöru brasi!
Vilhelm með hræðilega sendingu frá marki sem Völsungar komast inn í. Eru í frábærri stöðu 2 gegn 1 en spila ekki nógu vel úr því og Vilhelm nær að redda sér.
64. mín MARK!
Fernando Jimenez Arranz (Völsungur)
Hann skorar þá bara núna í staðin!
Einn og yfirgefinn í miðjum teignum eftir hornið og skallar boltann í netið. Vilhelm í boltanum en í netið fer hann!
63. mín
Fernando Jimenez Arranz í hörku dansi í teig ÍR og er við það að komast í dauðafæri sekúndum eftir að hafa komið inná. ÍR-ingar koma boltanum í horn en með miklum herkjum þó.
63. mín
Inn:Fernando Jimenez Arranz (Völsungur) Út:Andri V. Bergmann Steingrímsson (Völsungur)
62. mín
Kristján Atli Marteinsson fékk gult eftir 26 sekúndur í síðasta leik og er ekkert óvanur því að fá gul spjöld. Vel gert hjá honum í dag að vera kominn yfir klukkutímann án þess að fá spjald.
59. mín
Víðir með hörkuskot úr D-boganum en Jochum vel á verði og ver virkilega vel.
57. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.
55. mín MARK!
Gestur Aron Sörensson (Völsungur)
Stoðsending: Elfar Árni Aðalsteinsson
Gestirnir minnka munin Elmar Örn með boltann í átt að teignum frá vintri. Elfar Árni sterkur og kemur boltanum áfram inn á teiginn á Gest sem tekur boltann niður og leggur hann af öryggi í netið. Fékk tíma og pláss og nýtti það til fullnustu.
51. mín
Andri Bergmann í fínni fyrirgjafarstöðu úti til vinstri en setur boltann of innarlega beint í fang Vilhelms.

Gestirnir byrjað þennan síðari hálfleik á jákvæðum nótum.
46. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur) Út:Indriði Ketilsson (Völsungur)
Þreföld skipting í hálfleik hjá gestunum
46. mín
Inn:Gestur Aron Sörensson (Völsungur) Út:Tómas Bjarni Baldursson (Völsungur)
46. mín
Inn:Dagbjartur Búi Davíðsson (Völsungur) Út:Davíð Leó Lund (Völsungur)
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn Jóhann Ingi flautar okkur af stað á ný í Breiðholtinu. Hefði þegið svona 2-3 mínútur í viðbót. Layla með Derek and the Dominos ómaði í hátalarakerfinu.

Frábært lag.
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn með þægilega forystu að loknum þessum fyrri hálfleik. Hafa nýtt sín tækifæri vel og leiða nokkuð verðskuldað.
44. mín
Heimamenn að þjarma að Völsungum og vinna horn. Gestirnir verjast vel og koma boltanum frá.
40. mín Mark úr víti!
Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Öryggið uppmálað.
Jochum í rétt horn en skotið er fast og vel út í hornið.
39. mín
ÍR er að fá vítaspyrnu.
Víðir setur boltann fyrir frá vinstri, hann smellur í hendi varnarmanns og Jóhann bendir umsvifalaust á puntkinn.
37. mín
Sami meðalaldur á bekkjum beggja liða. Það kann að hljóma lítilfjörlegt svona við fyrstu sýn að meðalaldur beggja bekkja sé 23 ár. Vert að benda á að á bekk Völsunga er Stálmúsin sjálf Steinþór Freyr Þorsteinsson, en hann verður 41 árs í júlí.

Hversu ungir eru hinir þá?

Myndin hér að neðan er ein sú elsta af Steinþóri í myndabanka Fótbolta.net. Tekin árið 2005 er hann lék með Breiðablik. Spurning hversu margir þekkja liðið sem hann leikur gegn á þessari mynd.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

34. mín
Völsungar ógna, ná fyrirgjöfum inn á teiginn sem ÍRingar koma frá en þó ekki langt. Andri aftur að vinna sig í færi en missir boltann frá sér afturfyrir undir pressu frá varnarmanni úr ágætri stöðu í teignum.
31. mín
Modoumatarr Mbye með hraustlega tæklingu á vallarhelmingi ÍR, jaðrar við gult spjald en Jóhann sleppir honum með tiltal.
30. mín
Vægsast sagt fjörugar síðustu mínútur hér. Leikurinn aðeins róast þó.
26. mín MARK!
Andri V. Bergmann Steingrímsson (Völsungur)
Stoðsending: Modoumatarr Mbye
Mörkunum rignir hér Mikið klafs við teig ÍR og boltinn í loftinu Modoumatarr Mbye skallar hann niður. Boltinn fellur fyrir Andra í D-boganum sem leggur hann snyrtilega fyrir sig og lætur vaða á markið. Skotið ekki fast en hnitmiðað var það og fer í netið vel út við stöng.
25. mín
Völsungar sækja upp hægri kantinn og uppskera hornspyrnu.
23. mín
Útsending Livey er komin í gang svo hefðbundin textalýsing tekur nú við.
21. mín MARK!
Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
Stoðsending: Ágúst Unnar Kristinsson
Einfalt og skilvirkt Heimamenn brjótast upp völlinn hægra megin og koma honum inn á teiginn. Boltinn berst fyrir markið þar sem Víðir er mættur í hlaupið og setur boltann þægilega í netið úr markteignum.
19. mín MARK!
Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Stoðsending: Hákon Dagur Matthíasson
Skalli úr teignum eftir þunga sókn ÍR. Bergvin aleinn og á ekki í nokkrum vandræðum með að skora.
1. mín
Leikur hafinn
Tæknin að stríða okkur smá. Leikurinn er hafinn, lýsandi treystir á útsendingu Livey hér í dag og þar eru menn að glíma við smávægilega tæknilega örðugleika sem stendur. Mörk og markaskorar verða færð inn í úrslitaþjónustu þar til útsending dettur í loftið.
Fyrir leik
Spámaðurinn Skagamaðurinn Andri Júlíusson, sem þjálfaði Kára síðustu ár, spáir í leikina að þessu sinni. Um leikinn í Breiðholti sagði Andri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


ÍR 1 - 1 Völsungur
Hrikalega sterkur sigur Völsunga síðast og komnir með blóð á tennurnar og hrífast af Græna Gímaldinu og stela jafntefli.

Fyrir leik
Tríóið Jóhann Ingi Jónsson er með flautuna í Breiðholti í dag. Honum til aðstöðar eru Daníel Ingi Þórisson og Þráinn Jón Elmarsson. Gunnar Helgason tekur svo út störf þeirra og framkvæmd leiks sem eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Fyrir leik
Jójóið í 109 Maður veit aldrei hvaða útgáfu ÍR-ingar senda til leiks og sumarið hefur verið vægast sagt sveiflukennt. Liðið sem flengdi Aftureldingu í fyrstu umferð og saltaði HK í þeirri fimmtu hefur líka tapað sannfærandi fyrir Ægi og fengið harða útreið gegn Njarðvík.

Bót í máli er þó að lið ÍR lagði eitt heitasta lið deildarinnar í Gróttu í síðustu umferð og má vona þeirra vegna að betri taktur sé kominn í leik þeirra fyrir vikið. Það mun hins vegar allt koma í ljós síðar í dag hvort svo er eða ekki.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Hagstæð úrslit gætu lyft Húsvíkingum af botninum Eftir brösótta byrjun á stigasöfnun í upphafi móts sótti lið Völsungs sinn fyrsta sigur á tímabilinu síðastu umferð. Stjörnum prýtt lið Njarðvíkur mætti til Húsavíkur og þurfti að gera sér að góðu að yfirgefa völlinn án stiga eftir 2-1 sigur Völsungs. Gamla brýnið í framlínu Völsungs Elfar Árni Aðalsteinsson reyndist þar hetja heimamenna en hann gerði sigurmark liðsins á 88. mínútu leiksins

Lið Völsungs situr fyrir leiki dagsins í Lengjudeildinni í 12. og síðasta sæti deildarinnar með 5 stig að loknum 9 leikjum. Næstu lið fyrir ofan Ægir og Grindavík eru þar fyrir ofan með 7 stig og gæti því sigur Völsungs og hagstæð úrslit úr leikjum Ægis og Grindavíkur lyft Húsvíkingum uppfyrir bæði lið í 10 sætið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Húsvíkingar í heimsókn í 109
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik ÍR og Völsungs í Lengjudeild karla.

Flautað verður til leiks á Þarfaþingsvellinum klukkan 16:00
Byrjunarlið:
1. Jochum Magnússon (m)
3. Davíð Leó Lund ('46)
4. Juan Guardia Hermida
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
14. Xabier Cardenas Anorga
18. Andri V. Bergmann Steingrímsson ('63)
21. Modoumatarr Mbye
23. Elmar Örn Guðmundsson
77. Indriði Ketilsson ('46)
97. Tómas Bjarni Baldursson ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
7. Dagbjartur Búi Davíðsson ('46)
8. Fernando Jimenez Arranz ('63) ('91)
11. Gestur Aron Sörensson ('46)
13. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('46)
17. Aron Bjarki Kristjánsson ('91)
19. Tryggvi Grani Jóhannsson
91. Ýmir Hjálmsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Borja Martin Iglesias (Þ)
Sigurður Valdimar Olgeirsson (Forráðam.)
Jón Smári Hansson (Sjúkraþj.)
Sergio Parla Garcia (AÞ)
Óskar Páll Davíðsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Modoumatarr Mbye ('84)

Rauð spjöld: