
KR
1
1
Haukar

Katla Guðmundsdóttir
'6
1-0
1-1
Berglind Þrastardóttir
'80
21.06.2026 - 19:15
Meistaravellir
Lengjudeild kvenna
Dómari: Elmar Svavarsson
Maður leiksins: Rakel Grétarsdóttir
Meistaravellir
Lengjudeild kvenna
Dómari: Elmar Svavarsson
Maður leiksins: Rakel Grétarsdóttir
Byrjunarlið:
35. Kyla Elizabeth Burns (m)
2. Rakel Grétarsdóttir
3. Anna Björk Kristjánsdóttir (f)
8. Karítas Ingvadóttir
9. Emma Björt Arnarsdóttir
10. Katla Guðmundsdóttir
11. Kara Guðmundsdóttir
15. Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir
('90)
('90)
18. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
19. Inga Laufey Ágústsdóttir
25. Katrín Ásta Eyþórsdóttir
- Meðalaldur 21 ár
Varamenn:
1. Matthildur Eygló Þórarinsdóttir (m)
5. Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir
7. Freyja Aradóttir
16. Emilía Ingvadóttir
17. Hildur Björg Kristjánsdóttir
21. Þórey Björk Eyþórsdóttir
('90)
('90)
23. Sóley María Davíðsdóttir
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Hildur Guðný Káradóttir (Styrktarþj.)
Jamie Paul Brassington (AÞ)
Bergþór Snær Jónasson (Sjúkraþj.)
Íris Grétarsdóttir (Leikmaður utan hóps)
Gul spjöld:
Kara Guðmundsdóttir ('43)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
1-1 Stórmeistarajafntefli
Haukar halda toppsætinu en KR gerir sig gildandi í 2. sætinu, 1 stigi á undan nágrönnum sínum í Gróttu
Hörku fjörugur leikur og ég hvet áhorfendur að sofa ekki á lengjudeild Kvenna! Hér er sannarlega stuð
Takk annars fyrir samfylgdina,
Skýrsla kemur inn síðar í kvöld
Hörku fjörugur leikur og ég hvet áhorfendur að sofa ekki á lengjudeild Kvenna! Hér er sannarlega stuð
Takk annars fyrir samfylgdina,
Skýrsla kemur inn síðar í kvöld
95. mín
Síðasta tækifærið hjá KR en Viktoría grípur þessa aukaspyrnu örugglega og í því flautar dómarinn leikinn af!
95. mín
Dómarinn leyfir hér leiknum að líða og líða... aukaspyrna dæmd
Áhorfendur Hauka ekki sáttir
Áhorfendur Hauka ekki sáttir
94. mín
Ragnheiður Tinna brýtur á Rakel, hefði alveg getað fengið gult þarna, alltof sein...
89. mín
ÚFFFF
Sigurbjörg nýkomin inn á, nær hér höööööörkuskalla, hennar fyrsta snerting en boltinn hárfínt framhjá fjærhorninu,
Kyla hefði ekki náð að verja þennan...
Kyla hefði ekki náð að verja þennan...
88. mín
Inn:Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir (Haukar)
Út:Rakel Lilja Hjaltadóttir (Haukar)
86. mín
Rakel Lilja reynir að finna Ragnheiði Tinnu inn fyrir en Katrín Ásta sterk kemur í veg fyrir það
84. mín
Svo nálægt...
Fyrirgjöf af kantinum sem Katla nær að setja tánna í en nær hins vegar ekki að stýra boltanum á markið og framhjá!
83. mín
Haukunum dugar jafntefli til að halda toppsætinu en KR verður að vinna til að stela því,
Þetta verða hörku lokamínútur hér!
Þetta verða hörku lokamínútur hér!
80. mín
MARK!
MARK!Berglind Þrastardóttir (Haukar)
HAUKARNIR JAFNA!
Þær eru búnar að vera hóta þessu síðustu mínúturnar og hér sækir Berglind jöfnunarmarkið fyrir Haukakonur, þvílíkt vel gert, setur boltann inn fyrir Kylu á nærstönginni
78. mín
Góð innkoma hjá Emilíönu, á hér góða sendingu á Berglindi sem skýtur á markið en Kyla sem fyrr mjög örugg í markinu
76. mín
Mikil barátta þessar mínúturnar hjá Haukum, Valgerður reynir skot frá teigslínunni en yfir
72. mín
Halla með fínar hreyfingar kemur boltanum á Ásthildi sem reynir skotið en ekki nógu fast
69. mín
KYLA BURNS!
Ragnheiður Tinna var sloppin ein í gegn eftir frábært hlaup og ætlaði að leggja hann í fjærhornið en Kyla eins og köttur í markinu og hoppar á þennan! Frábær varsla
66. mín
Valgerður liggur hér eftir samstuð við Ragnheiði, Haukakonur héldu sjálfar áfram án þess að setja boltann útaf, dómarinn stoppaði svo leikinn þegar hann fór út. Búið er að kalla inn á sjúkraþjálfara, mér sýndist þetta vera þungt höfuð högg... mögulega olnbogi
63. mín
Emma Björt setur háan bolta í teiginn, þar er Ragnheiður sem tekur hann með með hælnum aftur fyrir sig en boltinn rétt framhjá, hefði verið geggjað mark
62. mín
Haukar freistast í skyndisókn, Halla reynir að komast framhjá Katrínu Ástu en þar er allt lokað og læst!
57. mín
Kara með hornspyrnu fyrir KR, fer á Emmu sem setur hann aftur á Köru, boltinn fyrir þar sem Ragnheiður er mætt en nær ekki að stýra boltanum á markið
55. mín
Emma Björt með aukaspyrnu frá miðju, hörkubolti sem Viktoría í markinu þarf að hafa sig alla við að ná að verja, hún er síðan straujuð niður áður en boltinn fer í markið í 4. skiptið... En réttilega er aukaspyrna dæmd
51. mín
Fyrsti góði spilakaflinn hjá Haukum þar sem þær spila sig upp völlinn án þess að þruma boltanum fram og vona það besta, Ragnheiður fær hann síðan og kemur honum fyrir en hann hittir ekki á neina rauða treyju í þetta sinn,
Þetta er meira líkt Haukaliðinu sem maður hefur séð í sumar
Þetta er meira líkt Haukaliðinu sem maður hefur séð í sumar
48. mín
Halla Þórdís kemur þá hinum megin, reynir að finna Ragnheiði en aðeins of fastur bolti og rennur út fyrir endalínu
45. mín
Hálfleikur
KR leiða 1-0
Hálfleikur hér á Meistaravöllum þar sem KR leiða sanngjarnt 1-0, miðað við færin sem þær hafa verið að skapa sér ættu þær að vera svona 3-0 yfir en þetta er það skemmtilega við fótboltann!
Haukakonur sakna greinilega varnar naglans, hennar Maggýjar sem er fjarri góðu gamni í kvöld.
1-0 forysta er þó svo lítið og ein góð og vel útfærð skyndisókn hjá Haukum og allt er orðið jafnt!
Haukakonur sakna greinilega varnar naglans, hennar Maggýjar sem er fjarri góðu gamni í kvöld.
1-0 forysta er þó svo lítið og ein góð og vel útfærð skyndisókn hjá Haukum og allt er orðið jafnt!
45. mín
Kyla!
Halla Þórdís sleppur ein í gegn reynir að vippa boltanum í fjærhornið en Kyla sér við henni, frábærlega varið hjá henni.
36. mín
Obbobbobb
Viktoría tekur hratt útspark en er ekki heppnari en svo að hún dúndrar boltanum í hausinn á dómaranum.... Þetta hefur ekki verið gott
34. mín
Ragnheiður með frábæra tæklingu út á hægri kantinum, nær að halda boltanum inn á og er með auða flugbraut til að hlaupa, setur hann svo á Ásthildi en sú nær ekki nógu góðri snertingu á boltann og sóknin rennur út í sandinn
28. mín
JESÚS!
Katla aftur með BANGER er með 2 menn í sér en nær samt hörkuskoti en sem betur fer fyrir Haukakonur smellur það í slánni!
26. mín
Vá!
Þarna munaði minnstu að klafs, skot og hreinsun langt fyrir utan teig endaði í marki, en fastur boltinn fór rétt yfir markið
25. mín
ÚFFFF
Langur bolti úr vörn Hauka upp í vinstri kantinn þar sem Halla er ein á fljúgandi siglingu en Kyla Burns er komin langt út úr teignum til þess að stoppa hana, sem betur fer fyrir hana þá náði hún að leggjast og koma í veg fyrir hlaupið, þar sem hún gat klárlega ekki tekið hann með höndum
23. mín
Ragnheiður tekur hornspyrnuna, fínasti bolti á fjær en engin nógu grimm og boltinn í gegnum allan pakkann
20. mín
Emma Björt brýtur á Rakel Lilju inn í miðjuboganum, aukaspyrna sem Haukakonur fá,
Sýnist hún nota tímann til að reima skóna í leiðinni
Sýnist hún nota tímann til að reima skóna í leiðinni
17. mín
Einn leikur til viðbótar áður en Sara Björk verður gjaldgeng
Haukar eiga einungis einn leik, við Gróttu áður en félagskiptaglugginn opnar og LEGENDIÐ hún Sara Björk Gunnarsdóttir verður gjaldgeng með félaginu! Það verður rosalegt að fá hana með alla sína reynslu inn í þessa deild!

12. mín
Rakel hleypur upp allan kantinn nær svo að gefa hann fyrir en Katla rétt missir af boltanum, Þetta hefði verið kjörið tækifæri til að tvöfalda forystuna!
10. mín
Hauka konur komast í skyndisókn en Kayla Burns er mætt bara út á miðjan völlinn til að hreinsa
6. mín
MARK!
MARK!Katla Guðmundsdóttir (KR)
BAAAAAANGER!
Þetta var ekki lengi gert! Katla fær boltann við vítateiginn og á svo þrumuskot upp í samskeytin algjörlega óverjandi fyrir Viktoríu í marki Hauka
5. mín
Halla kemst alein upp vinstri kanntinn nær boltanum fyrir og út í teiginn en þar er engin Haukakona mætt
1. mín
Hættulegt
Ólöf Freyja kemur sér í góða stöðu setur boltann fyrir en Ragnheiður rétt missir af boltanum
Fyrir leik
Slagur kvöldsins
Um er að ræða svokallaðan toppslag hér í kvöld!
Haukakonur sitja á toppnum með 16 stig eða einu stigi meira en KR í 2. sæti og Gróttu í 3. sætinu sem hefur þó spilað leik til góða.
Haukakonur eru ósigraðar eins og staðan er núna en gerðu 1-1 jafntefli við Völsung í síðustu umferð.
KR konur hafa hins vegar einungis tapað einum leik en það var í nágrannaslagnum við Gróttu þar sem þær lutu í lægra haldi 2-0
Nú er hins vegar toppsætið undir og ég á ekki von á öðru en fjörugum og skemmtilegum leik!
Haukakonur sitja á toppnum með 16 stig eða einu stigi meira en KR í 2. sæti og Gróttu í 3. sætinu sem hefur þó spilað leik til góða.
Haukakonur eru ósigraðar eins og staðan er núna en gerðu 1-1 jafntefli við Völsung í síðustu umferð.
KR konur hafa hins vegar einungis tapað einum leik en það var í nágrannaslagnum við Gróttu þar sem þær lutu í lægra haldi 2-0
Nú er hins vegar toppsætið undir og ég á ekki von á öðru en fjörugum og skemmtilegum leik!
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Elmar Svavarsson hefur flautuna í kvöld, honum til aðstoðar verða
Ellert Danelíusson og Ram Krishna Gurung.
Ellert Danelíusson og Ram Krishna Gurung.
Byrjunarlið:
1. Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir (m)
7. Rakel Lilja Hjaltadóttir
('88)
('88)
8. Valgerður Ósk Valsdóttir
10. Berglind Þrastardóttir
11. Halla Þórdís Svansdóttir
('76)
('76)
13. Kristín Fjóla Sigþórsdóttir (f)
14. Ásthildur Lilja Atladóttir
20. Ragnheiður Tinna Hjaltalín
21. Hekla Björk Sigþórsdóttir
22. Elma Dís Ólafsdóttir
30. Sandra Dís Hlynsdóttir
- Meðalaldur 20 ár
Varamenn:
12. Aníta Ösp Björnsdóttir (m)
2. Bryndís Halla Gunnarsdóttir
3. Elísabet Ósk L. Servo Ólafíud.
15. Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
('88)
('88)
17. Kristín Björk Hjaltadóttir
24. Emilíana Guðrún Antonsdóttir
('76)
('76)
25. Emma Alexandra Eiríksdóttir
- Meðalaldur 18 ár
Liðsstjórn:
Hörður Bjarnar Hallmarsson (Þ)
Brynja Dögg Benediktsdóttir (Leikmaður utan hóps)
Ísold Hallfríðar Þórisdóttir (Leikmaður utan hóps)
Emil Mæng Vestergård (Styrktarþj.)
Sara Björk Gunnarsdóttir (Liðsstj.)
Sigurður Pálsson (Sjúkraþj.)
Sigmundur Einar Jónsson (MÞ)
Gul spjöld:
Rauð spjöld:

