Rashford gæti farið til Barcelona - Man Utd að fá samkeppni frá PSG um Summerville - Sesko ekki til sölu
Besta karla
KR
LL 5
3
ÍA
Besta kvenna
Stjarnan
LL 3
0
Fram
Besta kvenna
ÍBV
LL 0
3
Breiðablik
Besta kvenna
Þór/KA
LL 2
0
Þróttur R.
ÍBV
0
3
Breiðablik
0-1 Líf Joostdóttir van Bemmel '8
0-2 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir '19
0-3 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir '23
22.06.2026  -  18:00
Hásteinsvöllur
Besta kvenna
Aðstæður: Sól og smá gola á annað markið.
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Maður leiksins: Líf Joostdóttir Van Bemmel
Byrjunarlið:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir ('45)
5. Avery Mae Vanderven (f)
7. Edda Dögg Sindradóttir ('45)
10. Kristín Klara Óskarsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
17. Viktorija Zaicikova ('86)
20. Allison Patricia Clark ('86)
27. Fridrikka Marie Clementsen
35. Allison Grace Lowrey ('74)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Arden Joy La-Rose (m)
12. Ísey María Örvarsdóttir (m)
3. Hrafnhildur K. Kristleifsdóttir
6. Þóra Björg Stefánsdóttir ('74)
8. Ísafold Dögun Örvarsdóttir
9. Milena Mihaela Patru ('45)
11. Helena Hekla Hlynsdóttir ('45)
15. Magdalena Jónasdóttir ('86)
19. Erla Hrönn Unnarsdóttir ('86)
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Jón Ólafur Daníelsson (Þ)
Guðmundur Tómas Sigfússon (AÞ)
Júlíana Sveinsdóttir (Liðsstj.)
Filipe Andre Alexandre Machado (MÞ)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (Styrktarþj.)
Embla Harðardóttir (Leikmaður utan hóps)
Kolbrún Sól Ingólfsdóttir (Sjúkraþj.)
Richard Matthew Goffe (AÞ)

Gul spjöld:
Jón Ólafur Daníelsson ('70)
Avery Mae Vanderven ('89)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Blikar með sannfærandi 0-3 sigur! Öruggur sigur Blika í Vestmannaeyjum, voru 0-3 yfir í hálfleik og sigurinn í raun aldrei í hættu.
93. mín
Líf með frábæran sprett og er alveg að koma sér í skotfæri en Kristín Klara með frábæra vörn gegn henni og fær svo aukaspyrnu í kjölfarið.
93. mín
Lilja Þórdís nálægt því að sleppa ein í gegn eftir sendingu frá Bryndísi en Guðný kemur langt út úr markinu og hreinsar.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
90. mín
Inn:Viktoría Emma Arnórsdóttir (Breiðablik) Út:Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
90. mín
Inn:Bára Björk Jóelsdóttir (Breiðablik) Út:Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik)
89. mín Gult spjald: Avery Mae Vanderven (ÍBV)
Missir boltann illa og togar svo Katelyn niður.
87. mín
Helena Hekla með sko utan af velli en auðvelt fyrir Herdísi sem grípur boltann.
87. mín
Katelyn með skot tilraun lengst utan af velli en skotið er máttlaust.
86. mín
Inn:Erla Hrönn Unnarsdóttir (ÍBV) Út:Viktorija Zaicikova (ÍBV)
86. mín
Inn:Magdalena Jónasdóttir (ÍBV) Út:Allison Patricia Clark (ÍBV)
83. mín
Milena fór upp hægri kantinn og gaf fyrir. Elísa reyndi að skalla í burtu og boltinn dettur fyrir Olgu sem tekur skotið en fer af Elísu og aftur fyrir.
83. mín
FÆRI HJÁ BRYNDÍSI! Boltinn barst á Bryndísi sem er ein og óvölduð á vítapunktinum en hún hittir boltann illa. Hún fékk svo annað færi stuttu seinna en skotið fór beint á Guðnýju.
81. mín
Líf finnur Hrafnhildi Ásu í hlaupinu hægra megin og hún kemst upp að endalínu. Hún nær fyrirgjöfinni en Avery er fyrst á boltann og kemur honum í burtu.
79. mín
Inn:Lilja Þórdís Guðjónsdóttir (Breiðablik) Út:Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
79. mín
Inn:Bryndís Arna Níelsdóttir (Breiðablik) Út:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)
79. mín
Vel spilað hjá ÍBV. Þóra og Olga með flott samspil og Þóra kemur boltanum á Milenu sem kemur sér í skotfæri en skotið er slakt og fer framhjá.
78. mín
Þóra Björg með flotta hornspyrnu á nærstöngina beint á Helenu Heklu en hún nær ekki að stýra þessu á markið.
77. mín
Inn:Olga Ingibjörg Einarsdóttir (Breiðablik) Út:Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Kristín Dís getur ekki haldið leik áfram.
76. mín
Líf reynir stungusendingu á Ollu Siggu en setur alltof mikinn kraft í sendinguna og Guðný hreinsar.
74. mín
Inn:Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV) Út:Allison Grace Lowrey (ÍBV)
73. mín
Kristín Dís liggur aftur eftir á vellinum og leikurinn stopp á meðan er verið að hlúa að henni.
71. mín
Clark kemur boltanum út á Helenu Heklu og hún kemur með fína fyrirjgjöf inn á teiginn. Milena nær skallanum en hann er laus og beint á Herdísi í marki Blika.
70. mín Gult spjald: Jón Ólafur Daníelsson (ÍBV)
68. mín
Líf gerir vel úti hægra megin, finnur Öglu Maríu inn á miðsvæðinu sem keyrir að markinu. Hún finnur svo Ollu Siggu inn á teignum og hún kemur sér í skotfæri en Avery nær að koma sér fyrir boltann.
66. mín
Olga gerir vel úti hægri megin, dansar fram hjá tveimur varnarmönnum og kemur með fyrirgjöf en alltof fáar inn á teignum frá ÍBV og Herdís Halla handsamar boltann.
65. mín
Vel spilað hjá Blikum. Agla Maríu finnur Líf í hlaupinu hægra megin og hún kemur með fyrirgjöf sem Avery setur svo í innkast.
64. mín
Clark reynir að lauma boltanum inn á Lowrey en Elísa kemur boltanum í burtu.
60. mín
BLIKAR BJARGA Á LÍNU! Olga með fyrirgjöf frá vinstri á fjær. Allison nær að skalla boltann aftur fyrir markið á Avery sem nær að pota í boltann og Blikar bjarga á línu.

Boltinn barst svo út á Olgu og hún á skot í hliðarnetið
59. mín
Milena nálægt því að sleppa í gegn. Hún vann boltann af Elínu Helenu en hún bjargar sér svo kemur boltanum aftur fyrir.
56. mín
DAUÐAFÆRI!! Líf fór upp hægra megin og gefur á Öglu Maríu sem er inn á markteig. Fyrsta snerting hennar er slök og skotið enn slakara og fer framhjá markinu.
55. mín
Vel spilað hjá blikum sem endar á sendingu upp völlinn frá Öglu Maríu á Líf en Avery gerir vel gegn henni og kemur boltanum aftur fyrir og Blikar fá horn.
54. mín
Clark aftur með fyrirgjöf en hún er of innarlega og beint í hendur Herdísar.
53. mín
Allison Clark gerir vel, nær að snúa með boltann og keyrir upp að endalínu og kemur með sendingu inn á teiginn. Olga er bara ein þar gegn þremur Blikastelpum og nær ekki til boltans.
51. mín
Agla María fær boltann úti hægri megin og keyrir inn á völlinn og tekur skotið en það er beint á Guðnýju.
48. mín
Klafs inn á teignum eftir hornið og ÍBV fær annað horn. Herdís Halla grípur spyrnuna frá Olgu.
47. mín
Kristín Klara vinnur horn fyrir ÍBV.
45. mín
Inn:Helena Hekla Hlynsdóttir (ÍBV) Út:Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV)
ÍBV með tvöfalda breytingu í hálfleik.
45. mín
Inn:Milena Mihaela Patru (ÍBV) Út:Edda Dögg Sindradóttir (ÍBV)
ÍBV með tvöfalda breytingu í hálfleik.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn Þetta er farið í gang aftur.
45. mín
Hálfleikur
Blikar yfir í hálfleik 0-3! Blikar leiða sanngjarnt í hálfleik og voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik.
45. mín
Það voru +4 í uppbótartíma.
45. mín
Blikar fá hornspyrnu.
45. mín
Agla María með fyrirgjöfina inn á teig ÍBV af stuttu færi en Guðný vinnur boltann.
43. mín
Frábær sókn hjá Blikum! Hrafnhildur Ása vinnur boltann inn á miðsvæðinu og kemur með frábæra sendingu í gegn á Öglu Maríu sem er ein gegn Guðnýju en skotið hennar fer rétt framhjá.
42. mín
Edda Dögg gerir vel inn á miðjunni hjá ÍBV, vinnur boltann og kemur honum á Lowrey í hlaupinu. Fyrsta snerting hjá Lowrey er hinsvegar allt of löng og hún þarf að teygja sig í skotið sem er laust og beint á Herdísi.
39. mín
Agla með fyrirgjöf frá vinstri eftir fínt spila Blika en sendingin er of innarlega og auðveld fyrir Guðnýju í marki ÍBV.
38. mín
Allison Lowrey tíar boltann upp fyrir nöfnu sína Clark fyrir utan teig Blika sem ætlar að skjóta í fyrsta en hittir einfaldlega ekki boltann. Blika hreinsa.
36. mín
OLGA!! Flott sókn hjá ÍBV. Fridrikka ber boltann upp miðjuna og kemur boltanum út á Olgu vinstra megin. Hún tekur boltann með sér inn á við og lætur vaða en skot hennar er rétt fram hjá!
35. mín
Mistök í vörn ÍBV. Sandra missir boltann undir sig og allt í einu er Agla María ein á auðum sjó vinstra megin. Hún ætlar að skipta boltanum yfir á Ollu Siggu en sendingin er frekar slök og Avery nær að koma boltanum í burtu. Illa farið með gott upphlaup.
32. mín
Fridrikka með skot utan af velli en það er hátt yfir markið.
31. mín
Viktorija með skotið fyrir utan teig en það er yfir markið.
30. mín
Vel gert hjá Allison Clark, kemst upp að endalínu og nær fyrirgjöfinni á fjær. Olga nær hinsvegar ekki að ná valdi á boltanum og missir hann aftur fyrir.
27. mín
Kristín Dís liggur eftir á vellinum eftir eitthvað hnjask.
25. mín
ÍBV fær hornspyrnu. Viktoija með spyrnuna sem dettur fyrir Lowrey. Hún kemur boltanum út á Olgu sem tekur skotið fyrir utan teiginn en það fer af varnarmanni og í hendur Herdísar Höllu.
23. mín MARK!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel
Blikar með öll völd á vellinum!! Líf kemur með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn og þar er Olla Sigga mætt til að stanga boltann í netið og kemur Blikum í 0-3!
22. mín
Allison Lowrey reynir að finna Olgu í hlaupinu en sendingin er of löng og Herdís Halla hreinsar fram.
19. mín MARK!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Sunna Rún Sigurðardóttir
0-2!! Sunna Rún tekur hornspyrnuna fyrir Blika sem ÍBV nær að hreinsa en hún fær boltann aftur og kemur með fyrirgjöf beint á hausinn á Ollu Siggu sem stangar boltann í netið.
18. mín
Sunna Rún með hættulega hornspyrnu fyrir Blika sem Guðný nær að slá aftur fyrir og þær fá annað horn.
16. mín
Elín Helena reynir stungusendingu á Öglu Maríu sem er í fínu hlaupi en flaggið fór á loft.
14. mín
Agla fékk boltann óvænt eftir lélega hreinsun ÍBV og tók boltann í fyrsta en skot hennar framhjá. Hafði líklega meiri tíma til þess að athafna sig.
14. mín
Agla María kemur með góðan bolta inn á teig ÍBV frá vinstri en Eyjakonur hreinsa.
12. mín
SLÁIN!! Agla María með góða hornspyrnu og Elín Helena stekkur hæðst allra og skallar boltann í slánna og aftur fyrir!
11. mín
Frábærlega gert hjá Allison Lowrey, vinnur boltann ofarlega á vellinum og kemur boltanum á Fridrikku úti hægra megin. Hún kemur með fyrirgjöf en Olga nær ekki til boltans og Blika hreinsa.
8. mín MARK!
Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
Stoðsending: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Blikar komast í 0-1! Vel spilað hjá Blikum. Hrafnhildur Ása fékk boltann í hlaupið vinstra megin á vellinum og keyrir inn á teiginn. Hún kemur með fyrirgjöf á fjær með jörðinni og Líf klárar örugglega fram hjá Guðnýju og kemur Breiðablik í 0-1!
5. mín
Elísa kemur með fyrirgjöf inn á teig ÍBV sem Avery hreinsar í burtu.
4. mín
Mikil stöðubarátta hér fyrstu mínúturnar.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!

Heimakonur eiga upphafsspyrnuna og leika í átt að Týsvelli.
Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f) ('79)
8. Katelyn Duong
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('79)
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('90)
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir ('90)
18. Kristín Dís Árnadóttir ('77)
19. Líf Joostdóttir van Bemmel
29. Sunna Rún Sigurðardóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Taylor Kane (m)
5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir ('77)
10. Bryndís Arna Níelsdóttir ('79)
17. Karitas Tómasdóttir
20. Dórothea Ósk Haraldsdóttir
21. Guðrún Þórarinsdóttir
26. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('79)
50. Bára Björk Jóelsdóttir ('90)
52. Viktoría Emma Arnórsdóttir ('90)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Jóhanna Björk Gylfadóttir (Sjúkraþj.)
Stefán Logi Magnússon (AÞ)
Hjörtur Fjeldsted (Styrktarþj.)
Sæmundur Arnór Sigurðsson (Liðsstj.)
Gunnar Birgisson (AÞ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: