Besta karla
KR
LL
5
3
3
ÍA
Besta kvenna
Stjarnan
LL
3
0
0
Fram

Stjarnan
3
0
Fram

Birna Jóhannsdóttir
'38
1-0
Birna Jóhannsdóttir
'61
2-0
Birna Jóhannsdóttir
'74
3-0
22.06.2026 - 19:15
Samsungvöllurinn
Besta kvenna
Aðstæður: Sól og gola
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir
Áhorfendur: 151
Maður leiksins: Birna Jóhannsdóttir
Samsungvöllurinn
Besta kvenna
Aðstæður: Sól og gola
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir
Áhorfendur: 151
Maður leiksins: Birna Jóhannsdóttir
Byrjunarlið:
13. Bridgette Nicole Skiba (m)
4. Jakobína Hjörvarsdóttir
5. Eva Marie Wirtz
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
7. Fanney Lísa Jóhannesdóttir
('66)
('66)
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
('74)
('74)
9. Birna Jóhannsdóttir
('84)
('84)
14. Snædís María Jörundsdóttir
('66)
('66)
21. Þóra María Hjaltadóttir
('84)
('84)
26. Andrea Mist Pálsdóttir (f)
35. Telma Steindórsdóttir
- Meðalaldur 23 ár
Varamenn:
33. Tinna María Heiðdísardóttir (m)
16. Nanna Sif Guðmundsdóttir
17. Rósa María Sigurðardóttir
('84)
('84)
18. Margrét Lea Gísladóttir
('74)
('74)
19. Hrefna Jónsdóttir
('66)
('66)
27. Aníta Ýr Þorvaldsdóttir
('66)
('66)
28. Erika Ýr Björnsdóttir
40. Kara Sigríður Sævarsdóttir
('84)
('84)
42. Sandra Hauksdóttir
- Meðalaldur 17 ár
Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Orian Burzic (AÞ)
Artur Kotyash (Leikgr.)
Birgir Freyr Magnason (Leikgr.)
Hulda Björk Brynjarsdóttir (Liðsstj.)
Rajko Stanisic (MÞ)
Beka Kaichanidis (Sjúkraþj.)
Gul spjöld:
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('55)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan siglir hér öruggum 3-0 sigri heim fyrir langt hlé!
Þetta var fínasta skemmtun hér á Samsungvellinum, fullt af færum og Birna Jóhannsdóttir með þrennu! Geri aðrar betur
Takk annars fyrir samfylgdina!
Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í kvöld
Þetta var fínasta skemmtun hér á Samsungvellinum, fullt af færum og Birna Jóhannsdóttir með þrennu! Geri aðrar betur
Takk annars fyrir samfylgdina!
Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í kvöld
81. mín
Isabelle Gilmore og Hrefna í miklum barningi sem endar með að Hrefna brýtur á Isabelle
74. mín
Inn:Margrét Lea Gísladóttir (Stjarnan)
Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
74. mín
MARK!
MARK!Birna Jóhannsdóttir (Stjarnan)
BIRNA MEÐ ÞRENNU!
Birna er að setja sitt 3 mark í kvöld!
Var rétt kona á réttum stað, hirðir frákastið og setur þriðja markið! Gott dagsverk hjá henni í kvöld! Maður minn
Var rétt kona á réttum stað, hirðir frákastið og setur þriðja markið! Gott dagsverk hjá henni í kvöld! Maður minn

67. mín
Framkonur eru ekki hættar að reyna, fyrst er Katrín komin í fínustu fyrirgjafastöðu og svo reynir Taylor að renna sér á boltann
65. mín
Fram komast í skyndisókn eru komnar 5 á 3 en Jakobína kemur vel út á móti Söru Svanhildi og bægir hættunni frá
61. mín
MARK!
MARK!Birna Jóhannsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Andrea Mist Pálsdóttir
Stoðsending: Andrea Mist Pálsdóttir
Stjarnan að tvöfalda forystuna!
Birna með sitt annað mark í dag, Andrea Mist finnur hana í gegn og Birna setur hann framhjá Ashley

60. mín
Fram reynir að taka horn af æfingasvæðinu en það klikkar all svakalega og Fanney Lísa kemst aleeeeeein í gegn, reynir að setja boltann en Ashley ver þetta frábærlega, Fanney hefði átt að renna honum út á Birnu sem var komin þarna með henni!
57. mín
Ashely fljót að hugsa setur boltann langt fram á Taylor hún er þar í baráttunni við Telmu og fer harkalega í hana, aukaspyrna dæmd á Taylor þegar hún er komin ein í gegn...
56. mín
Ashley Brown!
Snædís María komin ein í gegn reynir að leggja hann í fjærhornið framhjá Ashley en vá hvað hún var fljót að setja fótinn út og í veg fyrir boltann!
53. mín
Úfffff
Þarna munaði mjóu, Katrín með góða fyrirgjöf og finnur þar Öldu á góðum stað en boltinn rétt framhjá
50. mín
Úlfa Dís með kantinn fyrir framan sig en Isabelle Gilmore nær að stöðva hana, Úlfa nær honum aftur en þá er Katrín mætt og nær að skýla boltanum útaf
48. mín
Brookelynn rifin niður við endalínuna og vítateiginn, aukaspyrna á fínasta stað! Una Rós tekur hana og snýr hana inn í en ofan á marknetið
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur - Stjarnan leiðir 1-0
Þetta hefur verið fjörugur leikur með nóg af færum,
Framkonur hafa komið mér á óvart með spilamennsku sinni í kvöld en þær hafa ekki náð að nýta sín færi enn sem komið er.
Stjarnan hins vegar hafa verið nokkuð ólíkar sjálfum sér og hafa ekki náð upp miklum spilaköflum. Þær hafa þó náð góðum skyndisóknum og urmull horna! En hafa þó ekki nýtt þau sem skildi.

43. mín
Úfffff
Stjarnan ekki langt frá því að tvöfalda forystuna, Fanney Lísa með fyrirgjöf út í teiginn en hún rennur í gegnum alla!
38. mín
MARK!
MARK!Birna Jóhannsdóttir (Stjarnan)
Stjarnan búnar að vera að hóta þessu
Birna fær boltann inn í teig er þar ein á auðum sjó og setur hann snyrtilega í fjærhornið framhjá Ashley í markinu

30. mín
Fanney Lísa komin upp að endalínu og ætlar að setja hann fyrir en Brookelynn rennir sér fyrir, Horn!
29. mín
Úfffff
Taylor í baráttu við Telmu en er nautsterk og nær svo að snúa hana af sér rennir boltanum fyrir en boltinn svo rétt framhjá markinu
23. mín
Andrea tekur hornið stutt á Úlfu, fær hann aftur og setur hann háan fyrir en Ashley Brown vel á verði kýlir boltann í burtu
16. mín
Sara Svanhildur kemst í góða stöðu ætlar að lauma boltanum inn á Taylor en ekki nægilega nákvæm sending
15. mín
Stálheppnar
Ashley Brown Orkus HEPPIN þarna, ætlaði að leggjast auðveldlega niður og taka léttan bolta en MISSIR hann frá sér, Framkonur stálheppnar þarna að Fanney Lísa var ekki á tánum
13. mín
Framkonur eru að mæta hérna að þvílíkum krafti, þetta er spilamennskan sem þær hefðu þurft að sýna fyrr í sumar
12. mín
Brookelynn gerir vel og kemst inn í sendingu, tekur boltann með sér út að endalínu, reynir svo að setja hann út í teiginn en Stjörnukonur ná að komast í þetta áður en hættan verður of mikil!
9. mín
Una Rós með aukaspyrnu af vinstri kantinum en hún setur hann á nær þar sem engin frammari er...
8. mín
Taylor!
Taylor Marie böðlast í gegnum Stjörnuvörnina og nær skoti á markið en það er hárfínt framhjá! Það er sjálfstraust í Framkonum hérna!
7. mín
Brookelynn með frábæra fyrirgöf á fjær þar sem Alda er í góðri stöðu en þær skalla tvær saman og boltinn út fyrir endalínu!
Þetta var alvöru færi
Þetta var alvöru færi
6. mín
Úlfa Dís með stórhættulega fyrirgjöf sem eiginlega bara lekur í gegnum teiginn, stórhættulegur bolti sem Snædís náði ekki að gera sér mat úr
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin ganga hér út á völlinn, við erum alveg á áætlun!
Hvet annars þá sem sjá þessa textalýsingu að drífa sig á Samsungvöllinn, hér er allt til alls! Sjoppan opin, grillið rjúkandi heitt og skemmtilegur leikur í vændum
Hvet annars þá sem sjá þessa textalýsingu að drífa sig á Samsungvöllinn, hér er allt til alls! Sjoppan opin, grillið rjúkandi heitt og skemmtilegur leikur í vændum
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Stjarnan
Óskar Smári þjálfari Stjörnunar gerir 4x breytingar á liðinu sínu frá bikarleiknum gegn Gri/Nja, inn kemur Jakobína, Fanney Lísa, Snædís María og Andrea Mist. Á bekkinn setjast Rósa María, Hrefna, Aníta Ýr og Erika Ýr
Fram
Anton Ingi gerir einnig 2x breytingar á sínu liði frá bikarleik sínum gegn FHL. Inn koma Júlía Margrét og Freyja Dís en á bekkinn setjast Kristín Magdalena og Sylvía.

Magnús Haukur spáir í 9. umferðina
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson spáir í leikina að þessu sinni.
Stjarnan 4 - 1 Fram
Eftir ákveðið “meltdown” eftir bikarleikinn mætir Óskar Smári með nýja klippingu og fer það vel í leikmenn liðsins og skora fjögur mörk í öllum regnbogans litum. Fram er auðvitað hátt uppi eftir bikarinn í vikunni og dalnum dreymir.

Framkonur aftur á móti eru í botnbaráttu og sitja í 9. sætinu með 4 stig, 1 stigi á undan Þór/KA í 10. sætinu og 4 stigum á eftir Val í 8. sætinu.
Framkonur hafa ekki verið að ríða feitum hesti í Bestu deildinni í sumar og hafa einungis unnið einn leik og gert eitt jafntefli. Þá hafa þær ekki skorað nema 8 mörk.
Þær hins vegar hljóta að koma hér í dag með sjálfstraust og kassann út en þær skoruðu hvorki meira né minna en 7 mörk í Mjólkurbikarnum sl. miðvikud. gegn Lengjudeildarliðinu FHL.
Þær ættu því að hafa náð að æfa sig nóg í að skora, Taylor Marie Hamlett skoraði m.a. þrennu og þá náði Brookelynn Paige Entz að skora sitt fyrsta mark fyrir Fram.
Ég vil því sjá þær koma með smá blóð á tönnunum og tilbúnar að sækja sigur sem mun hjálpa þeim gríðarlega í botnbaráttunni!

Stjörnukonur sitja fyrir þennan leik í 3. sætinu með 14 stig líkt og ÍBV í 4. sætinu en hafa betri markatölu.
Þá eru þær 4 stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu, sem Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sigraði í síðustu umferð 3-1 á Kópavogsvelli. Frábær frammistaða sem þær ætla vafalaust að byggja ofan á í þessum leik.
Það er þó spurning hvort einhver þreyta sitji í Stjörnukonum en þær töpuðu naumlega 2-1 gegn Grindavík/Njarðvík í hörku framlengdum leik í Grindavík sl. fimmtud. Það getur heldur betur tekið á þreyttar lappir að spila 120 mínútur á grasvelli.
En það breytir því ekki að hér erum við komin í Bestu deildina og þrjú stig í pokann getur skipt sköpum í toppbaráttunni!

9. umferðin
Þrír leikir eru spilaðir í dag, tveir klukkan 18:00 og svo þessi leikur klukkan 19:15. Umferðin klárast svo á morgun með tveimur leikjum klukkan 19:15.
9. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
18:00 Þór/KA - Þróttur
18:00 ÍBV - Breiðablik
19:15 Stjarnan - Fram
Á morgun:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Víkingur
19:15 FH - Valur
9. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
18:00 Þór/KA - Þróttur
18:00 ÍBV - Breiðablik
19:15 Stjarnan - Fram
Á morgun:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Víkingur
19:15 FH - Valur

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Bergrós Lilja Unudóttir og henni til halds og trausts verða Eydís Ragnarsdóttir og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður í dag er Þorsteinn Ólafs.
Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður í dag er Þorsteinn Ólafs.

Byrjunarlið:
24. Ashley Brown Orkus (m)
7. Alda Ólafsdóttir
('84)
('84)
10. Una Rós Unnarsdóttir
('84)
('84)
11. Brookelynn Paige Entz
14. Hildur María Jónasdóttir (f)
18. Júlía Margrét Ingadóttir
('73)
('73)
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
20. Freyja Dís Hreinsdóttir
('46)
('46)
23. Isabelle Rose Gilmore
32. Taylor Marie Hamlett
36. Harpa Helgadóttir
- Meðalaldur 23 ár
Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
2. Hanna Faith Victoriudóttir
('84)
('84)
8. Karítas María Arnardóttir
('84)
('84)
16. María Kristín Magnúsdóttir
17. Katrín S. Vilhjálmsdóttir
('46)
('46)
22. Halla Helgadóttir
25. Kristín Magdalena Barboza
26. Sylvía Birgisdóttir
('73)
('73)
27. Eyrún Björg Benediktsdóttir
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Anton Ingi Rúnarsson (Þ)
Arna Diljá Guðmundsdóttir (AÞ)
Stefán Óli Hallgrímsson (MÞ)
Petra Rós Ólafsdóttir (Liðsstj.)
Benjamín Þór Benjamínsson (Sjúkraþj.)
Hilmir Kristjánsson (Sjúkraþj.)
Svanhvít Valtýsdóttir (Liðsstj.)
Gul spjöld:
Hildur María Jónasdóttir ('78)
Rauð spjöld: