Í BEINNI
Besta karla
Breiðablik
LL
1
4
4
Víkingur R.

Breiðablik
1
4
Víkingur R.

0-1
Helgi Guðjónsson
'8
0-2
Aron Elís Þrándarson
'63
0-3
Gylfi Þór Sigurðsson
'69
, víti
0-4
Helgi Guðjónsson
'75
Arnar Bjarki Gunnleifsson
'79
1-4
25.06.2026 - 19:15
Kópavogsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Hliðarvindur og grátt yfir
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1375
Kópavogsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Hliðarvindur og grátt yfir
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1375
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
6. Arnór Gauti Jónsson
8. Viktor Karl Einarsson (f)
('66)
('66)
9. Óli Valur Ómarsson
('81)
('81)
11. Aron Bjarnason
('72)
('72)
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
('72)
('72)
19. Kristinn Jónsson
('66)
('66)
21. Viktor Örn Margeirsson
29. Gabríel Snær Hallsson
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m)
7. Höskuldur Gunnlaugsson
('66)
('66)
16. Dagur Örn Fjeldsted
('72)
('72)
18. Davíð Ingvarsson
22. Jónatan Guðni Arnarsson
('72)
('72)
23. Kristófer Ingi Kristinsson
30. Andri Rafn Yeoman
('66)
('66)
32. Kristinn Narfi Björgvinsson
('81)
('81)
45. Þór Andersen Willumsson
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Jóhanna Björk Gylfadóttir (Sjúkraþj.)
Jón Guðni Fjóluson (AÞ)
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.)
Dagur Elís Gíslason (Liðsstj.)
Haraldur Björnsson (MÞ)
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.)
Emil Pálsson (AÞ)
Gul spjöld:
Aron Bjarnason ('38)
Gabríel Snær Hallsson ('59)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sannfærandi sigur Víkings staðreynd
Víkingar mun sterkara liðið hér í dag og uppskera eftir því. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
79. mín
Jói Bjarna í góðu færi!
Valdimar með sendingu fyrir mark Blika en Jói hittir ekki boltann nægilega vel og boltinn framhjá marki heimamanna.
79. mín
MARK!
MARK!Arnar Bjarki Gunnleifsson (Breiðablik)
Stoðsending: Óli Valur Ómarsson
Stoðsending: Óli Valur Ómarsson
Arnar skorar annan leikinn í röð!
Klórar í bakkann!
Óli Valur með háan bolta inn á teiginn beint á Arnar sem setur boltann í netið af stuttu færi.
Arnar skoraði í síðustu umferð gegn KA og varð þar með næst yngsti leikmaður til þess að skora í efstu deild. Hann er 15 ára og sjö mánaða.

75. mín
MARK!
MARK!Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Óskar Borgþórsson
Stoðsending: Óskar Borgþórsson
ÞEIR BÆTA BARA VIÐ!
Óskar með frábæra takta úti á vinstri kanti kemur boltanum á Helga í teignum. Hann gerir það sem hann gerir best og setur boltann í netið.
72. mín
Inn:Jónatan Guðni Arnarsson (Breiðablik)
Út:Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
69. mín
Mark úr víti!
Mark úr víti!Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
SVELLKALDUR!
Setur hann bara beint í miðjuna! Anton Ari búinn að skutla sér.
68. mín
VÍKINGAR FÁ VÍTASPYRNU!
Elías við það að hlaða í skot í teignum en þá brýtur Arnór á honum. Hárréttur dómur að mínu mati.
66. mín
Inn:Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Út:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Fyrirliðinn kemur inn.
65. mín
Inn:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.)
Út:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Rétt náði að skora!
Skorar og er samstundis tekinn af velli. Ármann Ingi fer út á kant og Valdimar dregur sig innar.
63. mín
MARK!
MARK!Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
TVÖFALDAR FORYSTUNA!
Karl Friðleifur á fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og á Aron Elís sem er á fjærsvæðinu og klárar frábærlega!
60. mín
Gult spjald: Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
Gult spjald: Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
Brýtur af sér í skyndisókn Blika.
59. mín
Gult spjald: Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.)
Gult spjald: Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.)
Fer í bókina fyrir viðbrögð sín eftir brot Gabríels.
59. mín
Gult spjald: Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik)
Gult spjald: Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik)
Gabríel Snær og Gylfi skella saman. Úr verður einhver minniháttar kýtingur en allir fljótir að sættast.
55. mín
Gylfi með stórhættulegan bolta úr hornspyrnunni en Valdimar hittir boltann furðulega og boltinn framhjá marki Blika.
54. mín
Víkingar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, Gylfi tekur en boltinn fer ekki yfir fyrsta varnarmann. Víkingar fá hornspyrnu.
52. mín
Danni Hafsteins með skot að marki Blika en er í litlu jafnvægi og Anton Ari ver örugglega.
48. mín
Gestirnir ógna
Víkingur fær hornspyrnu, boltinn á Elías Má sem hittir boltann ekki nægilega vel. Víkingar eiga svo aðra tilraun sem fer rétt framhjá marki Blika.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur
+2
Ívar Orri flautar til hálfleiks. Ekki tíðindamesti fyrri hálfleikur seinni ára en Víkingar leiða sanngjarnt. Blikar í maður á mann pressu sem hefur ekki gengið sem skyldi.
Ívar Orri flautar til hálfleiks. Ekki tíðindamesti fyrri hálfleikur seinni ára en Víkingar leiða sanngjarnt. Blikar í maður á mann pressu sem hefur ekki gengið sem skyldi.
43. mín
Blikar að ógna marki Víkings. Óli Valur með stórhættulega fyrirgjöf sem Aron Snær hittir ekki og beint í hausinn á Arnari Bjarka og þaðan frá marki Víkings. Hefði Arnar farið niður hefði verið möguleiki á að fá vítaspyrnu.
39. mín
Helgi með skot á mark Breiðabliks eftir góðan undirbúning Valdimars en Anton Ari ver örugglega.
33. mín
Víkingar í góðri sókn sem endar á tilraun Óskars sem fer framhjá marki heimamanna.
29. mín
Frábært færi!
Víkingar fá hornspyrnu. Gylfi smellir boltanum beint á pönnuna á Sveini Gísla sem stangar boltann yfir af stuttu færi. Sveinn eflaust svekktur með sjálfan sig þarna!
26. mín
Blikar láta vaða!
Góður undirbúningur frá Aroni Bjarnasyni sem gefur á Gabríel Snæ. Hann á fast skot beint á mark Víkings. Aron Snær ver en á í nokkrum vandræðum með að halda boltanum en bjargar þessu fyrir rest.
19. mín
Skemmtilegar myndir frá Hauki Gunnarssyni af því þegar Helgi skoraði fyrsta mark leiksins

18. mín
KIDDI JÓNS!
Þrumufleygur af 25 metrunum!
Kristinn Jónsson lætur vaða frá vinstri kanti, boltinn stefnir í bláhornið en Aron Snær ver meistaralega!
Kristinn Jónsson lætur vaða frá vinstri kanti, boltinn stefnir í bláhornið en Aron Snær ver meistaralega!
14. mín
Víkingar í góðu færi!
Hættuleg fyrirgjöf á Valdimar sem lætur vaða á markið við vítapunkt en skotið í Elías Má og rangstaða dæmd!
12. mín
Þetta er akkúrat öfugt við það hvernig opnunarleikurinn fór af stað. Þá leiddu Blikar eftir örfáar mínútur og enduðu leikar 1-1. Fróðlegt að sjá hvernig þessi leikur mun þróast.
8. mín
MARK!
MARK!Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Aron Elís Þrándarson
Stoðsending: Aron Elís Þrándarson
HELGI BRÝTUR ÍSINN!
Þetta er svo gott fótboltalið!
Aron Elís og Óskar spila vel á millli sín, Aron keyrir upp völlinn. Á eitraða sendingu á fjarsvæðið, þar er Helgi Guðjónsson sem klárar huggulega á lofti út við stöng.
Aron Elís og Óskar spila vel á millli sín, Aron keyrir upp völlinn. Á eitraða sendingu á fjarsvæðið, þar er Helgi Guðjónsson sem klárar huggulega á lofti út við stöng.

8. mín
Fyrsta marktilraunin!
Óskar Borgþórs með góða takta úti á hægri kanti, sker inn á vinstri og lætur vaða en skotið framhjá.
3. mín
Blikar fá fyrstu hornspyrnu leiksins. Boltinn á fjærsvæðið og Karl Friðleifur skallar í aðra hornspyrnu. Ekkert kemur úr seinni hornspyrnu Blika.
Fyrir leik
Víkingar eru það fáránlega góðir að -1 og -1,25 eru bæði mjög góð veðmál á Epic á stuðlunum 1,67 og 1,87. Sé Blika í sínum meiðslavandræðum og leikbönnum ekki eiga möguleika.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) June 25, 2026
Fyrir leik
Gæðastjórinn mættur
Hinn sívinsæli gæðastjóri er mættur á völlinn og hefur fengið líkamsræktarfrömuðinn Guðmund Emil sér til liðs. Þeir ná eflaust að kokka upp skemmtilegt innslag saman.

Fyrir leik
Sól og blíða hér í Kópavogi, fólk tyllir sér fyrir aftan stúkuna og gæðir sér á veitingum.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á sínu liði frá 3-1 sigri gegn KA í síðustu umferð.
Liðin skildu jöfn að í fyrstu umferð og þá voru Blikar í þriggja hafsenta varnarlínu. Hafsentinn Ívar Örn Árnason er þó í banni í dag og kemur bakvörðurinn Kristinn Jónsson inn í hans stað.
Höskuldur Gunnlaugsson, Kristófer Ingi Kristinsson og Davíð Ingvarsson eru að koma til baka eftir meiðsli og eru á varamannabekk Blika.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, heldur liði sínu óbreyttu frá 5-0 stórsigri á Fram í síðustu umferð.
Erlingur Agnarsson er utan hóps sem og Gunnar Vatnhamar sem er að koma til baka eftir meiðsli.

Tilhlökkun í Óla
„Þetta er mikil áskorun, þeir eru búnir að vinna hvern einasta leik síðan við mættum þeim í 1. umferð, verið alveg hrikalega solid. Þeir hafa fengið á sig fá mörk, skorað mikið af mörkum, eru í góðum takti. Þetta er ærið verkefnið en það er tilhlökkun og það verður gaman að fá þá á Kópavogsvöll í tvo leiki í röð. Það er bara veisla," sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, í samtali við Fótbolta.net í gær.
Fyrir leik
Sér ekkert annað en Víkingssigur
Daníel Freyr Kristjánsson, nýr leikmaður Lyngby í Danmörku, er spámaður umferðarinnar.
Breiðablik 1 - 3 Víkingur R.
Sé bara ekkert annað en sigur hjá Víkingum miðað við hvernig þeir eru í augnablikinu. Águst Orri skorar úr misheppnaðri innisendingu.
Breiðablik 1 - 3 Víkingur R.
Sé bara ekkert annað en sigur hjá Víkingum miðað við hvernig þeir eru í augnablikinu. Águst Orri skorar úr misheppnaðri innisendingu.

Fyrir leik
Farið yfir ríginn góða
Það eru fá einvígi í íslenskum fótbolta sem hafa skapað jafn mikla spennu og umræðu og viðureignir Breiðabliks og Víkings undanfarin ár.
Fótbolti.net ræddi við Baldur Sigurðsson og Gunnlaug Jónsson um söguna milli þessara liða og leikina sem framundan eru. Pistillinn birtist í gær á áskriftarvef Fótbolti.net, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Mætast aftur á sunnudag
Ekki nóg með að etja kappi í deildinni í kvöld þá munu liðin jafnframt mætast aftur á sunnudaginn í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
Upphaflega átti bikarleikurinn að fara fram í dag en Rúv fékk að víxla leikjunum við Sýn vegna heimsmeistaramótsins.
Stjarnan og KR mættust í deild og bikar með skömmu millibili fyrr í sumar. KR vann þá dramatískan sigur í deildinni en Stjarnan vann bikarleikinn.
Spennandi verður að sjá hvernig Víkingur og Breiðablik munu mæta til leiks í þessum tveimur leikjum sem fara fram með þriggja daga millibili.

Ívar Orri með flautuna
Ívar Orri Kristjánsson verður með flautuna í leik kvöldsins. Honum til halds og trausts á sitthvorri hliðarlínunni verða þeir Birkir Sigurðarson og Guðmundur Ingi Bjarnason.
Jóhann Ingi Jónsson er fjórði dómari. Eftirlitsmaður er enginn annar en Kristinn Jakobsson.
Jóhann Ingi Jónsson er fjórði dómari. Eftirlitsmaður er enginn annar en Kristinn Jakobsson.

Fyrir leik
Ívar Örn í banni
Ívar Örn Árnason, varnarmaður Breiðabliks, verður ekki með í kvöld vegna leikbanns. Hann fékk sitt fjórða gula spjald á tímabilinu gegn KA.
Ívar var hluti af þéttri varnarlínu með Ásgeiri Helga Orrasyni og Viktori Erni Margeirssyni gegn Víkingi í fyrstu umferðinni.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var spurður í viðtali í gær hvort að það verði mikil breyting á upplegginu frá fyrsta leik í deildinni.
„Ég ætla að gefa mér það leyfi að vera ekkert að ræða það of mikið svona deginum fyrir leik. Við erum auðvitað búnir að teikna upp leikplan sem við viljum framkvæma á morgun. Það verður að koma í ljós hvernig það verður."

Víkingar óstöðvandi
Liðin mættust í opnunarleik Bestu deildarinnar þetta árið og enduðu leikar 1-1. Síðan þá hafa Víkingar stigið á bensíngjöfina og ekkert gefið eftir, unnið alla sína leiki eftir fyrstu umferð.
Víkingur er nú með sex stiga forystu á toppi deildarinnar. Sömu sögu er ekki hægt að segja um Breiðablik sem hafa átt sveiflukenndar frammistöður.
Þeir grænklæddu eru í 4. sæti deildarinnar með 19 stig, heilum fimmtán stigum á eftir Víkingum.

29. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
4. Oliver Ekroth (f)
('73)
('73)
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
('66)
('66)
19. Óskar Borgþórsson
21. Aron Elís Þrándarson
('65)
('65)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson
('73)
- Meðalaldur 28 ár
('73)
Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m)
8. Viktor Örlygur Andrason
('73)
('73)
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason
20. Tarik Ibrahimagic
('66)
('66)
23. Nikolaj Hansen
('73)
('73)
24. Davíð Örn Atlason
53. Þorri Ingólfsson
69. Ármann Ingi Finnbogason
('65)
- Meðalaldur 26 ár
('65)
Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Styrktarþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)
Gul spjöld:
Sveinn Gísli Þorkelsson ('59)
Karl Friðleifur Gunnarsson ('60)
Óskar Borgþórsson ('93)
Rauð spjöld: