Lacroix til Chelsea - Nmecha á óskalista Newcastle - Tilboði Arsenal í Guimaraes hafnað - Araujo til Man Utd?
Dalvík/Reynir
1
0
KFA
Áki Sölvason '94 1-0
27.06.2026  -  14:00
Dalvíkurvöllur
2. deild karla
Dómari: Sveinn Arnarsson
Byrjunarlið:
1. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
5. Miguel Joao De Freitas Goncalves
6. Þröstur Mikael Jónasson (f)
7. Freyr Jónsson ('83)
8. Rúnar Helgi Björnsson
17. Gunnlaugur Rafn Ingvarsson
19. Áki Sölvason
30. Máni Dalstein Ingimarsson
45. Elvar Máni Guðmundsson ('83)
76. Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa ('58)
77. Atli Þór Sindrason ('68)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
24. Einar Ari Ármannsson (m)
3. Hákon Atli Aðalsteinsson ('83)
9. Hektor Bergmann Garðarsson ('68)
10. Sindri Sigurðarson ('58)
23. Hjörtur Freyr Ævarsson
80. Gabriel Lukas Freitas Meira ('83)
14. Almar Örn Róbertsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Hörður Snævar Jónsson (Þ)
Óskar Bragason (AÞ)

Gul spjöld:
Gunnlaugur Rafn Ingvarsson ('47)
Freyr Jónsson ('54)
Þröstur Mikael Jónasson ('57)
Elvar Máni Guðmundsson ('83)
Miguel Joao De Freitas Goncalves ('85)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Alls ekki verðskuldaður sigur að mínu mati.

Fimmti sigur Dalvíkur/Reynis staðreynd!
94. mín MARK!
Áki Sölvason (Dalvík/Reynir)
Beint úr horni!!!!! Jahérna hér!!!!!

Dramatík, maður lifandi!

Boltinn skoppar inn á markteignum og endar í fjærhorninu.
93. mín
Heimamenn fá horn.
91. mín
Færi Besta sókn heimamanna í leiknum held ég. Sindri kemur sér í gott skotfæri en mér sýnist það vera Eggert sem nær að koma sér fyrir það inn á teignum.
90. mín
Dauðafæri Eggert Gunnþór í dauðafæri en Þröstur Mikael Jónasson nær að henda sér fyrir skotið og ekkert kemur svo úr horninu. Þarna var séns fyrir gestina.
89. mín
KFA fær aukaspyrnu á hættulegum stað.

Patrekur Aron Grétarsson með fast skot en beint á Auðunn.
87. mín
Loksins tilraun á mark Fyrsta tilraun Dalvíkinga á mark gestanna. Sindri með mjög fínt skot sem Danny El-Hage ver vel og hendir sér svo á lausa boltann.
85. mín Gult spjald: Miguel Joao De Freitas Goncalves (Dalvík/Reynir)
Held þetta hafi verið á Miguel.
83. mín
Inn:Gabriel Lukas Freitas Meira (Dalvík/Reynir) Út:Elvar Máni Guðmundsson (Dalvík/Reynir)
83. mín
Inn:Hákon Atli Aðalsteinsson (Dalvík/Reynir) Út:Freyr Jónsson (Dalvík/Reynir)
83. mín Gult spjald: Elvar Máni Guðmundsson (Dalvík/Reynir)
Fyrir að láta Bissi heyra það. Sjöunda gula í seinni.
81. mín
Eggert kemur inn í fremstu línu. Þór Sigurjónsson fer í bakvörðinn.
79. mín
Inn:Eggert Gunnþór Jónsson (KFA) Út:Geir Sigurbjörn Ómarsson (KFA)
79. mín Gult spjald: Þór Sigurjónsson (KFA)
Fer of hátt með fótinn og er brotlegur.
77. mín Gult spjald: Jawed Abd El Resak Boumeddane (KFA)
76. mín
Held að við séum að fara fá þjálfarann Eggert Gunnþór inn á. Hörður Snævar heldur sig utan vallar.
75. mín
Jawed Abd El Resak Boumeddane með flotta takta og vinnur svo aukaspyrnu.
70. mín
Danny El-Hage slær boltann frá undir pressu, boltinn fer ekki langt og Sindri lætur vaða úr teignum en skotið ekki nógu gott og fer hátt yfir.
69. mín
Hektor strax í séns en vel varist hjá KFA. Undirbúningur frá Áka.

Heimamenn fá horn.
68. mín
Inn:Hektor Bergmann Garðarsson (Dalvík/Reynir) Út:Atli Þór Sindrason (Dalvík/Reynir)
68. mín Gult spjald: Simon Maas (KFA)
Stöðvaði flottan sprett hjá Sindra.
66. mín
Gestirnir fá horn, þeir eru ofan á í leiknum.

Fá nú aukaspyrnu á vinstri kantinum.
58. mín
Inn:Sindri Sigurðarson (Dalvík/Reynir) Út:Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa (Dalvík/Reynir)
57. mín Gult spjald: Þröstur Mikael Jónasson (Dalvík/Reynir)
Fyrir mótmæli.

Of mikil orka að fara í dómarann.
55. mín
Skalli úr þröngu færi sem Auðunn handsamar.

Dalvíkingar svo mjög ósáttir að ekkert var dæmt þegar Auðunn var truflaður við útsparkið sitt.
54. mín Gult spjald: Freyr Jónsson (Dalvík/Reynir)
Báðir miðjumenn heimamanna komnir með spjald.
52. mín
Skot fyrir utan teig frá gestunum sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.

Dalvíkingar ná svo að hreinsa.
51. mín
Jawed Abd El Resak Boumeddane með fast skot hægra megin úr teignum, skotið meðfram jörðinni og Auðunn í marki heimamanna ver það með fætinum.
49. mín
Dalvíkingar óheppnir að fá ekki aðra hornspyrnu, Danny El-Hage í marki gestanna í brasi þarna.
48. mín
Rúnar Helgi Björnsson með skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir. Heimamenn fá fyrsta horn hálfleiksins.
47. mín Gult spjald: Gunnlaugur Rafn Ingvarsson (Dalvík/Reynir)
Virðist renna og fer klaufalega í leikmann gestanna.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Gestirnir byrja með boltann í seinni hálfleik. Heimamenn spila með vindinum í seinni.
45. mín
Hálfleikur
Nokkuð rólegum fyrri hálfleik lokið.
44. mín
Geir Sigurbjörn Ómarsson með fasta fyrirgjöf sem fer í samherja og þaðan í hendurnar á Auðuni í marki heimamanna.
42. mín Gult spjald: Geir Sigurbjörn Ómarsson (KFA)
Fyrsta gula spjald leiksins, brot út við hliðarlínu.
42. mín
Frábær sending inn fyrir frá Brynjari í vörn KFA. Auðunn hefði kannski átt að fara út í lausa boltann en þess í stað ver hann mjög vel frá Þór Sigurjónssyni sem var í mjög góðu færi.
32. mín
Elvar Máni með tilraun sem fer framhjá marki KFA, alls ekki galið.
31. mín
Þór Sigurjónsson með gott skot sem Auðunn ver vel í horn, þurfti að hafa fyrir þessari vörslu. KFA er að spila betur.
25. mín
Frábær varsla Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa með skot úr aukaspyrnu sem markvörður KFA, Danny El-Hage, ver frábærlega!
19. mín
Þröstur Mikael tapar boltanum mjög klaufalega í eigin vítateig, gestirnir fá gott færi en Auðunn ver skotið og heldur boltanum.
13. mín
Gestirnir vilja víti Aukaspyrna inn á teig heimamanna sem fer í varnarmann við mjöðm og gestirnir vilja hendi-víti. Ég sá þetta ekki nógu vel.
8. mín
Dalvík unnið fjóra í röð Dalvík/Reynir er á miklu skriði, liðið hefur unnið fjóra leiki í röð. KFA er hins vegar án sigurs í þremur leikjum.

Heimamenn eru sem stendur í 2. sæti deildarinnar en gestirnir sitja í 10. sætinu með sex stigum minna.
5. mín
KFA spilar með golu í fyrri hálfleik.
2. mín
Dalvíkingar vilja víti en rangstaða dæmd.
1. mín
Leikur hafinn
Byrjunarlið:
1. Danny El-Hage (m)
2. Matheus Bissi Da Silva
3. Geir Sigurbjörn Ómarsson (f) ('79)
8. Simon Maas
10. Jawed Abd El Resak Boumeddane
11. Ólafur Bernharð Hallgrímsson
14. Þór Sigurjónsson
19. Javier Montserrat Munoz
22. Patrekur Aron Grétarsson
5. Brynjar Valur Birgisson
24. Ísak Eldur Ófeigsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Einar Andri Bergmannsson (m)
18. Arnór Berg Grétarsson
29. Óðinn Þór Helgason
4. Gabríel Máni Sævarsson
21. Kifah Moussa Mourad
23. Eggert Gunnþór Jónsson ('79)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Sverrir Þór Kristinsson
Arnar Freyr Pétursson

Gul spjöld:
Geir Sigurbjörn Ómarsson ('42)
Simon Maas ('68)
Jawed Abd El Resak Boumeddane ('77)
Þór Sigurjónsson ('79)

Rauð spjöld: