Kane skrifar undir nýjan samning við Bayern - City blandar sér í baráttuna um Tonali - AC Milan undirbýr tilboð í Mount
Fílabeinsströndin
1
2
Noregur
0-1 Antonio Nusa '39
Amad Diallo '74 1-1
1-2 Erling Haaland '86
30.06.2026  -  17:00
Dallas
HM 2026
Dómari: Jesus Valenzuela (Venesúela)
Byrjunarlið:
1. Yahia Fofana (m)
3. Ghislain Konan ('90)
7. Odilon Kossounou
8. Franck Kessie
9. Ange-Yoan Bonny ('60)
11. Yan Diomande ('90)
17. Guela Doue
18. Ibrahim Sangare
19. Nicolas Pepe ('87)
20. Emmanuel Agbadou
26. Christ Inao Oulai ('60)

Varamenn:
12. Elye Wahi ('60)
14. Oumar Diakite ('87)
15. Amad Diallo ('60)
22. Evann Guessand ('90)
24. Bazoumane Toure ('90)

Liðsstjórn:
Emerse Faé (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+8 NOREGUR MUN MÆTA BRASILÍU Í 16-LIÐA ÚRSLITUM.

Fílabeinsströndin fékk hornspyrnu í blálokin og Fofana markvörður kom fram. Hættuleg hornspyrna en Fílabeinsströndin náði ekki marktilraun.
90. mín
+6 - VÁÁÁÁÁÁÁ!!!! ÞVÍLÍK AUKASPYRNA FRÁ AMAD DIALLO! ÖRJAN NYLAND MEÐ GEGGJAÐA VÖRSLU! Þetta var rosalegt. Fílabeinsströndin svo nálægt því að jafna hér í blálokin.
90. mín
Inn:Bazoumane Toure (Fílabeinsströndin) Út:Yan Diomande (Fílabeinsströndin)
90. mín
Inn:Evann Guessand (Fílabeinsströndin) Út:Ghislain Konan (Fílabeinsströndin)
90. mín
+2 Fílabeinsströndin að ógna, Nyland nær að blægja boltanum frá.
90. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti 7 mínútur Ég endurtek: 7 mínútur - Nóg eftir.
89. mín
Við höfum fengið fullt af mörkum í viðbótartíma að undanförnu! Það getur allt gerst.
87. mín
Inn:Oumar Diakite (Fílabeinsströndin) Út:Nicolas Pepe (Fílabeinsströndin)
86. mín MARK!
Erling Haaland (Noregur)
Stoðsending: Patrick Berg
HANN SKORAR ALLTAF! Patrick Berg með frábært hlaup og lága fyrirgjöf sem Haaland stýrir í markið. Hann hefur skorað 60 mörk í 53 landsleikjum. Alveg biluð tölfræði.
83. mín
Inn:Fredrik Aursnes (Noregur) Út:Marcus Holmgren Pedersen (Noregur)
82. mín
Leikurinn stopp því Amad Diallo þarf aðhlynningu.
78. mín
Pepe fellur í teignum en þetta var ekki nægilega mikið til að Valenzuela dómari frá Venesúela bendir á punktinn.
74. mín MARK!
Amad Diallo (Fílabeinsströndin)
Stoðsending: Nicolas Pepe
ÞÁ KEMUR JÖFNUNARMARKIÐ! Fílabeinsströndin fer illa með norsku vörnina! Amad Diallo og Pepe taka gott þríhyrningsspil, Amad fer framhjá varnarmanni í teignum og klárar vel. Hans annað mark á mótinu.

Mynd: EPA
74. mín
Höddi Magg og Kjartan Henry sem lýsa leiknum á RÚV 2 að tala um að Fílabeinsströndin hafi verið nánast bitlaus í þessum leik. Leikmenn eins og Diomande hafa verið langt frá sínu besta.
71. mín
Inn:Oscar Bobb (Noregur) Út:Alexander Sörloth (Noregur)
71. mín
Inn:Andreas Schjelderup (Noregur) Út:Antonio Nusa (Noregur)
70. mín
Seinni vatnspásan í gangi Frábær viðbót segja sumir
67. mín
Fílabeinsströndin bjargar á línu Torbjörn Heggem með tilraun en Fílabeinsströndin bjargar á línu. Heggem með skalla af stuttu færi en Amad Diallo nær að bjarga línu.
60. mín
Inn:Amad Diallo (Fílabeinsströndin) Út:Ange-Yoan Bonny (Fílabeinsströndin)
60. mín
Inn:Elye Wahi (Fílabeinsströndin) Út:Christ Inao Oulai (Fílabeinsströndin)
56. mín
Nicolas Pepe með skottilraun Í hörkugóðu færi en Nyland ver.
54. mín
Mjög róleg byrjun á seinni hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Mynd: EPA
45. mín
Hálfleikur
Norðmenn leiða í hálfleik eftir þetta glæsilega einstaklingsframtak Nusa +4
45. mín Gult spjald: Antonio Nusa (Noregur)
+1 Markaskorarinn fær spjald fyrir brot.
45. mín
Fjórar mínútur að minnsta kosti í uppbótartíma
44. mín
Tölfræðihorn Marktilraunir: 4-7

Á mark: 1-2
43. mín
Alexander Sörloth skallar framhjá eftir horn Norðmenn fara hamförum skyndilega!
42. mín
Haaland nálægt því að tvöfalda forystu Noregs Dauðafæri en Ibrahim Sangare nær að komast fyrir á ögurstundu og bjarga marki!
39. mín MARK!
Antonio Nusa (Noregur)
Stoðsending: Martin Ödegaard
Algjörlega frábært mark Nokkuð gegn gangi leiksins kemur þetta fallega skot frá Nusa sem setur boltann upp í fjærhornið. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru!

Mynd: EPA
38. mín
Erling Haaland með skalla Frekar laus og beint á Yahia Fofana. Ekki mikill kraftur.
35. mín
Emmanuel Agbadou með skot, hittir boltann illa og Nyland grípur af öryggi.
33. mín
Hörður Magnússon lýsir leiknum á RÚV 2 og talar um að orkustigið í Norðmönnum sé ekki sérstaklega hátt, þetta minni hann á þýska liðið í gær.
31. mín
Þetta hefur verið jafn leikur en lítið um færi. Vonandi fer að færast meira fjör í leika.
29. mín
Fílabeinsströndin fær hættulegt færi Nicolas Pepe í hættulegri stöðu, Kristoffer Ajer nær að koma boltanum afturfyrir í horn.
28. mín
Mynd: EPA

24. mín
Vatnspása
21. mín
Mynd: EPA

9. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins Nicolas Pepe að ógna. Torbjörn Heggem kemur boltanum í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað! - Leikur gegn Brössum í boði Jesus Valenzuela, dómari frá Venesúela, hefur flautað til leiks í Dallas. Fílabeinsströndin hóf leik. Sigurliðið í þessum leik mun mæta Brasilíu í 16-liða úrslitum á sunnudaginn.
Fyrir leik
Svona komst Noregur áfram:
Mynd: EPA

Noregur vann fyrstu tvo leiki sína, 4-1 gegn Írak og 3-2 gegn Senegal, og hvíldi leikmenn í lokaleiknum í riðlinum; 4-1 tapi gegn Frakklandi.
Fyrir leik
Spenna í Dallas
Mynd: EPA

Fyrir leik
Svona komst Fílabeinsströndin áfram: Liðið vann Ekvador 1-0, tapaði 2-1 gegn Þýskalandi en vann svo Curacao 2-0 og komst í fyrsta sinn áfram í útsláttarkeppni HM.

Mynd: EPA
Fyrir leik
Velkomin til leiks Noregur og Fílabeinsströndin eigast við í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Flautað verður til leiks klukkan 17:00 og er leikurinn í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.



Emerse Fae, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá 2-0 sigri gegn Curacao.



Inn í liðið koma þeir Ghislain Konan, Emmanuel Agbadou og
Christ Inao Oulai. Úr liðinu víkja þeir Ousmane Diomande, Christopher Operi og Amad Diallo.



Stale Solbakken, þjálfari Noregs, hvíldi helstu stjörnurnar gegn Frakklandi og gerði tíu breytingar fyrir þann leik.



Hann gerir sömuleiðis tíu breytingar í dag og eru helstu stjörnurnar mættar aftur. Patrick Berg eini leikmaðurinn sem heldur sæti sínu frá Frakkaleiknum.



Fílabeinsströndin: Fofana; Konan, Kossounou, Doue, Agbadou, Kessie, Sangare, Oulai, Bonny, Diomande, Pepe



Noregur: Nyland; Ajer, Heggem, Wolfe, Pedersen, Berge, Odegaard, Berg, Sorloth, Haaland, Nusa
Byrjunarlið:
1. Örjan Nyland (m)
3. Kristoffer Ajer
5. David Möller Wolfe
6. Patrick Berg
7. Alexander Sörloth ('71)
8. Sander Berge
9. Erling Haaland
10. Martin Ödegaard
16. Marcus Holmgren Pedersen ('83)
17. Torbjörn Heggem
20. Antonio Nusa ('71)

Varamenn:
14. Fredrik Aursnes ('83)
21. Andreas Schjelderup ('71)
22. Oscar Bobb ('71)

Liðsstjórn:
Ståle Solbakken (Þ)

Gul spjöld:
Antonio Nusa ('45)

Rauð spjöld: