Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 3
3
Völsungur
Besta karla
ÍBV
LL 1
0
Valur
Besta karla
ÍA
LL 1
2
Breiðablik
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
Vestri
EM U19 kvenna - Riðill B
Ísland
LL 3
4
Sviss
Leiknir R.
3
3
Völsungur
0-1 Gestur Aron Sörensson '12
Anton Fannar Kjartansson '45 1-1
1-2 Elfar Árni Aðalsteinsson '48
Gísli Alexander Ágústsson '67 2-2
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson '74 3-2
3-3 Tryggvi Grani Jóhannsson '92
04.07.2026  -  16:00
Leiknisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Anton Fannar Kjartansson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
3. Bogdan Bogdanovic
4. Marko Veselinovic ('70)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
10. Shkelzen Veseli
15. Rúrik Gunnarsson ('63)
19. Axel Freyr Harðarson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('80) ('80)
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('63)
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Ragnar Sveinn Guðmundsson (m)
6. Árni Elvar Árnason ('70)
8. Gísli Alexander Ágústsson ('63)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason ('63)
11. Aron Skúli Brynjarsson ('80)
16. Viktor Andri Pétursson ('80)
30. Axel Örn Kjartansson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Arion Aron Veselaj (Leikgr.)
Gísli Friðrik Hauksson (Liðsstj.)
Nemanja Pjevic (AÞ)
Loftur Páll Eiríksson (Styrktarþj.)
Ari Þór Kristinsson (MÞ)
Þórkatla María Halldórsdóttir (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Bogdan Bogdanovic ('53)
Marko Veselinovic ('70)
Árni Elvar Árnason ('89)
Gísli Alexander Ágústsson ('93)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Fjörugum leik lokið! Ég þakka fyrir mig, skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í dag.
93. mín Gult spjald: Gísli Alexander Ágústsson (Leiknir R.)
Stoppar skyndisókn
92. mín MARK!
Tryggvi Grani Jóhannsson (Völsungur)
Stoðsending: Xabier Cardenas Anorga
Senur á Leiknisvelli! Xabier kemst upp að endamörkum og kemur með fasta sendingu með jörðinni á Tryggva sem klárar vel.
90. mín
4 mín í uppbót
89. mín
Horn fyrir Völsung Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
89. mín Gult spjald: Árni Elvar Árnason (Leiknir R.)
Peysutog á miðjum velli
86. mín Gult spjald: Tryggvi Grani Jóhannsson (Völsungur)
Sparkar í Bogdan
85. mín
5 mínútur eftir Fáum við spennandi mínútur í lokin?
82. mín
Inn:Tryggvi Grani Jóhannsson (Völsungur) Út:Juan Guardia Hermida (Völsungur)
Sóknarsinnuð skipting
80. mín
Inn:Viktor Andri Pétursson (Leiknir R.) Út:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
80. mín
Inn:Aron Skúli Brynjarsson (Leiknir R.) Út:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
80. mín
HÆTTA! Leiknismenn að spila vel og það kemur baneitruð sending inn á teiginn sem enginn kemst í.
76. mín Gult spjald: Aron Bjarki Kristjánsson (Völsungur)
Peysutog
74. mín MARK!
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
Stoðsending: Anton Fannar Kjartansson
Þetta lá í loftinu! Anton með sniðuga sendingu á Dag Inga sem klárar vel í fjær.
72. mín
Tómas að verja vel! Axel í góðu færi en skýtur beint á markið og Tómas ver með fætinum.
70. mín
Inn:Árni Elvar Árnason (Leiknir R.) Út:Marko Veselinovic (Leiknir R.)
Marko meiddist við brotið
70. mín Gult spjald: Marko Veselinovic (Leiknir R.)
Of seinn í tæklinguna
69. mín
Axel! Axel kemst í gegn og tekur skot sem Tómas ver vel með fætinum.
67. mín MARK!
Gísli Alexander Ágústsson (Leiknir R.)
Annað mark beint úr horni! Gísli tekur spyrnuna og boltinn flýgur inn! Mér sýndist Xabier skalla boltann og í netið en boltinn var á leiðinni í markið. Ég skrái því markið á Gísla. Set stórt spurningamerki á markmanninn.
66. mín
Leiknismenn vinna horn
65. mín
Völsungar vilja víti! Elfar fellur við í teignum. Mér fannst lítið í þessu.
63. mín
Inn:Jóhann Kanfory Tjörvason (Leiknir R.) Út:Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.)
63. mín
Inn:Gísli Alexander Ágústsson (Leiknir R.) Út:Rúrik Gunnarsson (Leiknir R.)
58. mín
Inn:Davíð Leó Lund (Völsungur) Út:Gestur Aron Sörensson (Völsungur)
58. mín
Inn:Fernando Jimenez Arranz (Völsungur) Út:Andri V. Bergmann Steingrímsson (Völsungur)
55. mín
Annað horn fyrir Völsung Brot dæmt fyrir Leiknismenn eftir hornið.
54. mín
Horn fyrir Völsung Boltinn flýgur yfir allan pakkann og ekkert verður úr þessu.
53. mín Gult spjald: Bogdan Bogdanovic (Leiknir R.)
Traðkar ofan á leikmann
48. mín MARK!
Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
Stoðsending: Elmar Örn Guðmundsson
Alvöru kollspyrna! Elmar sendir háa fyrirgjöf inn á teiginn og Elfar Árni skallar boltann niður í jörðina og inn.

Völlarar leiða!
47. mín
Shkelzen að gera vel Shkelzen kemst í fínt skotfæri en skotið er langt framhjá.
46. mín
Leiknismenn byrja með boltann í seinni
46. mín
Inn:Tómas Bjarni Baldursson (Völsungur) Út:Jochum Magnússon (Völsungur)
Tómas Bjarni er að koma inn á í markið Jochum gat ekki haldið leik áfram. Þetta verður áhugavert.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks Leiknismenn sóttu svo sannarlega í sig veðrið eftir að hafa lent undir. Völsungar duttu aðeins niður um gír eftir að hafa komist yfir.
45. mín MARK!
Anton Fannar Kjartansson (Leiknir R.)
Allt jafnt á nýjan leik! Anton Fannar fær sendinguna, hann er óvaldaður við markmannsteiginn og þarf aðeins að pota boltanum í autt markið.

1-1!
45. mín Gult spjald: Elmar Örn Guðmundsson (Völsungur)
Of seinn í tæklingu
45. mín
7 mínútur í uppbót enda miklar tafir
39. mín
Einn á auðum sjó! Gestur í frábæru færi inni á teignum en skotið er framhjá.
37. mín
Leiknismenn að fá horn Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
34. mín
Hlaup og skot Bogdan tekur djúpt hlaup, fær boltann inni á teignum en skotið er yfir úr þröngu færi.
32. mín
Aukaspyrna fyrir Leikni á ágætum stað Rúrik tekur óvænt skot beint úr aukaspyrnunni en Jochum ver þægilega.
28. mín
DAUÐAFÆRI! Dagur gerir vel og kemst á milli tveggja manna inni á teignum en skotið er beint á Jochum í markinu.

Leiknismenn að banka.
25. mín
Jafn leikur Þrátt fyrir markið hafa þessar fyrstu 25 verið frekar jafnar. Bæði lið eru að spila vel og að skapa sér færi.
20. mín
Gott færi og horn Dagur Ingi í góðu færi inni á teignum en Jochum ver í horn. Ekkert verður úr horninu.
18. mín
Inn:Aron Bjarki Kristjánsson (Völsungur) Út:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur)
Steinþór hefur lokið leik
17. mín
Steinþór liggur eftir og fær aðhlynningu
15. mín
Gott spil og skot Shkelzen og Dagur spila vel saman, sóknin endar í ágætis skoti rétt fyrir utan teig sem Jochum ver.
12. mín MARK!
Gestur Aron Sörensson (Völsungur)
Mark beint úr horni! Gestur Aron skýtur úr hornspyrnunni, boltinn smellur í tréverkinu og inn. Óverjandi fyrir Ólaf í markinu.

Völsungur leiða!
11. mín
Völsungur að fá horn
8. mín
Þetta er komið aftur í gang
5. mín
Jochum situr eftir og fær aðhlynningu Þetta lítur ekki vel út þar sem það er ekki varamarkmaður á bekknum. Leikurinn er einnig stopp.
3. mín
Boltinn er í netinu en brot dæmt Daði finnur Dag inni á teignum og er við það að komast í boltann en Jochum er fyrri til og aukaspyrna dæmd.
2. mín
Völsungur fær fyrsta horn dagsins Boltinn kemur inn á teiginn en Ólafur kýlir frá.
1. mín
Völsungur byrjar með boltann
Fyrir leik
10 mín í leik Það er allt að verða klárt í Breiðholtinu og liðin halda til búningsherbergja.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn! Völsungur gerir eina breytingu á liði sínu eftir 2-2 jafntefli við Gróttu. Dagbjartur Búi Davíðsson er utan hóps í dag og í hans stað er Modoumatarr Mbye. Leiknir gerir tvær breytingar á liði sínu eftir frábæran 2-1 sigur á ÍR. Eiríkur Örn Beck og Kári Steinn Hlífarsson eru báðir utan hóps og inn fyrir þá koma Bogdan Bogdanovic og Þorsteinn Emil Jónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Bongó í Breiðholti! Veðrið er eins og best verður á kosið í Breiðholti í dag. Við megum búast við viðburðaríkum og spennandi leik!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna Liðin áttust við í 1. umferð og lauk þeim leik með 1-1 jafntefli á Húsavíkurvelli. 0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('15), 1-1 Tómas Bjarni Baldursson ('84).

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dómaratríóið Gunnar Oddur Hafliðason er aðaldómari í dag. Honum til aðstoðar eru Þráinn Jón Elmarsson og Mikael Ívan Axelsson. Eftirlitsmaður er Viðar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Völsungur Völsungur fékk Gróttu í heimsókn í síðustu umferð og gerðu liðin 2-2 jafntefli í fjörugum leik. Í 10. umferð heimsótti Völsungur ÍR í Breiðholti. Sá leikur var æsispennandi og skemmtilegur og endaði með 4-4 jafntefli. Völlarar sitja á botni deildarinnar með 7 stig eftir 11 umferðir og sárvantar stig. Þeim var spáð 12. sæti fyrir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiknir Leiknismenn fengu erkifjendur sína ÍR í heimsókn í síðustu umferð og unnu þann leik 2-1. Mörk Leiknis skoruðu þeir Þorsteinn Emil Jónsson og Shkelzen Veseli. Í 10. umferð héldu Leiknismenn til Njarðvíkur en töpuðu þar naumlega 1-0. Leiknismenn eru í 6. sæti eftir 11 umferðir og í harðri baráttu um umspilssæti. Vert er að hafa í huga að Leiknismönnum var spáð 9. sæti fyrir tímabilið.


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Leiknisvöllur heilsar! Verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Leiknisvelli í Breiðholti. Leikið verður kl. 16:00 og þetta er 12 umferð Lengjudeildar karla.

Mynd: Lengjudeildin

Byrjunarlið:
1. Jochum Magnússon (m) ('46)
4. Juan Guardia Hermida ('82)
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
11. Gestur Aron Sörensson ('58)
13. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('18)
14. Xabier Cardenas Anorga
18. Andri V. Bergmann Steingrímsson ('58)
21. Modoumatarr Mbye
23. Elmar Örn Guðmundsson
77. Indriði Ketilsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
3. Davíð Leó Lund ('58)
6. Höskuldur Ægir Jónsson
8. Fernando Jimenez Arranz ('58)
17. Aron Bjarki Kristjánsson ('18)
19. Tryggvi Grani Jóhannsson ('82)
91. Jón Helgi Brynjúlfsson
97. Tómas Bjarni Baldursson ('46)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Borja Martin Iglesias (Þ)
Róbert Ragnar Skarphéðinsson (Leikgr.)
Kristinn Jóhann Lund (Liðsstj.)
Harpa Steingrímsdóttir (Liðsstj.)
Sergio Parla Garcia (AÞ)
Magnús Sævar Þórðarson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Elmar Örn Guðmundsson ('45)
Aron Bjarki Kristjánsson ('76)
Tryggvi Grani Jóhannsson ('86)

Rauð spjöld: