Simeone vill Salah - Tottenham undirbýr tilboð í Kroupi - Liverpool og fleiri félög á eftir Mora
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Víkingur R.
LL 1
0
Györ
Fótbolti.net bikarinn
KFA
LL 3
2
Augnablik
Fótbolti.net bikarinn
Hamar
LL 1
2
Dalvík/Reynir
KFA
3
2
Augnablik
Kifah Moussa Mourad '2 , víti 1-0
Þór Sigurjónsson '60 2-0
2-1 Kormákur Pétur Ágústsson '68
2-2 Finnur Breki Finnsson '76
Nenni Þór Guðmundsson '79 3-2
07.07.2026  -  18:00
SÚN-völlurinn
Fótbolti.net bikarinn
Dómari: Sveinn Arnarsson
Byrjunarlið:
12. Milan Jelovac (m)
6. Birkir Ingi Óskarsson
8. Simon Maas
14. Þór Sigurjónsson ('66)
18. Arnór Berg Grétarsson
21. Kifah Moussa Mourad ('74)
22. Patrekur Aron Grétarsson (f)
23. Gabríel Máni Sævarsson ('74)
29. Óðinn Þór Helgason
30. Nenni Þór Guðmundsson
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Danny El-Hage (m)
2. Matheus Bissi Da Silva
5. Brynjar Valur Birgisson
10. Jawed Abd El Resak Boumeddane ('74)
11. Ólafur Bernharð Hallgrímsson ('74)
19. Javier Montserrat Munoz ('66)
24. Ísak Eldur Ófeigsson
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Eggert Gunnþór Jónsson (Þ)
Sverrir Þór Kristinsson (AÞ)
Kristinn Brynjarsson (Liðsstj.)
Marc Sirvent Espi (Leikmaður utan hóps)
Geir Sigurbjörn Ómarsson (Leikmaður utan hóps)

Gul spjöld:
Óðinn Þór Helgason ('29)
Arnór Berg Grétarsson ('58)
Javier Montserrat Munoz ('67)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+6 Heimamenn fara með sigur af hólmi í stórskemmtilegum leik og eru komnir i 8-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins.
90. mín
+4 Hvernig endar þessi ekki inni??? Jawed með flotta sendingu innfyrir á Óla Benna en fyrirgjöfin hans þvert fyrir markið ratar ekki á samherja.
90. mín
+2 KFA með svaka færi. Endar á því að Nenni setur þéttingsfast skot framhjá.
87. mín
Inn:Bjarni Harðarson (Augnablik) Út:Maríus Warén (Augnablik)
85. mín
Milan með glæsivörslu Brynjar Óli með neglu upp í skeytin en Milan ver glæsilega og meiðist í kjölfarið.
79. mín MARK!
Nenni Þór Guðmundsson (KFA)
Stoðsending: Jawed Abd El Resak Boumeddane
Þvílíkt samspil hjá Jawed og Nenna sem endar með því að nenni setur boltann á milli markmanns og varnarmanns og af varnarmanninum fer boltinn í markið.
76. mín MARK!
Finnur Breki Finnsson (Augnablik)
Hvað er Arnór Berg að spá? Hann er bara að dóla sér með boltann og við tökum ekkert af Finni sem pressaði hann vel en Jesús kristur hvað þetta var lélegt hjá Arnóri. Finnur tekur síðan boltann og setur hann framhjá Milan.
75. mín Gult spjald: Maríus Warén (Augnablik)
74. mín
Inn:Ólafur Bernharð Hallgrímsson (KFA) Út:Gabríel Máni Sævarsson (KFA)
74. mín
Inn:Jawed Abd El Resak Boumeddane (KFA) Út:Kifah Moussa Mourad (KFA)
73. mín
Javier maður! Indrit þarf að taka á honum stóra sínum þarna. Javier með glæsilegt skot sem Indrit kýlir yfir. Ekkert verður úr horninu samt.
72. mín
Inn:Finnur Breki Finnsson (Augnablik) Út:Kormákur Pétur Ágústsson (Augnablik)
71. mín
Var þetta víti? Javier með fyrirgjöf sem virðist stefna beint á Eggert en hann virðist fá hrindingu í bakið. Kannski víti, kannski ekki.
69. mín Gult spjald: Guðmundur Heiðar Björnsson (Augnablik)
Guðmundur alltof seinn í Patrek.
68. mín MARK!
Kormákur Pétur Ágústsson (Augnablik)
Stoðsending: Kristján Lúðvík Möller
Möller sýning Kristján Möller dansar framhjá tveimur eða þremur varnarmönnum KFA og leggur boltann á Kormák sem getur ekki klúðrað þessu og setur boltann í markið.
67. mín Gult spjald: Javier Montserrat Munoz (KFA)
Þetta tók hann ekki heila mínútu. Fiktar i boltanum eftir að Sveinn er búinn að flauta. Hárrétt.
66. mín
Inn:Javier Montserrat Munoz (KFA) Út:Þór Sigurjónsson (KFA)
65. mín
HANDAGANGUR Í ÖSKJUNNI Milan ver vel í tvígang. Augnablik með tvö fín færi með stuttu millibili en Milan ver mjög vel.
63. mín
Þvílíkur leikur Leikmenn tóku þessu áðan með að það væri ekkert að gerast persónulega. Boltinn fyrir teiginn á Maríus sem setur hann í netið en rangstæða flögguð.
62. mín
KIFAH NÆSTUM ÞVÍ 3-0 Kifah með skot rétt framhjá markinu. Heimamenn miklu betri þessa stundina.
60. mín MARK!
Þór Sigurjónsson (KFA)
Stoðsending: Nenni Þór Guðmundsson
Nenni kemst í gegnum vörn Augnabliks en Indrit ver skotið frá honum beint út í teiginn þar sem Þór er mættur fyrstur á boltann og setur hann í netið framhjá Indrit.

2-0 KFA
58. mín Gult spjald: Arnór Berg Grétarsson (KFA)
Hárréttur dómur. Alltof seinn í tæklinguna.
56. mín
Lítið að frétta Hvorugt lið að ná að skapa sér nein alvöru færi.
50. mín
Nenni allt í öllu Fær boltann rétt fyrir utan vítateig Augnabliks en skot hans fast og framhjá stönginni.
48. mín
Nenni með fyrirgjöf En framhjá öllum leikmönnum beggja liða. Þór og Eggert ekki ýkja langt frá þessu samt.
46. mín
Inn:Hákon Logi Arngrímsson (Augnablik) Út:Heiðar Ingi Isorena Þórðarson (Augnablik)
Heiðar varð fyrir einhverju hnjaski í fyrri hálfleik og getur ekki haldið leik áfram.
46. mín
Seinni hálfleikur af stað Gestirnir í Augnablik byrja seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn leiða 1-0 í hálfleik en bæði lið gætu verið búin að skora fleiri mörk.
45. mín
Já nei tek þetta til baka Kifah kemst einn í gegn á vinstri kantinum en Indrit ver frá honum.
45. mín
Hvorugt lið að ná að skapa sér þessa stundina Hálfleikurinn svolítið að fjara út.
41. mín
Maríus í skotfæri En skot hans langt framhjá og hátt yfir markið.
39. mín
Endalaust af hornum Það eru komin yfir 10 horn hérna í fyrri hálfleik en ekkert ennþá komið úr þeim.
31. mín Gult spjald: Kormákur Pétur Ágústsson (Augnablik)
Það rignir gulum spjöldum Alltof seinn og bombar Símon niður.
29. mín Gult spjald: Óðinn Þór Helgason (KFA)
Brot rétt fyrir utan teig Óðinn lendir á eftir og fer aftan í Augnablikann.
28. mín
Augnablik með horn Beint á Milan markmann.
27. mín
KFA með horn Það fer yfir allan pakkann og á Alekss sem hreinsar boltann frá.
24. mín
Nenni Þór - Stöngin út Darraðadans í teig Augnablika þar sem boltinn dettur fyrir Nenna sem á glæsilegt skot sem smellur í stönginni utanverðri.
20. mín
Fyrsta alvöru færi Augnabliks Maríus kemst í gegn eftir flott samspil Augnablika en skotið framhjá markinu.
16. mín
Balthasar í allskonar vandræðum Byrjar á frábærri tæklingu en missir síðan boltann kjánalega og Þór fljótur að hugsa og er á leið inn í teig þar sem Balthasar nær að bjarga andliti og tækla boltann í Þór og í markspyrnu.
12. mín
ÞÓR Í DAUÐAFÆRI Þór kemst í glæsilegt færi og virðist vera að gera allt rétt en skot hans með vinstri fer í slánna og yfir.
11. mín
Nenni með skot af 25 metrunum Heimamenn heilt yfir verið betri fyrstu mínúturnar. Nenni með flott skot í fjær sem Indrit ver vel.
9. mín
Allt brjálað á bekk Augnabliks Kristján L. Möller kemst í gegn og er að fara framhjá Milan þegar hann er flaggaður rangstæður. Get ekki betur séð en að þetta hafi verið rangur dómur svo reiðin á rétt á sér.
8. mín
Eggert með tryllta sendingu í gegn Óðinn tekur hlaupið á fullkomnum tíma en fær boltann í höndina þegar hann tekur á móti honum.
6. mín
Augnablik með horn KFA hreinsa frekar auðveldlega frá.
2. mín Mark úr víti!
Kifah Moussa Mourad (KFA)
Klaufalegt brot og Kifah tekur öruggt víti í hægra hornið þar sem Indi fer í vitlaust horn.
1. mín
VÍTI FYRIR KFA
1. mín
Fyrsta færi leiksins KFA kemst upp hægri vænginn eftir sendingu frá Eggerti á Þór á Þór sendingu inn fyrir á Nenna sem á skot framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn hefja leikinn
Fyrir leik
Síðustu leikir liðanna Bæði lið unnu síðustu leiki sína í deildunum. KFA tók Víking Ólafsvík í kennslustund á SÚN-vellinum þar sem Austfirðingar unnu öruggan 3-0 sigur.
Augnablik fór austur á Höfn hvar þeir unnu Sindra 0-1.
Fyrir leik
Staða liðanna í deildunum Þrátt fyrir að þetta sé bikarleikur er vert fyrir okkur að skoða stöðuna í deildum þessara liða. KFA er í 8. sæti 2. deildarinnar með 13 stig en Augnablik eru í sama sæti, því 8., í 3. deildinni og eru þar með 14 stig.
Fyrir leik
Kristalkúlan hefur talað
Fyrir leik
Flautuleikari kvöldsins Dómari þessa leiks er enginn annar en Skattasérfræðingurinn Sveinn Arnarsson, en Akureyringurinn er öllum hnútum kunnugur hér fyrir austan hvar hann dæmir stundum.
Fyrir leik
Leið liðanna hingað Bæði lið hafa spilað einn leik í keppninni fram að þessum leik. Augnablik mætti í Árbæinn og vann lið Elliða 1-3 þann 26. maí síðastliðinn og daginn eftir ferðuðust liðsmenn Árbæs frá Elliðaárdalnum alla leið austur þar sem heimamenn í KFA unnu 2-0 sigur á Árbæ.

Þannig má með sanni segja að hér séu á ferðinni tvö lið sem hafi slegið Árbæinn eins og hann leggur sig út úr keppninni
Fyrir leik
Gleðilegan leikdag! Góðan og gleðilegan leikdag kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá SÚN-vellinum í Neskaupstað, Fjarðabyggð, þar sem lið heimamanna í KFA mætir Augnablikum úr Kópavogi í 16-liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net.
Mynd: Guðlaugur Björn Birgisson

Byrjunarlið:
1. Indrit Hoti (m)
7. Henrik Hermannsson
8. Brynjar Óli Bjarnason (f)
10. Maríus Warén ('87)
11. Kormákur Pétur Ágústsson ('72)
15. Alekss Kotlevs
17. Bjarki Viðar Björnsson
19. Kristján Lúðvík Möller
20. Heiðar Ingi Isorena Þórðarson ('46)
21. Balthasar Nökkvi Salvamoser
25. Guðmundur Heiðar Björnsson
- Meðalaldur 20 ár

Varamenn:
12. Jakub Buraczewski (m)
2. Bjarni Harðarson ('87)
9. Finnur Breki Finnsson ('72)
14. Daði Snær Grétarsson
27. Hákon Logi Arngrímsson ('46)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Gabríel Þór Stefánsson (Þ)
Oliver Sigurjónsson (Þ)

Gul spjöld:
Kormákur Pétur Ágústsson ('31)
Guðmundur Heiðar Björnsson ('69)
Maríus Warén ('75)

Rauð spjöld: