Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Stjarnan
LL
3
1
1
Víkingur Götu
Besta kvenna
Fram
LL
3
2
2
Breiðablik
Besta kvenna
Þór/KA
LL
1
0
0
Gri/Nja
Besta kvenna
FH
LL
7
3
3
Þróttur R.
Besta kvenna
Víkingur R.
LL
1
3
3
ÍBV

FH
7
3
Þróttur R.

0-1
Alexia Marin Czerwien
'16
0-2
Alexia Marin Czerwien
'20
Ída Marín Hermannsdóttir
'31
1-2
Ída Marín Hermannsdóttir
'33
, misnotað víti
1-2
Ída Marín Hermannsdóttir
'33
2-2
Ída Marín Hermannsdóttir
'35
3-2
Ída Marín Hermannsdóttir
'47
4-2
Ída Marín Hermannsdóttir
'57
5-2
Deja Jaylyn Sandoval
'69
6-2
6-3
Þórdís Elva Ágústsdóttir
'81
Berglind Freyja Hlynsdóttir
'90
7-3
09.07.2026 - 19:15
Kaplakrikavöllur
Besta kvenna
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Kaplakrikavöllur
Besta kvenna
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
3. Anna Heiða Óskarsdóttir
5. Mackenzie Elyze Smith
8. Helena Maree Errington
('64)
('64)
10. Ída Marín Hermannsdóttir
('79)
('79)
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir
('79)
('79)
13. Deja Jaylyn Sandoval
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (f)
41. Ingibjörg Magnúsdóttir
('70)
('70)
42. Hafrún Birna Helgadóttir
('64)
- Meðalaldur 22 ár
('64)
Varamenn:
4. Vigdís Edda Friðriksdóttir
('79)
('79)
7. Nia Raisa Christopher
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir
('64)
('64)
12. Steinunn Erna Birkisdóttir
22. Hrönn Haraldsdóttir
('64)
('64)
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir
('70)
('70)
37. Jónína Linnet
39. Eva Marín Sæþórsdóttir
('79)
- Meðalaldur 20 ár
('79)
Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Guðni Eiríksson (Þ)
Harpa Finnsdóttir (Sjúkraþj.)
Valur Elli Valsson (Liðsstj.)
Arnar Sigþórsson (Leikgr.)
Dagur Óli Davíðsson (MÞ)
Brynjar Sigþórsson (AÞ)
Hjörtur Hinriksson (Styrktarþj.)
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Feykilega verðskuldaður FH sigur í dag eftir að Þróttarar komust í 0-2.
Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
90. mín
MARK!
MARK!Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH)
Stoðsending: Unnur Thorarensen Skúladóttir
Stoðsending: Unnur Thorarensen Skúladóttir
+3
Langur bolti fram í hlaupið fyrir Unni sem reykir Mist Funa á sprettinum, rennir honum fyrir markið á Berglindi sem skilar boltanum í opið markið.
Síðasti naglinn í kistuna!
Síðasti naglinn í kistuna!
90. mín
+2
Sæunn ekkert eðlilega nálægt því að setja boltann í eigið mark en má þakka Mollee í markinu fyrir að verja vel frá henni.
88. mín
Aukaspyrnan kemur inn á teiginn þar sem FH ná góðum skalla á markið en Mollee ver vel og FH fá horn.
87. mín
Gult spjald: Þórdís Nanna Ágústsdóttir (Þróttur R.)
Gult spjald: Þórdís Nanna Ágústsdóttir (Þróttur R.)
Togar í Unni sem er komin á ferðina.
86. mín
Mist Funa keyrir upp vinstri kantinn og reynir fyrirgjöf en hún er beint í fangið á Aldísi
83. mín
Aftur eru Þróttarar að sækja og nú er það Hekla Dögg sem virðist vera að sleppa í gegn en flaggið á loft.
81. mín
MARK!
MARK!Þórdís Elva Ágústsdóttir (Þróttur R.)
Stoðsending: Þórdís Nanna Ágústsdóttir
Stoðsending: Þórdís Nanna Ágústsdóttir
Þórdís Nanna gerir vel og ber boltann inn á völlinn. Þórdís Elva kemur í underlap, nafna hennar finnur hana inn fyrir og Þórdís Elva klárar vel undir Aldísi sem er komin út úr markinu
79. mín
Inn:Eva Marín Sæþórsdóttir (FH)
Út:Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Mætti eiginlega kalla þetta heiðursskiptingu
76. mín
Thelma Lóa gerir vel úti hægra megin, kemur sér inn á teiginn og ætlar að lauma skoti niðri í fjær en Mollee sér við henni.
74. mín
Birna Kristín setur hann í stöngina
Allt galopið í hjarta varnarinnar hjá Þrótturum og Birna Kristín fær boltann, ein á móti Mollee en setur hann í stöngina, líklega bara besta færi leiksins af mörgum góðum.
69. mín
MARK!
MARK!Deja Jaylyn Sandoval (FH)
FH fá horn sem Andrea tekur stutt. Hún fær boltann svo aftur og kemur honum fyrir, þar er stiginn darraðardans sem endar með því að boltinn dettur fyrir Sandoval og hún skilar honum í netið.
68. mín
Ída Marín á skot á markið frá hægri í teignum sem Mollee ver út í teiginn þar sem FH eru svo nálægt því að pikka upp seinni boltann en varnarmenn Þróttar ná að hreinsa í tæka tíð
64. mín
Hornspyrnan er góð inn á markteiginn en Mollee gerir vel í að koma út og Arnar Ingi dæmir sóknarbrot.
61. mín
Inn:Þórdís Nanna Ágústsdóttir (Þróttur R.)
Út:Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (Þróttur R.)
60. mín
Loksins kemur boltinn inn á teiginn úr FH horni og Deja er hársbreidd frá því að ná að stanga boltann inn en er aðeins of sein.
57. mín
MARK!
MARK!Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Stoðsending: Helena Maree Errington
Stoðsending: Helena Maree Errington
Sú er að fara illa með gestina
Ída fær boltann fyrir utan teig Þróttara og bíður eftir rétta augnablikinu til að losa hann. Helena á gott hlaup fram fyrir hana, fær boltann og losar hann svo á hárréttum tíma aftur út í teiginn á Ídu sem setur hann niðri í nær af stuttu færi.
53. mín
Thelma Lóa á harðaspretti upp hægri kantinn en ákveður að setja boltann fyrir markið, hefði bara átt að fara sjálf þarna. FH fær þó horn en þær búa ekki til neina hættu úr því.
50. mín
Sókn FH heldur áfram og boltinn berst út í teiginn þar sem Andrea Rán hleður í skot en það býr ekki til mikil vandræði fyrir Mollee.
50. mín
Hafrún keyrir á varnarmann Þróttar og kemur með góðan bolta á fjærstöngina en þar er enginn.
49. mín
Ingibjörg komin í fína skotstöðu hægra megin í teig Þróttara en tekur aðeins of margar snertingar og kemur skotinu ekki á markið.
47. mín
MARK!
MARK!Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Stoðsending: Thelma Lóa Hermannsdóttir
Stoðsending: Thelma Lóa Hermannsdóttir
Hún bætir bara við
Langur bolti úr vörninni finnur kollinn á Thelmu Lóu, hún flikkar honum aftur fyrir sig í hlaupið fyrir Ídu sem gerir allt rétt og klárar á milli fóta Mollee.
47. mín
Hafrún með fínan sprett upp vinstra megin áður en hún cutar inn á völlinn og lætur vaða en skotið er beint á Mollee
45. mín
Inn:Þórdís Elva Ágústsdóttir (Þróttur R.)
Út:Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (Þróttur R.)
Fyrirliðinn búin í dag.
45. mín
Hálfleikur
Þróttarar undirbúa skiptingu í hálfleiknum en Þórdís Elva Ágústsdóttir er að koma inn.
45. mín
Hálfleikur
Heimakonur leiða í hálfleik!
Mjög fjörugur fyrri hálfleikur að baki þar sem tæknin var aðeins að stríða okkur en það ætti að vera komið í lag. Vonandi meira fjör í þeim seinni!
41. mín
Ingibjörg með góðan sprett inn á teig Þróttara, tekur gabbhreyfingu út í teiginn og lætur vaða en Mollee í litlum vandræðum með vörsluna.
35. mín
MARK!
MARK!Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Stoðsending: Hafrún Birna Helgadóttir
Stoðsending: Hafrún Birna Helgadóttir
Þrenna á fjórum mínútum
Hafrún kemur á fleygiferð upp vinstri kantinn og á frábæra fyrirgjöf fá fjær þar sem Ída Marín tæklar boltann í netið.
33. mín
MARK!
MARK!Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Ída er fyrst á frákastið og skorar í annari tilraun
33. mín
Misnotað víti!
Misnotað víti!Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Mollee ver vítið en ver það beint fyrir lappirnar á ídu
31. mín
MARK!
MARK!Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Ída Marín minnkar muninn
Fær boltann inn fyrir í hlaupið og vippar honum huggulega yfir Mollee í markinu.
1-2!
1-2!
20. mín
MARK!
MARK!Alexia Marin Czerwien (Þróttur R.)
Stoðsending: Björg Gunnlaugsdóttir
Stoðsending: Björg Gunnlaugsdóttir
Þær tvöfalda. 0-2!
Björg Gunnlaugs kemur upp hægri kantinn og kemur boltanum fyrir markið. Unnur Dóra tekur frábært hlaup sem dregur athygli varnarmanna að henni, opnar svæði sem Alexia nýtir sér og kemur boltanum í netið!
16. mín
MARK!
MARK!Alexia Marin Czerwien (Þróttur R.)
Stoðsending: Sæunn Björnsdóttir
Stoðsending: Sæunn Björnsdóttir
0-1
Þróttur fær aukaspyrnu lengst úti á velli sem Sæunn tekur inn á teiginn þar sem Alexia er og gerir vel í að stýra boltanum í fjær. Aldís þarf að játa sig sigraða þrátt fyrir að ná örlítilli snertingu á boltann.
12. mín
Ingibjörg keyrir upp hægra megi og kemur með fínan bolta fyrir markið en samherjar hennar réttmissa allar af boltanum.
11. mín
Það hefur ringt alveg svakalega þessar fyrstu tíu mínútur og ekki ólíklegt að völlurinn sé orðinn ansi þungur.
10. mín
Þróttarar halda sókninni áfram sem endar með langskoti frá Sæunni en það er beint á Aldísi
9. mín
Þróttarar vilja víti þegar Unnur Dóra fellur í teignum en Arnar Ingi gefur ekkert.
8. mín
Tæp sending til baka á Aldísi sem Björg Gunnlaugs er ekki langt frá því að ná inn í en Aldís er aðeins á undan og kemur boltanum frá.
6. mín
Þróttarar reyna að fara hratt upp hinum megin og Sigríður Theódóra virðist vera að sleppa ein inn fyrir en flaggið á loft.
5. mín
Hafrún heldur betur að láta til sín taka hér á fyrstu mínútunum. Nú er hún komin í dauðafæri ein á Mollee en skotið er fram hjá. Þetta var alvöru dauðafæri.
3. mín
Ída Marín með frábæran sprett upp völlinn sem endar með skoti sem fer í varnarmann. Boltinn berst þaðan til Hafrúnar sem tekur eina snertingu til hægri og lætur vaða en Álfhildur Rósa kemst fyrir skotið.
2. mín
Jelena í smá vandræðum og missir boltann á einhvern furðulegan hátt á milli lappanna á sér en rétt nær að koma tánni í hann og Mollee hreinsar.
1. mín
FH strax komnar í fína sókn eftir 30 sekúndur og Hafrún Birna á sendingu fyrir markið en Þróttarar skalla frá.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn í grenjandi rigningu og Besta stefið ómar í Hafnarfirðinum. Styttist í að þetta fari í gang.
Fyrir leik
Spákona umferðarinnar
Thelma Karen Pálmadóttir, fyrrum leikmaður FH, spáir í þessa umferð og hún spáir heimasigri.
FH 3 - 1 Þróttur R.
Klárlega leikur umferðarinnar! Spennandi barrátta! Leikurinn byrjar frekar jafn þangað til að Ingibjörg skorar fyrsta markið. Einstefna hjá Hafnfirðingum eftir það. FH hendir í annað mark. Þróttar minnka muninn í seinni hálfleik og setja smá spennu í leikinn en ekki í langan tíma því Haffa klárar leikinn.
FH 3 - 1 Þróttur R.
Klárlega leikur umferðarinnar! Spennandi barrátta! Leikurinn byrjar frekar jafn þangað til að Ingibjörg skorar fyrsta markið. Einstefna hjá Hafnfirðingum eftir það. FH hendir í annað mark. Þróttar minnka muninn í seinni hálfleik og setja smá spennu í leikinn en ekki í langan tíma því Haffa klárar leikinn.

Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það eru tvær breytingar á liði FH frá jafnteflinu við Val í síðustu umferð. Birna Kristín Björnsdóttir og Hafrún Birna Helgadóttir koma inn fyrir Nia Raisa Christopher og Jónínu Linnet sem fá sér sæti á bekknum.
Þróttarar gera þrjár breytingar frá tapinu gegn Þór/KA. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, Björg Gunnlaugsdóttir og María Eva Eyjólfsdóttir koma allar inn og út fara Brynja Rán Knudsen og Maddison Ditta sem eru utan hóps í dag ásamt Kristrúnu Ýr Hólm sem sest á bekkinn.
Þróttarar gera þrjár breytingar frá tapinu gegn Þór/KA. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, Björg Gunnlaugsdóttir og María Eva Eyjólfsdóttir koma allar inn og út fara Brynja Rán Knudsen og Maddison Ditta sem eru utan hóps í dag ásamt Kristrúnu Ýr Hólm sem sest á bekkinn.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Þessi lið mættust í deildinni þann 30. apríl á Avis vellinum þar sem Þróttarar báru sigur úr býtum í leik sem endaði 2-1. Berglind Freyja Hlynsdóttir kom FH yfir í leiknum en mörk frá Sigríði Theódóru Guðmundsdóttur og Kayla Rollins tryggðu Þrótti sigurinn.
Úr fyrri leik liðanna á þessu tímabili
Úr fyrri leik liðanna á þessu tímabili

Fyrir leik
Þriðja liðið
Arnar Ingi Ingvarsson er dómari þessa leiks en honum til halds og trausts eru Tijana Krstic og Arnþór Helgi Gíslason. Reynir Ingi Finnsson er svo á skiltinu.

Fyrir leik
Þróttur
Þróttarar eru búnar að vera óstöðugar það sem af er á móti en í síðustu fimm leikjum eru þær með tvo sigra, tvö töp og eitt jafntefli. Í síðasta leik fóru þær norður á Akureyri þar sem þær töpuðu 2-0 fyrir Þór/KA. Þróttur er í miðjupakkanum sem hefur myndast í deildinni með 13 stig í 5. sætinu.

Fyrir leik
FH
FH hafa verið á miklu flugi undanfarið en þurftu að sætta sig við eitt stig úr síðasta leik gegn Valskonum. Ída Marín skoraði mark FH í leiknum á 3. mínútu áður en Valskonur jöfnuðu á þeirri 38. Eins og er eru FH í öðru sæti deildarinnar með 20 stig, einu stigi á eftir Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Byrjunarlið:
1. Mollee Swift (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir
3. Mist Funadóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic
('79)
('79)
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
('45)
('45)
11. Björg Gunnlaugsdóttir
('61)
('61)
14. Alexia Marin Czerwien
16. María Eva Eyjólfsdóttir
22. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir
('61)
('61)
23. Sæunn Björnsdóttir
27. Unnur Dóra Bergsdóttir
('79)
- Meðalaldur 24 ár
('79)
Varamenn:
20. Hafdís Hafsteinsdóttir (m)
4. Hekla Dögg Ingvarsdóttir
('61)
('61)
6. Rósey Björgvinsdóttir
('79)
('79)
17. Kristrún Ýr Holm
('79)
('79)
18. Kristrún Rut Antonsdóttir
19. Þórdís Nanna Ágústsdóttir
('61)
('61)
26. Þórdís Elva Ágústsdóttir
('45)
- Meðalaldur 23 ár
('45)
Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Guðrún Þóra Elfar (AÞ)
Gísli Þór Einarsson (MÞ)
Kayla Marie Rollins (Leikmaður utan hóps)
Þórkatla María Halldórsdóttir (Sjúkraþj.)
Sara Ó. Þrúðmarsdóttir Finnsson (Liðsstj.)
Madison Jeanne Ditta (Leikmaður utan hóps)
Orri Sigurjónsson (Styrktarþj.)
Gul spjöld:
Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('87)
Rauð spjöld:
