Man Utd undirbýr tilboð í Kone - Adeyemi færist nær Barcelona - Arsenal tilbúið að borga 35 milljónir punda fyrir Tzolis
Lengjudeild karla
Ægir
LL 3
4
HK
Lengjudeild karla
ÍR
LL 1
1
Þróttur R.
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 5
4
Grindavík
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 0
1
Grótta
Besta kvenna
Valur
LL 1
1
Stjarnan
Leiknir R.
0
1
Grótta
0-1 Mattías Kjeld '74 , víti
Eiríkur Örn Beck '89
10.07.2026  -  19:15
Leiknisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
8. Gísli Alexander Ágústsson
10. Shkelzen Veseli
15. Rúrik Gunnarsson
19. Axel Freyr Harðarson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('78)
32. Eiríkur Örn Beck
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Jakub Górski (m)
3. Bogdan Bogdanovic
6. Árni Elvar Árnason
7. Birnir Breki Burknason ('78)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason
11. Aron Skúli Brynjarsson
16. Viktor Andri Pétursson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Arion Aron Veselaj (Leikgr.)
Gísli Friðrik Hauksson (Liðsstj.)
Nemanja Pjevic (AÞ)
Loftur Páll Eiríksson (Styrktarþj.)
Ari Þór Kristinsson (MÞ)
Hlynur Helgi Arngrímsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Daði Bærings Halldórsson ('74)
Nemanja Pjevic ('88)

Rauð spjöld:
Eiríkur Örn Beck ('89)
Skýrslan
Leik lokið!
Grótta með sigurinn hér í kvöld. Þetta var jafn lengur út í eitt en dómara ákvarðanir hvort sem þær voru réttar eða ranga skáru um sigurinn.
93. mín
Gísli með spyrnuna alltof nálægt markmanni og Guðmundur grípur boltann.
93. mín
Leiknismenn fá horn, ein mínúta eftir og Óli Íshólm fer inn í teig.
91. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
89. mín Rautt spjald: Eiríkur Örn Beck (Leiknir R.)
Leiknismenn einum færri! Eiríkur seinn í tæklinguna og er frekar hátt með boltann og takkana á undan sér. Mér sýnist þetta allavega fara þannig fram. Þórður mjög vel staðsettur og ég treysti því að hann hafi sé þetta vel.
88. mín Gult spjald: Nemanja Pjevic (Leiknir R.)
Full mikið að kvarta á bekknum.
86. mín
Gróttumenn með horn sem þeir lyfta inn í teig. Einar Tómas nær skalla í fínu færi en setur hann yfir.
84. mín
Leiknismenn vilja víti Barningur inn á teig eftir fyrirgjöf, og heimamenn vilja víti. Rangstaða hins vegar dæmd.
84. mín
Björgvin Brimi með skotið fyrir utan teig viðstöðulaust. Dúndurfast, en rosalega hátt yfir markið.
82. mín
ÓLI NÁLÆGT ÞVÍ AÐ GEFA MARK! Boltinn kemur inn á teig Leiknismanna og Ólafur á bara að taka þennan bolta. Hann slær hins vegar bara eitthvað til hans og boltinn er laus fyrir framan sóknarmenn Gróttu. En þá kemur Daði Bærings og nær virkilega mikilvægri hreinsun.
80. mín
Inn:Einar Tómas Sveinbjarnarson (Grótta) Út:Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)
80. mín
Inn:Patrik Orri Pétursson (Grótta) Út:Andri Freyr Jónasson (Grótta)
78. mín
Inn:Birnir Breki Burknason (Leiknir R.) Út:Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.)
74. mín Gult spjald: Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Fékk gult fyrir að mótmæla vítadómnum.
74. mín Mark úr víti!
Mattías Kjeld (Grótta)
Virkilega góð vítaspyrna! Mattias tekur spyrnuna fasta niður í hægra hornið. Ólafur giskar á rétt horn en nær ekki til boltans.
73. mín
VÍTI FYRIR GRÓTTU! Gestirnir með fyrirgjöfina inn í teig og Andri ætlar upp í skallann og þá kemur Leiknis varnarmaðurinn að aftan og keyrir í bakið á honum í skalla einvíginu.

Þetta er soft, en Leiknismaðurinn vissulega frekar groddaralegur.
70. mín
Mjög flott uppbygging á skyndisókn hjá Leikni. Axel fær svo boltann fyrir utan teig, tekur eina flotta hraðabreytingu til að búa sér til pláss og tekur skotið, en það var laust á nær og Guðmundur með þetta.
67. mín
Inn:Hrannar Ingi Magnússon (Grótta) Út:Nökkvi Már Nökkvason (Grótta)
66. mín
Flott tilþrif hjá Björgvin Brima fyrir utan teig. Tekur svo skotið en það fer framhjá.
62. mín
Shkelzen Veseli tekur skotið úr spyrnunni, en þetta var ekki góð tilraun. Meðfram jörðinni á nær og Guðmundur ekki í neinu veseni.
61. mín
Leiknismenn fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig við hægri hlið teigsins.
60. mín
Fínt skot! Gróttumenn sækja hratt og Andri Freyr fær boltann rétt fyrir utan teig. Hann tekur skotið en þessi fer rétt yfir markið.
59. mín
Leiknismenn í færi! Heimamenn vinna boltann á vallarhelmingi Gróttu og snúa vörn í sókn. Axel Freyr geysist upp kantinn og leggur boltann á Eirík sem er að koma í hlaupið undir hann. Eiríkur tekur svo fast skot þegar hann kemur inn á teiginn en ekki hnitmiðað, hátt yfir.
57. mín
Inn:Axel Sigurðarson (Grótta) Út:Kristófer Dan Þórðarson (Grótta)
Kristófer haltrar af velli
55. mín
Leiknismenn með horn og Gísli tekur bara fastan bolta stutt inn á teiginn. Rúrik er í fínni stöðu og reynir skotið en í varnarmann.
52. mín
SLÁIN!! Frábær bolti inn fyrir hjá Rúrik á Anton sem er í hlaupinu inn á teig. Anton nær sendingunni fyrir teig á Dag Inga sem tekur skotið í slánna, boltinn dettur fyrir Leiknismann sem á skot í varnarmann, svo dettur boltinn aftur fyrir Dag sem tekur skotið yfir.

Besta færi leiksins hingað til.
51. mín
Gísli Alexander reynir skotið af löngu færi, en yfir markið.
48. mín
Rúrik lyftir boltanum inn í teig en gestirnir hreinsa.
47. mín
Eins og í fyrri vinna Leiknismenn fyrsta horn hálfleiksins.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik, og það kemur ekki á óvart miðað við gang leiksins. Leiknismenn hafa pressað vel og verið meira með boltann en eru í stökustu vandræðum á síðasta þriðjung að skapa alvöru færi. Gestirnir aðeins reynt að sækja hratt en að sama skapi ekki náð að gera mikið með sínar stöður.
45. mín
Eiríkur Örn reynir skotið af rosalega löngu færi. Skotið hátt yfir!
43. mín
Lúmskt skot! Gestirnir keyra hratt upp hægra megin og Mattias Kjeld kemur með fyrirgjöfina, boltinn fer af varnarmanni og berst tul Nökkva, hann tekur skotið fyrir utan teig sem leit ekki mjög sannfærandi út. Boltinn hrekkur hins vegar af varnarmanni og rúllar rétt framhjá. Óli í markinu hefði ekki náð þessum.
39. mín
Góður bolti inn í teig hjá gestunum og Andri nær skalla úr góðu færi en hann stangar þennan yfir.
36. mín
Dauðafæri!! Þorsteinn Emil gerir mjög vel á vinstri kantinum fyrir heimamenn, fer framhjá einum og kemur svo með boltann inn í teig. Anton Fannar er þar mættur beint fyrir framan markið og fær alveg frían skalla, en hann setur hann yfir!
34. mín
Mattias Kjeld með mjög skemmtilega sendingu inn í teig, aðeins fyrir aftan Andra sem reynir bakfallspyrnuna en nær ekki nógu góðri snertingu á boltann, og boltinn endar framhjá.
28. mín
Þórður dómari með skilaboð! Kallar til sín Grím Inga sem er víst búinn að vera fara í taugarnar á honum, og segir hátt og skýrt: Hættu að öskra á mig. Hættu!
25. mín
Gestirnir fá færi! Kristófer Dan með fastan bolta fyrir frá hægri. Boltinn beint á Andra sem er í góðu færi inn í teig en varnarmenn heimamanna vel staðsettir og Andri með skotið í þá.
20. mín
Aukaspyrna hjá Gróttu Gróttumenn með aukaspyrnu á fínum stað. Tristan Freyr tekur spyrnuna, og hún er alls ekki galin. Föst á leiðinni á fjær, en rétt framhjá.
17. mín
Gangur leiksins Leiknismenn að pressa mjög stíft og eru að gera það vel. Leikurinn spilast mest á vallarhelmingi Gróttumanna en heimamenn eru ekki að ná að búa sér til neitt mjög hættulegt.

Gróttumenn reyna við skyndisóknirnar en sama þar, hafa ekki náð að skapa mikið.
12. mín
Það er skógarhlaupið Áhugavert úthlaup hjá Guðmundi Rafn markverði Gróttu. Hann kemur lengst út úr teig og er rétt á undan að ná skallanum frá marki, munaði litlu að þetta yrðir slæmt!
7. mín
Leiknismenn í færi! Shkelzen með virkilega flotta vippu inn á teig sem dettur beint fyrir Dag Inga sem er kominn í flott færi. Hann tekur skotið,, fast en frekar beint á Guðmund í markinu.
3. mín
Gísli Alexander lyftir boltanum inn í teig og heimamenn ná skotið en beint í varnarmann og Gróttumenn ná svo taki á boltanum.
2. mín
Leiknismenn vinna fyrsta horn leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Þórður flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Leikmenn og dómarar ganga til vallar. Þetta er alveg að bresta á!
Fyrir leik
Byrjunarliðin Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari Leiknis gerir tvær breytingar á sínu liði sem gerði ótrúlegt 3-3 jafntefi við Völsung í síðustu umferð. Þorsteinn Emil Jónsson og Eiríkur Örn Beck koma inn í liðið. Bogdan Bogdanovic sest á bekkinn, en Marko Veselinovic er ekki með í dag þar sem hann meiddist í síðasta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu gerir þrjár breytingar á sínu liði frá 2-1 sigri þeirra gegn HK í síðustu umferð. Dagur Bjarkason, Kristófer Dan Þórðarson og Nökkvi Már Nökkvason koma inn í liðið. Hrannar Ingi Magnússon, Axel Sigurðarson og Hrannar Ingi Magnússon þurfa að sætta sig við spítuna til að byrja með allavega.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Fyrir leik
Dómarinn Þórður Þorsteinn Þórðarsson verður með flautuna í kvöld en honum til aðstoðar verða Kristofer Bergmann og Nour Natan Ninir. Eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Inig Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Spáin Ásgeir Orri Magnússon, sem hefur leikið frábærlega í marki Keflavíkur í sumar, spáir í leikina.

Leiknir R. 0 - 0 Grótta (19:15 í kvöld)
Þetta verður alveg hundleiðinlegur leikur. Bæði lið verða í miklu brasi að finna sig í gegnum vörnina en Grótta brennir af vítaspyrnu.
Fyrir leik
Barátta spútnik liðanna Leiknismenn voru ekki taldir með neitt sérlega sterkt lið fyrir tímabil og því var þeim spáð 9. sæti í deild. Eins og er, eru þeir að spila töluvert betur en það og eru í 5. sæti sem er jafnframt síðasta umspils sætið. Þetta hafa þeir gert meðal annars vegna frábærri frammistöðu Ólafs Íshólm sem var valinn í lið fyrri hlutans hér á fótbolti.net.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gróttumönnum var einnig spáð ekkert sérlega góðu gengi eða 10. sæti en þeir eru sem stendur í því áttunda. Svo sem ekki langt því frá en lykilmunurinn er að þeir eru 8 stigum frá fallsæti. Bakvörðurinn Tristan Freyr Ingólfsson er sá leikmaður sem hefur helst fengið að skína hjá Gróttumönnum en hann var einnig valinn í úrvalslið fyrri hlutans.
Mynd: Grótta
Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar! Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Leiknis gegn Gróttu í 12. umferð Lengjudeildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Leiknisvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson
9. Andri Freyr Jónasson ('80)
10. Grímur Ingi Jakobsson (f)
16. Halldór Hilmir Thorsteinson
20. Kristófer Dan Þórðarson ('57)
21. Tristan Freyr Ingólfsson ('80)
24. Nökkvi Már Nökkvason ('67)
30. Mattías Kjeld
96. Emil Skúli Einarsson
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
2. Hrannar Ingi Magnússon ('67)
5. Patrik Orri Pétursson ('80)
11. Axel Sigurðarson ('57)
13. Björgvin Stefánsson
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('80)
22. Viktor Orri Guðmundsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren (AÞ)
Patrekur Ingi Þorsteinsson (Liðsstj.)
Bjarni Björnsson (Styrktarþj.)
Anton Bogdanov (MÞ)
Halldór Svavar Sigurðsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: