Man Utd undirbýr tilboð í Kone - Adeyemi færist nær Barcelona - Arsenal tilbúið að borga 35 milljónir punda fyrir Tzolis
Lengjudeild karla
Ægir
LL 3
4
HK
Lengjudeild karla
ÍR
LL 1
1
Þróttur R.
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 5
4
Grindavík
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 0
1
Grótta
Besta kvenna
Valur
LL 1
1
Stjarnan
Njarðvík
5
4
Grindavík
0-1 Stefán Jón Friðriksson '6
Aron Einarsson '12 1-1
1-2 Rúnar Ingi Eysteinsson '17
Leandro Fernandes '26 2-2
Leandro Fernandes '38 3-2
3-3 Gunnleifur Orri Gunnleifsson '42
Arnleifur Hjörleifsson '50 4-3
4-4 Gunnleifur Orri Gunnleifsson '63
Eiður Aron Sigurbjörnsson '76 5-4
10.07.2026  -  19:15
JBÓ Völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Grátt yfir og mikill vindur
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Byrjunarlið:
1. Guy Smit (m) ('69)
3. Sigurjón Már Markússon
5. Arnar Helgi Magnússon
6. Arnleifur Hjörleifsson
8. Leandro Fernandes ('80)
9. Oumar Diouck
14. Aron Einarsson
17. Símon Logi Thasaphong ('64)
18. Björn Aron Björnsson
21. Alexander Helgi Sigurðarson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
12. Daði Fannar Reinhardsson (m) ('69)
2. Felix Lima Santos
7. Bragi Karl Bjarkason ('64)
16. Hrafn Guðmundsson
22. Stefán Gísli Stefánsson
10. Valdimar Jóhannsson ('80)
29. Haraldur Smári Ingason
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Ótrúlegum leik er lokið í Njarðvík, 5-4 lokatölur. Svakalegt. Viðtöl detta inn á síðuna seinna í kvöld.
97. mín
Njarðvík fær horn þegar 30 sekúndur eru eftir. Þetta er búið.
96. mín
Njarðvíkingar næstum því búnir að bæta við sjötta markinu. Oumar Diouck í mjög fínu færi. Það er ein mínúta eftir.
94. mín
Christian Bjarmi missir boltann út af. Njarðvíkingar fagna.
92. mín
Sindri Þór með áhugaverða skallatilraun sem fer fram hjá markinu.
91. mín
Sjö mínútum er bætt við. Það er nóg eftir!
91. mín
Christian Bjarmi með góða fyrirgjöf og Damir hoppar upp í þetta en nær ekki að koma boltanum á markið.
90. mín
Uppbótartíminn er hafinn.
89. mín
Inn:Friðrik Franz Guðmundsson (Grindavík) Út:Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
89. mín
Gunnleifur Orri með fyrirgjöf sem fer beint aftur fyrir endamörk.
88. mín
Hótar þrennunni! Gunnleifur Orri með skot sem fer í hliðarnetið. Munaði ekki miklu þarna.
88. mín
Damir er bara kominn í fremstu víglínu.
87. mín
Grindvíkingar eru farnir að henda fleiri mönnum fram á við. Skilar það sér?
83. mín
Inn:Lárus Orri Ólafsson (Grindavík) Út:Valur Þór Hákonarson (Grindavík)
83. mín
Inn:Andri Karl Júlíusson Hammer (Grindavík) Út:Rúnar Ingi Eysteinsson (Grindavík)
80. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík) Út:Leandro Fernandes (Njarðvík)
78. mín Gult spjald: Valur Þór Hákonarson (Grindavík)
Fer aðeins of hátt með olnbogann.
77. mín
Ruglaði fótboltaleikurinn sem þetta er.
76. mín MARK!
Eiður Aron Sigurbjörnsson (Njarðvík)
Stoðsending: Sigurjón Már Markússon
ÞETTA STOPPAR EKKI! Njarðvíkingar taka forystuna aftur!!

Leandro Fernandes með aukaspyrnuna inn á teiginn. Boltinn virðist vera of langur en hann dettur á Sigurjón sem skallar hann fyrir markið á Eið Aron sem stangar hann í netið.
75. mín Gult spjald: Christian Bjarmi Alexandersson (Grindavík)
Fyrir tæklingu. Njarðvík fær aukaspyrnu úti hægra megin.
75. mín
Inn:Mikael Máni Þorfinnsson (Grindavík) Út:Eysteinn Rúnarsson (Grindavík)
74. mín
Auhhh Sigurjón setur fótinn í boltann upp úr hornspyrnu en Hjörvar Daði ver virkilega vel í markinu hjá Grindavík.
72. mín
Sindri Þór fær tíma og pláss fyrir utan teig. Horfir upp, sér markið og lætur vaða en skot hans fer fram hjá markinu.
71. mín
Ég er ekki frá því að það séu fleiri mörk í þessum leik.
69. mín
Inn:Daði Fannar Reinhardsson (Njarðvík) Út:Guy Smit (Njarðvík)
68. mín
Guy Smit virðist vera búinn hér í dag. Liggur í grasinu og þarf aðhlynningu.
67. mín
FÆRI!! Njarðvíkingar algjörir klaufar í uppspilinu, gestirnir vinna boltann og Stefán Jón er í frábæru færi en nær ekki að hitta boltann almennilega. Pirraður út í sjálfan sig.
66. mín
Valur Þór vinnur boltann hátt uppi á vellinum og á skot sem fer langt yfir markið.
65. mín
Það eru hlutir að gerast hérna sem enginn sá fyrir.
64. mín
Inn:Bragi Karl Bjarkason (Njarðvík) Út:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík)
63. mín MARK!
Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
GRINDAVÍK JAFNAR! Fínasta sókn hjá Grindavík en að sama skapi afskalega dapur varnarleikur hjá heimamönnum.

Mér sýnist það var Rúnar Ingi sem fer léttilega fram hjá Sigurjóni og sendir boltann fyrir. Þar á Valur Þór skot sem Njarðvíkingar koma sér fyrir en boltinn dettur fyrir Gunnleif Orra sem skorar úr frákastinu.

Gunnleifur Orri með sitt annað mark í leiknum.
60. mín
Magnað spil hjá Grindvíkingum upp völlinn en Sigurjón Már nær að koma boltanum frá á endanum.
57. mín
Ótrúlegir hlutir að gerast í Lengjudeildinni í kvöld. Staðan er líka 3-4 í leik Ægis og HK.
53. mín Gult spjald: Eysteinn Rúnarsson (Grindavík)
Rautt? Aron Einars fer niður og heldur um höfuð sitt. Njarðvíkingar vilja fá rautt spjald á þetta. Ég sá ekki alveg nægilega vel en Aron fær högg á höfuðið. Athyglisvert að gefa gult fyrir þetta.
52. mín
Þetta eru tvö bestu varnarlið deildarinnar... Það er ótrúlegt að hérna eru tvö bestu varnarlið deildarinnar að mætast. Það hefði ekki talist heimskulegt að giska á markalaust jafntefli hér fyrir leik. Svona er fótboltinn nú ótrúlegur stundum.
50. mín MARK!
Arnleifur Hjörleifsson (Njarðvík)
MARKAVEISLAN HELDUR ÁFRAM! Hvað er að gerast hérna?

Njarðvíkingar með alls konar pláss. Björn Aron á fyrst skot sem fer í slána. Í kjölfarið dettur boltinn fyrir Arnleif sem nær að klára með fínu skoti.

Njarðvíkingar að taka forystuna aftur.
49. mín
Ég held að Oumar Diouck sé í sjokki að hann hafi ekki skorað þarna. Ótrúlegt.
48. mín
HAAAAAAA Oumar Diouck kominn í dauðafæri og allir á vellinum halda að hann sé að skora en hann setur boltann í stöngina. Grindvíkingar setja hann svo aftur fyrir í horn.
46. mín
Bæði lið eru í sérstökum treyjum Leikurinn er styrktarleikur fyrir Ingvar Jónsson sem berst við krabbamein.

Bæði lið leika hér í sérstökum treyjum Ingvars til heiðurs. Á treyjunum má finna m.a. ártöl yfir hvenær Ingvar hefur orðið Íslands- og bikarmeistari. Treyjur beggja liða munu fara á uppboð sem fer fram í einkaskilaboðum til Knattspyrnudeildar Njarðvíkur á Facebook þar sem allur ágóðinn rennur til styrktar Ingvari Jónssyni og fjölskyldu.

46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn Þetta er farið aftur af stað!
45. mín
Hálfleikur
Ótrúlegur fyrri hálfleikur að baki hér á JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem staðan er 3-3. Undirritaður biðst afsökunar á því að engin textalýsing var í fyrri hálfleiknum, en það verður bætt upp fyrir það í síðari hálfleiknum. Liðin eru að ganga aftur út á völlinn. Vonandi fáum við bara fleiri mörk í þetta.
42. mín MARK!
Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
40. mín
Staðan 3-2
38. mín MARK!
Leandro Fernandes (Njarðvík)
26. mín MARK!
Leandro Fernandes (Njarðvík)
17. mín MARK!
Rúnar Ingi Eysteinsson (Grindavík)
12. mín MARK!
Aron Einarsson (Njarðvík)
6. mín MARK!
Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
1. mín
Leikur hafinn
Byrjunarlið:
1. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Damir Muminovic (f)
5. Arnór Gauti Úlfarsson
7. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
8. Stefán Jón Friðriksson ('89)
9. Rúnar Ingi Eysteinsson ('83)
11. Valur Þór Hákonarson ('83)
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
18. Christian Bjarmi Alexandersson
3. Sindri Þór Guðmundsson
16. Eysteinn Rúnarsson ('75)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Robert Blakala (m)
6. Viktor Guðberg Hauksson
10. Ingi Þór Sigurðsson
2. Friðrik Franz Guðmundsson ('89)
13. Andri Karl Júlíusson Hammer ('83)
15. Mikael Máni Þorfinnsson ('75)
17. Lárus Orri Ólafsson ('83)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)

Gul spjöld:
Eysteinn Rúnarsson ('53)
Christian Bjarmi Alexandersson ('75)
Valur Þór Hákonarson ('78)

Rauð spjöld: