Bjóða Gyökeres í skiptum fyrir Alvarez - Liverpool hefur samband við PSG - Börsungar vilja Romero
Besta kvenna
Breiðablik
LL 4
1
Víkingur R.
Besta kvenna
ÍBV
LL 2
1
Valur
Breiðablik
4
1
Víkingur R.
Edith Kristín Kristjánsdóttir '73 1-0
Líf Joostdóttir van Bemmel '76 2-0
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir '79 3-0
3-1 Bergdís Sveinsdóttir '90
Ólöf Margrét Marvinsdóttir '92 4-1
15.07.2026  -  19:15
Eikarvöllurinn
Besta kvenna
Aðstæður: Gott íslenskt skítaveður
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Byrjunarlið:
12. Taylor Kane (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir ('61)
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Katelyn Duong ('89)
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('86)
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir ('89)
18. Kristín Dís Árnadóttir
19. Líf Joostdóttir van Bemmel
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
20. Dórothea Ósk Haraldsdóttir
21. Guðrún Þórarinsdóttir
26. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('86)
29. Sunna Rún Sigurðardóttir ('61)
50. Elísabet María Júlíusdóttir ('89)
51. Ólöf Margrét Marvinsdóttir ('89)
52. Særún L. Castaneda Bjarnarson
- Meðalaldur 17 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (AÞ)
Stefán Logi Magnússon (AÞ)
Hjörtur Fjeldsted (Styrktarþj.)
Sæmundur Arnór Sigurðsson (Liðsstj.)
Karitas Tómasdóttir (Leikmaður utan hóps)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Leikmaður utan hóps)
Valgeir Viðarsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Blikar taka þennan leik 4-1! Eftir að hafa sett í sjötta gír þegar um 20 mínútur voru eftir, Skil ekki þennan leik!

Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld!
92. mín MARK!
Ólöf Margrét Marvinsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Það er allt galopið hérna á síðustu mínútum leiksins! Agla finnur hina 14 ára Ólöfu Margréti sem skorar frábærlega og hennar fyrsta mark í Bestu deildinni!
92. mín
Varsla! Ása fær frábæran bolta inn fyrir sem Katla ver fáránlega
90. mín MARK!
Bergdís Sveinsdóttir (Víkingur R.)
Gott sárabótamark hjá Bergdísi fylgir eftir vörslu frá Taylor
89. mín
Inn:Ólöf Margrét Marvinsdóttir (Breiðablik) Út:Katelyn Duong (Breiðablik)
89. mín
Inn:Elísabet María Júlíusdóttir (Breiðablik) Út:Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik)
88. mín
Kristín Dís ætlar svoleiðis að þruma boltnaum á markið en þetta er bara alvöru hreinsun langt yfir markið
88. mín
Inn:Camilly Kristal Silva Da Rocha (Víkingur R.) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Víkingur R.)
86. mín
Inn:Lilja Þórdís Guðjónsdóttir (Breiðablik) Út:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)
86. mín
Agla María fær góðan bolta frá Ásu hún er komin í frábæra stöðu ætlar að reyna við skotið en Kristín kemst fyrir þetta
85. mín
AGLA MARÍA! komin framhjá Kötlu í markinu á bara eftir að pota í hann en hún dettur fyrir framan tómt markið og boltinn rennur útaf
81. mín
Inn:Anika Jóna Jónsdóttir (Víkingur R.) Út:Emma Steinsen Jónsdóttir (Víkingur R.)
81. mín
Inn:Þórhildur Þórhallsdóttir (Víkingur R.) Út:Freyja Stefánsdóttir (Víkingur R.)
79. mín MARK!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)
Jæjaaaaaaa það er aldeilis allt að opnast hérna! Katla ver en missir boltann frá sér og Olla þarf ekki annað en pota honum inn!
77. mín
Freyja nær síðan frábæru skoti en Taylor með hörkuvörslu!
76. mín MARK!
Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
Flóðgáttin bara opnast hérna! Þvílíkt mark! fer bara sjálf, tekur góða hreyfingu inn og smellir honum bara í samskeytin fjær
74. mín
Inn:Dagný Rún Pétursdóttir (Víkingur R.) Út:Helena Ósk Hálfdánardóttir (Víkingur R.)
73. mín MARK!
Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel
sekúndu einbeitingaleysi í vörn Víkings, Líf setur boltann fyrir og finnur Edith eina í teignum og hún klárar þetta frábærlega í fjærhornið!
73. mín
Fínasta tilraun hjá Helenu Ósk en rétt framhjá samskeytunum
72. mín
Edith komin niður á endalínu, Katla mætir henni ekki en nær hins vegar fyrirgjöfinni
71. mín
Og annað horn hjá Blikum ef þær skora ekki úr horni í þessum leik þá þarf að fara beint á æfingasvæðið!
69. mín
Agla María með sitt 100. horn fyrir Blika en sem fyrr er ekkert sem kemur úr því
68. mín
Ojjjjjjj Olla Sigríður sleppur ein í gegn er komin á Kötlu en setur boltann rétt framhjá markinu! Það er stutt á milli í þessu
67. mín
Víkingskonur taka 3x hornið í röð, Bergdís setur hann fastann á nær en í hliðarnetið
65. mín
Dauuuuuuuuuuðafæææææriiiiiii! Jesús Þórdís Hrönn með draumasendingu inn fyrir á Freyju sem er sloppin ein í gegn, missir boltann hins vegar aðeins frá sér og skýtur beint í Taylor sem kemur út á móti, boltinn rennur svo rétt framhjá, Þetta var klárlega besta færi leiksins
62. mín
Agla María með enn eitt hornið en Freyja skallar þennan frá
61. mín
Inn:Sunna Rún Sigurðardóttir (Breiðablik) Út:Olga Ingibjörg Einarsdóttir (Breiðablik)
60. mín
Emma Steinsen fær þrumu í andlitið inn í eigin teig og leggst niður, Blikarnir halda áfram og dómarinn sem endar með svakalegu skoti frá Ásu en það er rétt yfir
59. mín
Ása brýtur á Þórdísi við miðjulínuna, Jóhanna Elín bombar honum yfir völlinn, ætlaði að finna Helenu en of fastur bolti fyrir hana
58. mín
Agla María tekur spyrnuna, reynir bara skotið en það er ekki nógu gott, og skoppar framhjá
57. mín
Dómarinn dæmir Víkingskonur brotlegar á miðjum vallarhelmingi Víkings, mér fannst þetta nú óttarlega soft....
55. mín
Bergdís reynir að finna Freyju í teignum, hún er hársbreidd frá því að ná honum en útaf rennur hann
54. mín
Bergdís tekur hornið en ekkert kemur úr því
53. mín
Bergdís setur að mér sýnist boltann í hendina á Elísu en það gerir ekki til Þórdís Hrönn með frábæra fyrirgjöf en þær rétta missa af þessu
52. mín
Agla María reynir að stinga upp á Elísu í hlaupið en flaggið góða fer á loft
51. mín
Líf spólar sig í gegn reynir að leggja hann en skýtur í varnarmann, horn frá Öglu Maríu sem ekkert kemur úr
49. mín
Ása kemur sér í fína stöðu en Víkingskonur eru fljótar að skila sér og svona 5 planta sér fyrir framan hana og ná að koma boltanum frá
47. mín
Freyja í baráttunni við Olgu en sú síðarnefnda nær að skalla boltann til Taylor
46. mín
Leikurinn hafinn á ný! Arna Ísold sparkar þessu aftur á stað fyrir gestina
45. mín
Hálfleikur
0-0 í hálfleik! Voðalega bragðdaufum fyrri hálfleik lokið, alls ekki það sem ég bjöst við, sérstaklega frá blikaliðinu!
45. mín
Kristín Dís á fínustu fyrirgjöf en Víkingskonur hafa verið solid í að bægja hættunni frá í fyrirgjöfunum eða kannski Blikarnir bara núll agressívar?
45. mín
A.m.k 2 mínútur í uppbótartíma
42. mín
Færiiiii Edith finnur Líf í frábært hlaup hún á svo stórhættulega fyrirgjöf en Jóhanna Elín er fyrst á boltann
39. mín
Dómarinn fær boltann í bringuna, stoppar skyndisókn Blika eðlilega
37. mín
Hörkuskot frá Freyju sem Taylor nær rétt að verja yfir, Langbesta færi Víkingskvenna hingað til! Fá svo horn sem Blikarnir ná að hreina burt
35. mín
Agla María reynir langan bolta inn fyrir á Líf en Jóhanna Elín er á undan henni Katla kemur svo út úr markinu og handsamar boltann
34. mín
Agla María nælir í horn fyrir Blikakonur, tekur það svo að sjálfsögðu sjálf stutt á Katelyn í þetta skiptið. Fær hann svo aftur og reynir að setja hann sem fyrr á fjærstöngina en boltinn út fyrir endalína
33. mín
Líf á fína fyrirgjöf á Ollu en hún setur boltann framhjá markinu
32. mín
Edith stelur boltanum af Þórdísi á óheppilegum stað en Þórdís eltir hana og nær honum aftur áður en fór í verra!
31. mín
Agla María með enn eitt hornið, setur hann á svipaðan stað á fjærstöngina en ekkert kemur þó úr þessu að sinni
29. mín
Víkingskonur STÁLHEPPNAR Líf nær að setja boltann í netið af harðfylgi en boltinn hafði farið útaf
26. mín
Emma brýtur á Ásu, Blikarnir taka þetta fljótt og skipta yfir á hinn kantinn
25. mín
Freyja enn og aftur að koma stinga sér í gegnum vörn Blikanna, þær eiga ekki séns þegar hún fer af stað, hún setur boltann fyrir í teiginn en Víkingskonur fylgdu ekki með í þetta skiptið, hefði verið dauðafæri hefði einhver verið mættur
20. mín
Agla María með enn eitt hornið en ekkert kemur úr því nema að Líf virðist hafa fengið högg
19. mín
Kristín Dís allt í einu komin í frábæra stöðu inn í teig, hún á sendingu á Edith sem síðan nær að lauma honum aftur á Kristínu í hlaupið, þetta voru skemmtileg tilþrif frá hafsent
18. mín
ÚFFFF Agla tekur hornið aftur á fjær þar stangar Kristín Dís boltann af stuttu færi en hann fer í slánna og aftur í hana og svo bjargað á línu þær ná hreinlega ekki að pota honum inn
17. mín
Ása reynir að setja boltann fyrir en þar er Emma Steinsen mætt, horn!
16. mín
Agla María með horn fyrir Blika, setur það á fjær en þar er enginn, markspyrna sem Katla tekur
12. mín
Freyja kemst á hlaupið upp hægri kantinn setur hann fyrir en Þórdís rétt missir af honum
9. mín
Agla María reynir að finna Elísu aleina í hlaup en boltinn alltof fastur
7. mín
Fínasta sókn hjá Víkingskonum, Bergdís með fínan bolta, Helena Ósk fellur svo í teignum og Víkingar kalla á víti, sýndist þetta vera soft
6. mín
Olga Ingibjörg reynir langan bolta úr vörninni en það er út fyrir endalínu
3. mín
Freyja grimm vinnur baráttuna við Elínu Helenu, nær svo að setja hann fyrir, boltinn í Kristínu áður en Helena reynir svo að koma honum lengra fyrir
1. mín
Það hefur orðið breyting á byrjunarliði Víkings í upphitun en Bergþóra Sól meiddist, Þórdís Hrönn kemur inn í hennar stað
1. mín
Þær byrja strax að krafti, Ása setur boltann fyrir finnur þar Edith en hún setur boltann yfir markið
1. mín
Leikur hafinn
Hrafnhildur Ása sparkar þessu af stað fyrir heimakonur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast! Liðin ganga út á völlinn! Blikarnir hefðbundnar grænar-hvítar-hvítar en Víkingar í varabúningum hvítar-vínrauðar-svartar
Fyrir leik
Agaleg tímasetning á leik Nokkrar hræður mættar í stúkuna, býst við að flestir séu límdir við skjáinn að horfa á leik Englands og Argentínu, skil ekki að KSÍ hafi hent leikjum bæði í dag og í gær...
Fyrir leik
Byrjunarlið - Víkingur Einar Guðnason þjálfari Víking gerir einnig 2x breytingar á liði sínu frá 1-3 tapi gegn ÍBV í síðustu umferð. inn í liðið koma Helena Ósk og Jóhanna Elín en á bekkinn setjast Þórdís Hrönn og Anika Jóna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarlið - Breiðablik Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks gerir 2x breytingar á liði sínu frá 3-2 tapi gegn Fram í síðustu umferð. Í markið kemur Taylor Kane í stað Herdísar Höllu og spilar sinn fyrsta leik fyrir Blika liðið í sumar. Þá kemur einnig í fyrsta skiptið í byrjunarliðið Olga Ingibjörg í stað Sunnu Rúnar sem tekur sér sæti á bekknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Breiðablik

Fyrir leik
Glugginn góði opnar á morgun Félagsskiptaglugginn opnar á morgun og hefur Breiðablik fengið Þórdísi Elvu Ágústsdóttur til sín frá Þrótti, hún verður þó ekki gjaldgegn í kvöld en ætti að fá leikheimild fyrir leik Breiðabliks gegn Val í næstu umferð.



Ekkert hefur verið staðfest um leikmannakaup hjá Víkingi en í viðtali eftir síðasta leik sagði Einar Guðnason þjálfari Víkings, að Víkingar væru alltaf að skoða möguleika á að styrkja hópinn.

Fyrir leik
Fyrri viðureign Liðin mættust fyrr í sumar á Víkingsvellinum þar sem Breiðablik fór með 2-4 sigur af hólmi, þar sem 4 blikakonur komust á blað en Agla María, Hrafnhildur Ása, Barbára Sól og Ólöf Sigríður skoruðu mörkin. Hjá Víking voru það varamennirnir sem settu mörkin, Dagný Rún og að sjálfsögðu aðalmarkaskorari Víkings Freyja Stefáns.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur R. Víkingskonur hafa sogast niður í botnbaráttuna og eru sem stendur í 8. sæti með 10 stig líkt og Fram í 9. sætinu og Valur í 7. sæti. Þá eru þær bara einu stigi á undan Þór/KA sem eru á botninum með 9 stig.
Miðjumoðið hefur líklega aldrei verið meira og þrjú stig í dag gæti fleytt þeim upp í 6. sætið! Víkingskonur steinlágu 1-3 fyrir ÍBV í síðustu umferð og þær vilja örugglega fara að rétta út kútnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breiðablik Blikarnir sitja í 2. sætinu með 21 stig líkt og Stjarnan en eiga leik til góða. Þær eru þá einnig 2 stigum á eftir FH sem líka eiga leik til góða.
Blikarnir töpuðu óvænt 3-2 gegn botnliði Fram í síðustu umferð og ef reynslan segir okkur eitthvað að þá er það að Blikakonur hafa mætt dýrvitlausar leikinn eftir tapleiki!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins Á flautunni í kvöld verður Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og honum til halds og trausts verðaÓliver Thanh Tung Vú og Kristinn Freyr Victorsson aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson og eftirlitsmaður í dag er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin í Kópavog! Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá nýnefndum Eikarvellinum í Kópavogi þar sem Breiðablik tekur á móti Víking R. í 12. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (f)
5. Emma Steinsen Jónsdóttir ('81)
9. Freyja Stefánsdóttir ('81)
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('74)
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir
17. Jasmín Erla Ingadóttir
18. Kristín Erla Ó Johnson
26. Bergdís Sveinsdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('88)
35. Arna Ísold Stefánsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
41. Elizabeth Grace McClellan (m)
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir ('74)
13. Camilly Kristal Silva Da Rocha ('88)
19. Þórhildur Þórhallsdóttir ('81)
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
33. Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir
34. Anika Jóna Jónsdóttir ('81)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Einar Guðnason (Þ)
Jón Páll Pálmason (AÞ)
Birgitta Rún Yngvadóttir (Leikmaður utan hóps)
Shaina Faiena Ashouri (Leikgr.)
Mikael Uni Karlsson Brune (Styrktarþj.)
Dagmar Pálsdóttir (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: