Vilja Summerville í stað Rashford - Arsenal undirbýr tilboð í Nusa - Rico Lewis eftirsóttur
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Vestri
LL 0
3
Qarabag
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 3
2
Leiknir R.
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Víkingur Götu
LL 2
2
Stjarnan
Besta kvenna
Gri/Nja
LL 1
6
FH
Afturelding
3
2
Leiknir R.
Joacim Holtan '5 1-0
1-1 Axel Freyr Harðarson '10
Óðinn Bjarkason '18 2-1
Joacim Holtan '63 3-1
3-2 Jóhann Kanfory Tjörvason '90
16.07.2026  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Áhorfendur: 320
Byrjunarlið:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
3. Axel Óskar Andrésson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
8. Bart Kooistra ('73)
9. Joacim Holtan
10. Elmar Kári Enesson Cogic ('73)
11. Óðinn Bjarkason
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Sævar Atli Hugason ('73)
25. Georg Bjarnason
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
85. Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson ('73)
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson
5. Jón Vignir Pétursson ('73)
24. Trausti Þráinsson ('90)
27. Enes Þór Enesson Cogic ('73) ('90)
79. Róbert Agnar Daðason
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Heiðar Númi Hrafnsson (Doctor)
Garðar Guðnason (Sjúkraþj.)
Þórður Ingason (MÞ)
Gunnar Ingi Garðarsson (Styrktarþj.)
Enes Cogic (AÞ)
Baldvin Jón Hallgrímsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Sævar Atli Hugason ('13)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Heimasigur! Þetta hafðist á endanum hjá Aftureldingu. Verðskuldaður sigur þegar öllu er á botninn hvolft. Skýrsla og viðtöl væntanleg.
90. mín
+7 Aron Elí setur boltann upp í horn, tíminn vinnur með Aftureldingu.
90. mín
+6 Holtan vinnur aukaspyrnu fyrir Aftureldingu á góðum stað.
90. mín
+2 Fimm mínútur í uppbót.
90. mín
Inn:Trausti Þráinsson (Afturelding) Út:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding)
+1 Þetta lítur ekki vel út hjá Enes.
90. mín MARK!
Jóhann Kanfory Tjörvason (Leiknir R.)
Þeir minnka muninn! Fær boltann úti hægra megin, keyrir inn á teiginn og lætur vaða í fjær. Frábært slútt!!
Afturelding einum færri í vörninni þar sem Enes liggur eftir í miðjuhringnum sárþjáður. Heimamenn ekki sáttir með að Stefán hafi ekki stoppað leikinn.
89. mín
Jón Vignir tekur spyrnuna á fjær, þar er Andi Hoti sem nær að skalla hann fyrir markið á Axel Óskar sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
88. mín
Afturelding fá aukaspyrnu á fínum stað vinstra megin á vellinum.
87. mín
Aron Elí með frábæran bolta inn fyrir á Holtan en Guðjón Pétur gerir vel í varnarleiknum og truflar hann næglega mikið til þess að hann nái ekki skoti á markið.
86. mín Gult spjald: Aron Skúli Brynjarsson (Leiknir R.)
Fer fyrir Arnar Daða sem var að taka útspark.
85. mín
Jóhann Kanfory með góðan sprett upp hægra megin og fínan bolta en Arnar Daði grípur vel inn í.
85. mín
Mjög lítið sem hefur gengið á í þessum seinni part seinni hálfleiks. Heimamenn sáttir með stöðuna eins og hún er og Leiknismenn allt of rólegir í tíðinni.
84. mín
Inn:Aron Skúli Brynjarsson (Leiknir R.) Út:Rúrik Gunnarsson (Leiknir R.)
84. mín
Inn:Jóhann Kanfory Tjörvason (Leiknir R.) Út:Birnir Breki Burknason (Leiknir R.)
84. mín
Inn:Gísli Alexander Ágústsson (Leiknir R.) Út:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
79. mín
Birnir Breki með fínan bolta inn á teiginn en enginn samherji hans sem ræðst á boltann.
76. mín
Arnór Valur með skot lengst utan af velli en hittir ekki rammann.
73. mín
Inn:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding) Út:Sævar Atli Hugason (Afturelding)
73. mín
Inn:Jón Vignir Pétursson (Afturelding) Út:Bart Kooistra (Afturelding)
73. mín
Inn:Birkir Már Sævarsson (Afturelding) Út:Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
68. mín
Sævar og sjúkraþjálfari Aftureldingar senda þumalinn á bekkinn, hann ætlar að halda áfram leik.
68. mín
Nú er það Sævar Atli sem þarf aðhlynningu og þarf að fara af velli í eina mínútu.
67. mín
Inn:Bogdan Bogdanovic (Leiknir R.) Út:Djorde Vladisavljevic (Leiknir R.)
Vladisavljevic fer meiddur af velli. Mikið högg fyrir Leikni, algjör lykilmaður.
63. mín MARK!
Joacim Holtan (Afturelding)
Holtan setur annað! Afturelding fá innkast sem Axel Óskar virðist ætla að taka inn á teiginn. Hann setur hann hins vegar út fyrir teiginn þar sem Bjartur Bjarmi er aleinn og lætur vaða. Ólafur Íshólm ver frá honum en boltinn spýtist frá honum og Holtan er fyrstur að átta sig og klárar í opið markið þar sem Óli liggur enn þá. Sjaldséð mistök hjá Óla.
62. mín
Vladisavljevic stendur upp og virðist ætla að áfram en þarf að fara út af í eina mínútu.
61. mín
Djorde Vladisavljevic sestur í grasið og þarf aðhlynningu.
54. mín
Axel Freyr með fínan bolta inn á teiginn en nafni hans stekkur manna hæst í teignum og skallar frá.
53. mín
Elmar Kári tekur spyrnuna inn á teiginn og hún virðist vera að fara á pönnuna á Axel Óskari en á síðustu stundu grípur Óli Íshólm inn í.
52. mín
Afturelding sækja hratt eftir hornið og fá aukaspyrnu úti hægra megin.
51. mín
Aftur er spyrnan frá Arnóri góð en nafni hans í markinu gerir einnig aftur vel og slær boltann frá.
50. mín
Afturelding að leika sér að eldinum og spila á milli sín aftast. Á endanum komast gestirnir inn í sendingu og Arnar Daði þarf að bjarga sér með því að verja í horn.
48. mín
Sævar Atli tekur spyrnuna og Andi Hoti nær fínum skalla en Leiknismenn komast fyrir. Afturelding heldur sókninni áfram og Sævar reynir hlaupið inn fyrir en sendingin sem er ætluð honum endar hjá Óla Íshólm.
48. mín
Afturelding fær horn hinum megin.
47. mín
Spyrnan er góð frá Arnóri Val en Arnar Daði gerir vel og slær boltann frá.
47. mín
Anton Fannar kemur á siglingu upp hægri kantinn og vinnur horn eftir baráttu við Axel Óskar.
46. mín
Heimamenn sparka leiknum aftur í gang.
45. mín
Hálfleikur
Fínasta fyrri hálfleik lokið í Mosfellsbænum. Heimamenn heilt yfir verið betri en Leiknismenn hafa átt rispur.
45. mín
+1 Ein mínúta í uppbót.
45. mín
Stefán Ragnar að sleppa Leiknismönnum ansi vel þessa stundina, virðist sem hann hafi týnt flautunni.
43. mín
Mjög vond þversending frá Georgi kemur Leikni í fína stöðu en þeir ná ekki að nýta sér það.
41. mín
Elmar Kári tekur spyrnuna sem fer rétt yfir markið.
39. mín Gult spjald: Birnir Breki Burknason (Leiknir R.)
Fer aftan í Bart sem er að hlaða í skot rétt fyrir utan d-bogann.
38. mín
Axel Óskar með langt innkast sem Afturelding ná að flikka áfram og boltinn endar á að fara út í teiginn þar sem Elmar Kári lætur vaða. Skotið fer í þá nokkra í teignum og virðist fara í hönd Leiknismanns en Stefán sá ekkert að þessu. Meira í þessu vítakalli en áðan alveg klárlega.
33. mín
Leiknir fá svo innkast hinum megin sem þeir taka langt en Afturelding koma boltanum frá.
32. mín
Leiknismenn vinna horn en ná ekki að skapa hættu upp úr því
30. mín
Aftur á Axel Freyr skot á mark en það er beint á Arnar Daða
27. mín
Fínn bolti frá vinstri inn á fjær þar sem Anton Fannar kemur á ferðinni en skallinn hans er fram hjá markinu.
26. mín
Sævar Atli keyrir inn á teiginn og fellur eftir viðskipti við Guðjón Pétur. Stúkan vill víti en það var nú ekki mikið á þetta.
24. mín
Axel Freyr leitar að öðru marki og á skot rétt fyrir utan teiginn en Arnar Daði er ekki í miklum vandræðum með það.
18. mín MARK!
Óðinn Bjarkason (Afturelding)
Stoðsending: Georg Bjarnason
Óðinn heldur áfram að skora Frábær bolti frá Elmari Kára upp hægri kantinn í hlaupið fyrir Bart. Hann tekur sér smá tíma áður en hann finnur Georg við vítateigshornið. Georg á frábæran bolta inn á teiginn, beint á ennið á Óðni sem á góðan skalla sem endar í netinu.
17. mín
Georg Bjarna með flottan sprett og heimamenn vilja horn en fá ekki.
15. mín
Aftur stígur Sævar Atli á stokk en aftur ná Leiknismenn að skalla frá.
15. mín
Heimamenn halda sókninni áfram og uppskera annað horn.
14. mín
Sævar Atli tekur spyrnuna inn á teiginn en gestirnir skalla frá
14. mín
Bart gerir vel úti hægra megin og á góðan bolta fyrir markið en Leiknismenn koma honum í horn.
13. mín Gult spjald: Sævar Atli Hugason (Afturelding)
Stoppar skyndisókn
12. mín
Vond sending frá Vladisavljevic út úr vörninni fer beint fyrir Elmar Kára sem keyrir á varnarlínuna, finnur Bart úti vinstra megin og hann lætur vaða en frábær varnarleikur verður til þess að heimamenn fá horn en spyrnan hjá Elmari ekki nóg og góð.
10. mín MARK!
Axel Freyr Harðarson (Leiknir R.)
Svarað um hæl! Kærulaus varnarleikur hjá heimamönnum verður til þess að Axel Freyr nær að keyra inn á teiginn frá vinstri til hægri og hleypa af skoti sem fer í varnarmann og í netið. Allt jafnt.
5. mín MARK!
Joacim Holtan (Afturelding)
Stoðsending: Bart Kooistra
Þeir voru ekki lengi að þessu Þrátt fyrir að það séu bara tæplega fimm mínútur búnar af leiknum þá er þetta hálfverðskuldað. Bart Kooistra fær boltann inn fyrir hægra megin og er aleinn, rúllar boltanum fyrir markið þar sem eftir leikurinn er auðveldur fyrir Holtan sem klárar fram hjá Óla Íshólm
3. mín
Afturelding með góða sókn þar sem þeir sundurspila Leiknisliðið og á endanum nær Elmar Kári skoti sem fer af varnarmanni og aftur fyrir. Þeir ná svo ekki að skapa neina hættu upp úr horninu.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Byrjunarliðin Byrjunarliðin eru dottin inn!

Magnús Már gerir eina breytingu á sínu liði en Birkir Már Sævarsson fær sér sæti á bekknum og inn í hans stað kemur Elmar Kári Enesson Cogic sem er að snúa aftur eftir nokkurra vikna fjarveru.

Brynjar Björn gerir þrjár breytingar á sínu liði á milli leikja. Gísli Alexander Ágústsson, Shkelzen Veseli og Eiríkur Örn Beck koma úr liðinu og inn fyrir þá koma þeir Birnir Breki Burknason, Guðjón Pétur Stefánsson og Arnór Valur Ágústsson.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna Liðin mættust í 3. umferð á Leiknisvellinum í leik sem Afturelding vann 0-3. Það var allt jafnt þangað til að 20 mínútur voru eftir en þá gáfu Afturelding í. Joacim Holtan setti fyrsta markið á 73. mínútu, Róbert Agnar Daðason tvöfaldaði forystuna á 83. mínútu áður en Bart Kooistra kláraði leikinn með þriðja markinu á 88. mínútu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarateymið Stefán Ragnar Guðlaugsson stýrir umferðinni í dag en honum til halds og trausts eru þeir Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú með sitthvort flaggið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiknir Leiknismenn eru í baráttunni um umspils en þeir eru í 7. sætinu tveimur stigum á eftir Vestra sem eru í 5. sæti. Síðustu fimm leikir hjá Leikni eru eins og jólasería en þeir eru búnir að tapa tveim, vinna tvo og gera eitt jafntefli. Þeir fengu Gróttu í heimsókn í síðustu umferð þar sem þeir töpuðu 0-1.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Afturelding Heimamenn í Aftureldingu hafa verið að spila feykilega vel eftir að hafa fundið taktinn í kjölfar brösulegrar byrjunar á mótinu. Þeir eru búnir að vinna síðustu fjóra leiki og skora í þeim 17 mörk og fengið á sig aðeins 2. Þeir eru á toppnum eins og er og leitast eftir því að styrkja stöðu sína þar. Í síðustu umferð gerðu þeir góða ferð norður á Húsavík þar sem þeir unnu Völsung 1-6.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Aftureldingar og Leiknis í Lengjudeildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
7. Birnir Breki Burknason ('84)
15. Rúrik Gunnarsson ('84)
19. Axel Freyr Harðarson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('84)
22. Þorsteinn Emil Jónsson
29. Guðjón Pétur Stefánsson
33. Arnór Valur Ágústsson
45. Djorde Vladisavljevic ('67)
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Jakub Górski (m)
3. Bogdan Bogdanovic ('67)
8. Gísli Alexander Ágústsson ('84)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason ('84)
11. Aron Skúli Brynjarsson ('84)
16. Viktor Andri Pétursson
43. Kári Steinn Hlífarsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Arion Aron Veselaj (Leikgr.)
Halldór Fannar Júlíusson (Sjúkraþj.)
Mehmet Ari Veselaj (Liðsstj.)
Nemanja Pjevic (AÞ)
Loftur Páll Eiríksson (Styrktarþj.)
Ari Þór Kristinsson (MÞ)

Gul spjöld:
Birnir Breki Burknason ('39)
Aron Skúli Brynjarsson ('86)

Rauð spjöld: