Rogers efstur á óskalista Arsenal - Salah á leið til Tyrklands - Fyrrum leikmaður Liverpool til Man Utd?
Besta karla
Valur
38' 1
3
Fram
Besta karla
Þór
LL 2
1
Víkingur R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 1
0
Völsungur
Lengjudeild karla
Grótta
LL 6
1
Ægir
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
ÍR
2. deild karla
KFA
LL 0
1
Selfoss
Grótta
6
1
Ægir
Nökkvi Már Nökkvason '12 1-0
Mattías Kjeld '14 2-0
Mattías Kjeld '32 3-0
Björgvin Brimi Andrésson '37 4-0
Daníel Karl Þrastarson '47 , sjálfsmark 5-0
5-1 Daníel Karl Þrastarson '67
Jónatan Ari Bragason '71 6-1
18.07.2026  -  14:00
Vivaldivöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: 13°, skýjað, logn og smá úði
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Maður leiksins: Mattías Kjeld
Byrjunarlið:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
2. Hrannar Ingi Magnússon
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson ('85)
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson ('85)
10. Grímur Ingi Jakobsson (f)
16. Halldór Hilmir Thorsteinson ('74)
20. Kristófer Dan Þórðarson ('46)
24. Nökkvi Már Nökkvason ('65)
30. Mattías Kjeld
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
3. Jónatan Ari Bragason ('65)
5. Patrik Orri Pétursson
11. Axel Sigurðarson ('74)
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('85)
18. Elmar Freyr Hauksson ('85)
22. Viktor Orri Guðmundsson ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Paul Benjamin Westren (Þ)
Arnar Þór Axelsson (AÞ)
Patrekur Ingi Þorsteinsson (Liðsstj.)
Bjarni Björnsson (Styrktarþj.)
Anton Bogdanov (MÞ)
Halldór Svavar Sigurðsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
90+3 Leik lokið hér út á Seltjarnarnesi. Stórsigur heimamanna staðreynd. Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í dag, ég þakka fyrir mig.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
89. mín
Inn:Sæmundur Hólm Gilbertsson (Ægir) Út:Harley Willard (Ægir)
85. mín
Inn:Einar Tómas Sveinbjarnarson (Grótta) Út:Andri Freyr Jónasson (Grótta)
Tvöföld skipting
85. mín
Inn:Elmar Freyr Hauksson (Grótta) Út:Björgvin Brimi Andrésson (Grótta)
81. mín
Nikola með fast skot fyrir utan teiginn en Guðmundur ver mjög vel á ný. Ægismenn hafa verið öflugir síðustu mínútur.
79. mín
Bjargað á línu Gestirnir í færi eftir hornspyrnu en Dagur bjargar á línu.
74. mín
Inn:Axel Sigurðarson (Grótta) Út:Halldór Hilmir Thorsteinson (Grótta)
73. mín
Inn:Benedikt Þór Viðarsson (Ægir) Út:Stefan Dabetic (Ægir)
Stefan getur ekki haldið leik áfram.
71. mín MARK!
Jónatan Ari Bragason (Grótta)
Sjötta markið komið Grótta með horn á nærsvæðið, Jónatan rífur sig lausan og skallar boltanum í netið.
68. mín
Mattías í færi en Stefan hendir sér fyrir skotið og liggur þjáður eftir. Myndi giska á uppsnúin ökkla. Leikurinn farinn af stað aftur og Ægismenn manni færri í bili.
67. mín MARK!
Daníel Karl Þrastarson (Ægir)
Ægir minnkar muninn Daníel fær boltann inn í teignum og klárar vel framhjá Guðmundi.
65. mín
Inn:Jónatan Ari Bragason (Grótta) Út:Nökkvi Már Nökkvason (Grótta)
63. mín
Dauðafæri inn í teig heimamanna en Guðmundur ver vel.
60. mín
Inn:Hilmar Óli Viggósson (Ægir) Út:Dajan Ponjevic (Ægir)
58. mín
Stefan Dabetic með hörkuskot fyrir utan teiginn en skotið rétt framhjá.
55. mín
Engu frá þrennunni Mattías í dauðafæri en skotið rétt framhjá.
53. mín
Grótta kallar eftir víti Viktor Orri fer niður í teignum og heimamenn heimta víti en ekkert dæmt. Þetta var á mörkunum.
50. mín
Björgvin Brimi kominn einn í gegn en skýtur rétt yfir markið. Þarna hefðu mörkin hæglega getað orðið 6.
47. mín SJÁLFSMARK!
Daníel Karl Þrastarson (Ægir)
Ekki batnar það Gróttumenn komnir þrír á tvo og senda fyrir markið. Daníel reynir að hreinsa frá en setur boltann í eigið mark.
46. mín
Farið af stað aftur
46. mín
Inn:Viktor Orri Guðmundsson (Grótta) Út:Kristófer Dan Þórðarson (Grótta)
46. mín
Inn:Nikola Kristinn Stojanovic (Ægir) Út:Alfredo Ivan Sanabria (Ægir)
46. mín
Inn:Bjarki Rúnar Jónínuson (Ægir) Út:Kristinn Ásgeir Þorbergsson (Ægir)
45. mín
Brynjar flautar til hálfleiks Litlu bætt við þennan fyrri hálfleik. Tökum okkur korter og höldum svo áfram!
42. mín
Færi Atli Rafn fær boltann inn í teig eftir fyrirgjöf og nær skotinu en Guðmundur ver vel.
41. mín
Hrannar Ingi með skotið frá D-boganum eftir góðan undirbúning Mattíasar en skotið rétt framhjá.
37. mín MARK!
Björgvin Brimi Andrésson (Grótta)
Þetta er nú meira ruglið Góð uppbygging á sókn hjá Gróttu. Björgvin Brimi tekur svo hlaupið inn í teiginn og tekur skotið. Boltinn af Baptiste og skoppar þá óþægilega yfir Ómar sem kemur engum vörnum við.
32. mín MARK!
Mattías Kjeld (Grótta)
Aftur er hann á ferðinni! Mattías fær boltann inn á teignum og klárar snyrtilega niður í hægra hornið. Hann er ekki nema 16 ára gamall og þetta var áttunda markið hans á tímabilinu.
31. mín
Jordan kominn í fína stöðu inn í teig en boltinn skoppar óheppilega í höndina á honum og aukaspyrna dæmd.
27. mín
Bolti í bíl á ferð! Ægismenn í sókn en Grótta nær að tækla boltanum frá. Boltinn fer hátt upp í loftið og í bíl á ferð hér á Suðurströnd. Ekki miklar líkur á þessu.
20. mín
Kristófer Dan með lúmskt skot fyrir utan teiginn en skotið framhjá markinu.
16. mín
Já þetta var ekki lengi að gerast. Eftir fína byrjun gestanna hafa Gróttumenn snúið taflinu við.
14. mín MARK!
Mattías Kjeld (Grótta)
Forystan tvöfölduð Mattías allt í einu kominn einn í gegn og klárar fagmannlega niður í hægra hornið framhjá Ómari í markinu.
12. mín MARK!
Nökkvi Már Nökkvason (Grótta)
Heimamenn ná forystunni! Hornspyrna inn í teiginn og Ægismenn í brasi með að hreinsa frá. Boltinn laus í teignum og Nökkvi ræðst á hann og klárar örugglega.
8. mín
Alfredo með skemmtilegt volley á hinum enda vallarins en yfir fer knötturinn.
7. mín
Munaði mjóu Fyrirgjöfin inn í teig og henni er flikkað lengra fyrir markið en Ægismenn ná ekki tánni í boltann sem hefði skilað honum í netið. Gestirnir hafa verið hættulegri þessar fyrstu mínútur.
6. mín
Gestirnir vinna annað horn.
5. mín
Flott spil hjá Ægismönnum. Paul Leonard gerir síðan mjög vel inn í teig en sendingin fyrir er hreinsuð í horn.
1. mín
Ægir sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Liðin gengin inn á og þau takast í hendur. Þetta fer að bresta á.
Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir Gróttumenn gera þrjár breytingar á sínu byrjunarliði frá tapinu gegn Grindavík. Dagur Bjarkason, Nökkvi Már Nökkvason og Kristófer Dan Þórðarson sem er að stíga upp úr meiðslum koma inn í liðið í stað Axels Sigurðarsonar, Einar Tómasar Sveinbjörnssonar og Emils Skúla Einarssonar.

Gestirnir gera tvær breytingar eftir tapið gegn HK. Kristinn Ásberg Þorbergsson og Daníel Karl Þrastarson koma inn í liðið í stað Sigurðs Óla Guðjónssonar og Bjarka Rúnars Jónínusonar.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna Grótta sótti 1-0 sigur til Þorlákshafnar í fyrri viðureign liðanna. Grímur Ingi Jakobsson skoraði þá sigurmarkið úr vítaspyrnu.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Ægir Gestirnir sitja á botni deildarinnar með 8 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Þeir hafa sótt eitt stig í síðustu 7 deildarleikjum og hafa ekki unnið leik frá því í lok maí. Jordan Adeyemo hefur verið ljósi punktur liðsins en hann hefur skorað 8 mörk á tímabilinu.

Mynd: Ægir
Fyrir leik
Grótta Heimamenn sitja í 8. sæti deildarinnar þar sem pakkinn er þéttur. Þeir eru með 19 stig og eru einungis 2 stigum frá umspilssæti. Þeir hafa sótt 7 stig í síðustu 5 leikjum en þeir töpuðu síðasta leik 2-1 gegn Grindavík hér á Vivaldi vellinum. Það er spurning hvort þeir nái að svara fyrir það hér í dag.
Fyrir leik
Dómaratríóið Brynjar Þór Elvarsson verður með flautuna í dag og honum til aðstoðar verða Tryggvi Elías Hermannsson og Ásgeir Viktorsson. Dómaraeftirlitsmaður dagsins er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
14. umferðin hófst á fimmtudag Leikurinn hér í dag er hluti af 14. umferð Lengjudeildarinnar. Svona lítur fjórtánda umferðin út:

16. júlí:
Afturelding 3-2 Leiknir (19:15).
17. júlí:
Fylkir 4-1 Njarðvík (19:15).
18. júlí:
Grótta - Ægir (14:00)
Grindavík - ÍR (14:00)
Þróttur - Völsungur (16:00)
20. júlí:
HK - Vestri (19:15)
Mynd: Lengjudeildin

Fyrir leik
Vivaldivöllurinn heilsar Komiði sæl og blessuð og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu beint frá Vivaldi vellinum á Seltjarnarnesi þegar Grótta tekur á móti Ægi.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Byrjunarlið:
1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
7. Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('46)
8. Atli Rafn Guðbjartsson
9. Jordan Adeyemo
11. Stefan Dabetic (f) ('73)
20. Alfredo Ivan Sanabria ('46)
21. Daníel Karl Þrastarson
22. Harley Willard ('89)
24. Paul Leonard Skoczylas JR
45. Dajan Ponjevic ('60)
50. Baptiste Gateau
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Gabriel Michael Thull
14. Benedikt Þór Viðarsson ('73)
19. Nikola Kristinn Stojanovic ('46)
27. Marko Panic
30. Hilmar Óli Viggósson ('60)
66. Sæmundur Hólm Gilbertsson ('89)
80. Bjarki Rúnar Jónínuson ('46)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Nenad Zivanovic (Þ)
Dimitrije Cokic (Liðsstj.)
Guðbjartur Örn Einarsson (Forráðam.)
Bjartmar Þór Unnarsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: