Rogers efstur á óskalista Arsenal - Salah á leið til Tyrklands - Fyrrum leikmaður Liverpool til Man Utd?
Besta karla
Valur
38' 1
3
Fram
Besta karla
Þór
LL 2
1
Víkingur R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 1
0
Völsungur
Lengjudeild karla
Grótta
LL 6
1
Ægir
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
ÍR
2. deild karla
KFA
LL 0
1
Selfoss
Grindavík
0
0
ÍR
18.07.2026  -  14:00
Stakkavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Vilhelm Þráinn Sigurjónsson
Byrjunarlið:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Damir Muminovic (f)
5. Arnór Gauti Úlfarsson
7. Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('83)
8. Stefán Jón Friðriksson
9. Rúnar Ingi Eysteinsson ('65)
10. Ingi Þór Sigurðsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson ('75)
18. Christian Bjarmi Alexandersson ('65)
26. Eysteinn Rúnarsson
27. Heiðar Snær Ragnarsson ('65)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Robert Blakala (m)
11. Valur Þór Hákonarson ('83)
17. Andri Karl Júlíusson Hammer
19. Rafael Victor ('65)
20. Mikael Máni Þorfinnsson ('75)
22. Lárus Orri Ólafsson ('65)
23. Sindri Þór Guðmundsson ('65)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson (AÞ)
Aron Benediktsson (Sjúkraþj.)
Helgi Leó Leifsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Stefán Jón Friðriksson ('70)
Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('81)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Leiknum lýkur með skoti frá ÍR Ívan Óli með skot beint á Hjörvar og við það flautar Aðalbjörn leikinn af. Enn eitt markalausa jafnteflið hjá Grindavík í sumar, það þriðja í röð á heimavelli. Bæði lið þurfa að sætta sig við eitt stig sem breytir stöðu þeirra þi töflunni ekki neitt.
Skýrsla væntanleg og ég segi bara takk fyrir mig.
94. mín
Þetta er að renna út í sandinn Grindvíkingar voru í frábærri stöðu en rangstaða dæmd á Rafael Victor.
93. mín
Bæði lið eru að reyna að sækja stigin þrjú þessar lokamínútur. Fram og til baka þessa stundina.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
89. mín
Grindavík!! Frábær spyrna frá Lárusi inn á teiginn sem Damir skallar á nærstöngina mjög nálægt markinu en Vilhelm ver vel. Damir nær einnig frákastinu og neglir boltanum fyrir markið en ÍR-ingar ná að hreinsa.
86. mín
Inn:Tareq Shihab (ÍR) Út:Stefán Þór Pálsson (ÍR)
85. mín
Grindvíkingar eru að banka á dyrnar en er það of seint? Fengu tvær hornspyrnur í röð og héldu góðri pressu á ÍR-ingum sem endaði með skoti frá Mikael Mána við teiginn en Vilhelm varða það virkilega vel.
83. mín
Inn:Valur Þór Hákonarson (Grindavík) Út:Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
82. mín Gult spjald: Ágúst Unnar Kristinsson (ÍR)
Brýtur hressilega á Inga Þór við hliðarlínuna og fær réttilega gult spjald.
81. mín Gult spjald: Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
Brýtur á Halldóri á vallarhelmingi ÍR, svokallað pirringsbrot.
78. mín
Ingi Þór! Besta færi leiksins! Gunnleifur gerir vel og fer upp hægri kantinn en Ingi Þór fær boltann í miðjum teignum og skýtur en Vilhelm nær að blaka þessu yfir.
75. mín
Inn:Mikael Máni Þorfinnsson (Grindavík) Út:Haraldur Björgvin Eysteinsson (Grindavík)
71. mín
Óliver Elís... Með spyrnuna beint í vegginn og síðan tekur hann frákastið á lofti en það skot fer virkilega langt fram hjá marki Grindavíkur.
70. mín Gult spjald: Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
Brýtur af sér á hættulegum stað og uppsker gult kort.
69. mín
Haraldur með skotið! Loksins ná Grindvíkingar góðri sókn sem endar með skoti frá Haraldi en það fer rétt fram hjá markinu.
65. mín
Inn:Rafael Victor (Grindavík) Út:Heiðar Snær Ragnarsson (Grindavík)
65. mín
Inn:Sindri Þór Guðmundsson (Grindavík) Út:Christian Bjarmi Alexandersson (Grindavík)
65. mín
Inn:Lárus Orri Ólafsson (Grindavík) Út:Rúnar Ingi Eysteinsson (Grindavík)
62. mín
Rólegur seinni hálfleikurinn ÍR-ingar hafa reynt nokkur skot fyrir utan teig og Grindvíkingar ekkert ógnað og enn bíðum við eftir marki.
61. mín
Inn:Ívan Óli Santos (ÍR) Út:Arnór Sölvi Harðarson (ÍR)
61. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Orri Bjarkason (ÍR)
55. mín
Hákon Dagur sestur niður og þarfnast aðhlynningar. Hann á oft erfitt með að haldast heill en vonandi er í lagi með hann.
50. mín
Orri að ógna aftur Kemst í gott færi en Damir nær að kasta sér fyrir skotið og bjarga málunum.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Rólegum fyrri hálfleik lokið Lítið um færi og leikurinn í miklu jafnvægi. Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
43. mín
ÍR-ingar tekið stjórnina Gestirnir hafa haldið mun meira í boltann og náð að þrýsta Grindvíkingum aftar á völlinn síðustu tíu mínútur eða svo.
37. mín
Ingi Þór lendir í samstuði við Jón Arnar og vill fá víti en ekkert dæmt. Aðalbjörn stöðvar leikinn og Ingi þarf að fara útaf í mínútu en ekki Jón Arnar.
33. mín
Orri með skot úr fínu færi en Hjörvar Daði ver vel.
27. mín
Leikurinn kominn í mikið jafnvægi Bæði lið skiptast á að halda í boltann en lítið er um færi.
23. mín
Enn ein hornspyrnan hjá Grindavík Eysteinn með boltann inn á teiginn en þessi fer beint yfir allan pakkann og aftur fyrir endamörk.
19. mín
Orri Bjarkason fellur í teignum ÍR-ingar vilja víti en Aðalbjörn ekki sammála því og leikurinn heldur áfram.
17. mín
Grindvíkingar hafa haldið mun meira í boltann og heilt yfir verið betri. ÍR-ingar virðast ætla að treysta á skyndisóknir.
8. mín
ÍR að ógna! Klaufagangur inni á teig Grindavíkur, Arnór Gauti í smá veseni en Eysteinn bjargar þessu á endanum.
6. mín
Heimamenn ofan á þessar fyrstu mínútur Frábær skalli frá Damir eftir hornspyrnu sem ÍR-ingar virðast bjarga á línu áður en Vilhelm handsamar boltann.

Grindavík betri þessar fyrstu mínútur.
3. mín
Fyrsta hornpyrna leiksins Grindvíkingar fá hana og Eysteinn kemur með góðan bolta inn á teiginn sem gestirnir skalla frá.
2. mín
Mikil þoka í Grindavík Grámyglulegar aðstæður suður með sjó.
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn Ray Anthony gerir tvær breytingar á liði Grindavíkur frá 1-2 sigrinum gegn Gróttu í síðustu umferð en út fara þeir Valur Þór Hákonarson og Sindri Þór Guðmundsson og inn í stað þeirra koma þeir Ingi Þór Sigurðsson og Heiðar Snær Ragnarsson.

Jóhann Birnir gerir hvorki meira né minna en fimm breytingar frá 5-1 skellnum gegn HK í síðustu umferð. Sigurður Karl, Hrafn Hallgríms, Emil Nói, Bergvin Fannar og Víðir Freyr fara allir úr byrjunarliðinu en inn koma Stefán Þór, Óliver Andri, Hákon Dagur, Jón Arnar og Arnór Sölvi.
Fyrir leik
Langt upp í næstu sæti Grindavík og ÍR eru í 9. og 10. sæti, fjórum og fimm stigum fyrir ofan fallsæti en það er enn lengra upp í 8. sætið. Grótta er í 8. sæti með 19 stig en þar fyrir ofan er pakkinn nokkuð þéttur. Sigurvegari leiksins getur því aðeins komist nær miðjumoðinu en tap í dag og fallbaráttan blasir við.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna Liðin spiluðu við hvort annað í 3. umferð í Breiðholtinu og leiknum lauk með 2-2 jafntefli. ÍR komst í 2-0 í fyrri hálfleik eftir mörk frá Víði Frey og Emil Nóa. Rafael Victor skoraði svo úr vítaspyrnu um miðjan seinni hálfleik áður en Lárus Orri Ólafsson jafnaði metin á 90. mínútu og þar við sat.
Fyrir leik
Dómarateymið Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er dómari leiksins en honum til aðstoðar verða þeir Þráinn Jón Elmarsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður er Einar Örn Daníelsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍR ÍR-ingar eru í 10. sæti með 12 stig, stigi minni en Grindvíkingar. ÍR hefur aðeins sótt tvö stig í síðustu fimm leikjum sínum en síðasti sigurleikur þeirra kom einnig gegn Gróttu en sá leikur var pilaður 17. júní, svo Breiðhyltingar telja eflaust vera kominn tími á næsta sigur.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Grindavík Heimamenn hafa átt heldur rólegt tímabil en hafa þó aðeins verið að bíta frá sér í seinustu leikjum. Liðið tapaði 5-4 fyrir Njarðvík í rosalegum leik í 12. umferðinni og vann síðan 1-2 útisigur gegn Gróttu og náðu þar með að búa til smá bil niður í fallsætin tvö. Grindavík er með 13 stig eftir 13 leiki en liðið er í 9. sæti, fimm stigum fyrir ofan Völsung og Ægi sem eru í fallsætunum tveimur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stakkavíkurvöllur tekur á móti okkur! Sæll öll sömul og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Grindavíkur og ÍR sem fer fram í Grindavík í 14. umferð Lengjudeildar karla.
Mynd: Alexander Tonini

Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Halldór Atli Kristjánsson
6. Kristján Atli Marteinsson
10. Stefán Þór Pálsson ('86)
17. Óliver Andri Einarsson
19. Hákon Dagur Matthíasson
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f)
25. Jón Arnar Sigurðsson
28. Óliver Elís Hlynsson
44. Arnór Sölvi Harðarson ('61)
61. Orri Bjarkason ('61)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
2. André Musa Solórzano Abed
4. Sigurður Karl Gunnarsson
5. Hrafn Hallgrímsson
7. Ívan Óli Santos ('61)
8. Emil Nói Sigurhjartarson
14. Víðir Freyr Ívarsson ('61)
46. Tareq Shihab ('86)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Jónþór Atli Ingólfsson (Leikgr.)
Sölvi Haraldsson (Forráðam.)
Ómar Atli Sigurðsson (Styrktarþj.)
Davíð Örvar Ólafsson (AÞ)
Helgi Freyr Þorsteinsson (MÞ)

Gul spjöld:
Ágúst Unnar Kristinsson ('82)

Rauð spjöld: