Nico Williams með 77 milljóna punda klásúlu - Vilja Summerville sem arftaka Rogers - Arsenal blandar sér í baráttuna um Kone
FH
0
0
Breiðablik
20.07.2026  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Besta karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Áhorfendur: 567
Maður leiksins: Anton Ari Einarsson (Breiðablik)
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Birkir Valur Jónsson ('93)
5. Oliver Stefánsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
14. Adolf Daði Birgisson ('78)
17. Jóhannes Kristinn Bjarnason
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson ('78)
32. Gils Gíslason ('74)
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('74)
37. Baldur Kári Helgason
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
3. Kristján Snær Frostason ('93)
6. Grétar Snær Gunnarsson ('78)
9. Kristján Flóki Finnbogason ('74)
10. Sverrir Páll Hjaltested ('74)
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
39. Benjamín Bæring Þórsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
90. Arnór Borg Guðjohnsen ('78)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Gestur Pálmason (Forráðam.)
Benjamin Gordon Mackenzie (Styrktarþj.)
Númi Már Atlason (Sjúkraþj.)
Kjartan Sturluson (MÞ)
Guðmundur Jón Viggósson (Liðsstj.)
Árni Freyr Guðnason (AÞ)

Gul spjöld:
Tómas Orri Róbertsson ('71)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Markalaust hér í Kaplakrika, en það segir ekki alla söguna af leiknum. Lesið skýrsluna sem kemur seinna í kvöld og viðtölin til að fá alla myndina.

Annað markalausa jafnteflið í Bestu deildinni þetta tímabilið. Leikur Keflavíkur og Breiðabliks endaði einnig 0-0.
93. mín
Inn:Kristján Snær Frostason (FH) Út:Birkir Valur Jónsson (FH)
92. mín
Grétar með skot inn í teig! FH-ingar með hornspyrnu sem þeir lyfta inn á teig. Þeir berjast um að ná skallanum en úr verður að boltinn dettur bara fyrir Grétar sem nær skotinu en þvagan fyrir framan hann of fjölmenn og skotið í varnarmenn.
91. mín
Blikar í þungri sókn, en ná ekki að búa til skotvinkilinn þar til Hlynur fær boltann úti hægra megin. Hann kemur með fyrirgjöfina og Ásgeir nær skallanum í átt að marki, en þessi var laus og Jökull ekki í miklum vandræðum.
91. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma
88. mín
RÉTT FRAMHJÁ!! Arnór Borg kemur upp hægri kantinn og kemur með fyrirgjöfina. Kristján Flóki aleinn inn í teig með fullt af plássi og nær skallanum, en hann setur hann framhjá.
86. mín
Þetta átti að vera rautt! Eftir færið liggur Ívar í grasinu og Kristján Flóki stígur bara á bringuna á honum. Gunnar hefur bara ekki séð þetta því þetta var mjög ljótt.
85. mín
Stöngin!!! Kjartan Kári kominn í hættulega stöðu úti vinstra megin og kemur með fyrirgjöfina á fjær. Kristján Flóki er mættur þar og stangar boltanum í stöngina!
83. mín
Gangur leiksins Þetta er svakalega mikið fram og til baka síðustu mínútur. Mikill hraði og harka, en ekkert um færi. Vonandi að loka mínúturnar verði spennandi.
78. mín
Inn:Kristinn Steindórsson (Breiðablik) Út:Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik)
78. mín
Inn:Arnór Borg Guðjohnsen (FH) Út:Adolf Daði Birgisson (FH)
78. mín
Inn:Grétar Snær Gunnarsson (FH) Út:Tómas Orri Róbertsson (FH)
74. mín
Inn:Sverrir Páll Hjaltested (FH) Út:Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
74. mín
Inn:Kristján Flóki Finnbogason (FH) Út:Gils Gíslason (FH)
73. mín Gult spjald: Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik)
71. mín Gult spjald: Tómas Orri Róbertsson (FH)
Þetta var frekar augljóst. Knúsar manninn niður í jörðina.
69. mín
Blikar fá hornspyrnu. Þeir lyfta boltanum á fjær og þar sem Ívar nær að koma boltanum niður og tekur skotið en í varnarmann.
65. mín
Inn:Arnar Bjarki Gunnleifsson (Breiðablik) Út:Dagur Örn Fjeldsted (Breiðablik)
65. mín
Inn:Jónatan Guðni Arnarsson (Breiðablik) Út:Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
62. mín
HVERNIG SKORAR FH EKKI ÞARNA! Langur bolti fram og Gils sloppinn í gegn. Hlynur Freyr eltir hann uppi, og nær að renna sér fyrir fyrsta skotið hans. Gils fær hann aftur, og tekur skotið beint í Anton. Þá fer boltinn til Kjartans sem er aðeins lengra frá og tekur skotið en yfir.
57. mín
Inn:Kristinn Jónsson (Breiðablik) Út:Þór Andersen Willumsson (Breiðablik)
57. mín
Inn:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik) Út:Aron Bjarnason (Breiðablik)
56. mín
Núna fer þetta framhjá Gils dansar á kantinum og kemur svo með boltann inn á völlinn. Tekur skotið fyrir utan teig svo, fast en rétt framhjá.
54. mín
STÖNGIN Kjartan Kári í svakalegu stuði! Hann fær boltann fyrir utan teig og tekur aftur skotið. Þessi virðist ætla inn, en skellur af stönginni og út!

FH-ingar að byrja mjög vel í þessum hálfleik.
49. mín
ÞVÍLÍK VARSLA! FH-ingar í góðri sókn, og mikið að ógna. Boltinn berst svo til Kjartans Kára fyrir utan teig sem tekur skotið í fyrsta, þrumuskot sem er á leiðinni að syngja í netinu en Anton kastar sér á eftir þessu og ver þetta frábærlega!
48. mín
Tómas Orri fer niður inn í teig Tómas er að keyra á Aron Bjarna, og þeir fara alla leið upp að endalínu þar sem Tómas fellur við. Hann biður um víti, en enginn liðsfélagi tekur þátt í því þar sem það sáu það allir þarna að það var nákvæmlega ekkert á þetta.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks Tölfræðin segir söguna af frekar jöfnum leik en Blikar búnir að fá hættulegri færi, sem er staðan. Með áskriftarþjónustu Fótbolta.net geturðu skoðað ítarlega tölfræði á meðan leik stendur, liðsuppstillingar og einkunnir leikmanna.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.

Mynd: Fótbolti.net

45. mín
Hafliði Breiðfjörð með myndavélina á lofti í Krikanum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik í mjög fjörugum leik. Gestirnir væntanlega mjög fúlir þar sem þeir skoruðu líkast til löglegt mark, og hefðu klárlega átt að fá vítaspyrnu. Spurning hvort það bítur þá í rassinn í seinni.
44. mín
Það er mikill hraði og harka í þessum leik. Eftir rólegar fyrstu 20 er þetta búið að vera frábær skemmtun.
38. mín
Dauðafæri eftir horn Dagur með hornspyrnuna inn í teig og Blikar ná fyrst tveimur sköllum sem fara báðir í varnarmenn. Þá dettur boltinn beint fyrir Þór sem er við markteiginn, og hann tekur skotið en FH-ingarnir kasta sér fyrir boltann og bjarga þessu.

Hendin sem Blikarnir vildu hérna rétt áðan var líka alveg klárlega hendi. Jóhannes Kristinn með hendina lengst úti.
37. mín
Blikar alveg brjálaðir! Hlynur tekur aukspyrnuna og hún fer í vegginn, en Blikar þyrpast að dómaranum og biðja um hendi og víti.
36. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað Brotið á Blikum inn í D-boganum.
35. mín
Ívar mjög nálægt því að skora Blikar með horn og Dagur kemur með mjög góða spyrnu á fjær, beint á kollinn á Ívari sem setur þennan rétt framhjá.
33. mín
Langur bolti út á vinstri hjá FH beint á Gils. Hann kemur upp kantinn og fer svo inn á teiginn. Hann er í þröngu færi en nær skotinu, beint á Anton en heimamenn fá horn.

Blikar hreinsa svo hornið frá.
30. mín
Gils næstum kominn í dauðafæri Lúmskur bolti inn fyrir vörn Blika sem Gils er að elta. Anton Ari er bara rétt á undanum honum út í boltann, nær að slæma hendinni í hann og er svo fljótur upp að kasta sér á hann.
27. mín
Blikar vilja víti! Arnór Gauti með fast skot fyrir utan teig og það lýtur út fyrir að þetta fari í hönd FH-ings.
26. mín
Hættulegur bolti FH-ingar með horn og boltinn kemur þvert fyrir teiginn. Hann fær að fara í gegnum alla þvöguna á markteig en enginn nær snertingu á boltann, og Blikar ná honum á endanum.
23. mín
Markið átti að standa sýnist mér Dagur Örn sem kemur með sendinguna inn á teig úr aukaspyrnu og Ívar nær skallanum og stangar hann í nær. Það er síðan dæmt á Ásgeir Helga og sagt að hann hafi brotið á Tómasi Orra, við fyrstu sýn í endursýningum finnst mér bara nákvæmlega ekki neitt á þetta.
22. mín
BLIKAR SKORA En Gunnar dæmir markið af!
18. mín
Gangur leiksins Þetta er stál í stál hérna í byrjun leiks. Lítið um alvöru opnanir, en FH-ingar svona heilt yfir verið líklegri að skapa sér eitthvað.
13. mín
Aftur sveiflar Dagur boltanum inn í teig og aftur hreinsa heimamenn. Svo brjóta Blikar af sér.
12. mín
Dagur Örn sveiflar boltanum inn í teiginn en heimamenn hreinsa. Sóknin heldur áfram og Blikar ná svo í annað horn hinumegin.
12. mín
Blikar fá sitt fyrsta horn.
7. mín
Blikar með skot Aron Bjarna vinnur boltann á vallarhelmingi FH-inga og geysist áfram upp miðjan völlinn. Hann tekur svo skotið fyrir utan teig, en er aðeins kominn úr jafnvægi og dregur boltann framhjá.
3. mín
Langur bolti og hætta! Oliver Stefánsson með skemmtilega gabbhreyfingu í öfustu línu, og fer framhjá einum. Svo kemur hann með langan bolta fram og þvert yfir völlinn. Davíð Ingvars nær aðeins að pota í hann en boltinn fer í Adolf og skýst áfram. Adolf þá sloppinn í gegn, en varnarmenn Blika ná að þrengja að honum og plássið orðið ekkert, þannig að Blikar ná bara að vinna boltann af honum.
2. mín
Fyrsta skotið! Gils fær boltann úti vinstra megin, klappar boltanum tvisvar og lætur svo bara vaða. Fínasta skot en Anton sér við honum.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Styttist í þetta Leikmenn og dómarar ganga inn á völl, upphafssparkið eftir smá.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir fjóra breytingar á liðinu frá síðasta leik, þegar FH vann Val 2-0. Nýju mennirnir Jóhannes Kristinn Bjarnason og Oliver Stefánsson koma beint í byrjunarliðið, auk Ísak Óla Ólafssyni og Gils Gíslasyni. Það eru þá fjórir sem færa sig á bekkinn, en það eru Grétar Snær Gunnarsson, Sverrir Páll Hjaltested, Arngrímur Bjartur Guðmundsson og Róbert Hugi Sævarsson.

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir einnig fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Það er einnig einn nýr sem byrjar hjá Breiðablik, en það er Hlynur Freyr Karlsson. Hinir sem koma inn í byrjunarliðið frá síðasta leik eru Aron Bjarnason, Dagur Örn Fjeldsted, og Þór Andersen Willumsson.
Fyrir leik
Spáin Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, tók að sér að spá í leikina sem framundan eru.

FH 1 - 2 Breiðablik
Það er komið að því að Blikar nái í þrjú stig í Krikanum. Það eru einhver meiðsli hjá Blikum en það mun ekki hafa áhrif á liðið í þessum leik. Viktor Örn og Ágúst Orri klára þennan leik.
Fyrir leik
Dómarinn Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í kvöld, en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Fjórði dómari verður Elías Ingi Árnason og eftirlitsmaður Þórður Ingi Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Blikar lang fjórða besta liðið Oft á tíðum hefur verið hægt að skipta upp deildinni í nokkra hluta út frá stigafjölda, og frammistöðu. Í ár virðist Breiðblik vera í algjörum sérflokki hins vegar sem fjórða besta liðið. Þeir eru sex stigum á undan Val sem er í 5. sæti, en miðað við gengi þeirra er líklegt að það bil verði stærra. Svo eru þeir 8 stigum á eftir Fram í 3. sæti. Blikar eiga hins vegar bikar úrslitin eftir, og þar geta þeir verið bestir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH ósigraðir fimm leiki í röð Eftir skelfilega byrjun á mótinu hafa FH-ingar verið miklu flugi. Af þeim 11 stigum sem þeir eru með hafa þeir náð í 9 þeirra í síðustu fimm leikjum. Það eru tveir sigrar og þrjú jafntefli, þar sem í síðustu umferð unnu þeir Val 2-0. Ekkert af þessum leikjum hefur hins vegar verið gegn fjórum efstu liðunum, og því bíður þeirra erfitt verkefni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin heilsar! Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og Breiðablik í Bestu deild karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Kaplakrikavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
6. Arnór Gauti Jónsson
11. Aron Bjarnason (f) ('57)
14. Hlynur Freyr Karlsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
16. Dagur Örn Fjeldsted ('65)
18. Davíð Ingvarsson ('65)
29. Gabríel Snær Hallsson ('78)
45. Þór Andersen Willumsson ('57)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m)
8. Viktor Karl Einarsson ('57)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson ('78)
19. Kristinn Jónsson ('57)
22. Jónatan Guðni Arnarsson ('65)
30. Andri Rafn Yeoman
32. Kristinn Narfi Björgvinsson
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson ('65)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Gunnar Birgisson (AÞ)
Jóhanna Björk Gylfadóttir (Sjúkraþj.)
Jón Guðni Fjóluson (AÞ)
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.)
Haraldur Björnsson (MÞ)
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.)
Emil Pálsson (AÞ)

Gul spjöld:
Gabríel Snær Hallsson ('73)

Rauð spjöld: