Fotbolti.net
Björgvin Stefán Pétursson
Björgvin Stefán Pétursson
Pepsi-deild karla 2015
Fylkisvöllur
Völlurinn hefur verið betri en veðrið er prýðilegt
Fylkir
Fylkir
1 - 1
Breiðablik
Breiðablik
Albert Brynjar Ingason 38'1 - 01 - 148' Guðjón Pétur Lýðsson (víti)Albert Brynjar Ingason (misnotað víti) 58'
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Áhorfendur: 2220
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Gunnar Jarl flautar til leiksloka. Jafntefli staðreynd. Í ágætum fótboltaleik en þó er ljóst að bæði lið eiga meira inni. Skýrsla og viðtöl væntanleg á síðuna innan skamms.
91. mín
Önnur hornspyrna en í þetta skipti brýtur Tonci af sér.
91. mín
Tonci með skalla og Gulli blakar boltanum yfir!!!!!!! STÓRHÆTTULEGT
91. mín
Hornspyrna sem Fylkir fá, kannski síðasti séns?
90. mín
Liðin virðast vera búin að sættast á skiptan hlut, uppbótartími hafinn og það lítur ekki út fyrir það að við fáum sigurmark.
86. mín
Jóhannes Karl reynir skot af 45 metra færi úr aukaspyrnu. Ekki galin hugmynd með þennan fót en boltinn fer framhjá.
85. mín
Þjálfararnir skipta mikið á sama tíma. Samstilltir þessir menn.
Fylkir
84. mín
InnRagnar Bragi Sveinsson
ÚtÁsgeir Örn Arnþórsson
Breiðablik
84. mín
InnOlgeir Sigurgeirsson
ÚtDavíð Kristján Ólafsson
84. mín
Fylkir með hornspyrnu sem Ellert skallar í átt að eigin marki en fer rétt yfir!
82. mín
Ekkert kemur upp úr horninu, mjög bragðdauft þessa stundina.
81. mín
Blikar með álitlega sókn sem endar með skoti í varnarmann Fylkis og Blikar fá horn.
79. mín
Ekkert að gerast þessa stundina hér á Fylkisvelli.
75. mín
Arnór staðinn upp ferskari en nokkru sinni fyrr.
74. mín
Arnór Sveinn liggur eftir í teignum eftir langt innkast frá Fylki. Sjúkraþjálfari Blika mættur, vonandi getur Arnór haldið áfram leik.
71. mín
Blikar mun meira með boltann þessa stundina, án þess þó að skapa sér eitthvað afgerandi.
Fylkir
69. mín
Gult spjald

Jóhannes Karl Guðjónsson

Fylkir
68. mín
InnAndrés Már Jóhannesson
ÚtIngimundur Níels Óskarsson
Andrés Már kemur inn, Fylkismenn í stúkunni gleðjast yfir því.
67. mín
Arnór Sveinn með hættulega fyrirgjöf sem Fylkismenn skalla í horn.
64. mín
Andri staðinn upp eftir að sjúkraþjálfarinn hugaði að meiðslum hans og hann heldur leik áfram.
64. mín
Hörkuárekstur, Kristján Hauks og Andri Yeoman lenda saman og Andri liggur eftir.
63. mín
Kiddi Jóns tekur aukaspyrnuna sem fer hátt yfir markið!
Fylkir
62. mín
Gult spjald

Ásgeir Eyþórsson

Fyrsta gula spjald leiksins. Fyrir brot á Gunnlaugi rétt fyrir utan teig. Fínt færi fyrir Kidda Jóns.
Fylkir
58. mín
Víti misnotað

Albert Brynjar Ingason

VÁÁÁÁ GUNNLEIFUR VER, ALBERT FÆR BOLTANN AFTUR OG AFTUR VER GUNNLEIFUR... Það er veisla í seinni hálfeik!
57. mín
VÍTII!!!!!!! Fylkir fær víti! Gunnlaugur brýtur á Albert
55. mín
Stefán Ragnar með nokkur löng innköst í þessum leik en Blikar hafa náð að verjast þeim, án mikilla vandræða.
53. mín
VÁÁÁ Höskuldur með skalla í slá eftir frábæra hornspyrnu Kidda Jóns. BLIKAR ERU VAKNAÐIR!
52. mín
Fylkismenn virðast halda áfram í 4-4-2 Oddur kemur bara beint uppá topp.
52. mín
Guðjón Pétur er kominn á miðjuna við hlið Gunnlaugs og Andri Yeoman fyrir framan þá.
Breiðablik
48. mín
Mark úr víti!

Guðjón Pétur Lýðsson (stoðsending: Davíð Kristján Ólafsson)

MAAAAAARK!!!!
Guðjón Pétur ekki lengi að stimpla sig inn í þennan leik, hann sendir Bjarna í vitlaust horn! Þetta er allt annað í seinni!!!
47. mín
VÍTASPYRNA!!! Davíð Kristján fellur í teignum eftir viðskipti við Tonci og Gunnar Jarl bendir umsvifalaust á punktinn, Fylkismenn brjálaðir en þeir vilja meina að það hafi verið brotið á Ásgeiri Berki rétt áður.
46. mín
Tvær skiptingar í hálfleik, ein hjá hvoru liði. Vonandi mun Guðjón Pétur vekja sóknarlínu Blika sem hefur verið sofandi fram að þessu.
Breiðablik
46. mín
InnGuðjón Pétur Lýðsson
ÚtArnþór Ari Atlason
Fylkir
46. mín
InnOddur Ingi Guðmundsson
ÚtHákon Ingi Jónsson
45. mín

Þétt setið. # Fylkir #fylbre #pepsi365 #fotboltinet pic.twitter.com/ErFwIUaAVc

— Frreysi (@freyrg) May 7, 2015

45. mín
Gunnlaugur tekur hornspyrnu sem fer í gegnum allan pakkann og útaf hinu megin. Þegar boltinn siglir útaf þá flautar Gunnar til hálfleiks í mjög rólegum leik.
45. mín
Blikar reyna fyrirgjöf sem Bjarni grípur. Slakur fyrri hálfleikur hjá þeim enn sem komið er.
43. mín
Blikar færa sig framar á völlinn en það er EKKERT í gangi sóknarlega hjá þeim.
41. mín
Fylkismenn halda áfram að sækja, Albert leikur á Damir og setur hann fyrir markið þar sem varnarmaður Blika setur hann í horn.
Fylkir
38. mín
MAAAARK!

Albert Brynjar Ingason (stoðsending: Ásgeir Eyþórsson)

MAAAARK!!
Ásgeir Eyþórsson með fyrirgjöf sem endar á kollinum á Alberti Brynjari sem skallar hann í netið. Frábær afgreiðsla.
36. mín
Liðin skiptast á að gefa á hvort annað í mesta bróðerni.
34. mín
Hættuleg hornspyrna frá Kristni Jóns, klafst í teignum en Fylkismenn ná að hreinsa fram þar sem að Hákon var nálægt því að sleppa í gegn. Leikmenn eru að vakna.
32. mín
Bjarni Þórður liggur eftir árekstur við Ellert. Sjúkraþjálfari Fylkis hugar að markmanninum, sem er staðinn upp og uppsker lófaklapp.
29. mín
Jóhannes Karl að reyna að æsa aðeins upp í þessu, brýtur á Arnþóri og sparkar svo boltanum létt í bringuna á honum. Þessi leikur má alveg við smá látum.
25. mín
Þarna skall hurð nærri hælum hjá Blikum! Albert Brynjar fer út að endamörkum með boltann og setur hann fyrir en Arnór kemst í boltann rétt á undan Ingimundi og ekkert varð því úr þessu.
24. mín
Jóhannes Karl búinn að reyna tvo langa bolta sem hafa ekkert heimilisfang. Bæði lið að reyna að fóta sig.
21. mín
Lítið að gerast þessa stundina. Fylkir þó meira með boltann, en ná ekki að skapa sér nein tækifæri.
16. mín
Fylkismenn fá hornspyrnu. Sem ekkert kemur upp úr.
15. mín
Albert Brynjar kemst í ákjósanlegt færi en slakt skot sem Gunnleifur á í engum vandræðum með.
14. mín
Damir tekur skot af 40 metra færi sem fer 10 metra yfir markið.
13. mín
Blikar fá aukaspyrnu sem Kristinn snýr fyrir markið. Bjarni kýlir boltann í burtu.
11. mín
Enn röð fyrir utan völlinn. Góð mæting í Árbæinn.
9. mín
Þetta fer hægt af stað. Blikar aðeins meira með boltann. Kristinn Jóns reynir sendingu á Ellert sem nær aumum skalla framhjá.
6. mín
Blikar spila 4-2-3-1
Gulli
Arnór-Elfar-Damir-Kristinn
Andri-Gunnlaugur
Davíð- Arnþór - Höskuldur
Ellert
5. mín
Fylkismenn taka hornspyrnu sem Gunnleifur grípur.
3. mín
Fylkismenn virðast vera að spila 4-4-2
Bjarni
Stefán-Tonci-Kristján-Ásgeir Eyþórs.
Ásgeir Örn-Ásgeir Börkur-Jói Kalli-Ingimundur
Albert-Hákon
1. mín
Blikar fá aukaspyrnu utan teigs Gunnlaugur tekur hana, snýr boltanum inn á teiginn en of föst sending og boltinn fer aftur fyrir.
1. mín
Leikur hafinn - Blikar sækja í átt að sundlauginni og byrja með boltann.
Fyrir leik
Einnar mínútu klappi nýlokið til minningar um Benjamín Nökkva sem lést langt fyrir aldur fram. Hér á Fylkisvellinum stóðu allir upp og klöppuðu.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga inn á völlinn. Ásgeir Börkur og Arnar Sveinn fremstir í flokki hjá sínum liðum. Veislan er að byrja.
Fyrir leik
5 mínútur í leik. Stúkan er að fyllast, hér stefnir allt í frábært kvöld.
Fyrir leik
Hér er verið að flytja nýtt Fylkislag \"Við erum Fylkir\" eftir Björn Braga. Kristján Sturla var honum til halds og trausts. Flottir.
Fyrir leik
Vallarþulurinn auglýsir hamborgaratilboð í gríð og erg. Eðal borgarar örugglega.
Fyrir leik
Gunnar Jarl Jónsson dæmir þennan leik. Honum til aðstoðar eru Leiknir Ágústsson og Bryngeir Valmdimarsson. Þeir eru byrjaðir að hita upp. Mjög samhæfð upphitun hjá þeim.
Fyrir leik
Fylkismenn mættir út að hita. Rétt á eftir þeim mæta Blikar.
Fyrir leik
Oliver Sigurjónsson er meiddur og því ekki með í dag.
Fyrir leik
Magnús Valur Böðvarsson er mættur og tekur nú út völlinn ásamt vallarstarfsmanni Fylkis.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og ekkert kemur á óvart í liði Blika.
En hinu megin er Andrés Már á bekknum og það kemur eilítið á óvart.
Fyrir leik
Völlurinn lítur vel út. Hitamælirinn sýnir 9° og tónlistin er komin af stað. Byrjunarliðin fara að detta inn.
Fyrir leik
Damir Muminovic, leikmaður Breiðabliks:
Þetta verður bara stríð held ég. Flestir vellir á landinu eru lélegir og ekki hægt að búast við sambabolta. Baráttan er að sem ræður úrslitum í þessum fyrstu umferðum. Það er frábært að vera í þessu liði og mórallinn og allt í kringum liðið er bara geggjað.
Fyrir leik
Andrés Már Jóhannesson, leikmaður Fylkis:
Við höfum skoðað Blikaliðið vel og vitum hversu megnugir þeir eru. Við erum líka öflugir, höfum staðið okkur vel í vetur og þurfum bara að sýna okkar rétta andlit. Við höfum öflugan hóp og mikla breidd og ég geri miklar væntingar um að við stöndum okkur vel í sumar, betur en síðustu ár.
Fyrir leik
Blikum hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu og unnu bæði Fótbolta.net mótið og Lengjubikarinn en Arnar Grétarsson tók við liðinu á liðnum vetri. Fylkismenn binda miklar vonir við árangur í sumar enda leikmannahópurinn orðinn nánast fullmótaður mun fyrr en venjan er í Árbænum.

Byrjunarliðin verða tilkynnt klukkutíma fyrir leik en Bjarni Þórður Halldórsson verður í rammanum hjá Árbæjarliðinu samkvæmt okkar heimildum. Hann hefur í vetur verið að berjast um stöðuna við hinn unga Ólaf Íshólm Ólafsson.

Markmenn beggja liða áttu ekki nægilega gott tímabil í fyrra en eru ákveðnir í að sýna sínar bestu hliðar í sumar.

Elís Rafn Björnsson kom Fylki yfir þegar þessi lið áttust við í Lautinni í fyrra en Guðjón Pétur Lýðsson jafnaði í 1-1 og urðu það lokatölur.

Gunnar Jarl Jónsson sér um að dæma þennan leik í kvöld.
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan dag og velkomin í Lautina. Fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar lýkur í kvöld þegar Fylkir og Breiðablik eigast við. Ljóst er að vallaraðstæður verða ekki upp á sitt besta í kvöld en Fylkisvöllurinn er mjög viðkvæmur og var leikurinn færður um nokkra daga til að hann yrði eitthvað betri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.