SKÝRSLAN: Gulli bjargvættur í gæðalitlum leik
Hvað réði úrslitum?
Jafntefli í frekar rólegum fyrsta leik þessara liða. Bæði lið byrjuðu mjög rólega og voru lengi að finna takt. Það kom svo eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar Fylkismenn komust yfir enda nánast ekkert að gerast fram að því. Blikar jafna svo sanngjarnt eftir að hafa byrjað seinni hálfleik af miklum krafti. Vendipunturinn í leiknum er síðan þegar Gunnleifur ver vítaspyrnu frá Alberti Brynjari og ver einnig frábærlega frákastið frá Alberti. Það sem að réði úrslitum í þessum leik var vítaspyrnuvarslan frá Gunnleifi. Jafntefli niðurstaðan í ágætum leik.
Bestu leikmenn
1. Gunnleifur Gunnleifsson
Varði það sem að hann átti að verja og var öruggur í sínum aðgerðum. Vítaspyrnuvarslan skilar honum sem manni leiksins í dag.
2. Albert Brynjar Ingason
Var mjög sprækur, skoraði og allt sem gerðist sóknarlega hjá Fylki fór í gegnum hann. Fiskaði síðan vítaspyrnu sem að hann klikkaði á sjálfur.
Atvikið
Vítaspyrnan á 58 mínútu hjá Alberti Brynjari og varslan hjá Gunnleifi sem kom í veg fyrir það að Fylkir kæmist 2-1 yfir í leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Þessum liðum er spáð 5. og 6. sæti í deildinni svo að jafntefli kemur ekkert á óvart og stigasöfnun er því komin í gang hjá báðum liðum.
Vondur dagur
Breiðablik náðu ekki upp sama takti og þeir hafa sýnt á undirbúningstímabilinu og þeir leikmenn sem að hafa verið frábærir á undirbúningstímabilinu náðu ekki þeim hæðum sem þeir hefðu viljað. Eins og Arnþór Ari og Ellert Hreinsson sem sýndu ekki mikið í kvöld.
Dómarinn - 8,5
Gunnar Jarl var með allt á hreinu í þessum leik. Dæmdi tvær vítaspyrnur sem að voru báðir hárréttir dómar og var bara mjög flottur.



