SKÝRSLAN: Markalaust Kópavogsfjör
Hvað réði úrslitum?
Færanýting!
Blikar fengu mörg fín færi en gestirnir líka upp úr skyndisóknum, í raun alvega hundfurðulegt að þessi leikur endi markalaus.

Bestu leikmenn
1. Kristian Jajalo
Feykiöruggur í marki Grindvíkinga. Varði allt sem á rammann kom, hirti fullt af fyrirgjöfum og yfirvegunin uppmáluð í öllum leiknum.
2. Gísli Eyjólfsson
Bestur Blika, átti fín skot og tengdi vel varnarleik og sóknarleik liðsins í kvöld.
Atvikið
Í blálokin komst Aron Bjarnason framhjá bakverði Grindavíkur og mundaði skotfótinn.
Í því virtist stigið í veg fyrir hann með þeim afleiðingum að hann féll við. Ívar alveg klár á því að ekkert væri athugavert...við lítinn Blikafögnuð!

Hvað þýða úrslitin?
Grindavík minnkar muninn á Valsara niður í tvö stig á toppnum og eru fjórum stigum ofan við Stjörnuna í þriðja sæti.
Blikar eru enn í 8.sæti en nú með 11 stig.

Vondur dagur
Fínn fótboltaleikur í alla staði en sóknarmenn Blika fara ekki sáttir að sofa.
Lund Pedersen og Tokic áttu að nýta sín færi betur.

Dómarinn - 8,5
Flottur leikur hjá tríóinu.
Öll spjöld rétt og stóru ákvarðanirnar voru fáar. Vissulega þarf mat hans í atvikinu að hafa verið rétt...sem það líklega var.
Annars frekar einfaldur leikur að dæma, en það þarf líka að dæma þá vel!