Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Undanúrslit Reykjavíkurmótsins
Egilshöll
Fjölnir
Fjölnir
0 - 3
Fylkir
Fylkir
0 - 141' Hákon Ingi Jónsson (víti)0 - 245' Helgi Valur Daníelsson 0 - 372' Valdimar Þór Ingimundarson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Leik lokið!
Fylkir leikur til úrslita gegn KR eða Val á mánudaginn. Hér í Egilshöll.
Fjölnir
85. mín
InnAtli Fannar Hauksson
ÚtBergsveinn Ólafsson
Minnum á að klukkan 21 hefst leikur KR og Vals. Hinn undanúrslitaleikurinn. Einnig í beinni lýsingu hjá okkur.
Fylkir
81. mín
InnLeó Ernir Reynisson
ÚtDaði Ólafsson
Fylkir
78. mín
InnAxel Andri Antonsson
ÚtHákon Ingi Jónsson
Fylkir
72. mín
MAAAARK!

Valdimar Þór Ingimundarson

Valdimar innsiglar sæti Fylkis í úrslitaleiknum! Mikið fimbulfamb í teignum og á endanum er Valdimar grimmastur og potar boltanum yfir línuna.
Fjölnir
70. mín
Gult spjald

Kristófer Óskar Óskarsson

Fylkir
69. mín
InnDaníel Steinar Kjartansson
ÚtÓlafur Ingi Skúlason
65. mín
Valgeir Lunddal skapar hættu en Ólafur Ingi bjargar með frábærri tæklingu! Biður svo um skiptingu beint í kjölfarið.
Fylkir
62. mín
InnDavíð Þór Ásbjörnsson
ÚtGylfi Gestsson
61. mín
Ragnar Bragi í Fylki með lausa skottilraun. Auðvelt fyrir Atla í marki Fjölnis.
53. mín
Fjölnismenn rembast við að reyna að minnka muninn. Valgeir Lunddal með skot vel yfir markið.
50. mín
Fylkir með hörkuskot. Varið í horn.
49. mín
Jóhann Árni með skot hjá Fjölni. Yfir.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
Fjölnir
46. mín
InnKristófer Óskar Óskarsson
ÚtViktor Andri Hafþórsson
Fjölnir
46. mín
InnÍsak Atli Kristjánsson
ÚtIngibergur Kort Sigurðsson
45. mín
Hálfleikur
Fylkir verið töluvert betra liðið í leiknum hingað til. Staðan algjörlega í takt við gang leiksins.
Fylkir
45. mín
MAAAARK!

Helgi Valur Daníelsson

Boltinn dettur fyrir Helga eftir darraðadans í kjölfar hornspyrnu. Hann skorar af mjög stuttu færi, skot upp í þaknetið.
Fylkir
41. mín
Mark úr víti!

Hákon Ingi Jónsson

Sendir Atla Gunnar í rangt horn og skorar af öryggi!
40. mín
FYLKIR FÆR VÍTI! Bergsveinn Ólafsson brýtur á Ragnari Braga! Held að þetta hafi verið hárréttur dómur.
40. mín

37. mín
Ástæðan fyrir því að það hefur ekki komið færsla lengi er einfaldlega sú að það hefur ekkert gerst! Ekki flókið!

Fylkir þó talsvert meira með boltann.
21. mín
Ingibergur Kort með lipran sprett og ógnar við mark Fylkis. Hann er sprækastur Fjölnismanna.
19. mín
Ingibergur Kort fellur í teignum og Fjölnismenn vilja vítaspyrnu. Vilhjálmur Alvar gerir rétt með því að dæma ekkert.
14. mín
Daði Ólafsson í flottu skotfæri fyrir Fylki, lætur vaða en Atli Gunnar í marki Fjplnis tekur "De Gea" vörslu með fótunum.
12. mín
Fylkismenn hafa byrjað talsvert betur og sækja mun meira. Voru að vinna hornspyrnu í þessum skrifuðu orðum.
5. mín
Ari Leifsson, leikmaður Fylkis, fær flott skallafæri eftir hornspyrnu en hittir ekki markið.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. Fylkismenn eru hvítklæddir í leiknum í kvöld.
Fyrir leik
Þrír leikmenn í byrjunarlið Fjölnis í kvöld eru fæddir 2001.

Það eru Viktor Andri Hafþórsson, Valgeir Lunddal Friðriksson og Jóhann Árni Gunnarsson sem skipa hvolpasveitina.
Fyrir leik
Vinir okkar á SportTv sýna leiki kvöldsins í beinni en hægt er að sjá netútsendinguna með því að smella hérna.
Fyrir leik
Markvörðurinn Atli Gunnar Guðmundsson sem kom frá Fram í vetur er í rammanum hjá Fjölni í kvöld en Þórður Ingason gekk á dögunum í raðir Víkings R.

Almarr Ormarsson, Birnir Snær Ingason, Þórir Guðjónsson og Ægir Jarl Jónasson eru meðal leikmanna sem fóru frá Fjölni eftir fallið úr Pepsi-deildinni.
Fyrir leik
Fylkismenn hafa krækt í Sam Hewson frá Grindavík fyrir átökin á komandi tímabili. Hann er þó ekki með í kvöld.

Ásgeir Börkur Ásgeirsson er farinn í HK, Ásgeir Örn Arnþórsson í Aftureldingu, Elís Rafn Björnsson í Stjörnuna og Jonathan Glenn í ÍBV.

Þá segir sagan að Albert Brynjar Ingason sé á leið frá Fylki og stefni á að leika í Inkasso-deildinni á komandi tímabili. Albert er ekki með Fylkismönnum í kvöld.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn. Reynsluboltarnir Ólafur Ingi Skúlason og Helgi Valur Daníelsson í byrjunarliði Fylkis.
Fyrir leik
Fjölnismenn eru ríkjandi Reykjavíkurmeistarar. Þeir unnu titilinn í fyrsta og eina skipti í fyrra eftir sigur á einmitt Fylki í úrslitaleik, 3-2.

Í Pepsi-deildinni gekk liðinu svo mjög illa og féll niður í Inkasso-deildina. Fylkir hafnaði í 8. sæti sem nýliði í deildinni.

Helgi Sigurðsson er að fara í sitt þriðja tímabil sem þjálfari Fylkis. Ásmundur Arnarsson tók aftur við Fjölnisliðinu eftir að það féll.
Fyrir leik
Heil og sæl! Undanúrslitaleikir framundan í Reykjavíkurmótinu og þeir verða báðir í textalýsingum hjá okkur.

Fjölnir og Fylkir mætast kl. 19:00 og KR og Valur kl. 21:00. Báðir leikirnir fara fram í Egilshöll.

Athygli er vakin á því að ef jafnt verður eftir venjulegan leiktíma í leikjunum þá verður strax gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.

Úrslitaleikurinn fer svo fram mánudaginn 4. febrúar kl. 20:00, einnig í Egilshöll.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.