0. mín
Komið sæl og blessuð og verið velkomin í textalýsingu héðan af Þórsvellinum þar sem heimamenn taka á móti ÍR í 1. deild karla.
0. mín
Liðin eru mætt út á völl og hér er allt klárt, það er ekkert sérstök mæting hér í dag virðist vera. Gæti þó verið að fólk sé seint á ferð enda mikil gleði í gangi í bænum þessa daga.
1. mín
Þórður Már Gylfason hefur flautað leikinn á, ÍR-ingar spila fyrri hálfleik með smá golu í bakið.
1. mín
Enn og aftur virkar klukkan ekki hér á Þórsvellinum, þetta er farið að verða nokkuð vandræðalegt fyrir félagið.
9. mín
Kristinn Þór sleppur einn í gegn en missir boltann of langt frá sér og Þórir í marki ÍR nær boltanum auðveldlega, skipti litlu máli þar sem Kristinn var flaggaður rangstæður.
10. mín
Janez Vrenko er að taka út leikbann í dag eftir að hafa nælt sér í 4 gul spjöld í 5 leikjum, ágætis afrek það. Hjá Þór eru það því bræður sem eru í miðverðinum í dag en þar eru á ferð Atli Jens og Andri Hjörvar
15. mín
Þórsarar komast í þrjú skotfæri í röð eftir hornspyrnu, vörn ÍR sá um fyrstu tvö og það síðasta var laust og rúllaði upp í fangið á Þóri.
18. mín
Kristinn Þór er nálægt því að komast í dauðafæri en virkilega góð tækling bjargaði þessu í þetta sinn, þar var á ferð Viggó Kristjánsson
23. mín
Þarna slapp Rajkovic fyrir horn. Það kom nokkuð laus sending fyrir sem hann hefði getað gripið auðveldlega en hann ákveður að kýla boltann frá og það misheppnast duglega. Varnarmenn Þórs ná að hreinsa frá og bjarga honum í þetta sinn.
25. mín
Gult spjald
Guiseppe P Funicello
29. mín
Jóhann Helgi tekur hlaup inn af hægri vængnum og fer framhjá nokkrum varnarmönnum ÍR áður en hann tekur skotið sem fer rétt yfir mark ÍR. Þetta var aðeins of auðvelt.
34. mín
N. Quashie tók eitthvað smá kast hér eftir tæklingu frá Jóhanni Helga, dramatík sem Þórður Már ákvað að afgreiða án þess að taka upp spjald. Quashie má líklegast ekki brjóta mikið meira af sér án þess að fara í bókina góðu.
40. mín
Þórður Már flautar dæmir brot á ÍR á miðjum vellinum og stoppar hraða sókn Þórsara þar sem þeir voru komnir fjórir á þrjá varnarmenn ÍR. Ekki alveg vinsælasti dómur dagsins en Þórir er snöggur að setja hendur á loft og játa mistök.
42. mín
Gult spjald
Andri Hjörvar Albertsson
Tekur niður sóknarmann ÍR rétt fyrir utan bogann á vítateig Þórsara43. mín
MAAAARK!
Axel Kári Vignisson
Markamínútan stendur undir væntingum! Axel Kári tekur aukaspyrnuna og setur hann framhjá veggnum og beint í netið, falleg spyrna!44. mín
Rautt spjald
Jóhann Helgi Hannesson
Jóhann fær beint rautt spjald. Það er ekki neinn sem virðist vita fyrir hvað en það virtist ekkert vera í gangi. Þetta þýðir þá væntanlega að hann missir af gegn leiknum gegn KA í næstu umferð.45. mín
Hálfleikur - Þórsarar marki undir og manni færri, þetta verður erfiður seinni hálfleikur hjá þeim.
45. mín
Misvísandi fréttir að berast, sumir vilja meina að Jóhann Helgi hafi fengið rautt fyrir það að kýla leikmann ÍR í magann og aðrir að hann hafi sparkað frá sér.
45. mín
Mark ÍR virtist vera nánast \"copy-paste\" af einu marki sem Valsmenn skoruðu hér í síðasta leik þegar Rúnar Már tók nánast eins spyrnu. Innanfótarspyrna framhjá veggnum sem virkaði auðveld. Eru svona góðir spyrnumenn að mæta hingað eða er uppstilling á varnarvegg að klikka?
45. mín
Leikmenn eru mættir út á grasið en dómarinn lætur bíða aðeins eftir sér. Seinni hálfleikur fer að hefjast
46. mín
Þórður Már flautar og seinni hálfleikur hefst
47. mín
MAAAARK!
Andri Björn Sigurðsson
ÍR-ingar eru komnir í 0-2! Elvar Páll tók sprett upp vinstri vænginn og átti sendingu fyrir þar sem Andri Björn var algjörlega einn og kláraði færið auðveldlega. Þetta var allt of auðvelt, eru Þórsarar hættir?49. mín
MAAAARK!
Sveinn Elías Jónsson
Sveinn Elías fyrirliði Þórsarar er ekki lengi að svara þessari spurningu, þeir eru ekki hættir. Þórsarar brunuðu fram beint eftir markið og voru nálægt því að komast í gott færi en vörn ÍR náði að hreinsa í horn sem mark Sveins kom úr.51. mín
Þetta er alvöru byrjun á hálfleik! Þetta mark kveikti heldur betur í leikmönnum Þórs sem flæða fram en ÍR-ingar ógna með hættulegum skyndisóknum
52. mín
Hér er allt að verða gjörsamlega vitlaust! Þórsarar fá víti!
53. mín
Rautt spjald
Þórir Guðnason
Þórir fær beint rautt eftir að hafa tekið sóknarmann Þórs niður sem var kominn einn í gegn, þetta gerðist allt svo hratt að maður er hreinlega að reyna að ná áttum hérna. Dómarinn dæmdi ekkert en stoppaði svo leikinn og ræddi við aðstoðarmann sinn. Eftir það dæmdi hann víti og rak Þórð útaf. Brynjar Örn Sigurðsson varamarkmaður kemur í markið, Kristinn Þór virðist ætla að taka vítið.53. mín
InnBrynjar Örn Sigurðsson
ÚtGunnar Hilmar Kristinsson
56. mín
MAAAARK!
Kristinn Þór Björnsson
Þórsarar eru búnir að jafna, þessi leikur er alveg hreint magnaður!58. mín
Gult spjald
Marteinn Gauti Andrason
Það er ekki líklegt að þú komist upp með viljandi hendi fyrir framan dómara leiksins, Marteinn veit það núna.59. mín
Þvílík dramatík hér á Þórsvellinum. Eftir nokkuð óspennandi fyrstu 40min erum við núna búin að fá fjögur mörk, tvo rauð spjöld og nóg af dramatík á síðustu 15-20 mínúturnar... hvað getur maður beðið um meira? Það eru enn um 30 mínútur eftir
63. mín
Rautt spjald
Marteinn Gauti Andrason
Dramatíkin heldur áfram! Marteinn með klaufalegt brot og fær sitt annað gula spjald fyrir á fimm mínútna kafla. Þetta var mjög svo verðskuldað seinna gula spjald en hann tók niður Sigurð Marinó sem var kominn framhjá honum.65. mín
Þórsarar eru nálægt því að skora! Brynjar Örn varði og menn virtust halda að boltinn væri kominn inn fyrir línuna en svo var ekki, vel bjargað hjá Brynjari.
66. mín
InnAtli Guðjónsson
ÚtHafliði Hafliðason
68. mín
Gult spjald
Sveinn Elías Jónsson
70. mín
Þórsarar komast yfir en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Atli Guðjónsson er eflaust mjög sáttur þar sem þetta var sjálfsmark hjá honum. Sveinn Elías var aftur á móti rangstæður og hafði áhrif á gang leiks þannig að þetta var réttur dómur.
71. mín
InnJón Gísli Ström
ÚtAndri Björn Sigurðsson
76. mín
Þórsarar eru duglegir að pressa á meðan átta útileikmenn ÍR liggja aftarlega á vellinum og reyna að verjast enda manni færri.
80. mín
InnKristinn Þór Rósbergsson
ÚtKristinn Þór Björnsson
83. mín
Orri Freyr Hjaltalín kemst í gott færi en Brynjar vel, heimamenn halda áfram að reyna að sækja öll þrjú stigin.
85. mín
InnÁrmann Pétur Ævarsson
ÚtRobin Strömberg
87. mín
InnKristján Steinn Magnússon
ÚtGuiseppe P Funicello
90. mín
Dómarinn bætir við sex mínútum, heimamenn henda svo gott sem öllum fram.
Leik lokið!
Þvílíkur seinni hálfleikur, bæði lið ganga hálf súr af velli. Umfjöllun og viðtöl væntanleg


