SKÝRSLAN: Mikilvægur heimasigur Stjörnunnar í fallbaráttunni
Hvað réði úrslitum?
Stjarnan var heilt yfir betra liðið í leiknum og átti skilið að sigra. ÍBV reyndu eins og þær gátu en náðu ekki að finna opnanir á vörn Stjörnunnar.
Bestu leikmenn
1. Sigrún Ella Einarsdóttir (Stjarnan)
Lagði upp fyrra markið og á svo stóran þátt í seinna markinu. Var einnig mjög öflug varnarlega.
2. Anna María Baldursdóttir (Stjarnan)
Flott í hjarta varnarinnar og var eins og klettur.
Shameeka Fishley, Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir og Jana Sól Valdimarsdóttir voru einnig öflugar hjá Stjörnunni. Hjá ÍBV fannst mér Sigríður Lára Garðarsdóttir (Sísí) best.
Atvikið
Seinna mark Stjörnunnar og þar með sigurmarkið.
Hildigunnur og Jana voru eins og hrægammar út í teignum og biðu eftir sendingu sem frá manni leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan fjarlægist aðeins Keflavík í fallbaráttunni en ÍBV þarf að ná í stig eða treysta á að Keflavík geri það ekki til þess að halda sér uppi.
Vondur dagur
Enginn lesendur góðir sem fær þennan stimpil í kvöld. Brenna gerði tilkall en hún skoraði þannig að hún sleppur við titilinn en fær þó að vera nefnd hér. Fannst vanta smá bit í hana í kvöld.
Dómarinn - 7
Fín leikstjórn og ekki hægt að kvarta yfir dómaranum að mínu mati. Nokkrir 50/50 dómar sem lítið er hægt að setja út á.



