Fotbolti.net
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vináttulandsleikur
Adams Park
Mjög kalt, annars allt í fína
England U20
England U20
3 - 0
Ísland U20
Ísland U20
Danny Loader 50'1 - 0Ian Poveda Ocampo 71'2 - 0Ian Poveda Ocampo 73'3 - 0
Dómari: Tony Harrington (England)
Leik lokið!
Harrington flautar leikinn af. Lokatölur 3-0. Það er von á viðtölum síðar í kvöld.
90. mín
+2 í uppbótartíma.
90. mín
Ísak Óli með skalla fram hjá markinu eftir hornspyrnu. Ágætis tilraun.
85. mín
Þessi leikur er að fjara út, þægilegur sigur Englands.
England U20
83. mín
InnAndre Dozzell
ÚtMarcus Tavernier
England U20
83. mín
InnTariq Lamptey
ÚtJayden Bogle
81. mín
Stefán Árni fór inn á miðjuna og Bjarki í hægri bakvörð. Guðmundur Andri er núna fremstur og Ágúst á vinstri kanti.
England U20
78. mín
InnJoseph Anang
ÚtBilly Crellin
England gerir þrefalda breytingu og skiptir meðal annars um markvörð.
England U20
78. mín
InnNathan Ferguson
ÚtAlex Cochrane
England U20
78. mín
InnTyrese Campbell
ÚtDanny Loader
Ísland U20
77. mín
InnBjarki Steinn Bjarkason
ÚtDavíð Ingvarsson
Allir leikmenn Íslands sem byrjuðu á bekknum komnir inn á - fyrir utan Patrik markvörð.
Ísland U20
77. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
75. mín
Á hinum enda vallarins á Ísland skottilraun. Ágúst Eðvald með skot á lofti, en boltinn fer fram hjá markinu.
England U20
73. mín
MAAAARK!

Ian Poveda Ocampo

Og hann skorar aftur... Allur vindur virðist farinn úr íslenska liðinu. Ocampo leikur sér með boltann fyrir utan teiginn, keyrir inn frá hægri og á svo fínasta skot sem syngur í netinu. Þessi leikmaður er á mála hjá Manchester City.
England U20
72. mín
InnJaphet Tanganga
ÚtJoel Latibaudiere (f)
England U20
72. mín
InnFlynn Downes
ÚtMatty Longstaff
England U20
71. mín
MAAAARK!

Ian Poveda Ocampo (stoðsending: Danny Loader)

Varamaðurinn Poveda Ocampo skorar, 2-0. Loader, sem skoraði fyrra markið, á sendinguna í þetta skiptið. Varnarleikurinn ekki til útflutnings. Ocampo fékk góðan tíma í að athafna sig áður en hann átti skotið.
69. mín
Ísland ekkert náð að ógna enska markinu í seinni hálfleiknum ef aukaspyrna Brynjólfs er ekki talin með. Heimamenn verið mun sterkari í síðari hálfleik.
65. mín
Hjá Íslandi er Valdimar fremsti maður, Guðmundur Andri á vinstri kanti og Jónatan á hægri. Viktor Örlygur er djúpur á miðju og fyrir framan hann á miðjunni eru Ágúst og Þórir. Ísak kom inn í hjarta varnarinnar. Torfi er orðinn fyrirliði eftir að Alex fór út af.
64. mín
Jack Clarke með hættulegan sprett frá vinstri og setur lágan bolta inn í teiginn. Elías gerir vel og nær að koma hendi á boltann. Í kjölfarið er dæmd rangstaða á England.
England U20
61. mín
InnEmile Smith-Rowe
ÚtAngel Gomes
Leikmaður Arsenal inn fyrir leikmann Manchester United. Gomes var fínn í þessum leik.
England U20
61. mín
InnIan Poveda Ocampo
ÚtLuke Bolton
Núna er komið að Englendingum.
60. mín
Tavernier á skot í teignum eftir hornspyrnu. Boltinn yfir markið.
58. mín
Á meðan ég var að skrá allar breytingarnar inn í kerfið, þá áttu Englendingar skot í stöng. Verð að viðurkenna að ég sá ekki alveg hver það var.
Ísland U20
55. mín
InnÁgúst Eðvald Hlynsson
ÚtKolbeinn Þórðarson
Það var gaman að stimpla allar þessar breytingar inn.
Ísland U20
55. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtDaníel Hafsteinsson
Ísland U20
55. mín
InnÞórir Jóhann Helgason
ÚtAlex Þór Hauksson (f)
Ísland U20
55. mín
InnÍsak Óli Ólafsson
ÚtFinnur Tómas Pálmason
Ísland U20
55. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtBrynjólfur Darri Willumsson
Ísland U20
55. mín
InnJónatan Ingi Jónsson
ÚtKolbeinn Birgir Finnsson
54. mín
Ísland er að undirbúa sexfalda breytingu.
England U20
50. mín
MAAAARK!

Danny Loader

Fyrsta mark leiksins er heimamanna... Það er Danny Loader, leikmaður Reading, sem skorar. Hann kom sér fram fyrir Finn Tómas og kláraði fram hjá Elíasi.
49. mín
Angel Gomes fer vel með boltann og reynir skot fyrir utan teig. Skotið fer hátt yfir markið. Nokkrum sekúndum reynir Loader skot fyrir utan teig og niðustaðan svipuð.
46. mín
Ísland byrjar seinni hálfleikinn á að fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Brotið á Brynjólfi. Hann tekur aukaspyrnuna sjálfur og hún er vægast sagt slök. Langt fram hjá markinu.
46. mín
Fáum við mörk í seinni hálfleikinn?
45. mín
Liðin komin aftur út á völl. Þetta fer að hefjast aftur.
45. mín
Eftir eina mínútu í viðbótartíma fyrri hálfleiks, þá flautar dómari leiksins til leikhlés. Staðan enn markalaus. Ísland fékk fínt færi undir lok fyrri hálfleiks, en Crellin náði að verja. Íslensku strákarnir hafa verið að sækja í sig veðrið sóknarlega síðustu mínúturnar og fengu besta færi leiksins heilt yfir þegar Kolbeinn Þórðarson var nálægt því að komast fram hjá markverði Englands. Varnarlega hefur þetta verið mjög gott og England skapað sér lítið fram á við. Heyrumst eftir stundarfjórðung eða svo.
41. mín
Þau tíðindi voru að berast í fjölmiðlaboxið að Mauricio Pochettino væri búinn að yfirgefa Tottenham. ,,Wenger in," sagði einn breski fjölmiðlamaðurinn og uppskar hlátur.
37. mín
Þarna mátti LITLU MUNA! Valdimar er sloppinn í gegn eftir sendingu og ætlar sér að fara fram hjá Crellin, en það gekk ekki alveg upp. Crellin kemur hendi í boltann og nær að bjarga sínum mönnum. Besta færi Íslands og leiksins til þessa.
32. mín
Billy Crellin, markvörður Englands, leikur á Brynjólf og fær lófaklapp úr stúkunni.
29. mín
Englendingar ógna. Boltinn fellur fyrir Tavernir fyrir utan teig, hann reynir skotið en íslenskur varnarmaður kemur sér fyrir það.
Ísland U20
28. mín
Gult spjald

Brynjólfur Darri Willumsson

Stoppar skyndisókn með því að brjóta á Tavernier.
24. mín
Hættuleg aukaspyrna hjá Tavernier hægra meginn við teiginn. Elías missir af boltanum, en sem betur fer þá fer boltinn aftur fyrir endamörk.
21. mín
Klobbi! Kolbeinn Þórðarson var að klobba Latibaudiere, fyrirliða Englands og leikmann sem er á mála hjá Manchester City. Latibaudiere leist ekki á blikuna á braut á Kolbeini á vinstri kantinum. Aukaspyrnan hjá Íslandi í kjölfarið er mjög klaufaleg. Í staðinn fyrir að setja boltann inn á teiginn, tekur Kolbein hana stutt á Valdimar sem er dæmdur rangstæður.
20. mín
Gomes fer illa með nokkra varnarmenn Íslands upp við endalínuna, en Torfi tæklar boltann í horn. Stuttu síðar á miðvörðurinn Lewis Gibson skot sem fer fram hjá markinu.
18. mín
Luke Bolton með fyrirgjöf, en Danny Loader skallar fram hjá markinu. Ekki mikil hætta þarna.
16. mín
England að ógna hættulegri skyndisókn. Davíð Ingvarsson, leikmaður Breiðabliks, les hins vegar Angel Gomes, leikmann Manchester United, og kemst inn í sendingu hans.
14. mín
Þetta hefði verið klaufalegt sjálfsmark... Misskilingur á milli Torfa og Elíasar. Torfi ætlaði að skalla til baka á Elías, en það er of mikill kraftur í skallanum og hann fer næstum yfir Elías. Sem betur fer náði Elías að koma hendi í boltann og bjarga. Hættulegasta færið hingað til og Íslendingar bjuggu það til fyrir England.
11. mín
Kolbeinn Birgir kominn í álitlega stöðu á hægri vængum og ætlaði að væntanlega að gefa fyrir, en þá flautar dómarinn brot á Brynjólf í teignum. Brynjólfur er í hörkubaráttu við nautsterka varnarmenn Englands.
8. mín
Englendingar haldið boltanum svona 80% plús til þessa. Lítið sem ekkert að frétta sóknarlega samt.
2. mín
Daníel og Torfi lenda saman. Torfi fær höfuðhögg og liggur eftir. Torfi fer út af með sjúkraþjálfurunum og kemur svo aftur inn á.
1. mín
Þjóðsögnvarnir að baki og þetta er farið af stað! Englendingar byrjuðu með boltann.
Fyrir leik
Það er tæpur hálftími í leikinn. Akkúrat núna eru bæði lið út á velli að hita upp. Arnar Viðars klappar fyrir sínum byrjunarliðsmönnum sem hafa verið í sendingaæfingum undanfarnar mínútur.
Fyrir leik
Fyrir leik
Dómarinn í dag heitir Tony Harrington og er enskur. Hann hefur verið að dæma í Championship-deildinni á leiktíðinni.
Fyrir leik
Matty Longstaff, sem skoraði sigurmark Newcastle gegn Manchester United á dögunum, er í byrjunarliði Englands. Gaman verður að fylgjast með hans frammistöðu á miðsvæðinu.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin hafa skilað sér. Brandon Williams, bakvörður Manchester United, er ekki með í dag og er Emile Smith-Rowe á bekknum. Hjá Íslandi halda aðeins þrír leikmenn byrjunarliðssætinu frá tapinu gegn Ítalíu. Það eru Finnur Tómas Pálmason, Alex Þór Hauksson og Kolbeinn Birgir Finnsson. Alex Þór er fyrirliði í dag.
Fyrir leik
Enska U20 landsliðið spilaði við Portúgal síðasta fimmtudag og vann þar 4-0 sigur. Mörkin skoraði Tyrese Campbell (Stoke) tvennu, og Ian Poveda (Manchester City) og Emile Smith-Rowe (Arsenal) skoruðu líka.
Fyrir leik
Enska liðið Þetta er öflugt enskt lið sem okkar menn eru að mæta í dag. Í hópnum má meðal annars finna Brandon Williams, sem hefur verið að koma sterkur inn í aðallið Manchester United. Hann er vinstri bakvörður. Angel Gomes, liðsfélagi hans hjá Manchester United, er einnig í hópnum. Matty Longstaff, sem skoraði sigurmark Newcastle, gegn Manchester United um daginn er í hópnum og þar má líka finna Emile Smith-Rowe, leikmann Arsenal. Þetta eru alls engir aukvissar sem íslensku strákarnir mæta í dag.
Fyrir leik
Íslenska U21 landsliðið er í þriðja sæti í sínum riðli í undankeppni EM 2021 eftir tapið gegn Ítalíu. Ísland hefur unnið þrjá leiki og tapað tveimur leikjum til þessa.
Fyrir leik
Arnar Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfarar liðsins, munu væntanlega nota þennan leik til að skoða einhverja leikmenn.
Fyrir leik
Breytingar á hópnum Íslenska U21 landsliðið tapaði 3-0 gegn Ítalíu síðastliðinn laugardag. Frá þeim leik eru nokkrar breytingar á hópnum. Alfons Sampsted, Jón Dagur Þorsteinsson, Júlíus Magnússon, Ari Leifsson, Willum Þór Willumsson, Hörður Ingi Gunnarsson, Stefán Teitur Þórðarson, Sveinn Aron Guðjohnsen og Birkir Valur Jónsson detta út. Þessir leikmenn eru 21 árs eða verða 21 árs á árinu og eru því ekki með í dag. Inn í þeirra stað voru kallaðir upp: Guðmundur Andri Tryggvason (Víkingur R.), Ísak Óli Ólafsson (SönderjyskE), Hjalti Sigurðsson (KR), Þórir Jóhann Helgason (FH), Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingur R.), Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA), Davíð Ingvarsson (Breiðablik), Stefán Árni Geirsson (KR), Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Fyrir leik
Komiði sæl! Hér verður bein textalýsing frá vináttulandsleik Englands og Íslands í U20 aldursflokki. Leikurinn mun fara fram á Adams Park, heimavelli Wycombe Wanderers.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.