Leik lokið!
Keflvíkingar geta gengið stoltir frá borði en Blikar eru sigurvegararnir.
90. mín
Gult spjald
Viktor Karl Einarsson
+490. mín
+3
728 áhorfendur á Kópavogsvelli í kvöld.
728 áhorfendur á Kópavogsvelli í kvöld.
90. mín
+2
Stefnir allt í að Blikar verði í pottinum annað kvöld.
Stefnir allt í að Blikar verði í pottinum annað kvöld.
90. mín
5 mínútur í uppbót. Að minnsta kosti.
90. mín
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis er að sjálfsögðu að horfa í stúkunni. Breiðablik - Fjölnir í næstu umferð í Maxinu.
88. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtJosep Arthur Gibbs
86. mín
Kwame lék illilega á Ingimund Aron og gaf boltann á Gísla. Hann lagði boltann á Kristin sem skoraði!
MAAAARK!
Kristinn Steindórsson (stoðsending: Gísli Eyjólfsson)
BREIÐABLIK NÆR FORYSTU Á NÝ! KIDDI STEINDÓRS ER Á ELDI!Kwame lék illilega á Ingimund Aron og gaf boltann á Gísla. Hann lagði boltann á Kristin sem skoraði!
86. mín
Stórskotahríð frá Breiðabliki stendur yfir í smá tíma en Keflavík lifir þetta af. Gestirnir fjölmennir til baka núna.
81. mín
Boltinn dettur á Kristin Steindórsson í teignum og hann setur boltann af öryggi í hornið.
Þetta er meiri leikurinn!
MAAAARK!
Kristinn Steindórsson
BLIKAR HAFA JAFNAÐ!!!!Boltinn dettur á Kristin Steindórsson í teignum og hann setur boltann af öryggi í hornið.
Þetta er meiri leikurinn!
80. mín
Gult spjald
Adam Ægir Pálsson
Keyrir aftan í bakið á Yeoman.78. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtFrans Elvarsson
77. mín
InnHelgi Þór Jónsson
ÚtKian Paul James Williams
77. mín
InnAndri Fannar Freysson
ÚtRúnar Þór Sigurgeirsson
77. mín
InnIngimundur Aron Guðnason
ÚtAdam Árni Róbertsson
76. mín
Gísli Eyjólfsson er að hlaða í skot fyrir utan teig þegar Kian kemst fyrir með glæsilegri tæklingu. Það er sótt á báða bóga þessar mínútur.
75. mín
Stuðningsmenn Keflavíkur (heita þeir enn Puma sveitin?) fara að láta í sér heyra en Græna pandan er háværari. Alvöru bikarstemning í Kópavogi!
72. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtGuðjón Pétur Lýðsson
72. mín
Það var Kian Williams en ekki Gibbs sem skoraði áðan. Williams er Englendingur sem var hjá Magna í fyrra.
68. mín
Það hefur verið rosalegur kraftur í Keflvíkingum hérna í seinni hálfleik! Þeir eru fullir sjálfstrausts! Eiga hrós skilið. Eru í þessum skrifuðu orðum að vinna hornspyrnu.
66. mín
Adam gefur á Rúnar sem nær lágri fyrirgjöf frá vinstri og Englendingurinn Kian Williams er grimmastur í teignum og klárar af stuttu færi. Stingur sér á undan Róberti.
MAAAARK!
Kian Paul James Williams (stoðsending: Rúnar Þór Sigurgeirsson )
KEFLAVÍK KEMST YFIR! ÞAÐ ERU SENUR Á KÓPAVOGSVELLI!Adam gefur á Rúnar sem nær lágri fyrirgjöf frá vinstri og Englendingurinn Kian Williams er grimmastur í teignum og klárar af stuttu færi. Stingur sér á undan Róberti.
66. mín
TVÖFÖLD FRÁ SINDRA!!!
Fyrst Mikkelsen með skot og svo fylgir Gaui eftir með skalla. Sindri ver í bæði skiptin. Þarna var gott tækifæri fyrir Blika til að endurheimta forystuna.
Fyrst Mikkelsen með skot og svo fylgir Gaui eftir með skalla. Sindri ver í bæði skiptin. Þarna var gott tækifæri fyrir Blika til að endurheimta forystuna.
63. mín
Gult spjald
Josep Arthur Gibbs
Pirraður út í dómarann og grýtir boltanum öskrandi í jörðina. Gult á það.62. mín
InnThomas Mikkelsen
ÚtStefán Ingi Sigurðarson
61. mín
Já skýr skilaboð frá Óskari sem hendir inn kanónum af bekknum.
60. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtViktor Örn Margeirsson
60. mín
InnAndri Rafn Yeoman
ÚtDavíð Ingvarsson
60. mín
InnDamir Muminovic
ÚtArnar Sveinn Geirsson
Þreföld skipting hjá Blix.
56. mín
Óskar Hrafn ætlar að fara að nota stjörnunar á bekknum. Höskuldur Gunnlaugsson að búa sig undir að koma inn.
55. mín
Heldur betur áhugaverður leikur í gangi hér í Kópavoginum.
Það eru fleiri áhugaverðir leikir í heiminum. Stuðningsmenn Liverpool í stúkunni duglegir að kíkja á símann sinn þó þeirra menn séu ekki í eldlínunni!
Það eru fleiri áhugaverðir leikir í heiminum. Stuðningsmenn Liverpool í stúkunni duglegir að kíkja á símann sinn þó þeirra menn séu ekki í eldlínunni!
50. mín
Boltinn tók góðan snúning og fór inn við fjærstöngina! Anton Ari í marki Breiðablik leit ekki vel út þarna. Arnar Sveinn var við nærstöngina en beygði sig!
MAAAARK!
Rúnar Þór Sigurgeirsson
BAKVÖRÐURINN SKORAR BEINT ÚR HORNSPYRNU!Boltinn tók góðan snúning og fór inn við fjærstöngina! Anton Ari í marki Breiðablik leit ekki vel út þarna. Arnar Sveinn var við nærstöngina en beygði sig!
48. mín
Blikar með flotta sókn en Gísli Eyjólfsson flækir hlutina fullmikið og þetta rennur út í sand.
47. mín
Brynjólfur Andersen Willumsson er ekki í hóp hjá Blikum í kvöld. Hann tekur út leikbann eftir rautt spjald sem hann fékk í bikarúrslitum 2. flokks í fyrra.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
45. mín
Hvenær verður dregið í 16-liða úrslit bikarsins?
Það verður annað kvöld í beinni á Stöð 2 Sport þegar Mjólkurmörkin sívinsælu verða á dagskrá. Henry Birgir sér um dráttinn.
Það verður annað kvöld í beinni á Stöð 2 Sport þegar Mjólkurmörkin sívinsælu verða á dagskrá. Henry Birgir sér um dráttinn.
45. mín
Hálfleikur
Breiðablik verið mun betra liðið en aðeins eitt mark skilur liðin að! Það getur allt gerst í Mjólkurbikarnum.
45. mín
Kwame lék illilega á Adam, sendi á Kristin Steindórsson en skot hans framhjá.
44. mín
Áhugaverð tíðindi úr Ólafsvík: Víkingur Ó. 1-0 Víkingur R.
41. mín
Davíð Snær Jóhannsson, sem er feykilega spennandi leikmaður í Keflavíkurliðinu, með tvo flotta spretti í röð. Gestirnir að minna á sig.
36. mín
Keflavík fær hörkufæri!!! Kian Williams er í baráttunni á fjærstönginni eftir fyrirgjöf en nær ekki að koma boltanum á rammann.
32. mín
Stefán Ingi, sóknarmaðurinn ungi, stangar boltann inn af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Kwame Quee frá hægri! Eðal fyrirgjöf frá Kwame.
MAAAARK!
Stefán Ingi Sigurðarson (stoðsending: Kwame Quee)
BLIKAR NÁ VERÐSKULDAÐRI FORYSTU!Stefán Ingi, sóknarmaðurinn ungi, stangar boltann inn af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Kwame Quee frá hægri! Eðal fyrirgjöf frá Kwame.
31. mín
Davíð Ingvarsson með hornspyrnu sem lendir ofan á þversláni!
29. mín
Davíð Ingvarsson með skot af löngu færi, beint á Sindra. Blikar stjórna ferðinni.
28. mín
Oliver með háan bolta inn í teiginn. Viktor Margeirsson skallar yfir.
26. mín
Gaui Lýðs með hættulega sendingu inn í teiginn. Anton Freyr nær að bjarga í horn.
24. mín
Hættuleg hornspyrna frá Gauja Lýðs en Sindri nær að kýla knöttinn frá.
21. mín
Gult spjald
Sindri Þór Guðmundsson
Sindri fær réttilega gult fyrir að taka Davíð Ingvarsson niður. Davíð hafði leikið á Sindra og komist framhjá honum áður.19. mín
Róbert með fyrirgjöf. Kwame skallar framhjá.
17. mín
Kristinn Steindórsson með skot yfir markið. Lét vaða fyrir utan teig.
15. mín
Stefán Ingi og Kwame með fínan samleik en Keflavík nær að koma boltanum í burtu. Heimamenn mun meira með boltann. Ekkert óvænt þar.
13. mín
Gult spjald
Frans Elvarsson
Braut á Gísla Eyjólfs sem þurfti aðhlynningu en heldur leik áfram.8. mín
MARK!!! Nei aðstoðardómarinn flaggar. Rangstaða!
Blikar héldu að þeir væru að komast yfir þegar Guðjón Pétur Lýðsson skaut boltanum í hornið. Svo fór flaggið á loft.
Stefán Ingi Sigurðarson er talinn hafa verið rangstæður og hindrað útsýni Sindra markvarðar Keflavíkur þegar Guðjón skaut. Umdeildur dómur.
Blikar héldu að þeir væru að komast yfir þegar Guðjón Pétur Lýðsson skaut boltanum í hornið. Svo fór flaggið á loft.
Stefán Ingi Sigurðarson er talinn hafa verið rangstæður og hindrað útsýni Sindra markvarðar Keflavíkur þegar Guðjón skaut. Umdeildur dómur.
6. mín
Bæði lið hafa átt fínar hornspyrnur hér í upphafi en ekki komið skot á mark.
3. mín
Græna pandan er mætt og lætur vel í sér heyra hér í upphafi leiks. Trommur og stuð.
2. mín
Arnar Sveinn Geirsson er með Viktori Margeirssyni og Róberti Orra í þriggja miðvarða línu Breiðabliks. Stefán Ingi er fremsti maður.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað. Breiðablik sækir í átt að Sporthúsinu í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Oliver Sigurjónsson er með fyrirliðabandið hjá Breiðabliki í kvöld. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson er meðal varamanna að þessu sinni. Fær hvíld.
Fyrir leik
Fór og verslaði hamborgara í sjoppunni. Hitti þar meðlim úr aðdáendahópi spænska varnarmannsins Nacho Heras. Nacho kom til Keflavíkur frá Leikni og hefur miðvörðurinn verið öflugur við markaskorun í búningi Keflavíkur, skoraði þrennu í bikarleik á dögunum og skoraði gegn Aftureldingu í Lengjudeildinni.
Fyrir leik
Elías Ingi Árnason dæmir leikinn í kvöld. Elli var gríðarlega öflugur útvarpsmaður á KissFM á sínum tíma og þá raðaði hann inn mörkum fyrir ÍR áður en dómgæslan var sett í forgang.
Andri Vigfússon og Kristján Már Ólafs eru með flöggin í kvöld en með skiltið er Arnar Ingi Ingvarsson.
Andri Vigfússon og Kristján Már Ólafs eru með flöggin í kvöld en með skiltið er Arnar Ingi Ingvarsson.
Fyrir leik
Í byrjunarliði Blika er einn leikmaður sem enn hefur ekki afrekað það að spila í Pepsi Max-deildinni. Það er Stefán Ingi Sigurðarson.
Stefán Ingi, sem fæddur er árið 2001, hefur verið lykilleikmaður í 2. og 3.flokks liðum Breiðabliks undanfarin ár. Stefán Ingi hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.
Stefán Ingi, sem fæddur er árið 2001, hefur verið lykilleikmaður í 2. og 3.flokks liðum Breiðabliks undanfarin ár. Stefán Ingi hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.
Óskar Hrafn Þorvaldsson nýtir breiddina í hópnum sínum. Damir Muminovic, Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Karl Einarsson og Thomas Mikkelsen byrja allir á bekknum hjá Blikum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson nýtir breiddina í hópnum sínum. Damir Muminovic, Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Karl Einarsson og Thomas Mikkelsen byrja allir á bekknum hjá Blikum.
Fyrir leik
Elfar Freyr Helgason, varnarmaður Breiðabliks, afplánar fyrsta leik sinn af þremur í banni frá bikarkeppni KSÍ. Hann mun fyrst fá að taka þátt í undanúrslitum í ár, ef Breiðablik nær að komast þangað.
Fyrir leik
Gott og gleðilegt kvöld! Velkomin með okkur á Kópavogsvöll þar sem Breiðablik og Keflavík eigast við í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Blikar eru búnir að vinna báða leiki sína í Pepsi Max-deildinni, gegn Gróttu og Fylki. Keflavík er með skemmtilegt lið sem spáð er góðu gengi í Lengjudeildinni og byrjaði tímabilið á 5-1 sigri gegn Aftureldingu.
Blikar eru búnir að vinna báða leiki sína í Pepsi Max-deildinni, gegn Gróttu og Fylki. Keflavík er með skemmtilegt lið sem spáð er góðu gengi í Lengjudeildinni og byrjaði tímabilið á 5-1 sigri gegn Aftureldingu.



