Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
1. deild karla
Leiknisvöllur
Skýjað
Leiknir R.
Leiknir R.
6 - 1
Höttur
Höttur
Ingólfur Örn Kristjánsson 12'1 - 0Ólafur Hrannar Kristjánsson 32'2 - 0Ólafur Hrannar Kristjánsson 37'3 - 043' Veljko BajkovicKjartan Andri Baldvinsson (víti) 43'4 - 055' Davíð EinarssonÓlafur Hrannar Kristjánsson (víti) 55'5 - 05 - 179' Óttar Steinn MagnússonFannar Þór Arnarsson 87'6 - 1
Dómari: Valdimar Pálsson
Fyrir leik
Heil og sæl!

Velkomin í beina textalýsingu frá Leiknisvelli í Breiðholti þar sem heimamenn taka á móti Hetti frá Egilsstöðum í 10. umferð 1. deildar karla.

Leiknir þarf nauðsynlega á sigri að halda en liðið hefur ollið miklum vonbrigðum og er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins sjö stig. Liðið tapaði 4-3 á útivelli fyrir BÍ/Bolungarvík í síðustu umferð.

Höttur er í áttunda sætinu með tíu stig svo Leiknir getur jafnað Hött að stigum með sigri í kvöld. Höttur tapaði illa fyrir Tindastóli í síðasta leik sínum 6-2.

Höttur er í markmannsleit eftir að Ryan Allsop fór frá liðinu. Allsop hafði verið besti leikmaður liðsins en í hans stað stóð hinn reynslulitli Bjarni Viðar Hólmarsson í markinu í síðasta leik og hann mun gera það aftur í kvöld.

Miðjumaðurinn Andri Steinn Birgisson hjá Leikni fór meiddur af velli snemma í síðasta leik og hann er ekki tilbúinn í slaginn í kvöld. Aron Fuego Daníelsson er einnig á meiðslalistanum.
Fyrir leik
Hægt er að sjá byrjunarlið beggja liða hér til hliðar. Aðeins fimm varamenn hjá Leikni vegna meiðsla auk þess sem 2. flokkur félagsins er staddur í keppnisferð í San Marínó.
Fyrir leik
Fyrst Aron Fuego er á meiðslalistanum hjá Leikni sér hann um að stýra vallartónlistinni í kvöld.

Við munum greina frá öllu því helsta sem í leiknum mun gerast. Aðstæður fjölmiðlamanna á Leiknisvelli eru ekki eins og best verður á kosið og því munu færslur ekki verða eins reglulegar og venja er.
1. mín
Leikurinn er hafinn - Það voru heimamenn sem byrjuðu með knöttinn.
5. mín
Fyrsta skot leiksins eiga heimamenn. Kristján Páll Jónsson með fína tilraun en í hliðarnetið fór boltinn.
10. mín
Fyrsta leik kvöldsins í 1. deildinni er lokið. Skástrikið vann ÍR 2-1.

Hér á Leiknisvelli eru heimamenn meira með boltann. Höttur liggur til baka.
Leiknir R.
12. mín
MAAAARK!

Ingólfur Örn Kristjánsson

Fyrsta skot á mark í þessum leik og boltinn er inni! Leiknir átti aukaspyrnu úti hægra megin, Fyrirliðinn Vigfús Arnar tók spyrnuna, renndi honum á Kristján Pál sem átti skot fyrir utan teig og skoraði. Markvörður Hattar átti að gera betur.
16. mín
Það er aðeins að bæta í vindinn hér á Leiknisvelli. Vindurinn kemur til hliðar.
23. mín
Mun meira bit í Leiknisliðinu. Gestirnir hafa ekkert ógnað og gengur erfiðlega að halda boltanum innan liðsins.
29. mín
Fyrsta hættulega sókn Hattar og hún var stórhættuleg! Leiknismenn náðu með naumindum að sparka boltanum í burtu.
Leiknir R.
32. mín
MAAAARK!

Ólafur Hrannar Kristjánsson

Leiknir kemst tveimur mörkum yfir! Eftir góða skyndisókn. Hilmar Árni með frábæra sendingu á Kristján Páll sem óð inn í teiginn og renndi boltanum á Óla sem skoraði auðveldlega.
35. mín
Aftur stórhættuleg skyndisókn Leiknis. Að þessu sinni endaði hún með því að Kristján Páll skaut yfir.
Leiknir R.
37. mín
MAAAARK!

Ólafur Hrannar Kristjánsson

Damir Muminovic með langa sendingu fram völlinn, Óli Hrannar hristi varnarmann af sér og slapp einn gegn markverðinum. Óli sendi boltann í gegnum klof markvarðarins og skoraði. Frábærlega gert.
40. mín
Kjartan Andri með fína aukaspyrnu sem Bjarni Viðar varði í horn.
Höttur
43. mín
Rautt spjald

Veljko Bajkovic

Bjarni brýtur á Ólafi Hrannari í teignum og dómarinn getur ekki annað en gefið rautt spjald.
Höttur
43. mín
InnAnton Loftsson
ÚtÞórarinn Máni Borgþórsson
Varamarkvörðurinn kemur inn. Þórarinn Máni þarf að víkja.
Leiknir R.
43. mín
Mark úr víti!

Kjartan Andri Baldvinsson

Kjartan Andri skorar af gríðarlegu öryggi úr vítinu. Einar Hjörleifs hefði ekki einu sinni varið þetta.
45. mín
Hálfleikur. Þessi leikur hefur verið einstefna.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn - Brekkan brött fyrir gestina enda manni færri. Það er morgunljóst að þeir fara tómhentir heim úr þessum leik.
Höttur
55. mín
Rautt spjald

Davíð Einarsson

Braut á Kristjáni Páli sem var sloppinn einn í gegn. Víti og rautt.
Leiknir R.
55. mín
Mark úr víti!

Ólafur Hrannar Kristjánsson

Ólafur skorar af öryggi úr vítinu og innsiglar þrennu sína! Hann er þar með orðinn markahæstur í deildinni.
Leiknir R.
60. mín
InnKolbeinn Kárason
ÚtStefán Jóhann Eggertsson
Leiknir R.
69. mín
InnBrynjar Hlöðversson
ÚtDamir Muminovic
73. mín
Leiknisliðið er komið í fyrsta gír og slakar bara á. Lítið í gangi nema langskot. Allir vilja komast á blað.
Höttur
79. mín
MAAAARK!

Óttar Steinn Magnússon

Leiknismenn orðnir full kærulausir og Hattarmenn hafa verið betri síðan þeir misstu annan mann af velli! Óttar Steinn skoraði með góðu skoti frá enda vítateigsins,
Leiknir R.
87. mín
MAAAARK!

Fannar Þór Arnarsson

Markvörður Hattar missti boltann frá sér. Fannar nýtti sér það og skoraði auðveldlega.
93. mín
Leik lokið - Öruggur sigur Leiknis sem færist þar með upp úr fallsæti á markatölu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.