Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KA
KA
Pepsi Max-deild karla
Greifavöllurinn
4°C, norðanátt og úrkoma á köflum.
1 - 1
HK
HK
0 - 114' Arnþór Ari AtlasonAlmarr Ormarsson 80'1 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Jafntefliskóngarnir áfram taplausir á heimavelli

Hvað réði úrslitum?

Það var ekki mikið um opin marktækifæri í leiknum í dag. HK skoraði eftir frábæra fyrirgjöf og Almarr skoraði stórkostlegt mark með vinstri fyrir utan teig. Nökkvi Þeyr fékk langbesta færi leiksins en þá er það svona að mestu upptalið - fyrir utan kannski hornspyrnur HK. Sanngjörn úrslit miðað við þróun leiksins.

Bestu leikmenn

1. Hörður Árnason (HK)

Gull af fyrirgjöf í marki HK, traustur varnarlega og átti svo skalla sem var nálægt því að fara í netið.

2. Almarr Ormarsson (KA)

Vinstri fóturinn skilar þessu vali, frábært mark. Fannst Birnir Snær, Sveinn Margeir, Ásgeir Marteins og Gummi Júl næstir á blaði.

Atvikið

Jöfnunarmarkið. Almarr smellhitti boltann með vinstri fæti og óverjandi fyrir Arnar Frey í marki HK. 'Ég er með ágæta vinstri löpp en yfirleitt ekki svona góða' sagði Almarr í viðtali eftir leik.

Hvað þýða úrslitin?

Tíunda jafntefi KA í sumar og liðið taplaust á heimavelli í rúma fimmtán mánuði. Það vantar að ná inn sigrum eins og allir KA-menn gera sér grein fyrir. HK siglir lygnan sjó með þremur stigum meira en KA og hefur leikið leik meira.

Vondur dagur

Úff þetta er svona ef og hefði dæmi. Nökkvi Þeyr getur verið feginn að Almarr skoraði eftir að Nökkvi klúðraði algjöru dauðafæri skömmu áður.

Dómarinn - 9

Vel dæmdur leikur. Eina atvikið er í rauninni þegar Valgeir fær spjald. Ég heyrði ekki í flautunni áður en Valgeir sparkaði boltanum í burtu en mögulega er spjaldið fyrir að fá boltann í höndina.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.