Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Leiknir R.
Leiknir R.
1. deild
Leiknisvöllur
Vindasamt
1 - 5
Þór
Þór
Damir Muminovic (víti) 14'1 - 01 - 124' Janez Vrenko1 - 250' Jóhann Helgi Hannesson1 - 364' Sveinn Elías Jónsson 1 - 471' Ármann Pétur Ævarsson (víti)1 - 588' Halldór Orri Hjaltason
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Fyrir leik
Heil og sæl! Hér verður bein textalýsing frá síðasta leik 12. umferðar 1. deildar karla. Leiknir tekur á móti Þór. Leiknismenn sitja í neðsta sæti deildarinnar en komast upp í níunda sæti takist þeim að vinna leikinn. Þór er í sjönda sæti og fer upp í fjórða sæti með sigri en liðið á leiki inni vegna þátttöku í Evrópudeildinni.
Fyrir leik
Í marki Leiknis í dag er Ásgeir Þór Magnússon þar sem Eyjólfur Tómasson er í banni. Ásgeir gekk í raðir Leiknis fyrir helgi á lánssamningi frá Val en Ásgeir þekkir vel til í Breiðholtinu enda er Leiknir hans uppeldisfélag. Reynsluboltinn Gunnar Einarsson er meiddur, með klemmda taug, og er ekki með Leikni í dag.
Fyrir leik
Svíinn Robin Strömberg er meðal varamanna hjá Þór í dag. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net ætla Þórsarar að senda hann heim í vikunni en hann hefur ekki náð að vinna sér inn sæti í liðinu.
Fyrir leik
Aron Fuego Daníelsson, vængmaður Leiknis, er meiddur en sér um tónlistarspilun á Leiknisvelli í staðinn. Partýstuð.
1. mín
Leikurinn er hafinn - Liðin gengu in á völlinn undir hljómi lagsins In the ghetto eins og venjan er í Breiðholtinu.
5. mín
Fyrsta skot leiksins á Pétur Már fyrir Leikni en yfir fór boltinn.
6. mín
Hættuleg sókn Þórs en Ásgeir Þór náði að verja skalla frá Jóhanni Helga.
Leiknir R.
14. mín
MAAAARK!

Damir Muminovic

Kristján Páll átti skot í slá og í kjölfarið var brotið á Óla Hrannari. Damir Muminovic fór á punktinn og skoraði.
17. mín
Vigfús Arnar með skot úr aukaspyrnu sem var naumlega varið. Leiknismenn betri.
Þór
24. mín
MAAAARK!

Janez Vrenko

í kjölfar aukaspyrnu jafnar Þór. Skalli frá Vrenko í hornið eftir fyrirgjöf.
33. mín
Eftir slæma byrjun eru Þórsarar að taka völdin. Jóhann Helgi með gott skot af löngu færi en Ásgeir varði vel í horn.
45. mín
Síðasta korter fyrri hálfleiks var afar rólegt og staðan er 1-1 þegar Valgeir Valgeirsson flautar til leikhlés hér í Breiðholti.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þór
50. mín
MAAAARK!

Jóhann Helgi Hannesson

Fannar tapaði boltanum kæruleysislega og Jóhann Helgi fékk boltann, var með opið skotfæri og skoraði.
60. mín
Þórsarar verið mikið betri. Eru líklegri til að bæta við en Leiknir að jafna.
Þór
64. mín
MAAAARK!

Sveinn Elías Jónsson

Leiknismenn að dóla og Sveinn hikaði ekkert og skaut við vítateigslínuna og skoraði. Fínt skot en Ásgeir átti að gera betur í markinu.
68. mín
Heimir Hallgrímsson er á vellinum: Leiknir getur varla sent þrjár sendingar milli sín. - Hárrétt hjá tannlækninum.
Leiknir R.
70. mín
Rautt spjald

Brynjar Hlöðversson

Var aftasti varnarmaður og braut af sér. Hárréttur dómur. Víti.
Þór
71. mín
MAAAARK!

Ármann Pétur Ævarsson

Sendi Ásgeir í rangt horn.
80. mín
Leiknismenn hafa lagt árar í bát. Þórsarar með öll tök á vellinum.
Þór
88. mín
MAAAARK!

Halldór Orri Hjaltason

Skoraði með skalla eftir aukaspyrnu.
94. mín
Leik lokið
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.