SKÝRSLAN: Nýliðarnir höfðu betur gegn Íslandsmeisturunum
Hvað réði úrslitum?
Eigum við að fara í einhverjar klisjur? Vildu Leiknismenn þetta meira en Valsmenn í dag? Leiknir sýndu þolinmæði, þrautseigju og virkilega agaðan leik sem skilaði sér loks á 81. mínútu leiksins.
Bestu leikmenn
1. Manga Escobar
Ekki bara það að hann hafi skorað sigurmarkið í leiknum þá var hann virkilega vinnusamur og reyndist varnarmönnum Vals virkilega erfiður.
2. Emil Berger
Frábær á miðjunni hjá Leikni í dag. Bæði varnar og sóknarlega. Harður í horn að taka.
Atvikið
Eina mark leiksins var virkilega stórt atvik í leiknum. Það var fátt sem benti til þess að við fengjum mark í leikinn á þeim tímapunkti en ein skyndisókn Leiknismanna breytti því á ögurstundu. Frábær sprettur frá Manga sem gerði allt rétt og skilaði boltanum í netið.
Hvað þýða úrslitin?
Valur heldur efsta sætinu þrátt fyrir tapið en er nú með einungis þriggja stiga forskot. Leiknir fer upp í 6. sætið með sigrinum. Nýliðarnir eru komnir með 21 stig.
Vondur dagur
Útileikmenn Vals áttu heilt yfir ekki góðan leik í dag. Þá sérstaklega fremstu þrír, Guðmundur Andri, Tryggvi Hrafn og Patrick Pedersen sem komust aldrei í takt við leikinn.
Dómarinn - 7
Getur gengið stoltur frá borði.



