Fotbolti.net
@thorgeirleoÞorgeir Leó Gunnarsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Lengjudeild karla
Fagverksvöllurinn Varmá
Afturelding
Afturelding
1 - 3
Grindavík
Grindavík
Kári Steinn Hlífarsson 4'1 - 01 - 135' Viktor Guðberg Hauksson 1 - 240' Viktor Guðberg Hauksson 1 - 383' Josip Zeba
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Grindavík gerði góða ferð í Mosfellsbæ

Hvað réði úrslitum?

Grindavík nýtti færin sín betur og voru heilt yfir sterkari aðilinn. Heimamenn byrjuðu vel en eftir það vantaði örlítinn kraft og klókindi á síðasta þriðjung. Sanngjarn sigur á heildina litið.

Bestu leikmenn

1. Viktor Guðberg Hauksson

Flottur leikur og tvö mörk! Va óheppinn að ná ekki þrennunni í dag.

2. Tiago Fernandes

Skemmtilegur á boltann og góður 1 vs 1. Gaman að fylgjast með honum spila! Fín frammistaða.

Atvikið

Rauða spjaldið. Tanis með vont úthlaup og brýtur svo klauflega af sér. Seinna gula á loft og hann kominn í bann. Leikurinn var búinn þarna.

Hvað þýða úrslitin?

Þessi úrslit þýða lítið nema það að Grindavík fer upp fyrir Aftureldingu í deildinni og tekur 7.sætið.

Vondur dagur

Tanis markvörður Aftureldingar fær þetta. Tvö glórulaus gul spjöld og verður hann í banni í næsta leik gegn Gróttu. Það jákvæða er að Arnar Daði, ungur markvörður Aftureldingar, fær tækifærið en hann kom vel inn í leikinn í dag.

Dómarinn - 8

Aðalbjörn dæmdi þetta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.